21 febrúar 2025

/

Úrskurður nr. 159/2025


Hinn 21. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 159/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24070227 og KNU24070232

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. júlí 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...], (hér eftir K), ríkisborgarar Afganistan, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 24. júlí 2024, um að synja þeim um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og fallist verði á beiðni þeirra um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 11. júlí 2024, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir átta daga dvöl frá 30. júlí til 6. ágúst 2024. Umsókn kærenda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. júlí 2024. Hinn 29. júlí 2024 barst kærunefnd kæra frá kærendum.

III. Málsástæður og rök kærenda

Í kæru kemur fram að kærendur telji að misskilnings hafi gætt við meðferð málsins. M hafi ekki bókað flugið til Íslands sjálfur heldur hafi vinir hans með tengsl við ferðaskrifstofu gert það fyrir hann og K. Í símaviðtali, sem tekið hafi verið við K, hafi hún ekki getað svarað spurningum um ferðlagið þar sem hún hafi ekki séð um undirbúning ferðarinnar heldur M.

Kærendur lögðu fram nýja ferðaáætlun á kærustigi.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Afganistan þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum í máli kærenda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; og rökstudd ástæða sé til að draga í efa yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun. Í íslenskri útgáfu synjunarformsins er ekki tilgreint efni þeirra yfirlýsinga sem dregnar voru í efa í málum M og K. Í máli M er aukinheldur ekki merkt við reiti 10 og 11 í íslenskri útgáfu synjunarformsins. Í enskri útgáfu eyðublaðsins kemur hins vegar fram að rökstudd ástæða sé til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ætlun til að ferðast til Íslands séu áreiðanlegar. Kærunefnd gerir athugasemd við vinnubrögð Útlendingastofnunar hvað þetta varðar, sbr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, þar sem segir að umsækjanda skuli tilkynnt um ákvörðun og synjun og ástæður fyrir henni á íslensku og öðru opinberu tungumáli meginstofnana Sambandsins. Ekki er ástæða til að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar þrátt fyrir framangreindan annmarka í íslenskri útgáfu synjunarformsins í máli M.

Ákvörðununum fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að hringt hafi verið í kærendur vegna flugbókunar sem þau lögðu fram. Kærendur hafi ekki getað lýst ferðaáætlun og áætlanir um að sjá norðurljósin að sumri til hafi verið óraunhæfar. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kærenda.

Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kærendur 19. júlí 2024 af því tilefni að ferðaskrifstofan sem gaf út flugmiða kærenda taldist grunsamleg. Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærendur hafi greint frá því að helsta ástæða ferðarinnar til Íslands væri að sjá norðurljósin. Norðurljósin séu hins vegar ekki sjáanleg á þeim tíma sem kærendur hugðust ferðast til Íslands, nánar tiltekið í júlí/ágúst. Kærendur hafi að öðru leyti ekki getað nefnt neina staði eða kennileiti á Íslandi. Aðspurður um nafn hótels eða borgar sem M hygðist dvelja í hafi hann þurft að fletta því upp í síma sínum. K kvaðst í símaviðtali ekki vita nafn borgarinnar sem hún hygðist dvelja í né heldur staðsetningu borgarinnar. Kærendur hafi greint frá því að félagi þeirra, sem væri ekki að ferðast með þeim, hafi bókað flugið fyrir kærendur. Ferðaáætlun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5., 6. og 7. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Bretlandi, þar sem kærendur lögðu umsókn sína fram. Í kæru kemur fram að kærendur telji að misskilnings hafi gætt við meðferð málsins. M hafi ekki bókað flugið til Íslands sjálfur heldur hafi vinir hans með tengsl við ferðaskrifstofu gert það fyrir hann og K. Í símaviðtali, sem tekið hafi verið við K, hafi hún ekki getað svarað spurningum um ferðlagið þar sem hún hafi ekki séð um undirbúning ferðarinnar heldur M. Þær skýringar sem kærendur hafa lagt fram við meðferð kærumáls þeirra eru ekki til þess fallnar að draga úr vafa um ferðaáætlanir kærenda. Í endurriti viðtals við kærendur höfðu þau enga þekkingu á Íslandi, að norðurljósunum undanskildum sem ekki eru sjáanleg á þeim árstíma sem kærendur áætluðu ferðalag til landsins. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Úr framangreindum annmarka verður ekki bætt á kærustigi með framlagningu nýrrar ferðaáætlunar.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki getað fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar, sbr. ii. tölul. 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi kærendur þannig ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar og að ástæða hafi verið til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kærenda hingað til lands, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kærendum um vegabréfsáritun til landsins því staðfest. Kærendum er leiðbeint um að þau geti sótt um vegabréfsáritun að nýju.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður