10 desember 2024

/

Úkraína og Sýrland í brennidepli á síðasta norræna utanríkisráðherrafundi ársins

{image.Description}

Málefni Úkraínu, þróun mála í Sýrlandi og samskipti við Bandaríkin voru efst á baugi á fjarfundi norrænu utanríkisráðherranna sem fram fór í dag.  

Ráðherrarnir voru einhuga um mikilvægi þess að halda áfram dyggum stuðningi við Úkraínu sem nú hefur varist ólöglegu og blóðugu innrásarstríði Rússlands í meira en 1000 daga. Norðurlöndin hafa veitt Úkraínu stuðning á þessum tíma og er ríkur vilji hjá ríkjunum að honum verði framhaldið.  

Fall Assad-harðstjórnarinnar í Sýrlandi síðastliðna helgi var til umræðu á fundinum, en ráðherrarnir fylgjast náið með hvernig mál þróast þar á næstu misserum og hvort staðan komi til með að hafa áhrif á gang mála á Gaza og víðar.   

Ný ríkisstjórn Donald Trumps tekur við í Bandaríkjunum 20. janúar. Norrænu ráðherrarnir áréttuðu á fundinum mikilvægi þess að standa vörð um náið samstarf Norðurlandanna og Bandaríkjanna. 

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna starfa náið saman undir formerkjum N5 en í dag var síðasti fundur þeirra á formennskuári Svíþjóðar. Finnland tekur við formennsku í norræna utanríkismálasamstarfinu á næsta ári. 

María Mjöll Jónsdóttir, skrifstofustjóri alþjóðapólitískra málefna, sótti fundinn fyrir hönd Íslands í fjarveru Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.