29 janúar 2025

/

Samráðsþing um landsáætlun: Eitt lífshlaup, ótal tengingar

{image.Description}

Eitt lífshlaup, ótal tengingar er yfirskrift opins samráðsþings um landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þingið verður haldið þann 20. febrúar 2025 kl. 9:00-12:00 á Grand hótel í Reykjavík. Þetta er þriðja samráðsþingið sem fram fer í tengslum við landsáætlunina.

Á þinginu í ár verður leitast við að kortleggja þjónustu við fatlað fólk í gegnum ævina og hvernig hægt er að koma á og styrkja tengingar á milli aðila. Þá verður farið yfir stöðu þeirra aðgerða sem hófust árið 2024 og vitundarvakningu ýtt úr vör um stöðu og réttindi fatlaðs fólks. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, flytur ávarp á þinginu.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir en þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir fram.

Ath. upphaflega var þingið auglýst frá kl. 13:00-16:00 á Hótel Natura en því hefur verið breytt.