08 janúar 2025
/
Úrskurður nr. 16/2025
Hinn 8. janúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 16/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU24090134 og KNU24090135
Endurteknar umsóknir í málum
[…] og […] og barns
I. Málsatvik
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 413/2024, dags. 24. apríl 2024, staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 20. september 2023, um að synja […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir M), […], fd […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir K) og barni þeirra, […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Hinn 22. september 2024 bárust kærunefnd endurteknar umsóknir kærenda og barna þeirra ásamt fylgiskjölum. Þá bárust viðbótargögn og upplýsingar 30. október og 3. desember 2024.
Af greinargerð kærenda má ráða að umsóknir þeirra byggi á 35. gr. a laga um útlendinga nr. 80/2016.
II. Málsástæður og rök kærenda
Kærendur byggja endurteknar umsóknir sínar á því að nýjar upplýsingar hafi komið fram í máli þeirra. Nýverið hafi kærendur verið þátttakendur í mótmælum á Íslandi. Myndefni af þeim, í afmörkuðum og fámennum hópi, hafi verið sjónvarpað á ríkisrekinni sjónvarpsstöð í Venesúela þar sem innanríkis-, dómsmála- og friðarráðherra hafi úthrópað þau sem stuðningsmenn hryðjuverkamanna í beinni útsendingu fyrir framan venesúelsku þjóðina.
Kærendur séu stödd hér á landi og uppfylli því ótvírætt fyrra skilyrði 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga. Ljóst sé að kærendur séu andsnúin stjórnvöldum. Í öðru lagi sé einstaklingsbundin staða þeirra sem mótmælenda og stjórnarandstæðinga breytt frá því að kærunefnd útlendingamála lagði mat á aðstæður þeirra.
Að undanförnu hafi kærendur verið virk í hagsmunabaráttu Venesúelabúa, með því að sækja og skipuleggja mótmæli á vegum hópsins [...]. Þau hafi tekið þátt í mótmælum fyrir utan Hallgrímskirkju þann 29. júlí 2024 í kjölfar endurkjörs Maduro og í mótmælum 17. og 28. ágúst 2024 fyrir framan Hallgrímskirkju og í Keflavík. Ljósmynd og myndband af þátttöku kærenda hafi borist til venesúelskra fjölmiðla. Mannréttindasamtök hafi reiknað út fylgni milli birtingar stjórnarandstæðinga í umræddum þætti innanríkisráðherra og þvingunaraðgerða. Framangreint sé tilefni endurtekinnar umsóknar. Ljóst sé að kastljósi venseúelskra stjórnvalda hafi sérstaklega verið beint að kærendum í framangreindum sjónvarpsþætti og fjallað hafi verið um umræddan þátt í skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 17. september 2024. Þeir séu því útsettari en aðrir mótmælendum fyrir árásum, hótunum, handtöku og öðrum refsingum.
Kærendur byggja á því að útsending á myndefni af þeim á ríkisrekinni sjónvarpsstöð, í þætti innanríkisráðherra sem eigi sér fylgnisamband við þvingunaraðgerðir, leiði til þess að skilyrði 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga séu uppfyllt. Sýnilega auknar líkur séu á því að fallast verði á alþjóðlega vernd skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá séu sýnilega auknar líkur á því að fallist verði á viðbótarvernd skv. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Auknar líkur séu á að kærendur eigi í hættu á að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða ólögmætri frelsissviptingu sem varði við 1. og 2. mgr. 5. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 3. gr. sáttmála um bann við ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð. Einnig séu sýnilega auknar líkur á því að fallist verði á dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Almennar og félagslegar aðstæður kærenda hafi breyst til hins verra í Venesúela þar sem þau hafi nýlega verið auðkennd stjórnarandstæðingar fyrir framan venesúelsku þjóðina og valdamikill ráðherra sérstaklega tilgreint og fullyrt að þau séu hryðjuverkamenn. Fyrirsjáanlegt sé að borgaraleg réttindi þeirra séu orðin að engu en að auki megi þau búast við frekari erfiðleikum við að sækja grunnþjónustu, s.s. mataraðstoð sem sé ekki úthlutað til stjórnarandstæðinga. Kærendur telja þá brýnt að endurtaka mat undir meginregluna um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Kærendur lögðu fram myndband með ljósmynd af kærendum og myndband af mótmælum við Hallgrímskirkju og skjáskot af kynningu á samtökunum [...]. Þá lögðu kærendur fram skjáskot af frétt um frænda K sem sé þekktur blaðamaður í Venesúela. Í fréttinni kemur fram að hann hafi verið handtekinn í ágúst 2024 og sæti varðhaldi. Þá lögðu kærendur einnig fram skjáskot af umfjöllun um frænda K á samfélagsmiðlum.
Með viðbótarathugasemdum, sem bárust kærunefnd 30. október 2024, lögðu kærendur fram myndasafn af mótmælaþátttöku og birtingu á samfélagsmiðlum. Hins vegar fréttir um frænda K, fjölmiðlamann sem hafi verið handtekinn 3. ágúst 2024 og sakaður um hryðjuverk í Venesúela.
Með viðbótarathugasemdum, sem bárust kærunefnd 3. desember 2024, lögðu kærendur fram tvö fylgiskjöl. Kærendur greina frá því að fylgiskjölin séu annars vegar fyrirköll í sakamáli nafngreinds einstakling, X, sem hafi verið brottvísað frá Íslandi í október 2024. X hafi verið forsprakki mótmælendahópsins en sæti nú sakamálarannsókn hjá lögreglunni CICPC í Venesúela vegna gruns um hryðjuverk og föðurlandssvik. Hins vegar sé um að ræða fyrirkall sem hafi borist á heimili fjölskyldumeðlima eins nafngreinds mótmælenda, Y, í Venesúela, en Y sé staddur á Íslandi. Kærendur telja framangreind gögn styðja fyrri sjónarmið í greinargerð þeirra um að mótmælendur hafi vakið athygli stjórnvalda á samfélagsmiðlum og í venesúelskri sjónvarpsútsendingu. Huglægur ótti kærenda vegna stöðu þeirra sem stjórnarandstæðinga og mótmælenda sé því orðinn ástæðuríkari.
III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Beiðni um endurtekna umsókn á grundvelli 1.mgr. 35. gr. a laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga skal endurtekinni umsókn vísað frá. Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því fallist verði á fyrri umsókn hans samkvæmt 24. gr. laganna.
Ákvæði 35. gr. a laga um útlendinga kom nýtt inn í lög um útlendinga með lögum nr. 14 frá 27. mars 2023. Í ákvæðinu kemur jafnframt fram að ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gildi ekki um ákvarðanir í málum er varða alþjóðlega vernd. Í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 14/2023 kemur fram að mælikvarðann um ,,sýnilega auknar líkur“ verði að túlka með hliðsjón af því að líkur séu á því að önnur niðurstaða fáist í málið vegna upplýsinga sem ekki lágu fyrir við meðferð upphaflegrar umsóknar. Gerir orðalag ákvæðisins og útskýringar í greinargerð því ekki þá kröfu að fullvissa sé fyrir því að niðurstaðan verði önnur en í fyrri umsókn. Þá verður einnig að líta til þess að við mat á endurtekinni umsókn má oft útiloka að hinar nýju upplýsingar hafi áhrif á fyrri niðurstöðu.
Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurði í máli kærenda og A með úrskurði nr. 413/2024, dags. 24. apríl 2024. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og barn þeirra uppfylltu ekki skilyrði 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ættu þau því ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat kærunefndar að aðstæður kærenda og barns þeirra væru ekki með þeim hætti að veita bæri þeim dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga.
Kærendur byggja endurteknar umsóknir sína á því að myndefni af kærendum hafi verið sjónvarpað í beinni útsendingu í sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela. Þau hafi verið auðkennd sem mótmælendur og kölluð hryðjuverkamenn. Þær upplýsingar sem nú liggi fyrir sýni að einstaklingsbundin staða kærenda sem mótmælenda og stjórnarandstæðinga í Venesúela hafi breyst frá því að kærunefnd hafi lagt mat á aðstæður þeirra og nú séu því sýnilega auknar líkur á því að fallist verði á fyrri umsókn þeirra.
Kærendur hafa lagt fram myndband úr sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela og telja að hægt sé að bera kennsl á þau við mótmæli hér á landi í umræddu myndbandi. Kærendur telja að dreifing á upplýsingum um þátttöku þeirra í mótmælum í venesúelsku ríkisstjórninni geri þau að skotmarki yfirvalda. Myndefnið bendi til þess að sá sem hafi unnið það hafi farið yfir myndefnið og borið kennsl á tiltekna einstaklinga sem mætt hafi á mótmælin, þar á meðal kærendur. Nafn kærenda sé þó ekki komið í dreifingu. Kærunefnd hefur horft á tilvísaðan þátt innanríkisráðherra og kynnt sér efni hans. Í þættinum er fjallað um mótmæli víðsvegar um heiminn og stutt myndbrot eða stutt birting mynda sýnd af mótmælendum. Þátturinn ber það ekki með sér að verið sé að úthúða mótmælendum sem stuðningsmönnum hryðjuverkamanna heldur sé verið að benda á það hve fáir hafi mætt á þau mótmæli sem sýnd hafi verið frá í þættinum og virðist lítið úr þeim gert. Í þættinum eru mótmælendur ekki nafngreindir og ekki hvatt til sérstakra aðgerða gagnvart þeim einstaklingum er þar birtast. Þá kemur ekkert fram í þættinum sem bendir til þess að umræddir aðilar séu í sérstakri hættu á ofsóknum yfirvalda í Venesúela frekar en aðrir þeir þúsundir mótmælenda sem mótmælt hafa ríkjandi stjórnvöldum í landinu síðastliðin ár. Í umsókn kærenda um endurupptöku kemur fram að í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 17. september 2024 sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjórnarandstæðingum í umræddum þætti. Vísar kærunefnd til þess að í umræddri skýrslu er umfjöllun um sjónvarpsþáttinn í sambandi við svokallaða Tuntun aðgerð stjórnvalda í Venesúela. Í skýrslunni kemur fram að í þættinum hafi birst myndefni af handtökum vegna aðgerðarinnar, m.a. til að dreifa hræðsluáróðri og skapa skelfingu meðal íbúa landsins. Kærandi vísar jafnframt til skýrslu Amnesty International frá árinu 2022 þar sem fram komi að fylgni sé á milli birtinga í sjónvarpsþættinum og handtaka í kjölfarið. Í skýrslunni kemur fram að á tímabilinu 2019 til 2021 hafi verið fylgni á milli myndbirtinga í fjölmiðlum og handtaka og gæsluvarðhalds í Venesúela. Samkvæmt skýrslunni taka niðurstöður rannsóknarinnar til einstaklinga sem setið höfðu í gæsluvarðhaldi á fyrrnefndum árum og leiddi í ljós að um 65% þeirra höfðu á einhverjum tímapunkti verið teknir fyrir í fyrrnefndum sjónvarpsþætti ráðherra. Framangreind rannsókn og niðurstöður hennar staðfesta það þó ekki að allur sá fjöldi einstaklinga sem kemur fyrir í þættinum eigi í beinni hættu á að verða handteknir af þeim sökum eða eigi á hættu ofsóknir stjórnvalda í Venesúela.
Kærendur lögðu fram fréttir af aðila sem þau kveða vera frænda K og myndir af þátttöku þeirra í mótmælum. Þá hafa kærendur lagt fram afrit af skjölum sem þau kveða vera fyrirköll lögreglunnar CICPC í Venesúela til tveggja nafngreindra einstaklinga. Kærunefnd lítur til þess að framangreindar boðanir í skýrslutökur hjá lögreglunni beinast ekki gegn kærendum og þau hafi ekki fengið slíkar boðanir sjálf. Þá benda fréttir af þeim aðila sem K kveður frænda sinn til þess að hann hafi verið þekktur fjölmiðlamaður í heimaríki sem hafi verið virkur í umræðu gegn stjórnvöldum. Kærendur hafa ekki nefnt þann aðila áður eða minnst á að þau hafi orðið fyrir áreiti eða öðru vegna tengsla sinna við hann. Verður því ekki fallist á það með kærendum að framlögð gögn styðji við þá málsástæðu þeirra að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila í heimaríki þeirra á grundvelli stjórnmálaskoðana þeirra.
Það er því mat kærunefndar að framangreindar upplýsingar í máli kærenda og barns þeirra leiði ekki til þess að sýnilega auknar séu á því að fallist verði á fyrri umsóknir þeirra samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga og telur kærunefnd því skilyrði ákvæðis 35. gr. a laga um útlendinga ekki vera uppfyllt.
Að framangreindu virtu er endurteknum umsóknum kærenda og barns þeirra vísað frá.
Úrskurðarorð:
Endurteknum umsóknum kærenda og barns þeirra er vísað frá.
The appellants´ and their child’ subsequent applications are dismissed.
F.h. kærunefndar útlendingamála,
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir, settur nefndarmaður