21 nóvember 2024

/

Úrskurður nr. 1136/2024


Hinn 21. nóvember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1136/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24100020

Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 2. október 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. ágúst 2024, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Móðir kæranda sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 31. október 2022. Með ákvörðunum, dags. 11. desember 2023, synjaði Útlendingastofnun móður kæranda og systur kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun staðfest af kærunefnd 23. febrúar 2024. Hinn 15. apríl 2024 barst kærunefnd beiðni móður kæranda um endurtekna umsókn og frestun réttaráhrifa. Beiðni móður kæranda var hafnað 8. júní 2024.

Móðir kæranda sótti um vernd fyrir kæranda 27. júní 2024. Móðir kæranda kom í viðtal fyrir hönd kæranda hjá Útlendingastofnun 10. júlí 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Móðir kæranda greindi frá því að hún væri í sambandi með föður kæranda og ætti bæði börn sín með honum. Móðir kæranda greindi frá því að kærandi hafi einungis nígerískan ríkisborgararétt. Kærandi hafi fæðst með op í hjarta sem þyrfti að skoða nánar við sex mánaða aldur en hún hafi ekki verið í neinni meðferð vegna þessa. Kærandi hafi orðið veik og dvalið tvær vikur á spítala þegar hún hafi verið eins mánaða og þar hafi opið í hjartanu komið í ljós. Þá hafi kærandi verið með kvef og flensu. Móðir kæranda greindi frá því að kærandi myndi ekki hafa aðgengi að læknismeðferð í heimaríki því það þyrfti að greiða fyrir hana. Móðir kæranda greindi frá því að líf kæranda yrði í hættu ef hún sneri til baka til heimaríkis. Kærandi yrði umskorin. Í ættbálki móður kæranda séu konur umskornar þegar þær eignist fyrsta barnið sitt. Samkvæmt hefð ættbálks föður kæranda, sem myndi gilda um hana, séu börn umskorin við fæðingu. Foreldrar kæranda séu á móti því að kærandi verði umskorin en þau hafi enga rödd og foreldrar þeirra myndu þvinga þau til að láta umskera kæranda. Foreldrar föður kæranda vilji að kærandi yrði umskorin. Lögreglan geti ekkert gert því að þetta sé hefð. Móðir kæranda hafi misst systur sína vegna afleiðinga slíkrar aðgerðar. Móðir kæranda kvað þau foreldrana ekki geta verndað kæranda og staðið í vegi fyrir að hún verði umskorin þar sem þetta sé hefð og þau fái ekkert að segja um það. Móðir kæranda greindi frá því að hún myndi ekki geta staðið í vegi fyrir umskurði kæranda því annars yrði fjölskyldan fyrir útskúfun. Móðir kæranda yrði einnig umskorin. Kærandi og fjölskylda hennar hafi ekki kost á að búa annars staðar í Nígeríu vegna óöryggis. Líf kæranda yrði í hættu í Nígeríu og hún eigi á hættu að þola sömu þjáningar og móðir sín. Móðir kæranda greindi frá því að eiga móður og tvö systkini í Nígeríu. Móðir kæranda kvað kæranda ekki geta gengið í skóla í Nígeríu af því að þau hafi ekki efni á að senda hana í skóla. Móðir kæranda greindi frá því að hvorki hún né faðir kæranda geti séð fyrir kæranda í Nígeríu því að þau eigi ekki peninga og það sé enga vinnu að fá því þau séu ómenntuð, en þau geti mögulega unnið við búskap. Móðir kæranda greindi frá því að hafa búið á Ítalíu í 11 ár en þar hafi ekki verið neina vinnu að fá. Dvalarleyfi hennar á Ítalíu sé útrunnið og þó það sé möguleiki á að endurnýja það, taki það langan tíma.

Með ákvörðun, dags. 17. ágúst 2024, synjaði Útlendingastofnun kæranda um um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 2. október 2024. Greinargerð barst kærunefnd 16. október 2024.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi fæðst hér á landi [...]. Kærandi hafi fæðst fremur máttfarin og grunur verið uppi um mögulegan hjartagalla en gert sé ráð fyrir því að lagt verði endanlegt mat á það við sex mánaða aldur barnsins. Kærandi hafi verið undir eftirliti á Landspítala og á heilsugæslunni [...]. Mikilvægt sé að kærandi fái að halda áfram læknismeðferð og eftirliti lækna hér á landi, en ekki sé öruggt að hún geti fengið nauðsynlega þjónustu í Nígeríu.

Móðir kæranda komi frá héraðinu […] í Edo-fylki í Nígeríu þar sem amma kæranda sé búsett í litlu smáþorpi. Nettenging sé stopul og símasamband lélegt. Í héraðinu séu karlmenn höfuð fjölskyldna og konur séu háðar þeim. Á svæðinu séu skipulögð og þvinguð hjónabönd algeng og viðurkennd, jafnvel þegar konur séu á táningsaldri. Móðir kæranda hafi ekki verið búsett í Nígeríu í rúm þrettán ár, eða síðan hún hafi flúið þaðan 16 ára gömul til Ítalíu og hafi verið blekkt af mansalshring til þess að stunda þar vændi. Hún hafi náð að komast úr þeim aðstæðum nokkrum árum síðar og hafi kynnst föður kæranda á Ítalíu. Í Nígeríu eigi móðir kæranda ekki mikið bakland og þó amma kæranda búi þar enn sé óvíst hvaða aðstæður bíði móður kæranda og hvort að hún geti treyst á einhverskonar stuðning. Í heimahéraði móður kæranda sé skylt að ungar konur sæti umskurði eða kynfæralimlestingum. Bæði föður- og móðuramma kæranda séu fylgjandi slíkum umskurði og muni leggja áherslu á að kærandi og systir hennar sæti slíkri aðgerð. Yfirgnæfandi líkur séu á því að kærandi verði umskorin eða ella hljóti hún refsingu og útskúfun úr samfélaginu. Dæmi séu um að konur séu þvingaðar í slíkar aðgerðir. Móðir kæranda hafi misst systur sína vegna afleiðinga slíkrar aðgerðar. Móðir kæranda hafi ekki kost á að búa annars staðar í Nígeríu með kæranda og systur hennar og muni ekki njóta neinnar verndar annarsstaðar í skjóli þjóðflokks eða bræðralags líkt og nauðsynlegt sé í landinu, einkum fyrir konur í þeirri stöðu sem kærandi sé. Móðir kæranda sé á móti umskurði en hún og faðir kæranda myndu ekki standa í vegi fyrir umskurði á dætrum sínum ef krafa komi um það frá samfélaginu sem þau tilheyri í Nígeríu. Móðir kæranda geti ekki hætt á útskúfun í samfélaginu. Afstaða móður kæranda sé sú að um sé að ræða hefð og menningararf í samfélaginu sem hún tilheyri í Nígeríu sem þurfi að fylgja hvort sem henni líki betur eða verr.

Kærandi byggir á því að það muni valda henni óafturkræfum skaða verði þeim ekki veitt dvalarleyfi hér á landi. Staða kvenna í Nígeríu sé ekki góð, sérstaklega einstæðra kvenna með lítið bakland eða stuðning ættbálka. Umskurðir ungra kvenna og barnungra stúlkna séu algengir og útbreiddir. Móðir kæranda komi frá fátæku héraði í miðri Nígeríu þar sem uppgangur múslímskra öfgahópa sé mikill og alvarlegur. Kærandi telji mikilvægt að litið sé til hagsmuna hennar í þessu sambandi. Margt bendi til þess að það kynni að hafa alvarleg áhrif á líf og heilsu kæranda ef hún yrði aðeins nokkurra mánaða gömul rifin upp úr því öryggi sem hún njóti hér á landi og gert að hverfa af landi brott ásamt móður sinni.

Glæpir og styrjaldir milli mismunandi hópa séu alvarlegt vandamál í heimaríki kæranda. Boko Haram sé alvarlegt vandamál í landinu og stundi hryðjuverkastarfsemi í nafni íslamska ríkisins. Móðir kæranda sé kristinnar trúar, en meirihluti landsmanna íslamstrúar. Það sé útbreitt vandamál í Nígeríu að stúlkubörnum sé rænt af Boko Haram samtökunum og systursamtökum þeirra. Mikið sé um leynileg glæpasamtök og bræðralög í Nígeríu og vísar kærandi til heimilda um starfsemi slíkra samtaka í Nígeríu. Kærandi vísar til landaupplýsinga máli sínu til stuðnings. Móðir kæranda óttist skipulagða glæpahópa og mansalshringi í Nígeríu og að dætrum hennar verði rænt og þær síðar meir þvingaðar í vændi.

Kærandi vísar til 2. mgr. 10. gr., 3. mgr. 25. gr. og 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga varðandi hagsmuni hennar. Þá vísar kærandi til gagna frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og UNICEF um aðstæður barna í Nígeríu. Komið hafi fram að móðir kæranda muni ekki standa í vegi fyrir því að kærandi sæti umskurði í Nígeríu af ótta við útskúfun og skömm sem hún og ættingjar hennar yrðu annars fyrir. Kærandi byggir á því að félagslegar og efnahagslegar aðstæður hennar yrðu ekki góðar í heimaríki. Móðir kæranda hafi takmarkað bakland og geti ekki reitt sig á stuðning fjölskyldumeðlima. Móðir kæranda óttist að hún og dætur hennar verði umskornar en konur geti átt umskurð yfir höfði sér langt fram á unglingsár og jafnvel fram á fullorðinsár.

Kærandi byggir á 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum og vísar til þess að heimildir um heimaríki kæranda bendi til þess að þrátt fyrir vilja yfirvalda til að bæta aðstæður kvenna í Nígeríu geti verið á brattann að sækja fyrir einstæðar konur þar í landi. Móðir kæranda sem sé þolandi mansals sé stödd hér á landi ásamt ungum stúlkubörnum. Ljóst sé að hún hafi takmarkað bakland í heimaríki og að aðstæður barna hennar séu óljósar m.a. með tilliti til framfærslu, framtíðarmöguleika, s.s. til náms og aðgengi að húsnæði.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi falli undir d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, en móðir kæranda sé auk þess þolandi mansals. Jafnframt tilheyri kærandi tilteknum þjóðfélagshópi vegna kyns síns og eigi á hættu að sæta kynfæralimlestinum og/eða öðru kynbundnu ofbeldi í Nígeríu. Móðir kæranda sé í takmörkuðu sambandi við fjölskyldu sína og geti ekki treyst á stuðning þeirra. Móðir kæranda muni eiga í vandræðum með að styðja og ala upp börn sín í heimaríki. Þá séu ákvæði a- til c- liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga uppfyllt þar sem nígerísk yfirvöld verndi ekki konur með lagasetningu og framfylgd laga og geti því ekki veitt kæranda vernd gegn ofsóknum. Rökstuddur grunur sé á því að kærandi þurfi að sæta kynfæralimlestingu verði henni gert að snúa til baka til heimaríkis. Vísað sé til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 307/2023 máli kæranda til stuðnings, en málavextir og aðstæður aðila séu svipuð og í máli kæranda.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Móðir kæranda og börn hennar séu í viðkvæmri stöðu og líta þurfi til þess skorts á öryggi sem þau muni búa við í heimaríki. Horfa þurfi til mannréttindabrota sem þar eigi sér stað og átaka á milli stjórnvalda og Boko Haram og ISIS. Raunhæf hætta sé á að kærandi láti lífið eða verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldi snúi hún til baka.

Það væri óraunhæfur og ósanngjarn kostur að ætlast til þess að móðir kæranda, kærandi og systir hennar setjist að annars staðar í Nígeríu.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að móðir hennar og systir hafi dvalið hér á landi í bráðum tvö ár. Á þeim tíma sem liðið hefur frá því móðir kæranda sótti um alþjóðlega vernd hér landi hafi hún og börn hennar myndað tengsl og njóti félagslegs stuðnings hér á landi. Mikilvægt sé að horfa til þeirra tengsla sem þær hafi byggt upp hér á landi. Þá beri að horfa til heilsu kæranda sem mikilvægt sé að fái áfram viðeigandi læknisþjónustu hér á landi og fái að vaxa og dafna. Þegar þessir þættir séu metnir heildstætt sé rétt að kæranda verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. og 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærandi telur að með endursendingu hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Einnig yrði brotið gegn samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum og samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi.

Kærandi lagði fram bréf frá lögmanni í heimaríki kæranda þar sem fram kemur að móðir kæranda hafi flúið heimaríki til að koma í veg fyrir að þurfa að þola kynfæralimlestingar sem séu samkvæmt venju í heimabæ kæranda framkvæmdar á kvenkynsfrumburðum þegar þær séu orðnar fullorðnar og óléttar af sínu fyrsta barni.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærunefnd telur ástæðu til að gera athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Í ákvörðun sinni vísar Útlendingastofnun til fjögurra úrskurða kærunefndar útlendingamála frá árunum 2020 og 2021 um landaupplýsingar og niðurstöður sem lagðar eru til grundvallar í máli kæranda nú. Þær ákvarðanir og úrskurðir sem hér er vísað í eru frá árunum 2020 og 2021 en ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda var birt í ágúst árið 2024. Mat á almennum aðstæðum skal fara fram þegar ákvörðun er tekin og hafa verður í huga að almennar aðstæður geta breyst hratt. Hafa slíkar tilvísanir því takmarkað gildi og undanskilja Útlendingastofnun ekki frá því að leggja sjálfstætt mat á aðstæður eins og þær eru þegar ákvörðun er tekin. Þá er rétt að benda á að mat sem byggt er á einstaklingsbundnum aðstæðum í máli getur ekki verið fordæmisgefandi í öðru máli þar sem aðstæður eru ólíkar. Eins og hér stendur sérstaklega á verður þó ekki talið að framangreindur annmarki hafi haft áhrif á efnislega niðurstöðu máls kæranda og er það mat kærunefndar að nefndin hafi með málsmeðferð sinni bætt úr honum og þykir því ekki ástæða til þess að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda af þessum sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

5.3 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi fæðst hér á landi 22. febrúar 2024 og að fyrir liggi að móðir kæranda hafi ríkisfang í Nígeríu og því teljist kærandi jafnframt hafa ríkisfang í Nígeríu samkvæmt c-lið 25. gr. III kafla nígerísku stjórnarskrárinnar. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé nígerískur ríkisborgari.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
  • 2016 Strategic Conflict Assessment of Nigeria (Institute for Peace and Conflict Resolution, 2017);
  • 2021 Country Report on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2023 Annual Report on Religious Freedom (U.S. Department of State, 26. júní 2024);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2021 (European Asylum Support Office, 28. júní 2022);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Nigeria (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual report on religious freedom (covering 2021) (USCIRF, apríl 2022);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, uppfært 20. maí 2022);
  • Asylum Information Database. Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 31. maí 2019);
  • Childs Rights Act Tracker (Partners West Africa Nigeria, https://www.partnersnigeria.org/childs-rights-law-tracker/ sótt 5. nóvember 2024);
  • Country Guidance: Nigeria – Common analysis and guidance note (EUAA, 19. október 2021);
  • Country of origin information report Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, 2021);
  • Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, október 2016);
  • Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, mars 2023;
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, ágúst 2024);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (FGM) (UK Home Office, júlí 2022);
  • Country Policy and Information Note- Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);
  • Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
  • DFAT Country Information Report - Nigeria (Austalian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
  • EASO COI Report – Nigeria - Actors of Protection (EASO, nóvember 2019);
  • EASO COI Report – Nigeria – Country Focus (EUAA, 4. júní 2017);
  • EASO COI Report – Nigeria – Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
  • EASO COI Report – Nigeria – Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO COI Report – Nigeria – Trafficking in human beings (EUAA, 25. apríl 2021);
  • EU-IOM Joint Initiative marks five years of supporting migrants and their communities across Africa (Neyðarsjóður Evrópusambandsins fyrir Afríku, frétt sótt af heimasíðu 5. nóvember 2024, https://ec.europa.eu/trustfundforafrica/all-news-and-stories/eu-iom-joint-initiative-marks-five-years-supporting-migrants-and-their_en);
  • Freedom in the World 2023 – Nigeria (Freedom House, 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Nigeria (Freedom House, 2024);
  • Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (Socialprotection.org, 7. febrúar 2019);
  • Information on trafficking including situation for returness of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • Medical Country of Origin Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
  • Nigeria: Country Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • Nigeria – Country Focus (European Union Agency for Asylum, júlí 2024);
  • Nigeria: Delstaten Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
  • Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 25. apríl 2019);
  • Nigeria: Psykisk helsevern (Landinfo, 23. júní 2017);
  • Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 Rome (EUAA, 21. ágúst 2017);
  • Nigeria: Security Situation – Country of Origin Information Report (EUAA, 3. júní 2021);
  • Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentaion Centre (RDC), 16. júní 2019);
  • Nigeria: Whether women who head their own household, without male or family support, can obtain housing and employment in Abuja, Lagos, Ibadan and Port Harcourt; government support services available to female-headed households (2017-November 2019) (Immigration and Refugee Board of Canada, 29. nóvember 2019);
  • Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
  • Responses to Information Requests (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. nóvember 2019);
  • The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
  • Social Institutions and Gender Index 2019 - Nigeria (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014.en.pdf);
  • The World Factbook – Nigeria (CIA, uppfært 23. október 2024);
  • Upplýsingar af vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (https://www.migrationjointinitiative.org/countries/sahel-and-lake-chad/nigeria, sótt 23. nóvember 2023);
  • Violent Extremist in West Africa (Denmark – Immigration Service, COI Division, 28. júní 2020);
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, janúar 2018);
  • Vest-Afrika: Nettverk (Landinfo, 15. maí 2019)
  • Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022) og
  • World Report 2024 – Nigeria (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Nígería er sambandslýðveldi með tæpa 231 milljón íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2021 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta, m.a. vegna takmarkana á réttindum þeirra til tjáningar og samkomu og einnig við að fá atvinnu hjá ríkinu.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023, að töluverð spilling sé innan dómkerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Council (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmanns í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórnar lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 kemur fram að sérstök viðbragðsdeild vegna kvartana yfir störfum lögreglu hafi unnið að því að byggja upp traust almennings til lögreglunnar. Deildin taki á móti kvörtunum vegna starfa lögreglunnar og auðveldi úrlausn slíkra mála. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérstakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2021 er öryggisástand landsins hvað verst í norðurhluta Nígeríu þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram ber ábyrgð á morðum mörg þúsund íbúa. Öryggisástand í norðurhluta og norðausturhluta Nígeríu hafi farið versnandi á árunum 2019 og 2020 og yfirvöld á viðkomandi svæðum geti einungis veitt takmarkaða vernd. Átök og árásir af hálfu hryðjuverkahópa hafi jafnframt átt sér stað í norðvesturhluta Nígeríu frá árinu 2019. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2021 hafa öryggissveitir Nígeríu sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að útrýma hættunni sem stafi af Boko Haram, en talið að til þess þurfi öryggissveitir landsins meiri mannafla, vopn, þjálfun og fjármagn. Yfirvöld hafi þó gripið til ýmissa aðgerða í þeim tilgangi að útrýma hryðjuverkahópnum, þ. á m. Boko Haram, en með takmörkuðum árangri.

Fram kemur í framangreindum gögnum að ofbeldi gegn börnum sé útbreitt í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Þá hafi yfirvöld samþykkt aðgerðaráætlun, National Strategy to End Child Marriage in Nigeria (2016-2021), með það að markmiði að útrýma barnahjónaböndum fyrir árið 2030. Jafnframt vinni yfirvöld hörðum höndum að aðgerðaráætlun sem feli m.a. í sér forvarnarstarf meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt árið 2003 lög um réttindi barnsins (e. The Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið lögfesti reglurnar heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis einnig að færa regluverkið í fylkislöggjöf svo löggjöfin taki gildi í hverju fylki. Samkvæmt vefsíðu Partners West Africa Nigeria hafa nú 34 af 36 fylkjum Nígeríu tekið lögin í gildi þ.á m. Edo fylki og Lagos fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu.

Samkvæmt framangreindum gögnum, þ. á m. skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá júlí 2022 og EUAA frá 2024, er umskurður á konum og stúlkubörnum útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengt sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-20%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurðar. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en öll fylki í Nígeríu nema Kano hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem móðir kæranda hafði búsetu. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega 8 þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmir umskurð á konum eða stúlkum. Fram kemur að í sumum tilvikum álíti lögreglan í Nígeríu umskurð kvenna vera einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við umskurði kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moskna, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þá sé afnám umskurðar eitt af markmiðum aðgerðaráætlunar til ársins 2030 um sjálfbærni (e. 2030 Agenda for Sustainable Development) sem samþykkt var árið 2015. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema umskurð kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.

Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2022 sætir ein af hverjum fjórum stúlkum í Nígeríu kynferðisofbeldi. Talið sé að tæplega eitt prósent gerenda kynferðisbrota, sem tilkynntir séu til lögreglu, endi á að verða leiddir fyrir dóm og nánast engin mál endi með sakfellingu þeirra. Þolendur treysti margir hverjir ekki réttarkerfinu í Nígeríu og tilkynni því ekki brotin. Algengara sé að málin séu leyst utan réttarkerfisins. Ástæðu þess megi m.a. rekja til þekkingarskorts þolenda á lögunum og réttindum sínum, auk þess sem samfélagsleg viðhorf réttlæti misnotkun, ofbeldi og skömm þolenda. Slíkt leiði til refsileysis gerenda. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Nigeria Health Watch skorti sálfræðinga og annað fagfólk til að styðja við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis í Nígeríu.

Í skýrslum utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna fyrir árin 2022 og 2023 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi alls lausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.

Í skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 og apríl 2022 kemur fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram kemur að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld, í samvinnu við alþjóðlög samtök og önnur ríki, þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo og skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í apríl 2022 hafi NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benín, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri og Markudi. Þá kemur fram í skýrslu frá EASO frá árinu 2021 að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. NAPTIP vinni með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði og andlegan stuðning. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP í einhverjum tilvikum fyrir aðkasti í samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoði við aðlögun að samfélaginu.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna um mansal frá apríl 2019 kemur fram að í ágúst 2017 hafi í Edo fylki verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi gegn mansali (e. Edo State task force against human trafficking (ETAHT)) sem leitt sé af dómsmálaráðherra fylkisins (e. State Attorney-General and Commissioner of Justice). Megin verkefni aðgerðarteymisins séu rannsókn og saksókn í mansalsmálum, forvarnir og vitundarvakning, aðstoð við þolendur með því að bjóða sálfræðiaðstoð, skammtíma og langtíma húsnæði, kennslu og þjálfun í iðngreinum og stuðningur og aðstoð við aðlögun þolenda sem snúa aftur heim. Þá vilji teymið vinna að því að uppræta rót vandans sem birtist í mansali og kynjamisrétti. Aðgerðarteymið sé byggt á þörfinni til að styrkja aðgerðir stjórnvalda og félagasamtaka í baráttunni gegn mansali í Nígeríu og nú hafi einnig verið komið á fót slíkum teymum í öðrum fylkjum s.s. Cross-river, Lagos, Ondo, Delta og Ekiti í samstarfi við UNODC og NAPTIP. Í gögnunum kemur þá fram að þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi vegna hefndaraðgerða þeirra aðila sem staðið hafi að baki mansalinu. Lögreglan í ríkinu hafi þá almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Samkvæmt skýrslu EASO frá apríl 2021 benda ýmsar heimildir til þess að mansalsgerendur einblíni frekar á að finna nýja þolendur mansals í stað þess að beita þolendur ofbeldi, sem enn standi í skuld við þá, þar sem þeir vilji síður draga að sér athygli lögregluyfirvalda í Nígeríu. Þrátt fyrir að dæmi séu um að fjölskyldur þolenda verði fyrir ofbeldi eða árásum af hálfu mansalsgerenda bendi heimildir til þess að slíkar hefndaraðgerðir séu sjaldgæfar samkvæmt framangreindri skýrslu EASO. Oft sé ástæðan sú að fjölskyldur þolenda komi að mansalinu sjálfu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2020 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stig sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu, m.a. mæðra- og ungbarnavernd, fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í dreifbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Samkvæmt vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutninga­stofnunarinnar (IOM) hafa stofnanirnar síðan árið 2017 staðið að átaki er lýtur að endursendingu fólks til Afríkuríkja, m.a. Nígeríu. Verkefnið geri fólki kleift að snúa til baka til heimaríkis á öruggan og virðulegan hátt. Stofnanirnar hafi í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir í Nígeríu, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking), veitt ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu. Í frétt á heimasíðu neyðarsjóðs Evrópusambandsins fyrir Afríku frá 16. desember 2021 kemur fram að verkefnið hafi aðstoðað um 106 þúsund manns við að snúa aftur til heimkynna sinna í Afríku á öruggan hátt.

Samkvæmt framangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exiles (ECRE) kemur fram að til að endurnýja dvalarleyfi sitt þar í landi þurfi að fylla út þar til gert eyðublað og senda það með bréfpósti en málsmeðferðin geti tekið allt upp í nokkra mánuði. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geti öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fái útgefin flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geti fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað varðar aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi. Í fyrrnefndri skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og viðbótarvernd á Ítalíu geti sótt um fjölskyldusameiningu. Þeir geti lagt fram umsókn um fjölskyldusameiningu í viðkomandi héraði þegar þeir hafa fengið útgefið dvalarleyfi. Þá sé enginn tímafrestur á því að leggja fram umsókn um fjölskyldusameiningu á Ítalíu. Ríkisborgarar þriðju ríkja þurfi almennt að uppfylla tiltekin skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu, þ. á m. sýna fram á lágmarks framfærslutekjur og húsnæði. Einstaklingar sem hlotið hafa réttarstöðu flóttamanns séu hins vegar undanþegnir þeim skilyrðum.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki á að verða fyrir kynfæralimlestingum eða öðru ofbeldi og mismunun verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis þar sem hún sé stúlka. Þá byggir hún á því að hún eigi á hættu ofsóknir vegna aðildar móðir hennar að tilteknum þjóðfélagshópi sem þolandi mansals og kærandi eigi á hættu að verða rænt og þvinguð í vændi af skipulögðum glæpahópum eða mansalshringjum í heimaríki. Jafnframt eigi kærandi á hættu ofsóknir vegna trúarbragða en hún og móðir hennar séu kristnar og eigi af þeim sökum á hættu að verða rænt af íslömsku samtökunum Boko Haram eða öðrum öfgatrúarhópum.

Í úrskurði kærunefndar nr. 163/2023 í máli móður kæranda og systur taldi kærunefnd ekki hægt að útiloka að móðir kæranda hafi á einhverjum tímapunkti verið þolandi mansals og vændis. Niðurstaða kærunefndar var sú að móðir kæranda ætti kost á því að leitað aðstoðar og verndar yfirvalda, hjá stofnuninni NAPTIP, aðgerðarteyminu ETHAT og lögreglu teldi hún þörf á því. Taldi kærunefnd að móðir kæranda hafi ekki leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir sem mætti rekja til þess að hún kynni að hafa verið þolandi mansals. Kærunefnd komst einnig að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að konur sæti almennt mismunun í Nígeríu og gætu talist til sérstaks þjóðfélagshóps í skilningi 38. gr. laga um útlendinga væri það mat nefndarinnar að sú mismunun næði ekki því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Var því ekki fallist á það að móðir og systir kæranda hefðu ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli kyns síns. Þá var það niðurstaða kærunefndar að almennt standi borgurum Nígeríu raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld gætu ekki eða vildu ekki veita móður og systur kæranda vernd teldu þær þörf á því m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Í úrskurði kærunefndar nr. 739/2024, er varðar endurtekna umsókn móður og systur kæranda, kemur m.a. fram að móðir kæranda kvaðst hafa verið þolandi mansals og óttist skipulagða glæpahópa og mansalshringi í heimaríki og að dætrum hennar yrði rænt og þær þvingaðar í vændi, og að móðir kæranda óttist mismunun á grundvelli þess að hún sé kristinnar trúar og meirihluti landsmanna í heimaríki séu íslamstrúar og dæmi sé um að samtök líkt og Boko Haram ræni stúlkubörnum. Niðurstaða kærunefndar var sú að móðir kæranda ætti kost á því að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, hjá stofnuninni NAPTIP, aðgerðarteyminu ETHAT og lögreglu teldi hún þörf á því. Taldi kærunefnd að móðir kæranda hafi ekki leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir sem mætti rekja til þess að hún kunni að hafa verið þolandi mansals. Þá væri ekkert í máli kæranda sem benti til þess að börn kæranda ættu á hættu að vera hneppt í mansal í heimaríki þeirra. Kærunefnd komst einnig að þeirri niðurstöðu að ekkert benti til þess að glæpasamtökin Boko Haram væru með virka starfsemi á heimasvæði móður kæranda. Í ljósi gagna og landaheimilda benti ekkert til þess að aðstæður í borginni Benín eða Edo, heimafylki móður kæranda, væru slíkar að móðir hennar og systir ættu á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til Nígeríu. Þá sé trúfrelsi verndað í stjórnarskrá Nígeríu. Að teknu tilliti til aðstæðna kæranda og með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki ástæðuríkan ótta við ofsóknir kyns síns eða trúar. Þá geti hún fengið vernd yfirvalda vegna almenns óöryggis s.s. vegna uppgangs glæpahópa eða annarra aðila telji hún, eða móðir hennar ástæða til þess.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 10. júlí 2024, greindi móðir kæranda frá því að þar sem kærandi sé stúlka þá séu miklar líkur á því að hún muni upplifa ýmis konar ofbeldi í heimaríki sínu, þ. á m. kynfæralimlestingu og kynferðislegt ofbeldi. Greindi hún frá því að það væri hefð fyrir því að stúlkur séu umskornar. Í hverju þorpi séu mismunandi hefðir hvað varðar umskurð og hefðin í þorpi föður kæranda myndi gilda um kæranda. Samkvæmt hefð í þorpi föður kæranda séu stúlkur umskornar við fæðingu. Móðir kæranda greindi frá því að hún sjálf yrði umskorin við komu til landsins auk barna hennar. Móðir kæranda hafi misst systur sína í slíkri aðgerð. Ömmur kæranda séu fylgjandi umskurði og hafi þrýst á að fjölskyldan kæmi til Nígeríu og að kærandi yrði umskorin. Foreldrar kæranda séu á móti umskurði en þau geti ekki komið í veg fyrir hann þar sem þetta sé hefð, foreldrar hefðu enga rödd og að þau muni líklega samþykkja umskurð vegna hættu á útskúfun úr samfélaginu.

Landaupplýsingar benda til þess að er umskurður á konum og stúlkubörnum sé útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengt sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-20%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurðar. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en öll fylki í Nígeríu nema Kano hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem foreldrar kæranda höfðu búsetu. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega 8 þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja fyrir framkvæmd umskurðar á konum eða stúlkum. Stofnuð hafi verið sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moskna, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þá sé afnám umskurðar eitt af markmiðum aðgerðaráætlunar til ársins 2030 um sjálfbærni (e. 2030 Agenda for Sustainable Development) sem samþykkt var árið 2015. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.

Í úrskurði kærunefndar nr. 163/2023 í máli móður og systur kæranda, kemur fram að kærunefnd hafi óskað eftir upplýsingum, með tölvubréfi dags. 12. febrúar 2024, um afstöðu móður kæranda til umskurðar kvenna. Í svari móður kæranda, dags. 13. febrúar 2024, greindi hún frá því að hún hafi sjálf ekki verið umskorin og hygðist ekki láta umskera börnin sín. Niðurstaða kærunefndar í ljósi afstöðu og framburðar móður kæranda var sú að ekki væri ástæða til að ætla að systir kæranda hefði ástæðuríkan ótta við að verða þolandi umskurðar í heimaríki sínu gegn vilja móður hennar. Af heimildum yrði ráðið að refsing lægi við umskurði kvenna og að slíkt væri nánast aldrei gert gegn vilja foreldra barns. Í úrskurði kærunefndar nr. 739/2024, er varðar endurtekna umsókn móður og systur kæranda, kemur fram að móðir kæranda óttist að hún og dætur hennar verði fyrir umskurði í heimaríki. Í úrskurðinum vísaði kærunefnd til þeirra heimilda sem fram hafi komið í úrskurði kærunefndar nr. 163/2023 og komst að þeirri niðurstöðu að með vísan til þeirra og afstöðu móður kæranda til umskurðar yrði ekki talið að móðir kæranda eða börn hennar, kærandi og systir hennar, hefðu ástæðuríkan ótta við að verða þolendur umskurðar í heimaríki. Líkt og fram hefur komið óskaði kærunefnd eftir afstöðu móður kæranda til umskurðar kvenna með tölvubréfi dags. 12. febrúar 2024. Í svari móður kæranda kom fram að hún hygðist ekki umskera börn sín. Þá má ráða af viðtali við móður kæranda hjá Útlendingastofnun, dags. 10. júlí 2024, að foreldrar kæranda séu á móti umskurði.

Með vísan til framangreinds, einkum afstöðu foreldra kæranda, framangreindra landaupplýsinga og heimilda um að refsing liggi við umskurði kvenna í heimaríki kæranda er það mat kærunefndar að ekkert bendi til þess að kærandi eigi á hættu kynfæralimlestingu í heimaríki gegn vilja foreldra sinna.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum kæranda var nægilega komið á framfæri með framburði móður kærenda, og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að kærandi fylgi móður sinni aftur til heimaríkis, eða Ítalíu þar sem faðir kæranda hefur hlotið viðbótarvernd. Af framangreindum landaupplýsingum verður ekki annað ráðið en að kærandi, systir hennar og móðir geti einnig sótt um fjölskyldusameiningu við föður kæranda á Ítalíu. Kærandi er í fylgd móður sinnar sem eru að mestu heilsuhraust og vinnufær og nýtur kærandi stuðnings hennar. Þá benda gögn ekki til annars en að fjölskyldan geti búið saman í heimaríki eða á Ítalíu með vísan til framangreindra heimilda. Eins og áður greinir stendur kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að kærandi muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda, þ.e. að hafa ekki komið til Nígeríu, komi einar og sér ekki í veg fyrir það að hún fylgi móður sinni til heimaríkis. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska kæranda er það kæranda fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.

Þegar frásögn móður kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi ber fyrir sig að hún, móðir hennar og systir séu í viðkvæmri stöðu og líta þurfi til þess skorts á öryggi sem þær muni búa við í heimaríki. Horfa þurfi til mannréttindabrota sem þar eigi sér stað og átaka á milli stjórnvalda og Boko Haram og ISIS. Raunhæf hætta sé á að kærandi láti lífið eða verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldi snúi hún til baka.

Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í Benín eða Edo fylki, þar sem móðir kæranda hafi verið fædd og búsett áður en hún flúði heimaríki, séu slíkar að kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði henni gert að snúa aftur til Nígeríu.

Þegar frásögn móður kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum móður kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda þar nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 10. júlí 2024, greindi móðir kæranda frá því að kærandi hafi fæðst með gat í hjartanu. Við sex mánaða aldur yrði það skoðað frekar til að sjá hvort að gat hafi lokast. Kærandi hafi ekki verið í neinni meðferð við þessu. Þá greindi móðir kæranda frá því að kærandi hafi veikst af flensu og kvefi og þegar hún hafi verið eins mánaða hafi hún fengið flensu og þurft að vera tvær vikur á spítala. Þá hafi gat á hjartanu komið í ljós. Móðir kæranda greindi frá því að kærandi myndi ekki hafa aðgang að læknisþjónustu í heimaríki þar sem greiða þyrfti fyrir hana. Móðir kæranda kvaðst ekki eiga neitt í Nígeríu og ekki hafa efni á að greiða fyrir læknisþjónustu. Í greinargerð kæranda til kærunefndar kemur fram að kærandi hafi átt við nokkur veikindi að stríða frá fæðingu og með mögulegan hjartagalla. Kærandi hafi verið undir eftirliti á Landsspítala og á Heilsugæslunni [...]. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vottorð frá Heilsugæslunni [...], dags. 23. ágúst 2024, þar sem fram kemur að kærandi hafi verið undir eftirliti heilsugæslunnar og að hún vaxi og dafni vel. Hinn 12. mars 2024 hafi kærandi verið skoðuð á Barnaspítalanum vegna öndunarfærasýkingar og þá hafi komið í ljós systólískt óhljóð. Kærandi hafi verið ómuð af nafngreindum hjartalækni þar sem fram hafi komið lítið ASD, [...], sem yrði skoðað á stofu við sex mánaða aldur. Með tölvubréfi, dags. 17. september 2024, barst Útlendingastofnun upplýsingar frá talsmanni um heilsufar kæranda. Þar kemur fram að kærandi hafi farið í skoðun hjá nafngreindum hjartalækni. Samkvæmt skoðun hans virðist allt orðið eðlilegt að mestu og að [...] hafi lokast. Kærandi hafi verið útskrifuð úr sérstöku eftirliti og gert væri ráð fyrir áframhaldandi hefðbundu eftirliti á heilsugæslu.

Af framburði móður kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hún geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hana verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Samkvæmt þeim heimildum sem kærunefnd hefur kynnt sér við meðferð málsins er öllum ríkisborgurum Nígeríu tryggður aðgangur að heilbrigðiskerfinu í landinu og er það mat kærunefndar að kærandi muni hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 10. júlí 2024, greindi móðir kæranda frá því að vera frá Edo héraði og að eiga móður og tvö systkini í Nígeríu. Móðir kæranda greindi frá því að kærandi gæti ekki farið í skóla í Nígeríu þar sem hún hefði ekki efni á að senda hana í skóla. Félagslegar og efnahagslegar aðstæður þeirra í heimaríki yrðu erfiðar. Faðir kæranda geti heldur ekki séð fyrir kæranda þar sem hann eigi engan pening. Foreldra kæranda geti ekki fengið vinnu í heimaríki vegna þess að þau séu ómenntuð. Mögulega gætu þau stundað búskap. Í úrskurði kærunefndar nr. 163/2023 kemur m.a. fram að móðir kæranda hafi verið búsett í [...], sem sé í 116 kílómetra fjarlægð frá borginni Benín. Af heimildum sem kærunefnd hafi kynnt sér mætti ráða að ótryggt ástand ríkti á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda en að svæðið sem móðir kæranda hafi verið búsett á teljist öruggt svæði. Þá horfði kærunefnd til þess að móðir kæranda eigi móður, tvö systkini og frænda í heimaríki og mætti ráða að samband þeirra væri gott. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum væri móðir kæranda að öðru leyti við góða heilsu og vinnufær og því ekkert sem benti til annars en að hún gæti framfleytt sér í heimaríki. Í úrskurði kærunefndar nr. 739/2024, vegna endurtekinnar umsóknar móður og systur kæranda, kemur fram að Edo fylki sé staðsett í suðurhluta Nígeríu og heimildir bendi ekki til þess að glæpasamtökin Boko Haram séu með virka starfsemi þar. Við meðferð máls kæranda hafa ekki verið lögð gögn um að aðstæður móður hennar hafi breyst í heimaríki frá uppkvaðningu úrskurðarins. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærandi að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn móður kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum móður kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 27. júní 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun

Kærandi fæddist hér á landi 22. febrúar 2024. og sótti um alþjóðlega vernd 27. júní 2024. Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar. Kæranda var ekki ákvarðað endurkomubann til landsins.

Móður kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 15. nóvember 2023, leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var móður kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Móðir kæranda kvaðst ekki hafa tengsl við lönd á Schengen-svæðinu. Móðir kæranda teldi brottvísun og endurkomubann gagnvart sér eða fjölskyldumeðlimum sínum ekki ósanngjarnar ráðstafanir.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem móðir kæranda gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kæranda eða nánustu aðstandenda hennar, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brot. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

Þorsteinn Gunnarsson


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir