18 desember 2024
/
Úrskurður nr. 1282/2024
Hinn 18. desember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 1282/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU24100163 og KNU24100164
Endurteknar umsóknir
[...], [...]og barns
I. Málsatvik
Hinn 17. október 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2024, um að taka umsóknir karlmanns að nafni [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir M), og konu að nafni [...]fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir K) og barns þeirra [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kærendum 18. október 2024.
Hinn 24. október 2024 bárust kærunefnd endurteknar umsóknir kærenda og beiðni um frestun réttaáhrifa en með úrskurði nr. 1206/2024, dags. 28. nóvember 2024 var beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hafnað. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust frá Útlendingastofnun og heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra 25. október 2024. Þá bárust upplýsingar frá Hafnarfjarðarbæ 28. október 2024. Frekari upplýsingar bárust frá heimferða- og fylgdadeildar Ríkislögreglustjóra, Útlendingastofnun og Hafnarfjarðarbæ 12. desember 2024.
Umsóknir kærenda byggja á 35. gr. a laga um útlendinga nr. 80/2016.
II. Málsástæður og rök kærenda
Í greinargerð kærenda kemur m.a. fram að K hafi undirgengist krabbameinsmeðferð sem leiða megi lýkur að því að óforsvaranlegt sé að rjúfa. Kærendur hafi boðað framlagningu frekari heilsufarsgagna við meðferð málsins hjá kærunefnd en þrátt fyrir það hafi nefndin úrskurðað í máli þeirra. Framlögð heilsufarsgögn beri með sér að K sé í lífsnauðsynlegri meðferð vegna brjóstakrabbameins með eitlameinvörpum og því sé flutningur ekki tækur á þessu stigi. Að mati kærenda er ekki einungis álitaefni hvort K geti hlotið meðferð í viðtökuríki heldur sé einfaldlega ekki tækt að flytja hana á þessu stigi. Þá sé afstaða heilbrigðisyfirvalda hér á landi í þversögn við afstöðu kærunefndar.
III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga skal endurtekinni umsókn vísað frá. Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn hans samkvæmt 24. gr. laganna.
Hinn 11. desember 2024 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra um skráningu kærenda í kerfi lögreglu, þ.e. hvort kærendur væru staddir hér á landi. Í svari heimferða- og fylgdadeildar, sem barst 12. desember 2024, kom fram að kærendur hefðu komið í viðtal vegna sjálfviljugrar heimferðar 3. desember 2024. Jafnframt kom fram í tölvubréfi frá Hafnarfjarðarbæ, dags. 12. desember 2024, að kærendur væru búsett í nánar tilgreindu búsetuúrræði í Hafnfarfirði og að K hefði sótt sér heilbrigðisþjónustu á Landspítalanum fyrr í vikunni. Í tölvubréfi Útlendingastofnunar, dags. 12. desember 2024, kom fram að samkvæmt skráningu Útlendingastofnunar væru kærendur stödd hér á landi. Með vísan til framangreindra upplýsinga eru kærendur og barn þeirra stödd á landinu og því fyrra skilyrði 35. gr. a laga um útlendinga uppfyllt.
Kærendur byggja endurteknar umsóknir sínar á því að ekki sé einungis álitaefni hvort K geti hlotið meðferð í viðtökuríki heldur sé einfaldlega ekki tækt að flytja hana á þessu stigi málsins vegna heilsufars hennar.
Í úrskurði kærunefndar í máli kærenda nr. 101/2024, dags. 17. október 2024, kom fram að M hafi dvalið í Perú frá árinu 2017 en K frá árinu 2018. Kærendur hafi verið með dvalarleyfi í Perú sem þau hafi þurft að endurnýja árlega. K hafi greinst með tvö æxli í vinstra brjósti og undirgengist aðgerð hér á landi 3. október 2024 þar sem æxli hafi verið fjarlægð og brjóstauppbygging framkvæmd. Þau heilsufarsgögn sem fylgdu með greinargerð kærenda í tilefni af endurteknum umsóknum þeirra hafa aðeins að geyma nýrri og ítarlegri upplýsingar um heilsufar K og eru einungis til fyllingar þeim upplýsingum sem lágu fyrir við meðferð máls kærenda hjá nefndinni. Af þeim upplýsingum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafar tímabundinna dvalarleyfa í Perú hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi.
Kærunefnd vísar jafnframt til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta um hæfilegan tíma framkvæmd ákvörðunar sem felur í sér að útlendingur skuli yfirgefa landið ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæmd ákvörðun að svo stöddu.
Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að skilyrði ákvæðis 35. gr. a laga um útlendinga, um að nýjar upplýsingar liggi fyrir í máli þeirra sem leiði til þess að sýnilega auknar líkur séu á að fallist verði á fyrri umsóknir þeirra samkvæmt 24. gr. laga um útlendinga, séu ekki uppfyllt í máli kærenda og barns þeirra. Ekki hafa komið fram upplýsingar í máli kærenda og barns þeirra sem breyta framangreindu mati kærunefndar.
Að framangreindu virtu er kröfu kærenda um endurteknar umsóknir vísað frá.
Úrskurðarorð:
Endurteknum umsóknum kærenda er vísað frá.
The appellants’ subsequent applications are dismissed.
F.h. kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður.