21 janúar 2025

/

Úrskurður nr. 51/2025


Hinn 21. janúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 51/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU24090124

Endurteknar umsóknir

í máli […] og barns hennar

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 362/2024, dags. 11. apríl 2024, staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 23. og 24. janúar 2024, um að synja […], fd. […] (hér eftir kærandi), og barni hennar, […], fd. […] (hér eftir A), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir kæranda samdægurs og 18. apríl barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Kröfu kæranda var hafnað með úrskurði, dags. 6. maí 2024. Hinn 19. september 2024 bárust endurteknar umsóknir kæranda og A.

Kærandi byggir endurteknar umsóknir sínar og A á 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga.

II. Málsástæður og rök kærenda

Kærandi byggir endurteknar umsóknir sínar og A á því að kærandi hafi verið þátttakandi í mótmælum á Íslandi. Myndefni af henni, í afmörkuðum og fámennum hópi, hafi verið sjónvarpað á ríkisrekinni sjónvarpsstöð í Venesúela þar sem innanríkis-, dómsmála – og friðarráðherra hafi úthrópað hana sem stuðningsmann hryðjuverkamanna í beinni útsendingu fyrir framan venesúelsku þjóðina. Þá hafi heimili föður kæranda nýverið merkt með X-i í Venesúela. Faðir kæranda sé stjórnarandstæðingur og hafi nýlega þurft að flýja heimili sitt. Fréttir af merkingum sýni nokkur hús í nafngreindu hverfi, því vinsælasta í [...], sem hafi verð merkt með X. Markmið sé að hræða íbúa til að koma í veg fyrir að stórfelld mótmæli gegn ríkisstjórninni hefjist að nýju.

Kærandi og A séu staddar á landinu og uppfylli því ótvírætt fyrra skilyrði 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga. Að mati kæranda séu nýjar málsástæður og upplýsingar sem liggi fyrir í máli hennar og A sem auki líkur á að fallist verði á umsókn í máli þeirra. Í fyrsta lagi hafi birst myndefni af kæranda sem hafi verið sjónvarpað í beinni útsendingu í sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela. Mannréttindasamtök hafi reiknað út fylgni milli birtingar stjórnarandstæðinga í umræddum þætti innanríkisráðherra og þvingunaraðgerða. Í öðru lagi sé einstaklingsbundin staða kæranda sem mótmælenda og stjórnarandstæðinga í Venesúela breytt frá því að kærunefnd útlendingamála lagði mat á aðstæður kæranda og A. Séu skilyrði 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga því uppfyllt í málum kæranda og A.

Kærandi sé andsnúin stjórnvöldum í Venesúela. Að undanförnu hafi hún verið virk í hagsmunabaráttu Venesúelabúa m.a. með að sækja og skipuleggja mótmæli á vegum hópsins [...]. Ljósmynd og myndband af þátttöku kæranda í mótmælum á Íslandi 17. og 28. ágúst sl. hafi þannig borist í venesúelska fjölmiðla og útvarpað í framangreindum sjónvarpsþætti ráðherra. Að því er kærandi best veit hefur hún enn ekki verið nafngreind í fjölmiðlum en myndir af henni hafi birst víðsvegar og auðvelt sé að auðkenna kæranda af myndefninu. Jafnframt hafi sá sem hafi unnið sjónvarpsefnið talið þá einstaklinga sem birtist á myndinni, sem bendi til þess að rýnt hafi verið í myndina. Kærandi byggir á því að dreifing á upplýsingum um þátttöku hennar í mótmælum gegn venesúelsku ríkisstjórninni geri hana og A að skotmarki yfirvalda og hægt sé að auðkenna kæranda á myndefninu. Kærandi hafi augljóslega náð athygli stjórnvalda. Í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjórnarandstæðingum í umræddum þætti og þá vísar kærandi til frekari alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Kærandi byggir á því að útsending á myndefni af þeim á ríkisrekinni sjónvarpstöð, í þætti innanríkisáðherra sem eigi sér fylgnisamband við þvingunaraðgerðir, leiði til þess að skilyrði 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga séu uppfyllt. Sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á alþjóðlega vernd skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Löggjöf og aðgerðir stjórnvalda, lögreglu og dómstóla feli í sér mismunun að efni, enda einkum beint að stjórnarandstæðingum og brjóti markvisst og endurtekið á borgaralegum réttindum þeirra og meintar athafnir kæranda heyri undir sérlögsögu herdómstóla sem þverbrjóti réttindi sakborninga, sbr. b-, c- og d- liður 2. mgr. og e-lið 3. mgr 38. gr. laga um útlendinga. Þá séu sýnilega auknar líkur á því að fallist verði á viðbótarvernd skv. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Auknar líkur séu á að kærandi og A eigi á hættu á að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu vegna stjórnmálaskoðana, nú þegar stjórnvöld hafa auðkennt kæranda. Auknar líkur séu á ólögmætri frelsissviptingu sem varði við 1. og 2. mgr. 5. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 3. gr. sáttmála um bann við ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð. Einnig séu sýnilega auknar líkur á að fallist verði á dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Almennar og félagslegar aðstæður kæranda og A hafi breyst til hins verra í Venesúela þar sem kærandi hafi nýlega verið auðkennd stjórnarandstæðingur fyrir framan venesúelsku þjóðina og valdamikill ráðherra sérstaklega tilgreint og fullyrt að hún sé hryðjuverkamaður. Fyrirsjáanlegt sé að borgarleg réttindi kæranda og A séu orðin að engu en að auki megi þau búast við frekari erfiðleikum við að sækja grunnþjónustu, s.s. mataraðstoð sem sé ekki úthlutað til stjórnarandstæðinga. Kærandi telur þá brýnt að endurtaka mat undir meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Kærandi lagði fram myndband með ljósmynd af kæranda og myndbandi af mótmælum við Hallgrímskirkju, skjáskoti af kynningu á samtökunum [...] og ljósmyndir af heimili föður kæranda í Venesúela.

Með viðbótarathugasemdum, sem bárust kærunefnd 3. desember 2024, lagði kærandi fram tvö fylgiskjöl. Kærandi greinir frá því að fylgiskjölin séu annars vegar fyrirköll í sakamáli nafngreinds einstakling, X, sem hafi verið brottvísað frá Íslandi í október 2024. X hafi verið forsprakki mótmælendahópsins en sæti nú sakamálarannsókn hjá lögreglunni CICPC í Venesúela vegna gruns um hryðjuverk og föðurlandssvik. Hins vegar sé um að ræða fyrirkall sem hafi borist á heimili fjölskyldumeðlima eins nafngreinds mótmælenda, Y, í Venesúela, en Y sé staddur á Íslandi. Kærandi telji framangreind gögn styðja fyrri sjónarmið í greinargerð sinni um að mótmælendur hafi vakið athygli stjórnvalda á samfélagsmiðlum og í venesúelskri sjónvarpsútsendingu. Huglægur ótti kæranda vegna stöðu sinna sem stjórnarandstæðings og mótmælanda sé því orðin ástæðuríkari.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Endurtekin umsókn á grundvelli 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga skal endurtekinni umsókn vísað frá. Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því fallist verði á fyrri umsókn hans samkvæmt 24. gr. laganna.

Ákvæði 35. gr. a. laga um útlendinga kom nýtt inn í lög um útlendinga með lögum nr. 14 frá 27. mars 2023. Kveður ákvæðið á um að endurtekin umsókn skuli tekin til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í málinu sem leiða til að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn. Í ákvæðinu kemur jafnframt fram að ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gildi ekki um ákvarðanir í málum er varða alþjóðlega vernd. Í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 14/2023 kemur fram að mælikvarðann um ,,sýnilega auknar líkur“ verði að túlka með hliðsjón af því að líkur séu á því að önnur niðurstaða fáist í málið vegna upplýsinga sem ekki lágu fyrir við meðferð upphaflegrar umsóknar. Gerir orðalag ákvæðisins og útskýringar í greinargerð því ekki þá kröfu að fullvissa sé fyrir því að niðurstaðan verði önnur en í fyrri umsókn. Þá verður einnig að líta til þess að við mat á endurtekinni umsókn má oft útiloka að hinar nýju upplýsingar hafi áhrif á fyrri niðurstöðu.

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kærenda 11. apríl 2024. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að kærandi og A uppfylltu ekki skilyrði 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ættu því ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat kærunefndar að aðstæður kæranda og A væru ekki með þeim hætti að veita bæri þeim dvalarleyfi á grundelli 74. gr. laga um útlendinga.

Kærandi byggir endurtekna umsókn sína á því að myndefni af kæranda hafi verið sjónvarpað í beinni útsendingu í sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela. Kærandi hafi verið auðkennd sem mótmælandi og kölluð hryðjuverkamaður. Þær upplýsingar sem nú liggi fyrir sýni að einstaklingsbundin staða kæranda sem mótmælanda og stjórnarandstæðings í Venesúela hafi breyst frá því að kærunefnd hafi lagt mat á aðstæður kærand og A og að nú séu því sýnilega auknar líkur á því að fallist verði á fyrri umsókn þeirra.

Kærandi hefur lagt fram myndband úr sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela og telur að hægt sé að bera kennsl á hana við mótmæli hér á landi í umræddu myndbandi. Kærandi telur að dreifing á upplýsingum um þátttöku hennar í mótmælum í venesúelsku ríkisstjórninni geri hana að skotmarki yfirvalda. Myndefnið bendi til þess að sá sem hafi unnið það hafi farið yfir myndefnið og borið kennsl á tiltekna einstaklinga sem mætt hafi á mótmælin, þar á meðal kæranda. Nafn kæranda sé þó ekki komið í dreifingu. Kærunefnd hefur horft á tilvísaðan þátt innanríkisráðherra og kynnt sér efni hans. Í þættinum er fjallað um mótmæli víðsvegar um heiminn og stutt myndbrot eða stutt birting mynda sýnd af mótmælendum. Þátturinn ber það ekki með sér að verið sé að úthúða mótmælendum sem stuðningsmönnum hryðjuverkamanna heldur sé verið að benda á það hve fáir hafi mætt á þau mótmæli sem sýnt hafi verið frá í þættinum og virðist lítið úr þeim gert. Í þættinum eru mótmælendur ekki nafngreindir og ekki hvatt til sérstakra aðgerða gagnvart þeim einstaklingum er þar birtast. Þá kemur ekkert fram í þættinum sem bendir til þess að umræddir aðilar séu í sérstakri hættu á ofsóknum yfirvalda í Venesúela frekar en aðrir þeir þúsundir mótmælenda sem mótmælt hafa ríkjandi stjórnvöldum í landinu síðastliðin ár. Í umsókn kæranda um endurupptöku kemur fram að í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 17. september 2024 sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjórnarandstæðingum í umræddum þætti. Vísar kærunefnd til þess að í umræddri skýrslu er umfjöllun um sjónvarpsþáttinn í sambandi við svokallaða Tuntun aðgerð stjórnvalda í Venesúela. Í skýrslunni kemur fram að í þættinum hafi birst myndefni af handtökum vegna aðgerðarinnar, m.a. til að dreifa hræðsluáróðri og skapa skelfingu meðal íbúa landsins. Kærandi vísar jafnframt til skýrslu Amnesty International frá árinu 2022 þar sem fram komi að fylgni sé á milli birtinga í sjónvarpsþættinum og handtaka í kjölfarið. Í skýrslunni kemur fram að á tímabilinu 2019 til 2021 hafi verið fylgni á milli myndbirtinga í fjölmiðlum og handtaka og gæsluvarðhalds í Venesúela. Samkvæmt skýrslunni taka niðurstöður rannsóknarinnar til einstaklinga sem setið höfðu í gæsluvarðhaldi á fyrrnefndum árum og leiddi í ljós að um 65% þeirra höfðu á einhverjum tímapunkti verið teknir fyrir í fyrrnefndum sjónvarpsþætti ráðherra. Framangreind rannsókn og niðurstöður hennar staðfesta það þó ekki að allur sá fjöldi einstaklinga sem kemur fyrir í þættinum eigi í beinni hættu á að verða handteknir af þeim sökum eða eigi á hættu ofsóknir stjórnvalda í Venesúela.

Þá hefur kærandi lagt fram ljósmyndir sem hún kveður vera af heimili föður hennar í Venesúela. Faðir kæranda sé stjórnarandstæðingur og heimil hans hafi nýverið merkt með X-i og hann hafi þurft að flýja heimili sitt í Venesúela. Fréttir af merkingum sýni nokkur hús í nafngreindu hverfi, því vinsælasta í [...], sem hafi verið merkt með X. Markmið sé að hræða íbúa til að koma í veg fyrir að stórfelld mótmæli gegn ríkisstjórninni hefjist að nýju. Framlagðar myndir bera ekki með sér hvar eða hvenær þær séu teknar. Kærandi hefur ekki lagt fram neitt til staðfestingar á því að um hús föður hennar sé að ræða og ekki verður séð að húsin á myndinni hafi verið merkt með X. Hafa framangreindar myndir því lítið sönnunargildi hvað varðar málsástæður kæranda sem settar eru fram í beiðni hennar um endurupptöku.

Þá hefur kærandi lagt fram afrit af skjölum sem hún kveður vera fyrirköll lögreglunnar CICPC í Venesúela til tveggja nafngreindra einstaklinga. Kærunefnd lítur til þess að framangreindar boðanir í skýrslutökur hjá lögreglunni beinast ekki gegn kæranda og hún hefur ekki fengið slíkar boðanir sjálf. Verður því ekki fallist á það með kæranda að framlögð gögn styðji við þá málsástæðu hennar að kærandi og A hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda eða annara aðila í heimaríki þeirra á grundvelli stjórnmálaskoðana kæranda.

Það er því mat kærunefndar að framangreindar upplýsingar í máli kæranda og A leiði ekki til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsóknir þeirra samkvæmt 24. gr. laga um útlendinga og eru skilyrði ákvæðis 35. gr. a laga um útlendinga ekki uppfyllt.

Að framangreindu virtu er endurteknum umsóknum kæranda og A vísað frá.


Úrskurðarorð:

Endurteknum umsóknum kæranda og barns hennar er vísað frá.

The appellant´s and her child‘s subsequent application are dismissed.

F.h. kærunefndar útlendingamála,

Þorsteinn Gunnarsson, formaður