18 febrúar 2025
/
Úrskurður nr. 143/2025
Hinn 18. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 143/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24070228
Afturköllun á úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 134/2025
1 Málsatvik og málsmeðferð
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 134/2025, dags. 14. febrúar 2025, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. júlí 2024, um að synja karlmanni að nafni [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), um vegabréfsáritun. Eftir skoðun á úrskurði kærunefndar nr. 134/2025 er ljóst að mistök hafi orðið hvað varðar heimfærslu til ákvæða í reglugerð um útlendinga nr. 795/2022. Í hinum afturkallaða úrskurði var ranglega vísað til ii. tölul. 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
2 Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er stjórnvaldi veitt heimild til að afturkalla ákvörðun sem tilkynnt hefur verið aðila máls ef slík afturköllun er ekki til tjóns fyrir aðila, sbr. 1. tölul. 25. gr. stjórnsýslulaga. Úrskurður kærunefndar um staðfestingu á ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun og afturköllun hennar mun ekki verða kæranda til tjóns.
Í ljósi framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að afturkalla úrskurð nefndarinnar í máli kæranda og taka mál hans til meðferðar á ný. Kærunefnd mun kveða upp nýjan úrskurð í máli hans.
Úrskurðarorð:
Úrskurður kærunefndar nr. 134/2025, dags. 14. febrúar 2025, er afturkallaður.
The ruling by the Immigration Appeals Board no. 134/2025, dated 14 February 2025, is revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður