20 febrúar 2025

/

Úrskurður nr. 148/2025


Hinn 20. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 148/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU24070047 og KNU24070048

Kæra [...] þeirra á ákvörðunum Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 4. júlí 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Tyrklands, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 27. júní 2024, um að synja þeim og barni þeirra, […], fd. [...] (hér eftir A), ríkisborgara Tyrklands, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvarðanir Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og barn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Grikklandi og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 5. nóvember 2023. Aðspurð kvaðst K hafa keypt fölsuð ísraelsk vegabréf og kærendur hafi eyðilagt þau. Kærendur kváðust hafa smyglað sér til Norður-Makedóníu og gengið þaðan yfir til Grikklands. Fjölskyldan hafi aldrei hitt smyglarann en hitt aðila sem hafi unnið fyrir smyglarann. Kærendur kváðust sækja um vernd til að eiga betra líf. Þau hafi ekki verið frjáls í Tyrklandi. Þá hafi M verið kominn í vandræði gagnvart stjórnvöldum í Tyrklandi vegna aðildar sinnar að Gūlen samtökunum. Kærendur hafi sætt áreiti og hótunum í Tyrklandi vegna stjórnmálaskoðana sinna. Kærendur kváðu fjölskylduna við góða heilsu. K og A séu ekki með sakarferil en M eigi sögu hjá lögreglu í heimaríki. M hafi fengið 18 mánaða herþjálfun. M hafi verið spurður út í danskt vegabréf sem hann hafi framvísað og M kvaðst hafa keypt það ásamt fleiri fölsuðum vegabréfum.

Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 1. febrúar 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Kærendur greindu frá því að vera fædd og uppalin í […] í Tyrklandi og hafa verið búsett í Istanbúl þegar þau hafi flúið frá heimaríki 30. ágúst 2023. Kærendur greindu frá því að þau og A séu við góða líkamlega heilsu en K liði illa. Kærendur greindu frá því að hafa hvorki verið aðilar að stjórnmálaflokki né tilheyra sérstöku þjóðarbroti í heimaríki. Kærendur kváðust tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sem meðlimir Gūlen hreyfingarinnar. M hafi verið þjónustufulltrúi í Gūlen hreyfingunni. Störf hans fyrir hreyfinguna hafi falist í nýliðun og skipulagningu þjónustu, kynningu á félaginu, ræðuhöldum og aðstoð við fólk. Aðspurður um hvort M hafi gögn um að hafa verið í Gūlen hreyfingunni, kvað hann sjö dómara hafa ákveðið það. M kvaðst hafa verið kennari í 20 ár og meðlimur í Gūlen hreyfingunni í 35 ár. M hafi starfað fyrir hreyfinguna þar til hann hafi farið frá Tyrklandi og verið þar í sjálfboðastarfi. M hafi verið með reikning í Bank Asya og áskrifandi að félagsblaði hreyfingarinnar, Zaman, notað Bylock forritið í nokkra mánuði undir öðru nafni, og uppkomið barn hans (hér eftir B) hafi verið í skóla á vegum Gūlen hreyfingarinnar. Framangreint hafi allt verið löglegt á sínum tíma en eftir valdaránstilraunina árið 2016 hafi skapast miklir fordómar og nú sé M talinn hryðjuverkamaður. Í febrúar 2019 hafi sex lögreglumenn, einn með stóra byssu, komið á heimili kæranda og leitað í allri íbúðinni að Gūlen bókinni sem kærendur hafi verið búin að fela. Nágranni kæranda hafi kært hann til lögreglu. Kærendur hafi verið sett inn í herbergi og M reynt að stöðva lögreglumennina en verið handtekinn í kjölfarið og færður í lögreglubíl. M hafi verið kennari í sama hverfinu um áratugabil og það hafi verið erfitt að vera sakaður um að vera hryðjuverkamaður og handtekinn fyrir framan börnin. Síðar í viðtali greindi M frá því að hafa verið handtekinn en síðan sleppt en að málið gegn honum sé enn opið. Í kjölfar þess að M hafi misst starf sitt sem kennari árið 2016 hafi kærendur opnað bókabúð en fólk hafi ekki viljað versla hjá þeim. Í október 2017 hafi rúða verið brotin í búðinni og einstaklingur úr hverfinu hafi ráðist inn í verslunina vopnaður hnífi. Kærendur hafi ekki slasast og ekki leitað til lögreglunnar. Þá hafi kærendur lokað búðinni og byrjað með netverslun í staðinn. M greindi frá því að hryðjuverkamenn séu merktir með merkingunni 36 í þjóðskrá Tyrklands og að hann væri með slíka merkingu. Aðspurður hvort M gæti lagt fram staðfestingu á því greindi M frá því að merkingin hafi verið á honum til ársins 2021 en það væri búið að taka hana út. M kvað lífið hafa verið erfitt í heimaríki eftir valdaránstilraunina árið 2016. B hafi ekki fengið starf vegna M og þau hafi ekki farið mikið út vegna ofbeldis. M hafi eitt sinn verið meinaður aðgangur að Mosku og foreldrar annarra barna í leikskóla A hafi ekki látið hann í friði. Allir félagar M hafi verið handteknir og hann vitað að röðin kæmi að honum. Lögfræðingur kæranda hafi sagt þeim að það væri verið að handtaka mikið af fólki og verið að leita að fólki sem væri í Gūlen hreyfingunni. Lögfræðingurinn hafi ráðlagt kærendum að yfirgefa landið. Kærendur hafi ekki farið frá Tyrklandi strax því að þau hafi haldið að þetta myndi lagast. Hinn 25. október 2023 hafi tveir lögreglumenn komið heim til kærenda og móður M og verið að leita að þeim. M kvaðst óttast að vera handtekinn á flugvellinum, að vera fangelsaður og beittur ofbeldi.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hún hafi hvorki sætt ákæru eða hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað. K greindi frá því að fjölskyldunni hafi liðið vel í heimaríki fram til ársins 2016 þegar K hafi verið dæmd sem hryðjuverkamaður. K greindi frá því að hafa verið Gūlen hreyfingunni í 27 eða 28 ár og verið virk í störfum fyrir hreyfinguna til ársins 2016. Störf hennar fyrir hreyfinguna hafi falist í nýliðun, ræðuhöldum, kynningu á félaginu, undirbúning samkoma og fjársöfnunum fyrir fátækt fólk. K hafi verið áskrifandi að Zaman dagblaðinu og hvatt aðra til að lesa það. K hafi verið með reikning í Bank Asya en ekki notað Bylock forritið. Föðurbróðir K hafi einnig verið í Gūlen hreyfingunni og hann hafi misst vinnuna. K kvað tilraunina til valdaráns árið 2016 hafa verið eins og í bíómynd því stjórnvöld hafi undirbúið þetta sjálf. Eftir valdaránið hafi Gūlen hreyfingunni verið lokað, blaðinu lokað, og lögreglumenn, dómarar, saksóknarar og kennarar handteknir. M hafi verið handtekinn og stimplaður hryðjuverkamaður. Forseti landsins hafi kallað meðlimi hreyfingarinnar hryðjuverkamenn. Kærendur hafi reynt að bjarga sér og hafi opnað bókabúð en þau hafi þurft að loka henni af því að K hafi verið meðlimur í Gūlen hreyfingunni. K hafi verið beitt andlegu ofbeldi og gluggi brotinn í bókabúðinni. Árið 2016 eða 2017 hafi einstaklingur í AKP ráðist inn í búðina með hníf. Nágrannar hafi ekki viljað hitta þau og K hafi orðið fyrir áreiti þegar hún hafi verið að versla. Kærendur hafi verið hrædd um að fólk myndi kæra þau og að þau yrðu handtekin og hafi ákveðið að yfirgefa landið. Árið 2019 hafi lögreglan ráðist inn til kærenda, þegar K hafi verið komin sjö mánuði á leið með A, og handtekið M. M hafi verið sleppt síðar sama dag. K greindi frá því að þau hafi ekki farið frá Tyrklandi strax eftir valdaránið af því að þau hafi haldið að ástandið myndi lagast og vegna þess að hún hafi verið barnshafandi árið 2019.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barns kærenda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við það með vísan til ungs aldurs þess og framburðar foreldra þess.

Kærendur lögðu fram afrit af fjölda gagna við meðferð mála þeirra hjá Útlendingastofnun. Kærendur lögðu m.a. fram upplýsingar úr þjóðskrá Tyrklands, uppsagnarbréf, skýringu á uppsögn, bankayfirlit frá Bank Asya, staðfestingu á handtöku, sakarvottorð, skjöl vegna bókabúðar, umboð lögmanns í Tyrklandi og fréttir úr tyrkneskum fjölmiðlum.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og barni þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Barni kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 4. júlí 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 12. júlí 2024. Kærunefnd bárust viðbótarathugasemdir og gögn frá kærendum 1. september og 24. desember 2024 og 15. janúar 2025.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð kærenda er vísað til greinargerðar þeirra til Útlendingastofnunar hvað aðstæður, málsástæður og rök kærenda varðar. Þar kemur m.a. fram að kærendur hafi flúið heimaríki á fölsuðum skilríkum þar sem þau hafi verið hluti af Gūlen hreyfingunni sem sé skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Tyrklandi. Kærendur hafi smyglað sér til Norður-Makedóníu, gengið þaðan til Grikklands og flogið frá Aþenu til Íslands. M hafi verið kennari og kærendur hafi verið virkir meðlimir í Gūlen hreyfingunni um árabil. Þau hafi átt bankareikninga í Bank Asya, verið áskrifendur af Zaman, félagsblaði Gūlenista, og notast við samskiptaforritið Bylock, þó undir öðru nafni. Í kjölfar valdaránstilraunarinnar árið 2016 gáfu tyrknesk yfirvöld út umdeilda hryðjuverkatilskipun, KNK/672 frá 23. júlí 2016, og M hafi verið vikið úr starfi ásamt 130 þúsund öðrum ríkisstarfsmönnum. Kærendur hafi reynt að hafa í sig og á með rekstri bókabúðar og með einkakennslu. Búðin hafi hins vegar orðið fyrir ítrekuðum skemmdarverkum og þau því fært reksturinn á netið. Í kjölfar valdaránstilraunarinnar hafi M verið handtekinn árið 2019 og mál sé enn opið gegn honum í heimaríki. Sex lögreglumenn hafi komið inn á heimili kærenda, handtekið hann fyrir framan K og leitað að sönnunargögnum til að bendla M við Gūlen hreyfinguna. Eftir valdaránstilraunina hafi kærendur upplifað mikla útskúfun í samfélaginu og bitni sú útskúfun einnig á fjölskyldu þeirra, bæði A og B. Kærendur hafi haldið við í Tyrklandi allan þennan tíma, enda komin á miðjan aldur, Tyrkland sé heimaríki þeirra og þau hafi trúað því að hlutirnir myndu lagast. Lögfræðingur þeirra í Tyrklandi hafi hins vegar ráðlagt þeim að flýja land áður en yfirvöld myndu fylgja máli M eftir. Kærendur telja að þau yrðu handtekin á flugvellinum yrði þeim gert að snúa aftur til Tyrklands.

Í greinargerð kemur fram að kærendur séu ósammála túlkun Útlendingastofnunar á því hversu veigamiklir meðlimir þau hafi verið í Gūlen hreyfingunni. Þá sé ljóst af gögnum málsins að tyrknesk yfirvöld hafi ekki litið til aðildar kærenda af léttúð og má sjá að M hafi verið veitt lausn starfa og því verið haldið til streitu af stjórnsýsludómstól og áfrýjunarnefnd. Þá séu kærendur ósammála Útlendingastofnun hvað varðar það að kærendur hafi lifað nokkuð óáreitt af hálfu yfirvalda eftir valdaránstilraunina árið 2016. Þau hafi verið titluð hryðjuverkamenn, A hafi verið neitað um leikskólapláss, B hafi verið neitað um starf og þau hafi flúið land að ráðleggingum lögfræðings þeirra. Vísa kærendur til úrskurðar kærunefndar nr. 295/2020 og telja að sami rökstuðningur eigi við í máli þeirra.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og barni þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamönnum hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur teljast flóttamenn í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur sæti ofsóknum og líflátshótunum í heimaríki og grundvallarmannréttindi þeirra séu ekki tryggð af hálfu stjórnvalda. Kærendur hafi orðið fyrir ofbeldi og ofsóknum af hálfu yfirvalda sem telja verði að nái því alvarleikastigi að vera ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa í úrskurð nr. 295/2020 máli sínu til stuðnings.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og barni þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi raunverulega ástæðu til að ætla að þeirra bíði ómannúðleg og vanvirðandi meðferð verði þau endursend til Tyrklands.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Með hliðsjón af viðtölum kærenda, aðild þeirra að Gūlen hreyfingunni, sem og framlögðum gögnum, ásamt aðstæðum og almennu ástandi í Tyrklandi sé ljóst að kærendur hafi ríka þörf fyrir vernd og uppfylli skilyrði 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi verið stimplaðir hryðjuverkamenn í heimaríki og sæti þar útskúfun sem hafi áhrif á líf þeirra og fjölskyldu.

Með endursendingu kærenda og barns þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga á grundvelli þess að þau séu aðilar að Gūlen hreyfingunni sem sé skilgreind sem hryðjuverkasamtök í heimaríki og kærendur hafi orðið fyrir aðkasti og annarri ómannúðlegri meðferð. Kærendur séu því í mikilli hættu á að verða fyrir frekari ofsóknum verði þau send til baka.

Með greinargerð til kærunefndar lögðu kærendur fram frekari gögn. Kærendur lögðu m.a. fram athugasemdir þeirra, bréf um lausn frá opinberri þjónustu, niðurstöðu stjórnsýsludómstóls og höfnun áfrýjunar.

Kærendur lögðu fram viðbótarathugasemdir og gögn hjá kærunefnd 24. desember 2024 og 5. janúar 2025. Kærendur kveðast hafa verið undrandi á ákvörðun Útlendingastofnunar og telja hana ranga. Gögn sem þau hafi lagt fram hafi verið hunsuð eða þau hafi ekki verið þýdd réttilega. Kærendur gera athugasemdir við rannsókn Útlendingastofnunar á framlögðum gögnum, við landaupplýsingar og niðurstöður Útlendingastofnunar m.a. hvernig ákveðið sé að einstaklingur tilheyri Gūlen hreyfingunni, hversu stórt hlutverk M hafi haft innan hreyfingarinnar, að M hafi ekki lagt fram gögn hvað varðar opið mál gegn honum í Tyrklandi, að kærendur hafi ekki sýnt fram á að þau séu í hættu á ómannúðlegri meðferð í heimaríki, og um að A hafi verið í leikskóla í heimaríki. Þá kveðast kærendur ekki hafa getað útskýrt mál sitt að fullu í viðtali hjá Útlendingastofnun vegna spennu eða túlkunarvandamála. Kærendur greina m.a. frá því að M hafi kynnst Gūlen hreyfingunni í menntaskóla. Í mennta- og háskóla hafi M búið í húsnæði á vegum hreyfingarinnar og verið fulltrúi hreyfingarinnar. M hafi starfað sem kennari í opinberum grunnskólum frá 30. október 1997 til 1. september 2016, þegar honum hafi verið vikið úr starfi vegna aðildar sinnar að Gūlen hreyfingunni. Þegar M hafi útskrifast úr háskóla hafi hlutverk hans innan Gūlen hreyfingarinnar aukist. M hafi gerst fulltrúi kennara í hreyfingunni í tilteknum hverfum í Istanbúl, útskýrt kenningar hreyfingarinnar og boðið kennurum á fundi og samverustundir hreyfingarinnar. Þá hafi M stutt hreyfingu og stofnanir hennar fjárhagslega og haldið fundi heima hjá kærendum. M hafi unnið að því að fjölga fylgjendum hreyfingarinnar og áskrifendum af félagsblaði hreyfingarinnar. M greindi frá því að eiga bankareikning í Bank Asya, sem sé banki hreyfingarinnar, og að hann hafi notað Bylock forritið undir öðru nafni. Eftir að M hafi verið rekinn hafi yfirvöld sett upp áfrýjunarnefnd og allir meðlimir hennar verið skipaðir af yfirvöldum. Nefndin hafi hafnað umsókn M um að brottvikningu yrði hrundið. Kærendur hafi opnað bókabúð eftir að M hafi verið vikið úr starfi og stuðningsmenn ríkisstjórnar hafi beitt þau þrýstingi. Foreldrar í skólum barnanna hafi varað fólk við að versla við kærendur og ráðist hafi verið á kærendur með hníf. Kærendur hafi lokað búðinni 29. nóvember 2018, tveimur mánuðum eftir árásina, og fært verslunina á netið. Þá hafi M sinnt einkakennslu og verið leigubílstjóri í stuttan tíma. M hafi mætt fjandsamlegu viðmóti þegar hann hafi farið að biðja í moskunni á föstudögum. Kærendur greindu frá því að uppkomið barn M, B, hafi gengið í skóla á vegum Gūlen hreyfingarinnar. Eftir að B hafi útskrifast úr háskóla hafi enginn ríkisrekinn spítali viljað ráða hana þar sem foreldrar hennar hafi ekki fengið ekki öryggisvottun (e. security clearance). Kærendur hafi náð samkomulagi við einkasjúkrahús um að ráða B en sjúkrahúsið hafi dregið ráðningarsamning til baka þegar í ljós hafi komið að M hafi verið rekinn með tilskipun yfirvalda. Opinberir leikskólar hafi neitað A um vist en þeim hafi tekist að skrá hann í leikskóla á vegum stjórnarandstöðu. Þar hafi þau engu að síður mætt andúð forelda og hafi ekki getað sent A í leikskóla vegna öryggis hans. Kærendur greindu frá því að í almannatryggingakerfi Tyrklands hafi tilteknir kóðar verið skráðir hjá einstaklingum sem hafi misst störf sín vegna tilskipunar yfirvalda eða verið merktir sem hryðjuverkamenn. Það hafi haft þær afleiðingar að ef kennitala (e. ID number) M hafi verið slegið upp einhvers staðar í Tyrklandi þá hafi komið upp að honum hafi verið sagt upp störfum. Fyrirtæki hafi ekki viljað ráða einstaklinga í vinnu sem hafi þessa skráningu og stjórnvöld hafi beitt fyrirtæki þrýstingi til að ráða þá ekki. Hinn 14. febrúar 2019 hafi sex lögreglumenn, þar af einn vopnaður, ruðst inn á heimili kærenda og leitað að efni tengt Gūlen hreyfingunni. Þeir hafi handtekið M, leitt hann í handjárnum út í bíl fyrir framan nágranna þeirra og nemendur M og farið með hann á lögreglustöðina. Á meðan hann hafi verið í varðhaldi hafi hann ekki fengið vatn að drekka eða að nota salernið. Þegar yfirvöld hafi byrjað að handtaka vini þeirra í minni borgum hafi kærendur ákveðið að yfirgefa heimaríki. En á þeim tíma, árið 2018, hafi K verið barnshafandi. Allir sem hafi verið reknir með tilskipun yfirvalda hafi fengið farbann, kærendur hafi ekki getað sótt um vegabréf og eina leiðin til að yfirgefa Tyrkland hafi verið yfir [...] sem hafi verið hættulegt, sérstaklega með barnshafandi konu. Lögfræðingur kærenda hafi tilkynnt kærendum að farbannið gæti bara varað í sjö ár. Kærendur hafi spurst fyrir um farbannið hjá yfirvöldum sem hafi staðfest að farbanninu hafi verið aflétt. Þá hafi kærendur sótt um vegabréf, en til að forðast að vekja athygli yfirvalda hafi þau ekki öll sótt um vegabréf á sama tíma, heldur hafi M og A sótt um vegabréf í júlí og M í ágúst. Lögfræðingur kærenda hafi greint þeim frá því að mál sem hafi hafist gegn M árið 2019 væri enn opið og M ætti á hættu að vera handtekinn árið 2023. Eftir að kærendur hafi fengið vegabréfin sín hafi þau ákveðið að fara til Norður-Makedóníu þar sem þar sé stórt tyrkneskt samfélag. Þau hafi vonast eftir litlu eftirliti við brottfararhliðin sérstaklega á opinberum frídegi. Síðan hafi þau farið fótgangandi til Grikklands. Kærendur greindu frá því að aðgerðir gegn einstaklingum í Istanbúl hafi aukist, tveir lögreglumenn hafi komið að heimili kærenda og á heimili móður M að leita að þeim eftir að þau yfirgáfu heimaríki. Kærendur greindu frá tveimur samstarfsfélögum M sem hafi verið handteknir og annar fengið fangelsisdóm og samstarfsfélaga M sem hafi flúið til Þýskalands og fengið þar dvalarleyfi. M kvað yfirvöld vera að herða aðgerðir gegn meðlimum Gūlen hreyfingarinnar og hafi handtekið vini kærenda. Þá hafi lögfræðingur kærenda sent þeim viðvörunarbréf vegna þessara aðgerða og til að ráðleggja þeim frá því að snúa til baka til Tyrklands. Kærendur telji að þau verði handtekin á flugvellinum snúi þau til baka til Tyrklands. Endursending kærenda og A til Tyrklands stofni lífi þeirra í hættu og þau verði útsett fyrir kúgunum. Kærendur fara fram á að nafngreindur einstaklingur, búsettur á Íslandi og fyrrum dómari í Tyrklandi, komi fyrir kærunefnd og útskýri starfsemi dómstóla í heimaríki.

Kærendur lögðu fram afrit af fjölda gagna hjá kærunefnd. Kærendur lögðu m.a. fram afrit af kennaraskírteini og nafnskírteini M, starfskráningu, niðurstöðu úrskurðarnefndar í máli M, bréf frá [...], tilskipun KHK/667 og 668 úr lögbirtingarblaði Tyrklands, afrit af tilskipun KHK/672 með viðaukum, bankafærslur af ótilgreindum og tilgreindum bankareikningum á árunum 2013-2016, bankayfirlit frá Bank Asya, útprent út E-Devlet Portal um starfsferil og starfslok M, opinber skráningargögn vegna verslunar kærenda, fréttir af meðferð stjórnvalda á meðlimum Gūlen hreyfingarinnar, lögregluskýrslu dags. 4. febrúar 2019, skjáskot af upplýsingum á ferðaskrifstofu um ferð til Norður-Makedóníu, upplýsingar um starfsferil og starfslok og [...], upplýsingar um starfsferil og starfslok, [...], [...], bréf frá lögfræðingi kærenda og bréf frá kærendum um aðgerðir í Tyrklandi ásamt færslum ráðherra á samfélagsmiðlinum X.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærendur gera ýmsar athugasemdir við málsmeðferð og mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika kærenda, stöðu þeirra í heimaríki og heimildum um Tyrkland. Auk þess gera þau athugasemd við túlkun í viðtölum þeirra og þýðingu á framlögðum gögnum. Við meðferð málsins gafst kærendum kostur á að koma á framfæri öllum sínum málsástæðum í ítarlegum viðtölum hjá Útlendingastofnun, með framlagningu gagna og greinargerð talsmanns. Í viðtali var þeim auk þess leiðbeint um að hefðu þau einhverjar athugasemdir varðandi túlkun viðtalsins hefðu þau tækifæri til þess að koma að athugasemdum í viðtali. Ekki voru bókaðar athugasemdir varðandi túlkun eða skilning kærenda í viðtölunum. Jafnframt voru endurrit viðtalanna send talsmanni kærenda og gafst kærendum færi á að koma að athugasemdum vegna þeirra í greinargerð til Útlendingastofnunar. Slíkar athugasemdir voru ekki sendar til stofnunarinnar. Þá höfðu kærendur tækifæri til að leggja fram frekari gögn við meðferð málsins hjá kærunefnd.

Kærendur vísa til tiltekins úrskurðar kærunefndar frá árinu 2020 og telja að sami rökstuðningur eigi að gilda um þeirra mál. Við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skal mat á almennum aðstæðum fara fram þegar ákvörðun er tekin og hafa verður í huga að almennar aðstæður geta breyst hratt. Mat sem byggt er á einstaklingsbundnum aðstæðum í máli getur ekki verið fordæmisgefandi í öðru máli nema að því leyti að um sambærileg atvik sé að ræða.

Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málsins. Með vísan til alls framangreinds og þess að kærunefnd hefur komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun er ekki ástæða til að gera athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir eða ógilda þær á grundvelli málsmeðferðar annmarka.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað tyrkneskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og barn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og barn þeirra séu tyrkneskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Tyrklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2022 Report on International Religious Freedom: Turkey (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • 2023 Türkiye Earthquake Disaster Brief (The International Federation of Red Cross and Crescent Societies (IFRC), 2023);
  • Country Policy and Information Note: Gülenist movement (UK Home Office, febrúar 2018);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Gulenists (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Kurds (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note – Turkey: Military service (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Peoples’ Democratic Party (HDP) (UK Home Office, mars 2020);
  • Country Policy and Information Note: Peoples’ Democratic Party/Green Left Party (HDP/YSP) (UK Home Office, október 2023);
  • DFAT Country Information Report – Turkey (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 10. September 2020);
  • Freedom in the World 2024 – Turkey (Freedom House, 2024);
  • Freedom in the World 2023 – Turkey (Freedom House,9. mars 2023);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 2. mars 2022);
  • Progress report on the preparation for EU membership – Türkiye 2023 Report (European Commission, 8. nóvember 2023);
  • Report on the human rights situation covering 2022 – Türkiye (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • The World Factbook - Turkey (Central Intelligence Agency, 6. desember 2019);
  • Turkey’s Constitution of 1982 with Amendments through 2017 (https://www.constituteproject.org/constitution/Turkey_2017.pdf?lang=en, Skoðað 27. júní 2024);
  • Turkey Healthcare Technologies Resource Guide (U.S. International Trade Administration. Sótt 27. júní 2024);
  • Turkey Individuals associated with the Gülen movement (The Finish Immigration Servis fact-finding mission to Ankara and Istanbul 2-6 October 2023, júní 2024);
  • Turkey: Situation of Kurds, including in Istanbul, Ankara and Izmir; situation of supporters or perceived supporters of the People’s Democratic Party (Halklarin Demokratik Partisi, HDP); situation of Alevi Kurds (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. janúar 2020);
  • Türkiye – Country overview (European Observatory of Health Systems and Policies. Sótt 27. júní 2024);
  • World Report Turkey 2023 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples - Turkey: Kurds (Minority Rights Group International, júní 2018).

Tyrkland er lýðveldi með rúmlega 83 milljónir íbúa. Ríkið er aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ríkið er jafnframt aðili að m.a. flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og alþjóðasamningi um afnám alls kynþáttamisréttis.

Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Tyrkland frá október 2023 kemur fram að landið sé og verði áfram lykilsamstarfsaðili Evrópusambandsins. Tyrkland hafi verið tengt Evrópusambandinu með samstarfssamningi síðan 1964 og hafi tollabandalag verið stofnað árið 1995. Tyrkland hafi stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu frá desember 1999. Aðildarviðræður hafi hafist í október 2005 en séu í biðstöðu og hafi verið frá árinu 2018. Fram kemur að ekki hafi verið brugðist við alvarlegum áhyggjum Evrópusambandsins af áframhaldandi hnignun lýðræðislegra viðmiða, réttarríkisins, sjálfstæði dómstóla og virðingu fyrir grundvallarréttindum borgara landsins. Í maí 2023 fóru fram forseta- og þingkosningar í Tyrklandi og hélt stjórnarbandalagið meirihluta sínum á þinginu og var sitjandi forseti endurkjörinn. Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar séu meðal annars aðstoð og endurreisn eftir jarðskjálfta, fjármálastöðugleiki og endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hinn 31. mars 2024 fóru fram sveitarstjórnarkosningar í landinu þar sem að stjórnarandstaðan, einkum CHP flokkurinn, vann mikinn sigur m.a. í höfuðborginni Istanbúl. Niðurstöður kosninganna voru einnig þær að CHP flokkurinn hafi sigrað aftur í borgunum Izmir, Adana og Antalya og haldið meirihluta þar.

Í mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 um aðstæður í Tyrklandi kemur fram að átök stjórnvalda og PKK hafi leitt af sér umfangsmikið tjón í suðausturhluta Tyrklands. Stjórnvöld hafi af þeim sökum árið 2016 lagt hald á tilteknar eignir í sérstökum héruðum í suðausturhluta landsins. Hafi yfirvöld lýst því yfir að tilgangur yfirtökunnar væri að auðvelda uppbyggingu eftir átökin. Sumir íbúanna sem hafi orðið fyrir áhrifum yfirtökunnar hafi fram lagt fram kröfur fyrir dómstólum þar sem þeir hafi sóst eftir leyfi til að vera áfram á yfirteknu landsvæði og fá bætur. Hafi mörg þessara mála enn verið óafgreidd í árslok 2022. Í ákveðnum tilfellum hafi dómstólar dæmt íbúum bætur. Frá og með júní 2022 hafi 5,7 milljarðar líra verið greiddar út til umsækjenda. Í skýrslu er greint frá einu atviki um að sprengja hafi sprungið í Istanbúl þar sem sex einstaklingar hafi látið lífið og 81 einstaklingur slasast. Það hafi enginn hópur gefið sig fram um að bera ábyrgð á atvikinu en tyrknesk yfirvöld telji árásina hafa verið að undirlagi PKK. Yfirvöld hafi handtekið einstakling sem talinn hafi verið bera ábyrgð á sprengingunni og tólf aðra einstaklinga. Í kjölfar sprengingarinnar hafi tyrkneskar hersveitir sprengt um 500 skotmörk í Sýrlandi og Írak, og drepið að minnsta kosti tíu óbreytta borgara. Í öðrum heimildum, t.d. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2022, kemur fram að ofbeldisverk annara aðila, svo sem PKK, hafi ekki átt sér stað í borgum í Tyrklandi heldur eigi sér helst stað í dreifbýli í suðausturhluta landsins.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í febrúar 2018 kemur fram að Fethullah Gülen hafi fæðst árið 1941 í norðausturhluta Tyrklands. Hann hafi komið fram á áttunda áratug síðustu aldar m.a. sem múslímskur predikari og talsmaður nútíma menntunar. Gülen hreyfingin (einnig kölluð FETÖ og Hizmet) sé ekki sérstakur stjórnmálaflokkur heldur frekar skipulagt samfélag þeirra sem fylgi Gülen. Hreyfingin aðgreini sig frá öðrum íslömskum hreyfingum með því að leggja áherslu á mikilvægi siðfræði í menntun, fjölmiðlum, viðskiptum og opinberu lífi. Hreyfingin samanstandi af fjölda fólks sem sett hafi á fót hundruð skóla, kennslumiðstöðva, sjúkrahúsa og hjálparstofnana. Samkvæmt skýrslunni megi rekja samband Fethullah Gülen og Erdogan forseta Tyrklands langt aftur en þeir hafi deilt sameiginlegri andstöðu við hersveitir Kemalista í Tyrklandi í mörg ár og haft það að sameiginlegu markmiði að koma flokknum frá völdum. Það hafi svo tekist með sigri AKP flokksins í kosningum árið 2007. Samband Erdogan og Gülen hafi farið versnandi í kjölfar kosninganna og hafi að endingu lokið árið 2013 þegar meðlimir Gülen hreyfingarinnar hafi rannsakað spillingu innan flokks Erdogan forseta og hafi m.a. dómarar hliðhollir Gülen hreyfingunni tekið fyrir kærur á hendur forsetanum fyrir spillingu. Þá hafi Gülen sjálfur gagnrýnt Erdogan fyrir meðhöndlun sína á mótmælum í Gezi garðinum árið 2013. Síðar það sama ár hafi Erdogan sagt Gülen og stuðningsmenn hans hafa reynt að koma ríkisstjórn sinni frá með spillingarrannsókn sem leitt hafi til afsagnar ráðherra AKP flokksins. Í kjölfarið hafi Erdogan forseti og flokkur hans skilgreint Gülen hreyfinguna sem hryðjuverkasamtök og pólitískar aðfarir gerðar að hinum ýmsu einstaklingum og stofnunum vegna gruns um tengsl við hreyfinguna, s.s. menntastofnunum, embættismönnum, dómurum og fjölmiðlum.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í október 2023 kemur fram að Gülen hreyfingin sé hópur af trúar-, mennta- og félagslegum stofnunum í Tyrklandi og öðrum löndum. Ríkisstjórn Tyrklands hafi haldið því fram að Gülen hreyfingin hafi staðið að baki valdaránstilrauninni 15. júlí 2016. Í kjölfar valdaránstilraunarinnar hafi stjórnvöld í Tyrklandi beint aðgerðum gegn einstaklingum og hópum sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna og hafi það m.a. leitt af sér að hundruð þúsunda einstaklinga hafi verið handteknir, og settir í gæsluvarðhald, yfir 117.000 sakfellingar undir hryðjuverkalögum landsins, brottrekstri um 130.000 ríkisstarfamanna, afturköllun um 230.000 vegabréfa, lokun fyrirtækja og stofnanna og eignarupptöku hjá þeim. Flestar handtökur hafi átt sér stað fyrstu tvö árin þegar neyðarástandi hafi verið lýst yfir í landinu, 21. júlí 2016 til 18. júlí 2018. Þá hafi hundruð einstaklinga verið handteknir og settir í gæsluvarðhald sem séu taldir tengjast hreyfingunni, t.d. fyrrum kennarar, hermenn og lögreglumenn, einstaklingar sem hafi aðstoðað fjölskyldur þar sem ættingi hafi verið fangelsaður vegna tengsla við hreyfinguna og einstaklingar sem hafa verið ásakaðir um að taka við og dreifa fjárhagsaðstoð sem stuðningsmenn hreyfingarinnar erlendis hafa veitt, frá miðju ári 2022 til ársins 2023. Þessar tölur eru þó settar fram með þeim fyrirvara að einstaklingar hafi einnig verið sakaðir um aðild að öðrum hryðjuverkahópum svo sem PKK. Mat á því hvort að einstaklingar þarfnist verndar vegna tengsla sinna eða meintra tengsla sinna við Gülen hreyfinguna ræðst af fjölda þátta og fara þarf fram einstaklingabundið mat í hverju máli fyrir sig. Við mat á því hvort að einstaklingur sem hafi tengsl eða meint tengsl við Gülen hreyfinguna eigi á hættu ofsóknir kemur til skoðunar hversu mikið eiginleg eða meint tengsl við hreyfinguna séu og hversu líklegt sé að yfirvöld hafi vitneskju um eða gætu hafa grun um tengsl einstaklinga við hreyfinguna. Þá þurfi að líta til þess hvort að einstaklingur hafi einhvern tímann verið handtekinn eða settur í varðhald og þá undir hvaða kringumstæðum sem og hvort að einstaklingur hafi verið ákærður, sakfelldur og dæmdur til refsingar eða hafi þurft að hlíta öðrum viðurlögum. Skoða þarf hvort að einstaklingur hafi átt í öðrum samskiptum við yfirvöld, sérstaklega hvað varðar ásakanir um tengsl þeirra við hreyfinguna, einkum skyldu til að hafa á sér kennivottorð og hvernig sú skylda tengist m.a. því að geta unnið, fá aðgang að heilbrigðis- og félagsþjónustu, skráningu á kjörskár, aðgengi að tyrkneskum dómstólum, aðgang að skólum og háskólum, að fá að eiga fasteign eða bíla og að fá síma og net. Þá skal litið til trúverðugra samskipta við tyrknesk yfirvöld eftir að einstaklingur yfirgaf heimaríki og starfsgreinar viðkomandi. Einkum skal skoða hvort um sé að ræða blaðamenn eða fjölmiðlamenn sem hafi birt neikvæða umfjöllun um yfirvöld, kennara í Gülen menntastofnunum, dómara og lögfræðinga, hermenn og lögreglumenn sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna, umsvif samfélagsmiðla reikninga viðkomandi og fjölda ferðalaga til Pennsylvaníu þar sem Fetullah Gülen sé búsettur. Aðrir þættir sem geta aukið hættu á ofsóknum séu m.a. notkun á ByLock smáforritinu, að vera í viðskiptum við Asya Bank, vera áskrifandi að Zaman dagblaðinu, eign á lesefni um Gülen, að hafa gengið í eða sent barn sitt í Gülen skóla, hafa verið meðlimur að eða hafa styrkt fjárhagslega samtök sem séu tengd Gülen hreyfingu og að eiga fjölskyldumeðlimi sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna. Tilteknar aðgerðir sem beinist gegn meðlimum Gülen hreyfingarinnar, s.s. missir atvinnu, nægja ekki einar og sér til þess að teljast ofsóknir eða til að uppfylla þröskuld undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Einstaklingur sem hefur ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu yfirvalda vegna tengsla sinna eða meintra tengsla við hreyfinguna munu almennt ekki fá vernd frá yfirvöldum heimaríkis.

Í ofangreindum skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að ofbeldi gagnvart konum sé útbreitt vandamál í Tyrklandi. Fram kemur að lög þar í landi leggi bann við ofbeldi gegn konum og geti refsing við slíkum brotum varðað allt að 12 ára fangelsisvist. Jafnframt sé nauðgun innan hjónabands refsiverð. Lög í Tyrklandi kveði á um vernd af hálfu lögreglu og annarra stjórnvalda fyrir þolendur ofbeldis en yfirvöld hafi verið gagnrýnd fyrir ófullnægjandi framfylgni laganna og vernd þolenda. Fram kemur að lög fyrirskipi um að veita athvarf og fjárhagslega aðstoð til þolenda ofbeldis og að í landinu séu starfræktir fjölskyldudómstólar sem geti ákveðið þvingunaraðgerðir gegn gerendum. Dómstólar hafi reglulega gefið út nálgunarbann gegn gerendum en lögreglan hafi ekki framfylgt því nægilega. Þó beri heimildir með sér að dómstólar hafi í einhverjum tilvikum beitt vægari viðurlögum en lög kveði á um í málum tengdum kynbundnu ofbeldi t.a.m. með vísan til góðrar hegðunar gerandans meðan á réttarhöldum hafi staðið eða vegna þess að hegðun þolanda hafi þótt ögra geranda. Þá sé í boði sérstök neyðarlína sem þolendur geti hringt í auk snjallforrits, þar sem hægt sé að tilkynna heimilisofbeldi.

Samkvæmt stjórnarskrá Tyrklands skulu allir borgarar landsins vera jafnir fyrir lögunum óháð tungumáli, kynþætti, litarhafti, kyni, stjórnmálaskoðunum, trúarskoðunum eða öðrum sjónarmiðum. Þá kveði lög á um bann við mismunun, m.a. á grundvelli stjórnmálaskoðana, kyns og trúar. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að ákvæði séu í stjórnarskrá og löggjöf sem heimili jákvæða mismunun til að auka jafnrétti kynjanna. Konur njóti sömu lagalegu réttinda og karlmenn en mismunun eigi sér þó stað. Takmörk séu í lögum um heimildir kvenna til að ganga í hjúskap á ný eftir skilnað auk þess að stunda atvinnu sem teljist líkamlega erfið eða hættuleg. Þá hafi konur jafnan rétt þegar komi að erfðarétti, til að eiga eignir og að eiga og reka fyrirtæki. Jafnframt hafi verið sett lög með það að markmiði að auka hlut kvenna á atvinnumarkaði. Lög veiti rétt til fæðingarorlofs, brjóstagjafar á vinnutíma, sveigjanlegs vinnutíma og stærri vinnustaðir þurfi að sjá fyrir barnagæslu. Konur hafi engu að síður sætt mismunun á vinnumarkaði og atvinnuþáttaka kvenna hafi verið um 30% á árinu 2022 í samanburði við 65% karlmanna.

Á vefsíðu International Trade Administration kemur fram að heilbrigðisráðuneytið í Tyrklandi setji stefnu í heilbrigðismálum og sé stærsti veitandi heilbrigðisþjónustu í landinu. Það séu um 880 ríkisreknir spítalar í landinu, 570 einkareknir spítalar og 68 háskólasjúkrahús. Heildarfjöldi sjúkrarúma séu um 226.000. Tyrkland eyði um 4,5% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og hafi það hlutfall margfaldast síðan árið 2002 þegar að átak hafi verið gert í heilbrigðismálum í Tyrklandi. Tyrkland hafi sett sér framsækna stefnu í rafrænni heilbrigðisþjónustu. Allar upplýsingar um læknisheimsóknir, rannsóknir, meðferðir og lyfjaávísanir séu skráðar í rafræna sjúkraskrá. Lyfseðlar séu gefnir út rafrænt og þeim lyfjum sem sé ávísað fáist afgreidd í apótekum samkvæmt rafrænu lyfseðlum. Þá hafi almenningur aðgang að sjúkraskrá sinni í gegnum snjallsímaforrit. Á vefsíðu European Observatory of Health Systems and Policies kemur fram að í Tyrklandi sé almannatryggingakerfi og að allir íbúar sem séu skráðir hjá Almannatryggingum (e. Social Security Institution) fái fría heilbrigðisþjónustu. Almannatryggingar séu fjármagnaðar með framlagi atvinnurekanda og starfsmanna en þeir sem hafi lága innkomu séu undanþegnir greiðslu. Svo til nær öll heilbrigðisþjónusta fellur undir almanntryggingar nema lýtalækningar og tannlækningar og tæknifrjóvgun sé aðeins greitt að hluta. Vegna skorts á læknum á landsvísu hafi sífellt fleiri keypt viðbótarheilbrigðistryggingu til að greiða fyrir meðferð á einkareknum sjúkrahúsum. Þá kemur fram í ofangreindum gögnum að öll börn í Tyrklandi eigi rétt á að ganga í skóla. Árið 2012 hafi skyldubundin menntun barna verið aukin frá 8 árum upp í 12 ár og ljúki því skólaskyldu barna við 18 ára aldur.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja umsókn sína á því að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda vegna þess að þau séu meðlimir í Gülen hreyfingunni.

Mat á trúverðugleika frásagna kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hann hafi verið meðlimur í Gülen hreyfingunni í 35 ár. M hafi átt bankareikning í Bank Asya, verið áskrifandi af blaði hreyfingarinnar og notað Bylock forritið í nokkra mánuði undir öðru nafni. Hlutverk M hjá hreyfingunni hafi verið nýliðun, skipulagning þjónustu, kynning á hreyfingunni, ræðuhöld og aðstoð við fólk. Eldra barn M, B, hafi gengi í skóla á vegum hreyfingarinnar. M hafi verið kennari í [...] en með tilskipun yfirvalda hafi hann verið rekinn úr starfi 1. september 2016 og áfrýjunarnefnd hafi synjað áfrýjun hans. M hafi verið handtekinn og yfirheyrður hjá lögreglunni vegna aðildar sinnar að Gülen hreyfingunni í febrúar 2019. M telur að enn sé opið mál gegn honum í heimaríki og hann geti verið handtekinn hvenær sem er. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hafa verið Gūlen hreyfingunni í 27 eða 28 ár og hafa verið virk í störfum fyrir hreyfinguna til ársins 2016. Störf hennar fyrir hreyfinguna hafi falist í nýliðun, ræðuhöldum, kynningu á félaginu, undirbúningi samkoma og fjársöfnun fyrir fátækt fólk. K hafi verið áskrifandi að Zaman dagblaðinu og hvatt aðra til að lesa það. K hafi verið með reikning í Bank Asya. K kvaðst ekki hafa lent í vandræðum vegna aðildar sinnar að hreyfingunni af hálfu stjórnvalda en hún hafi verið dæmd af samfélaginu og þolað útskúfun.

Í viðbótarathugasemdum til kærunefndar greindu kærendur m.a. frá því að það séu áframhaldandi ofsóknir stjórnvalda í garð meðlima Gülen hreyfingarinnar og lögðu fram vefslóðir á færslur af samfélagsmiðlinum X og afrit af fréttum því til stuðnings. Þá greindu kærendur frá því að uppkomið barn M, B, hafi ekki fengið vinnu vegna þess að M hafi verið rekinn með tilskipun yfirvalda og að A hafi verið neitað um leikskólapláss í ríkisreknum leikskólum. Greindu kærendur frá því að M hafi verið fulltrúi hreyfingarinnar bæði í menntaskóla og háskóla og búið í húsnæði hreyfingarinnar. Kærendur greindu frá því að hlutverk M í Gülen hreyfingunni hafi aukist eftir að hann hafi útskrifast úr háskóla, hann hafi verið fulltrúi hreyfingar gagnvart kennurum í hverfum þar sem hann hafi starfað. M hafi auk þess stutt hreyfinguna og stofnanir hennar fjárhagslega. Kærendur hafi ákveðið að yfirgefa Tyrkland árið 2018, en vegna þess að K hafi verið barnshafandi og M í farbanni hafi þau ekki farið strax. Allir sem hafi verið reknir samkvæmt tilskipun yfirvalda hafi fengið farbann en það hafi einungis getað varað í sjö ár. Árið 2023 hafi þau hafi fengið staðfest hjá yfirvöldum að farbanni M hafi verið aflétt og þá sótt um og fengið vegabréf og flogið frá Tyrklandi til Norður-Makedóníu.

Kærunefnd telur misræmi í frásögnum kærenda og gögnum málsins draga úr trúverðugleika þeirra, einkum hvað varðar hættu á ofsóknum yfirvalda á grundvelli aðildar og starfa þeirra fyrir Gülen hreyfinguna. Í fyrsta lagi dregur það úr trúverðugleika frásagnar kærenda að nýjar og ítarlegri upplýsingar koma fyrst fram hjá kærunefnd sem ekki komu fram í viðtölum hjá Útlendingastofnun m.a. að M hafi stutt Gülen hreyfinguna og stofnanir hennar fjárhagslega, að M hafi verið fulltrúi hreyfingarinnar í menntaskóla og háskóla og búið í húsnæði hennar, að hann hafi unnið að því að fjölga áskrifendum að félagsblaði hreyfingarinnar, að B hafi ekki fengið starf á ríkisreknum og einkareknum sjúkrahúsum þar sem M hafi verið rekinn úr starfi með tilskipun yfirvalda og að A hafi verið neitað um leikskólapláss á ríkisreknum leikskólum. Í viðbótaathugasemdum greina kærendur frá því að M hafi fengið farbann þegar hann hafi verið rekinn samkvæmt tilskipun sem hafi einungis getað gilt í sjö ár samkvæmt lögum. M greindi einnig frá því að kærendur hafi verið í sambandi við yfirvöld um það hvort að farbann hafi verið fellt úr gildi sem yfirvöld hafi staðfest við þau. Í kjölfarið hafi fjölskyldan öll getað sótt um ný vegabréf, sem þau gerðu í sitthvoru lagi. Framangreint bendir ekki til þess að kærendur hafi verið undir sérstöku eftirliti yfirvalda þegar þau hafi yfirgefið heimaríki í ágúst 2023. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að kærendur hafi ekki farið frá Tyrklandi strax eftir valdaránstilraun því þau hafi talið að ástandið myndi lagast. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að þau hafi ekki farið frá heimaríki eftir valdaránstilraun af því að þau hafi haldið að ástandið myndi lagast auk þess sem hún hafi verið barnshafandi árið 2019. Í viðbótarathugasemdum til kærunefndar greindu kærendur hins vegar frá því að þegar að yfirvöld hafi farið að handtaka vini þeirra í öðrum borgum hafi þau talið sig þurfa að yfirgefa heimaríki. Þá hafi K verið barnshafandi, árið 2018, og eina leiðin til að yfirgefa heimaríki hafi verið að fara yfir nafngreinda á til Grikklands sem hafi verið of hættulegt fyrir K. Þau hafi ekki getað sótt um vegabréf þar sem M hafi verið settur í farbann þegar hann hafi verið rekinn með tilskipun yfirvalda. Kærendur hafa ekki lagt fram gögn sem staðfesta að M hafi sætt farbanni í sjö ár líkt og þau greindu frá í viðbótarathugasemdum sínum eða að vegabréf allrar fjölskyldunnar hafi verið ógilt í kjölfar brottreksturs M. Þá greindu kærendur frá því að M hafi verið handtekinn árið 2019. Þrátt fyrir það hafi þau ekki gert tilraun til að yfirgefa heimaríki í tæplega fimm ár eftir handtökuna og í um fjögur ár og sjö mánuði eftir að A fæddist.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hryðjuverkamenn séu merktir með ákveðnum kóða í þjóðskrá í Tyrklandi. M kvaðst vera skráður með slíkan kóða og ef hann færi inn í þjóðskrá þá sæi hann það. Aðspurður hvort hann gæti sýnt fram á þessa skráningu greindi M þá frá því að hann hafi verið merktur til ársins 2021 en það væri búið að taka skráninguna út núna. Í viðbótarathugasemdum greindi M frá því að tilteknir kóðar hafi verið skráðir í almannatryggingakerfið í Tyrklandi sem gáfu í skyn að einstaklingur hafi verið rekinn með tilskipun stjórnvalda eða að hann væri merktur sem hryðjuverkamaður. Þetta hafi haft þá þýðingu að í hvert skipti sem kennitala (e. ID number) hafi verið slegin inn einhvers staðar í Tyrklandi gæfi það til kynna að M hafi verið rekinn úr starfi. Fyrirtæki sem hafi séð slíka skráningu hjá einstaklingum hafi ekki viljað ráða viðkomandi í vinnu. Þá hafi yfirvöld beitt þrýstingi á fyrirtæki í fjölmiðlum að ráða ekki einstaklinga með slíka skráningu. Af framlögðum gögnum verður hins vegar ráðið að þrátt fyrir þessa skráningu hafi M getað sinnt ýmsum störfum og rekið verslun á netinu sem að sögn K hafi gengið vel. Í öllu falli hefur skráningin ekki verið til staðar síðan árið 2021 og því ekkert sem bendi til þess að kærendur séu eða hafi verið undir eftirliti yfirvalda í heimaríki síðan þá.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun og í viðbótarathugasemdum greindi M frá því að tveir lögreglumenn hafi komið heim til kærenda í júlí 2023 til þess að staðfesta heimilifang þeirra. Þá hafi lögreglan komið á ný að heimili kærenda og á heimili móður M 25. október 2023, þegar kærendur hafi verið í Grikklandi. Að sögn kærenda framkvæmi lögreglan slíka könnun á heimilisföngum reglulega en M telji að kærendur hefðu verið handtekin ef þau hefðu haldið áfram að vera í heimaríki. Það að lögreglan hafi komið að heimili kærenda á meðan þau dvöldu enn þar, án frekari afleiðinga, bendir ekki til þess að kærendur eigi sérstaklega á hættu að verða handtekin fari þau aftur til heimaríkis.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að M hafi verið handtekinn árið 2019. M greindi frá því að það væri enn opið mál gegn honum í heimaríki. Hjá kærunefnd lögðu kærendur fram bréf frá lögfræðingi þeirra í Tyrklandi þar sem fram kemur að samkvæmt gögnum frá lögreglunni sem hann hafi kynnt sér sé mál gegn M enn opið. Kærendur hafa hins vegar ekki lagt fram framangreind gögn frá lögreglu sem vísa til þess að mál sé enn opið gegn M í heimaríki. Framangreint bréf lögfræðingsins hefur takmarkað sönnunargildi hvað þetta varðar. Samkvæmt framlögðu skjali frá ríkissaksóknara, dags. 31. janúar 2024, kemur fram að lögmaður kærenda hafi óskað eftir gögnum frá lögreglu í janúar 2024. Af bréfi ríkissaksóknara má einnig ráða að skýrsla hvað varðar M hafi verið staðsett í skjalageymslu lögreglunnar sem bendir ekki til þess að mál gegn M sé opið og í virkri rannsókn hjá lögreglunni. Í umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd sem lagðar voru fram hjá lögreglunni hér á landi greindu kærendur frá því að hafa smyglað sér til Norður-Makedóníu, gengið til Grikklands og flogið til Íslands. Þau hafi ekki hitt smyglarann sem hafi aðstoðað þau en fjölskyldan hafi hitt aðila sem hafi unnið fyrir smyglara. Þá kemur fram að þau hafi keypt fjölda falsaðra vegabréfa. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa ferðast til Grikklands á öðrum nöfnum en sínum eigin til að villa um fyrir tyrkneskum yfirvöldum. Í viðbótarathugasemdum til kærunefndar greindi M hins vegar frá því að eftir að kærendur hafi fengið vegabréfin sín hafi þau flogið frá Tyrklandi til Norður-Makedóníu á sínum eigin vegabréfum. Þá má sjá af stimplum í vegabréfum M og K að þau hafi flogið til Norður-Makedóníu 30. ágúst 2023, hafi síðan bæði flogið frá Norður-Makedóníu 30. september 2023. Þá er stimpill út úr Tyrklandi 30. ágúst 2023 að finna í vegabréfi M.

Kærendur lögðu fram gögn um dóm gegn fyrrum samstarfsfélaga M, lögregluskýrslu er varðar kennara í öðrum skóla sem M kvaðst þekkja og gögn er varða annan fyrrum samstarfsfélaga M sem benda til að hafi fengið dvalarleyfi í Þýskalandi. Framangreind gögn hafa takmarkað sönnunargildi hvað varðar stöðu kærenda vegna umsóknar þeirra um vernd á Íslandi þar sem af gögnunum verður ráðið að málsatvik séu talsvert ólík fyrir utan það að M hafi unnið tímabundið með tveimur af þessum einstaklingum. Þá má ráða af framlögðum gögnum að mál vegna brottvikningar M úr starfi hafi verið til meðferðar hjá yfirvöldum og dómstólum a.m.k. til ársins 2020 og hafi farið fyrir stjórnsýsludómstól í Tyrklandi. Framangreint bendir ekki til þess að kærendur hafi verið hrædd við yfirvöld eða að M eða fjölskyldan hafi verið undir sérstöku eftirliti yfirvalda í Tyrklandi vegna tengsla þeirra við Gülen hreyfinguna.

Líkt og greinir að framan ræðst mat á því hvort að einstaklingar þarfnist verndar vegna tengsla sinna eða meintra tengsla sinna við Gülen hreyfinguna af fjölda þátta og fara þarf fram einstaklingabundið mat í hverju máli fyrir sig. Við mat á því hvort að einstaklingur sem hafi tengsl eða meint tengsl við Gülen hreyfinguna eigi á hættu ofsóknir kemur til skoðunar hversu mikið eiginleg eða meint tengsl við hreyfinguna séu og hversu líklegt sé að yfirvöld hafi vitneskju um eða gætu hafa grun um tengsl einstaklinga við hreyfinguna. Þá þarf m.a. að líta til þess hvort að einstaklingur hafi verið handtekinn, settur í varðhald, ákærður, sakfelldur eða dæmdur til refsinga. Eins þarf m.a. að skoða hvort að einstaklingur hafi átt í öðrum samskiptum við yfirvöld, m.a. haft aðgengi að tyrkneskum dómstólum og fengið að eiga fasteign eða bíla og hafi síma og net. Einkum skal skoða hvort um sé að ræða blaðamenn eða fjölmiðlamenn sem hafi birt neikvæða umfjöllun um yfirvöld, kennara í Gülen menntastofnunum, dómara og lögfræðinga, hermenn og lögreglumenn sem séu taldir hafa tengsl við hreyfinguna. Tilteknar aðgerðir sem beinist gegn meðlimum Gülen hreyfingarinnar, s.s. missir atvinnu, nægja ekki einar og sér til þess að teljast ofsóknir eða til að uppfylla þröskuld undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Í ljósi framangreinds trúverðugleikamats telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærendur hafi verið meðlimir Gūlen hreyfingarinnar og tekið þátt í starfi hreyfingarinnar að einhverju leyti. Þá telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að M hafi starfað sem kennari í heimaríki og hafi verið rekinn samkvæmt tilskipun stjórnvalda líkt og tugþúsundir annarra einstaklinga. Af frásögnum kærenda og framlögðum gögnum má hins vegar ráða að ekki hafi verið gripið til frekari ráðstafana gegn M vegna meintrar aðildar hans að Gülen hreyfingunni eftir að hann hafi verið handtekinn, yfirheyrður og sleppt eftir nokkrar klukkustundir árið 2019. Af ákvörðun áfrýjunarnefndar í Tyrklandi, dags. 19. september 2018, má ráða að það hafi verið gert þrátt fyrir að yfirvöld hafi vitneskju um að M hafi m.a. átt reikning í Bank Asya, veitt stofnunum tengdum hreyfingunni fjárhagsaðstoð og hafi tengsl við stéttarfélög tengd hreyfingunni. Þá telur kærunefnd ekki ástæðu til að útiloka að kærendur hafi orðið fyrir einhverju áreiti af hálfu samborgara sinna en að mati nefndarinnar hafa kærendur ekki leitt líkum að því að þau atvik sem þau hafa lýst hafi verið vegna þess að þau hafi verið meðlimir Gūlen hreyfingarinnar. Þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er til þess að líta að samkvæmt frásögn kæranda hafi þau getað skráð verslun hjá yfirvöldum og síðar rekið netverslun í sjö ár í heimaríki án frekari afskipta stjórnvalda og rekið mál fyrir dómstólum gegn yfirvöldum til ársins 2020. Fyrir utan tvær heimsóknir lögreglunnar í heimilisfangsathugun árið 2023, hafa kærendur ekki lýst frekara áreiti af hálfu yfirvalda í heimaríki síðan handtakan átti sér stað árið 2019. Hafa kærendur því lifað tiltölulega óáreitt í tæplega fimm ár í heimaríki áður en yfirgáfu heimaríki sitt. Þá greindu kærendur frá því að þau hafi ferðast á vegabréfum sínum frá Tyrklandi til Norður-Makedóníu á leið sinni til Íslands. Kærendur kváðust hafa sótt um vegabréfið árið 2023. Framangreint bendir ekki til þess að kærendur hafi verið undir sérstöku eftirliti yfirvalda í Tyrklandi. Ber frásögn kærenda ekki með sér að aðrir fjölskyldumeðlimir þeirra hafi verið undir sérstöku eftirliti eða sætt áreiti af hálfu stjórnvalda, sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, vegna aðildar kærenda að Gülen hreyfingunni. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærendur eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu stjórnvalda vegna aðildar sinnar og starfa fyrir Gülen hreyfinguna.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að barnið fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Barn það sem um ræðir er í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur barni kærenda til boða menntun í heimaríki. Þá bera þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það barninu fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barns þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að þau hafi raunverulega ástæðu til að ætla að þeirra bíði ómannúðleg og vanvirðandi meðferð verði þau endursend til Tyrklands.

Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar sú frásögn kærenda að þau eigi á hættu að verða ofsótt af yfirvöldum á grundvelli aðildar sinnar eða starfa fyrir Gülen hreyfinguna eða af öðrum ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Istanbúl í Tyrklandi þegar þau hafi yfirgefið heimaríki. Með vísan til framangreindra heimilda er það mat kærunefndar að ástandið í heimaborg kærenda sé ekki á því alvarleikastigi að kærendur og barn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærendur og barn þeirra sé í raunverulegri hættu, í heimaborg sinni, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þau send aftur til Tyrklands.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og barn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og aðstæður í heimaríki þeirra er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærenda og barns þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Af framburði kærenda verður ekki ráðið að þau eða barn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta og aðgengi að lyfjum í heimaríki. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða barn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða barn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærendur hafa greint frá því að eiga fjölskyldu í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að kærendur hafi getað framfleytt sér og barni sínu í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barns þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda og aðstæðna barna almennt í Tyrklandi í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Tyrklandi eiga öll börn rétt á menntun og er skólaskylda til 18 ára aldurs og börn hafa aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Hvorki almennar aðstæður í Tyrklandi né einstaklingsbundnar aðstæður barnsins í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barns þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða barn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 5. nóvember 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barns þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og barni þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðust hvorki hafa tengsl við Ísland né önnur ríki á Schengen-svæðinu. Kærendur kváðu brottvísun og endurkomubann vera ranga ákvörðun gagnvart þeim og barni þeirra.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barns þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barns þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.


Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir