20 febrúar 2025

/

Úrskurður nr. 135/2025


Hinn 20. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 135/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020219

Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 28. febrúar 2024 kærði einstaklingur sem kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisborgari Tyrklands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. febrúar 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Stokkhólmi á leið sinni til Toronto 27. ágúst 2023. Hafi kærandi verið tekinn til hliðar í frekari skoðun landamæravarða þar sem vegabréf sem kærandi framvísaði hafi verið tilkynnt stolið. Kærandi hafi í kjölfarið óskað eftir alþjóðlegri vernd. Kvaðst kærandi ekki hafa sótt um vernd í öðru landi og ekki þekkja neinn hér á landi. Kærandi kvaðst hvorki vera giftur né eiga börn. Kærandi kvaðst hafa verið einn mánuð í fangelsi í heimaríki og hafa fengið herþjálfun. Kærandi kvaðst ekki vilja snúa aftur til Tyrklands þar sem hann yrði drepinn ef hann færi þangað. Fjölskylda fyrrverandi kærustu hans væri að leita að honum og hafi hótað að drepa hann. Þegar kærandi hafi leitað til lögreglu vegna hótana hafi hann verið settur í fangelsi til að verja hann, en sleppt eftir einn mánuð og þá hafi hann flúið land. Kærandi kvaðst vera heilsuhraustur.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 11. og 23. janúar 2024 ásamt þáverandi löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Í viðtali, dags. 11. janúar 2024, greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í […] í Istanbúl í Tyrklandi þar sem hann hafi verið búsettur þar til hann hafi flúið heimaríki í september 2023. Kærandi kvaðst hvorki vera aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. Þá kvaðst kærandi hvorki vera af sérstöku þjóðarbroti né tilheyra minnihlutahópi í heimaríki. Kærandi kvaðst hafa verið við góða heilsu en sé nú með [...] vegna ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir. Þá eigi hann við að [...] að stríða, þ.e. eigi erfitt með svefn og fái martraðir.

Kærandi greindi frá því að hafa fengið refsidóm í heimaríki vegna þess að bræður fyrrverandi kærustu hans (hér eftir X) hafi beitt hann ofbeldi. Kærandi kvað lögregluna hafa handtekið bræður X og kæranda og sett þá í fangelsi. Í viðtali, dags. 23. janúar 2024, kvaðst kærandi eiga stóra fjölskyldu í heimaríki og vera í sambandi við hana. Fjölskylda hans sé ekki í hættu í heimaríki. Kærandi kvaðst hafa starfað sem bakari í heimaríki og að hann gæti framfleytt sér í heimaríki. Kærandi greindi frá því að hann hafi orðið ástfanginn af frænku sinni, X. Foreldrar X hafi ekki samþykkt að þau gengu í hjónaband. Þá hafi kærandi ákveðið að ræna X, með hennar samþykki. Þau hafi fyrst farið til Istanbúl, þaðan til Afyon, þar sem fjölskylda X hafi fundið þau, en þá hafi þau farið til Izmir þar sem kærandi hafi fundið vinnu. Einn dag þegar kærandi hafi verið á leið til vinnu hafi hann séð bróður X og fjóra einstaklinga í bíl. Hann hafi í kjölfarið ekki þorað í vinnuna næstu 15 daga. X hafi hringt í systur sína sem hafi sagt þeim að þau gætu komið aftur til baka, ekkert myndi gerast. X hafi farið heim til foreldra sinna og kærandi til foreldra sinna. Tíu dögum síðar hafi nafngreindir bræður og fjölskyldumeðlimir X ráðist á kæranda og lamið hann. Þá greindi kærandi frá því að hafa fengið líflátshótanir frá fjölskyldumeðlimum X, munnlega og í síma og að hann fengi enn hótanir frá þeim. Kærandi hafi stungið upp á því við X að fara úr landi en hún hafi ekki viljað það en hafi hvatt kæranda til að fara. Faðir kæranda hafi greitt fyrir vegabréf og allan kostnað. Kærandi hafi viljað fara til Kanada en hafi verið handtekinn á Íslandi vegna falsaðrar vegabréfsáritunar. Kærandi greindi frá því að þegar fjölskyldumeðlimir X hafi beitt hann ofbeldi hafi hann verið handtekinn og settur í fangelsi í heimaríki í mánuð. Þeir sem hafi lamið kæranda hafi ekki fengið dóm af því að þeir hafi hótað kæranda að öll fjölskylda hans yrði drepin ef hann legði fram kæru. Síðar greindi kærandi frá því að fjölskylda hans hafi verið í hættu ef hann drægi ekki kæru til baka. Fjölskyldumeðlimir X sem hafi ráðist á hann hafi verið handteknir en þeim hafi verið sleppt. Kærandi kvaðst hafa afplánað dóminn í fangelsinu […]og setið inni í 28 eða 30 daga. Aðspurður um hvenær þetta hafi átt sér stað, greindi kærandi frá því að þetta hafi byrjað árið 2020. Aðspurður um hvenær fjölskyldumeðlimir X hafi ráðist á hann, kvaðst kærandi ekki muna vel nákvæmar dagsetningar eftir árásina en að það hafi verið í maí eða júní 2023. Kærandi greindi frá því að fjölskylda X sé stór og efnuð, búi í Istanbúl og að faðir hennar og bræður séu pípulagningarmenn. Þá séu margir lögreglumenn skyldir móður X. Kærandi kvaðst óttast að fjölskylda X myndi drepa hann. Kærandi kvaðst hafa [...] í árásinni og sé enn með [...]. Hann hafi leitað sér heilbrigðisþjónustu í heimaríki og sé með vottorð þess efnis. Kærandi kvaðst hafa óskað aðstoðar lögreglu í heimaríki en að hún hafi ekki aðstoðað hann.

Við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun lagði kærandi m.a. fram afrit af handtökuskipun, lögregluskýrslu og skýrslu réttarmeinafræðistofnunar.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 28. febrúar 2024. Greinargerð barst kærunefnd 13. mars 2024. Viðbótargreinargerð barst kærunefnd 13. janúar 2025. Með tölvubréfi, dags. 4. febrúar 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kæranda. Með tölvubréfi, dags. 7. febrúar 2025, bárust kærunefnd frekari upplýsingar og gögn frá kæranda.

3 Greinargerðir til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerðum er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að hann hafi alist upp í […] í Istanbúl. Hann hafi búið hjá foreldrum sínum áður en hann flúði heimaríki og faðir hans hafi stutt hann fjárhagslega. Kærandi sé Kúrdi. Kærandi hafi orðið fyrir ofbeldi og ofsóknum af hálfu fjölskyldu fyrrverandi kærustu sinnar, X, í Tyrklandi. Foreldrar X hafi ekki samþykkt samband þeirra. Fjölskylda X sé valdamikil og margir fjölskyldumeðlimir hennar löggæslumenn. Kærandi og X hafi ítrekað reynt að gifta sig en ekki fengið samþykki frá fjölskyldu hennar. Þau hafi flúið á annan stað í Tyrklandi til að vera saman. Einn dag þegar kærandi hafi verið á leið til vinnu hafi hann séð bíl fyrir utan starfsstað sinn, þar sem bræður og frændur X hafi verið. Þetta hafi staðið yfir í 15 daga þar til systir X hafi hringt og sagt þeim að óhætt væri að snúa til baka. Kærandi og X hafi því farið heim til foreldra sinna. Tíu dögum síðar hafi bræður og fjölskyldumeðlimir X ráðist á kæranda og beittu hann miklu líkamlegu ofbeldi. Í kjölfarið hafi kæranda verið sendar ítrekaðar hótanir. Kærandi hafi verið fangelsaður í einn mánuð eftir árásina fyrir það að hafa orðið fyrir árás. Árásarmennirnir hafi ekki verið handteknir þar sem þeir hafi hótað að drepa fjölskyldu kæranda ef hann kærði þá. Kærandi sé óttasleginn eftir árásina og honum sé enn að berast hótanir.

Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Tyrklandi mótmælt. Kærandi vísar einkum til landaupplýsinga um aðstæður Kúrda í Tyrklandi.

Að mati kæranda hafi Útlendingastofnun ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni í máli hans sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Skort hafi á rökstuðning um að kærandi sé ekki í hættu í heimaríki og að skýrleika við heimildavísun hvað varðar möguleika kæranda á að leita til lögreglu eða annarra yfirvalda hafi verið ábótavant. Þá mótmælir kærandi tilteknum fullyrðingum í ákvörðun Útlendingastofnununar, einkum hvað varðar það að áreiti og ofbeldi sem hann kvaðst hafa orðið fyrir nái ekki því alvarleikastigi að teljast ómannúðleg og vanvirðandi meðferð, að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi á hættu að upplifa ofsóknir, ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í heimaríki sínu í skilningi laga um útlendinga, að kæranda standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda í heimaríki, að kærandi hafi ekki lagt fram gögn til stuðnings frásögn sinni og að kærandi eigi gott félagslegt bakland í heimaríki.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann sé flóttamaður samkvæmt skilgreiningu ákvæðisins með vísan til þess að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila sem nefndir séu í a- til b- lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli þjóðernis sem Kúrdi og aðildar að þjóðfélagshópi, sem þolandi glæps, sbr. c-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi sé Kúrdi sem falli óhjákvæmilega undir hugtakið þjóðerni. Kærandi vísar til landaupplýsinga sem bera sterklega með sér að Kúrdar verði fyrir auknum handahófskenndum handtökum, varðhaldi og fangelsun vegna tengsla við stjórnmálaþátttöku eða hryðjuverk. Sögulega séu Kúrdar afar jaðarsettir á tyrkneskri grundu. Kærandi hafi orðið fyrir ítrekuðum ofsóknum og ofbeldi af hálfu fyrrum tengdafjölskyldu sinnar og hafi verið dæmdur að ósekju. Þær ofsóknir sem kærandi hafi reynslu af sé m.a. löggjöf og aðgerðir stjórnvalda, sbr. b – liður 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá hafi kærandi orðið fyrir saksókn og refsingu sem hafi verið óhófleg og ósanngjörn og honum hafi verið synjað um notkun réttarúrræða sem leiði til óhóflegrar og mismunandi refsingar, sbr. d- liður 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ekki hlotið vernd hjá yfirvöldum í Tyrklandi þar sem yfirvöld sjálf séu valdur af ofsóknum með ýmsum hætti, sbr. a- liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til athugasemda við ákvæðið í breytingarlögum nr. 115/2010 og frumvarp að stjórnskipunarlögum nr. 97/1997 um breytingu á 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar til samræmis við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ómannúðleg og vanvirðandi meðferð geti falist í frelsissviptingu á borð við fangelsisvist. Kærandi vísar til málsástæðna sem hafi verið raktar í landaupplýsingum og í aðalkröfu. Kærandi hafi sætt mannréttindabrotum sem teljast vera ómannúðleg og vanvirðandi meðferð og refsing, í formi aðstæðna í fangelsum og handahófskenndrar frelsissviptingar. Frásögn hans verði að meta í ljósi þess að hann sé Kúrdi. Horfa verði til þess að kærandi sé fyrrum fangi og með dóm að baki sem geri hann talsvert líklegri til þess að verða fyrir meðferð undir 2. mgr. 37.gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda uppfylli hann skilyrði þess að hljóta viðbótarvernd.

Að mati kæranda sé ekki raunhæft eða sanngjarnt að ætlast til þess að kærandi setjist að annars staðar í heimaríkis sínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, vegna þess að yfirvöld séu m.a. ábyrg fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem þar ríki.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til landaupplýsinga um margvísleg mannréttindabrot sem viðgangist gegn Kúrdum og hafi snert kæranda. Þá hafi yfirvöld ekki veitt kæranda næga vernd. Félagslegur aðstæður kæranda séu verulega erfiðar í heimaríki, hann tilheyri minnihlutahópi sem hefur ítrekað verið ofsóttur. Sem fyrrum fangi og Kúrdi telji kærandi ljóst að honum yrði mörkuð verulega jaðarsett staða í tyrknesku þjóðfélagi. Þá geri líkamleg og heilsufarstengd vandamál hann enn viðkvæmari fyrir.

Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Skort hafi á rökstuðning um að kærandi sé ekki í hættu í heimaríki og skýrleika við heimildavísun um hvaða möguleika kæranda hafi til að leita til lögreglu eða annarra yfirvalda hafi verið ábótavant. Þá mótmælir kærandi tilteknum fullyrðingum í ákvörðun Útlendingastofnununar, einkum hvað varðar það að áreiti og ofbeldi sem hann kvaðst hafa orðið fyrir nái ekki því alvarleikastigi að teljast ómannúðleg og vanvirðandi meðferð, að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi á hættu að upplifa ofsóknir, að kæranda standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda í heimaríki, að kærandi hafi ekki lagt fram gögn til stuðnings frásögn sinni og að kærandi eigi gott félagslegt bakland í heimaríki.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málsins. Tekur kærunefnd undir það með kæranda að rannsókn Útlendingastofnunar hafi að einhverju leyti verið ábótavant, einkum hvað varðar rannsókn á framlögðum gögnum. Kærunefnd hefur bætt úr framangreindum annmörkum og með vísan til niðurstöðu úrskurðar þessa er ljóst að þeir annmarkar hafi ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað afritum af tyrknesku kennivottorði og ökuskírteini. Þar sem kærandi hefði ekki sannað hver hann væri með fullnægjandi hætti yrði leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Með vísan til þeirra gagna sem kærandi hefði lagt fram til að sanna á sér deili, af framburði kæranda og lýsingu hans á staðháttum komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi hefði verið búsettur í Istanbúl í Tyrklandi og væri frá Tyrklandi þó að auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi hafi búið í Istanbúl í Tyrklandi og sé tyrkneskur ríkisborgari.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Tyrklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Report on International Religious Freedom: Turkey (U.S. Department of State, 26. júní 2024);
  • 2022 Report on International Religious Freedom: Turkey (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • 2023 Türkiye Earthquake Disaster Brief (The International Federation of Red Cross and Crescent Societies (IFRC), 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Kurds (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note – Turkey: Military service (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Peoples’ Democratic Party (HDP) (UK Home Office, mars 2020);
  • Country Policy and Information Note: Peoples’ Democratic Party/Green Left Party (HDP/YSP) (UK Home Office, október 2023);
  • DFAT Country Information Report – Turkey (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 10. September 2020);EASO Country of Origin Information Report – Country Focus Turkey (European Asylum Office (EASO), nóvember 2016);
  • Freedom in the World 2024 – Turkey (Freedom House, 2024);
  • Freedom in the World 2023 – Turkey (Freedom House,9. mars 2023);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 2. mars 2022);
  • Progress report on the preparation for EU membership – Türkiye 2023 Report (European Commission, 8. nóvember 2023);
  • Progress report on the preparation for EU membership - Türkiye 2024 Report (European Commission, 30. október 2024);
  • Report on the human rights situation covering 2022 – Türkiye (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Report on the human rights situation covering 2023 – Türkiye (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • The World Factbook - Turkey (Central Intelligence Agency, 6. desember 2019);
  • Turkey’s Constitution of 1982 with Amendments through 2017 (https://www.constituteproject.org/constitution/Turkey_2017.pdf?lang=en, Skoðað 17. febrúar 2025);
  • Turkey Healthcare Technologies Resource Guide (U.S. International Trade Administration. Sótt 17. febrúar 2025);
  • Turkey: Situation of Kurds, including in Istanbul, Ankara and Izmir; situation of supporters or perceived supporters of the People’s Democratic Party (Halklarin Demokratik Partisi, HDP); situation of Alevi Kurds (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. janúar 2020);
  • Türkiye – Country overview (European Observatory of Health Systems and Policies. Sótt 17. febrúar 2025);
  • World Report Turkey 2023 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report Turkey 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2024) og
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples - Turkey: Kurds (Minority Rights Group International, júní 2018).

Tyrkland er lýðveldi með rúmlega 83 milljónir íbúa. Ríkið er aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ríkið er jafnframt aðili að m.a. flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og alþjóðasamningi um afnám alls kynþáttamisréttis.

Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Tyrkland frá október 2023 kemur fram að landið sé og verði áfram lykilsamstarfsaðili Evrópusambandsins. Tyrkland hafi verið tengt Evrópusambandinu með samstarfssamningi síðan 1964 og hafi tollabandalag verið stofnað árið 1995. Tyrkland hafi stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu frá desember 1999. Aðildarviðræður hafi hafist í október 2005 en séu í biðstöðu og hafi verið frá árinu 2018. Fram kemur að ekki hafi verið brugðist við alvarlegum áhyggjum Evrópusambandsins af áframhaldandi hnignun lýðræðislegra viðmiða, réttarríkisins, sjálfstæði dómstóla og virðingu fyrir grundvallarréttindum borgara landsins. Í maí 2023 fóru fram forseta- og þingkosningar í Tyrklandi og hélt stjórnarbandalagið meirihluta sínum á þinginu og var sitjandi forseti endurkjörinn. Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar séu meðal annars aðstoð og endurreisn eftir jarðskjálfta, fjármálastöðugleiki og endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hinn 31. mars 2024 fóru fram sveitarstjórnarkosningar í landinu þar sem að stjórnarandstaðan, einkum CHP flokkurinn, vann mikinn sigur m.a. í höfuðborginni Istanbúl. Niðurstöður kosninganna voru einnig þær að CHP flokkurinn hafi sigrað aftur í borgunum Izmir, Adana og Antalya og haldið meirihluta þar.

Stjórnarskrá ríkisins gerir ráð fyrir einu þjóðerni fyrir alla ríkisborgara og viðurkennir ekki minnihlutahópa á grundvelli þjóðernis, svo sem Kúrda, eða kynþáttar að undanskildum Armenum, gyðingum og þeim sem tilheyri grísku rétttrúnaðarkirkjunni. Rétturinn til eigin tungumáls, menningarlegra og trúarlegra réttinda sé ekki tryggður öðrum hópum fyllilega samkvæmt lögum. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2023 um aðstæður Kúrda í Tyrklandi kemur fram að rúmlega 15 milljónir íbúa landsins séu af kúrdískum uppruna og tali kúrdískar mállýskur. Samkvæmt tyrkneskum lögum sé leyfilegt að opna einkareknar menntastofnanir þar sem kennsla fari fram á tungumálum og mállýskum sem íbúar noti í daglegu lífi. Sumir háskólar bjóði upp á valkvæða áfanga á kúrdísku og tveir háskólar séu með kúrdískar málvísindadeildir. Lögin heimili jafnframt að kúrdísk þorp og hverfi taki upp sín fyrri nöfn í stað þeirra tyrknesku og leyfi stjórnmálaflokkum og meðlimum þeirra að velja tungumál í stjórnmálabaráttu sinni og kynningarefni. Sá réttur hafi þó ekki alltaf verð virtur í framkvæmd. Þá banni lög notkun annarra tungumála en tyrknesku í opinberum stofnunum. Þrátt fyrir að kúrdíska sé formlega leyfð í einkareknum menntastofnunum og opinberri orðræðu hafi ríkisstjórnin ekki framlengt leyfi fyrir kennsluefni á kúrdísku í almenningsskólum. Þá kemur fram í skýrslunni að vísbendingar séu um áframhaldandi samfélagslega mismunun gagnvart Kúrdum og hafi fjölmargar fregnir borist af árásum sem beinst hafi að Kúrdum árið 2023. Í sumum tilfellum sé hugsanlegt að þessar árásir hafi ekki verið rannsakaðar á réttan hátt eða ekki verið viðurkenndar sem árásir byggðar á kynþáttahatri. Kúrdar sem búi í borgum í vesturhluta Tyrklands kunni að vera hræddir við að upplýsa um kúrdískt þjóðerni sitt eða tala kúrdísku á almannafæri, og atvinnumöguleikar geti verið takmarkaðir fyrir kúrdískt fólk, sérstaklega ef það sé virkt í kúrdískum stjórnmálum eða áberandi um stuðning sinn við málstað Kúrda. Hins vegar geti flestir Kúrdar sem ekki eru virkir í stjórnmálastarfi og þeir sem styðja AKP lifað án mismununar í borgum í vesturhluta Tyrklands. Nokkrar heimildir séu um að Kúrdum hafi verið meinaður aðgangur að leiguhúsnæði vegna þjóðernis síns. Þá geti Kúrdar sem ekki tali tyrknesku átt í erfiðleikum með að fá aðgang að læknisþjónustu.

Í mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 um aðstæður í Tyrklandi kemur fram að átök stjórnvalda og PKK hafi leitt af sér umfangsmikið tjón í suðausturhluta Tyrklands. Stjórnvöld hafi af þeim sökum árið 2016 lagt hald á tilteknar eignir í sérstökum héruðum í suðausturhluta landsins. Hafi yfirvöld lýst því yfir að tilgangur yfirtökunnar væri að auðvelda uppbyggingu eftir átökin. Sumir íbúanna sem hafi orðið fyrir áhrifum yfirtökunnar hafi lagt fram kröfur fyrir dómstólum þar sem þeir hafi sóst eftir leyfi til að vera áfram á yfirteknu landsvæði og fá bætur. Hafi mörg þessara mála enn verið óafgreidd í árslok 2022. Í ákveðnum tilfellum hafi dómstólar dæmt íbúum bætur. Frá og með júní 2022 hafi 5,7 milljarðar líra verið greiddar út til umsækjenda. Í skýrslu er greint frá einu atviki um að sprengja hafi sprungið í Istanbúl þar sem sex einstaklingar hafi látið lífið og 81 einstaklingur slasast. Það hafi enginn hópur gefið sig fram um að bera ábyrgð á atvikinu en tyrknesk yfirvöld telji árásina hafa verið að undirlagi PKK. Yfirvöld hafi handtekið einstakling sem talinn hafi verið bera ábyrgð á sprengingunni og tólf aðra einstaklinga. Í kjölfar sprengingarinnar hafi tyrkneskar hersveitir sprengt um 500 skotmörk í Sýrlandi og Írak, og drepið að minnsta kosti tíu óbreytta borgara. Í öðrum heimildum, t.d. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2022, kemur fram að ofbeldisverk annara aðila, svo sem PKK, hafi ekki átt sér stað í borgum í Tyrklandi heldur eigi sér helst stað í dreifbýli í suðausturhluta landsins.

Á vefsíðu International Trade Administration kemur fram að heilbrigðisráðuneytið í Tyrklandi setji stefnu í heilbrigðismálum og sé stærsti veitandi heilbrigðisþjónustu í landinu. Það séu um 880 ríkisreknir spítalar í landinu, 570 einkareknir spítalar og 68 háskólasjúkrahús. Heildarfjöldi sjúkrarúma séu um 226.000. Tyrkland eyði um 4,5% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og hafi það hlutfall margfaldast síðan árið 2002 þegar að átak hafi verið gert í heilbrigðismálum í Tyrklandi. Tyrkland hafi sett sér framsækna stefnu í rafrænni heilbrigðisþjónustu. Allar upplýsingar um læknisheimsóknir, rannsóknir, meðferðir og lyfjaávísanir séu skráðar í rafræna sjúkraskrá. Lyfseðlar séu gefnir út rafrænt og þeim lyfjum sem sé ávísað fáist afgreidd í apótekum samkvæmt rafrænu lyfseðlum. Þá hafi almenningur aðgang að sjúkraskrá sinni í gegnum snjallsímaforrit. Á vefsíðu European Observatory of Health Systems and Policies kemur fram að í Tyrklandi sé almannatryggingakerfi og að allir íbúar sem séu skráðir hjá Almannatryggingum (e. Social Security Institution) fái fría heilbrigðisþjónustu. Almannatryggingar séu fjármagnaðar með framlagi atvinnurekanda og starfsmanna en þeir sem hafi lága innkomu séu undanþegnir greiðslu. Svo til nær öll heilbrigðisþjónusta fellur undir almanntryggingar nema lýtalækningar og tannlækningar, og tæknifrjóvgun sé aðeins greitt að hluta. Vegna skorts á læknum á landsvísu hafi sífellt fleiri keypt viðbótarheilbrigðistryggingu til að greiða fyrir meðferð á einkareknum sjúkrahúsum.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann hafi sætt ofbeldi og hótunum vegna sambands síns við fyrrverandi kærustu sína. Þá byggir kærandi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann eigi á hættu ofsóknir og mismunun í heimaríki vegna kúrdísks uppruna síns.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa átt í ástarsambandi við X, frænku sína. Þar sem að fjölskylda hennar hafi verið mótfallinn því að þau giftu sig hafi þau flutt saman til borgarinnar Izmir þar sem kærandi hafi starfað. Bræður og aðrir fjölskyldumeðlimir X hafi komið til Izmir og setið í bíl fyrir framan heimili þeirra í 15 daga og kærandi hafi ekki þorað að fara til vinnu. Kærandi og X hafi snúið til baka til forelda sinna í Istanbúl þegar að systir X hafi sagt þeim að það væri óhætt. Tíu dögum síðar hafi bræður X og aðrir fjölskyldumeðlimir ráðist á kæranda og beitt hann ofbeldi. Kærandi hafi fengið dóm og setið í fangelsi í einn mánuð vegna þessara slagsmála. Í kjölfar árásarinnar hafi kærandi fengið líflátshótanir frá fjölskyldumeðlimum X í eigin persónu og í síma, og væru honum enn að berast hótanir frá þeim.

Með tölvubréfi, dags. 4. febrúar 2025, óskaði kærunefnd eftir ítarlegri upplýsingum um frásögn kæranda, einkum hvað varðar þjóðernislegan uppruna kæranda, árás sem kærandi kvaðst hafa orðið fyrir af hálfu fjölskyldumeðlima X og framlögð gögn. Í svörum kæranda, sem bárust kærunefnd 7. febrúar 2025, greindi kærandi m.a. frá því að hann og X hafi þekkst allt sitt líf en hafið samband sitt í byrjun ársins 2022. Kærandi og X hafi farið til Izmir í apríl 2022 og um mánuði síðar hafi bróðir X ásamt öðrum einstaklingum verið komnir fyrir utan heimili þeirra þar sem þeir hafi verið í 15 daga. Eftir þessa fimmtán daga hafi þau flúið til Afyon. Síðar hafi kærandi hringt í bróður X og sagt honum að þau X myndu koma aftur ef það yrði ekkert vesen. Þá hafi X farið aftur til Istanbúl í lok júlí 2022 og kærandi tveimur vikum síðar. Þegar kærandi hafi farið til Istanbúl hafi verið ráðist á hann. Hann hafi farið á spítala, en verið útskrifaður og farið heim. Lögregla hafi þá komið og handtekið kæranda, tveimur til þremur dögum eftir árásina, eða 14. ágúst 2022. Dómur gegn kæranda hafi verið kveðinn upp 8. september 2022 og hann hafi setið inni í mánuð eftir það. Kærandi hafi verið dæmdur fyrir að vera með vopn og ógna öryggi, en það hafi verið út af árás bræðra X, vina og frænda þeirra gegn kæranda. Kærandi kvaðst hafa lagt fram ákæru vegna árásarinnar en hafi síðar dregið hana til baka til að sleppa úr fangelsi fyrr. Stuttu eftir að honum hafi verið sleppt úr fangelsi hafi bræður X ráðist á hann aftur og þá hafi hann flúið land. Kærandi kvað fylgiskjöl sem hann hafi lagt fram styðja við frásögn hans af fyrstu árásinni sem hann hafi lýst. Kærandi kvaðst ekki hafa munað nákvæma dagsetningu árásarinnar í viðtali hjá Útlendingastofnun en að hún hafi átt sér stað árið 2022 í samræmi við það sem fram komi á framlögðum skjölum. Kærandi kvaðst hafa greint frá handtökuskipun í viðtali hjá Útlendingastofnun sem hafi verið gefin út vegna þess að kærandi hafi reynt að verja sig. Kærandi kvaðst ekki geta gefið skýringu á því af hverju fæðingardagur hans sé ekki sá sami á handtökuskipun og í öðrum framlögðum gögnum. Kærandi kvað afrit af skýrslu réttarmeinafræðistofnunar vera vegna áverka sem hann hafi hlotið í árásinni sem hafi átt sér stað 13. ágúst 2022. Árásin hafi átt sér stað þannig að bræður X, frændur þeirra og vinir hafi komið að kæranda og bróður hans úti á götu á tveimur bílum. Bróðir kæranda hafi verið laminn með naglakylfu. Árásarmenn hafi verið með byssu en ekki beitt henni, en hafi lamið kæranda með kylfum. Kærandi hafi reynt að streitast á móti en þá hafi fólk komið að, stöðvað bardagann og farið með kæranda á spítala. Hvað varðar meint misræmi í frásögn kæranda af hjúskaparstöðu hans í framlagðri lögregluskýrslu og í umsókn hans um alþjóðlega vernd greindi kærandi frá því að hann hafi verið trúlofaður eiginkonu sinni þá en ekki giftur. Þau séu ekki lengur saman. Kærandi kvaðst hafa greint frá því að vera kúrdískur í viðtali hjá Útlendingastofnun en túlkurinn hafi ekki komið því til skila. Kærandi kvaðst ekki geta nálgast kúrdísk skjöl en hann leggi fram myndbönd af sér að tala reiprennandi kúrdísku.

Þá lagði kærandi fram frekari gögn fyrir kærunefnd. Kærandi lagði m.a. fram myndbönd af sér að tala kúrdísku, afrit af hótunarskilaboðum á tilgreindum samskiptamiðli sem hann kveður vera frá frænda sínum og þýðingu á hluta, á þegar framlögðum gögnum. Kærunefnd óskaði eftir að kærandi legði fram afrit dóms gegn honum og ákæru kæranda gegn árásarmönnum sem hann gerði ekki.

Af endurriti viðtals Útlendingastofnunar við kæranda verður ekki ráðið að kærandi hafi greint frá því í viðtalinu að hann sé Kúrdi. Í svörum til kærunefndar kveðst kærandi hafi greint frá því í viðtalinu en að túlkur hafi ekki komið þeim svörum skýrlega til skila. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi sé af kúrdískum uppruna. Af greinargerð kæranda til kærunefndar, dags. 13. janúar 2025, má ráða að Kúrdar hafi orðið fyrir fordómum og mismunun í heimaríki kæranda, svo sem af hálfu almennings og yfirvalda. Renna heimildir stoðum undir þann framburð kæranda. Kærandi hefur hins vegar ekki lýst neinu sem talist gæti til ofsókna gagnvart honum eða á annan hátt leitt að því líkum að tyrknesk yfirvöld beini sjónum sínum sérstaklega að honum eða hann sé á annan hátt í verri stöðu í heimaríki en aðrir einstaklingar af sama þjóðernisuppruna. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna að Kúrdar kunni að eiga á hættu einhverja mismunun í heimaríki kæranda af þeirri ástæðu að þeir tilheyri þjóðarbrotinu. Ekkert í þeim gögnum gefur þó til kynna að sú mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Líkt og áður hefur komið fram eru refsingar lagðar við glæpum sem grundvallast á hatri gegn tilteknu þjóðerni. Þá geti einstaklingar er verði fyrir áreiti af hálfu aðila ótengdum ríkinu leitað til m.a. umboðsmanns og stofnunar mannréttinda og jafnréttismála (NHREI). Þó hlutleysi þeirra og skilvirkni hafi sætt gagnrýni verður ekki fallist á að Kúrdar sæti kerfisbundinni mismunun þar í landi eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1.mgr. 37. gr. laga um útlendinga eingöngu á grundvelli þjóðarbrots síns. Kærandi greindi ekki frá því að hafa sætt mismunun eða öðru áreiti á grundvelli þess að hann væri Kúrdi.

Misræmi í frásögn kæranda og gögnum málsins dregur úr trúverðugleika hans, einkum hvað varðar árás sem hann kveðst hafa orðið fyrir vegna sambands síns við X, dóm gegn kæranda og fangelsisvist. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa orðið fyrir árás af hálfu bræðra, frænda og vina X og að hann hafi kært atvikið. Kærandi hefur ekki lagt fram kæru við meðferð málsins. Kærandi hefur hins vegar lagt fram lögregluskýrslu þar sem reifuð er skýrslutaka hans fyrir framangreint vopnalagabrot. Þá kemur fram í lögregluskýrslunni að kærandi kvaðst hafa hleypt af byssu úti á götu þegar hann hafi ætlað að koma bróður sínum til bjargar í slagsmálum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að tíu dögum eftir að hann og X hafi snúið til baka til Istanbúl hafi verið ráðist á hann. Í skýrslutöku hjá lögreglunni greindi kærandi hins vegar frá því að hafa komið einhverju seinna en X til Istanbúl og að það hafi verið ráðist á bróður hans einum mánuði eftir að hann hafi komið til baka og árás á kæranda hafi átt sér stað síðar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að muna ekki dagsetningar vel en að árásin hafi átt sér stað í maí eða júní árið 2023. Í svörum til kærunefndar greindi kærandi hins vegar frá því að árásin hafi átt sér stað 13. ágúst 2022 líkt og komi fram í lögregluskýrslu. Framlögð gögn bera með sér að kærandi hafi verið tekinn til yfirheyrslu vegna brots gegn vopnalögum, ógn við almannaöryggi og eignaspjöll sem hafi átt sér stað 12. ágúst 2022. Í yfirheyrslum hjá lögreglu greindi kærandi einnig frá því að árás hafi einnig átt sér stað fyrir 12. ágúst 2022.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann og X hafi farið til Istanbúl, þaðan til Afyon og síðar til Izmir þar sem þau hafi dvalið um tíma og kærandi verið að vinna. Þar hafi bræður, frændur og vinir X setið í bíl fyrir framan heimili þeirra í 15 daga. Þá hafi systir X hringt og sagt þeim að það væri óhætt að koma til baka. Í svörum til kærunefndar greindi kærandi hins vegar frá því að hann og X hafi farið til Afyon eftir þessa 15 daga og að kærandi hafi hringt í bróður X og sagt honum að þau kæmu til baka ef það yrði ekkert vesen. Í framlagðri lögregluskýrslu greinir kærandi frá því að hann og X hafi ekki farið til Izmir heldur til Afyonkarahisar þaðan sem þau hafi snúið aftur til Istanbúl. Í framangreindri lögregluskýrslu kemur einnig fram mun ítarlegri frásögn kæranda af meintum atburðum í samskiptum við fjölskyldu X í heimabæ, m.a. að ráðist hafi verið á bróður hans fyrst, að kærandi og X hafi verið í hjúskap með öðrum einstaklingum þegar þau hófu samband sitt og að ástæða þess að kærandi og X hafi flúið hafi verið vegna þess að bræður og eiginmaður X hafi verið að beita hana ofbeldi. Framangreint er ekki í samræmi við frásögn kæranda við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun og kærunefnd. Jafnframt greindi kærandi í viðtali hjá Útlendingastofnun frá nöfnum fjögurra aðila sem hafi ráðist á hann en í framlagðri lögregluskýrslu nafngreinir kærandi tvo aðila og kveðst ekki þekkja aðra aðila sem hafi verið þar að verki.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi annars vegar frá því að hafa ekki leitað sér læknisaðstoðar í Tyrklandi vegna bakverkja eftir árásina og hins vegar að hafa höfuðkúpubrotnað og hryggbrotnað, hafa leitað læknisaðstoðar og vera með læknisvottorð. Framlögð gögn styðja ekki frásögn kæranda um að hann hafi hlotið alvarlegt hrygg- eða höfuðkúpubrot. Þá má geta þess að framlögð skýrsla frá réttarmeinafræðastofnun er dagsett 13. ágúst 2022 og byggir á skoðun á öðrum læknisfræðilegum gögnum. Skýrslan ber með sér að áverkar kæranda séu ekki lífshættulegir, hægt sé að meðhöndla áverkana með litlu inngripi og að í læknisfræðilegum gögnum hafi verið talið að um beinbrot hafi verið að ræða.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vita ekki af hverju hann hafi fengið dóm en að hann hafi verið fangelsaður vegna þess að það hafi verið ráðist á hann. Í framlögðum gögnum kemur fram að kærandi hafi verið handtekinn og tekinn í yfirheyrslur fyrir vopnaburð, ógn við almannaöryggi og eignaspjöll. Í svörum til kærunefndar greindi kærandi frá því að hafa setið í fangelsi í mánuð frá því að dómur hafi verið kveðinn upp gegn honum 8. september 2022, stuttu eftir að kæranda hafi verið sleppt hafi bræður X ráðist aftur á hann og hann flúið Tyrkland í kjölfarið. Samkvæmt umsókn um alþjóðlega vernd og viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun flúði hann heimaríki tæpu ári síðar eða í september 2023.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa borist líflátshótanir í síma og eigin persónu frá fjölskyldu X og að honum hafi haldið áfram að berast hótanir eftir að hann kom til Íslands. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram skjáskot af einum skilaboðum af tilgreindum samskiptamiðli. Af skjáskotinu verður ekki ráðið til hvers skilaboðin voru send eða frá hverjum þau koma, þá verður ekki ráðið hvenær skilaboðin hafa verið send að öðru leyti en því að þau hafi verið send á mánudegi. Hafa framangreind skilaboð því lítið sönnunargildi. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi einnig fram afrit skjals sem ber með sér að vera handtökuskipun gegn honum í heimaríki. Í skjalinu kemur fram að fæðingardagur kæranda sé [...] en ekki 10. mars 1993 líkt og fram kemur í öðrum gögnum málsins. Dregur framangreint úr trúverðugleika framlagðrar handtökuskipunar.

Í ljósi framangreinds trúverðugleikamats telur kærunefnd ekki ástæðu til útiloka að kærandi hafi átt í útistöðum við ótilgreinda aðila í heimaríki og að það geti hafa tengst sambandi hans við fyrrverandi kærustu hans. Hins vegar verður ekki lagt til grundvallar að bræður, frændur og vinir X hafi elt kæranda og X til Izmir og ógnað þeim fyrir utan heimili þeirra og að honum hafi borist ítrekaðar hótanir frá þeim munnlega og í síma og berist þær enn. Þá hefur kærandi ekki leitt að því líkum að hann hafi setið að ósekju í fangelsi enda bera framlögð gögn með sér að hann hafi verið yfirheyrður vegna brota á vopnalögum, ógn við almannaheill og eignaspjöll sem hann gengst við í yfirheyrslum hjá lögreglunni. Kærandi hefur hins vegar ekki lagt fram neitt því til staðfestingar að hann hafi fengið refsidóm eða setið í fangelsi í heimaríki. Þá greindi kærandi frá því að fjölskylda X væri tengd yfirvöldum í heimaríki hans og væru m.a. lögreglumenn. Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn sem staðfesta þá frásögn. Hefur kærandi því ekki leitt að því líkum að hann geti ekki leitað aðstoðar lögreglu telji hann ástæðu til. Þá er ekkert í gögnum um heimaríki kæranda sem bendir til þess að tyrknesk yfirvöld geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn áreiti eða ofbeldi sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi vísar til málsástæðna sem hafi verið raktar í landaupplýsingum og í aðalkröfu. Kærandi hafi sætt mannréttindabrotum í heimaríki sem séu ómannúðleg og vanvirðandi meðferð og refsing, í formi aðstæðna í fangelsum og handahófskenndrar frelsissviptingar. Frásögn hans verði að meta í ljósi þess að hann sé Kúrdi. Horfa verði til þess að kærandi sé fyrrum fangi og með dóm að baki sem geri hann talsvert líklegri til þess að verða fyrir meðferð undir 2. mgr. 37.gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda uppfylli hann skilyrði þess að hljóta viðbótarvernd.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.

Líkt og framan er rakið er lagt til grundvallar að kærandi sé frá Istanbúl í Tyrklandi og hafi búið þar áður en hann yfirgaf heimaríki sitt. Með vísan til framangreindra heimilda nær ástandið á heimasvæði kæranda ekki því alvarleikastigi að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, á heimasvæði sínu, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til Tyrklands.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki hans er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi sé almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 27. ágúst 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki á Schengen-svæðinu. Þá kvaðst kærandi ekki hafa verið að hugsa um að fara erlendis ef hann væri ekki í þessu máli.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.


Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir