21 febrúar 2025
/
Úrskurður nr. 171/2025
Hinn 21. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 171/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040127
Beiðni um frestun framkvæmdar í mál [...]
Málsatvik
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 358/2024, dags. 9. apríl 2024, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. maí 2023, um að synja [...], fd. [...], ríkisborgara Sýrlands og Venesúela um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 9. apríl 2024. Hinn 18. apríl 2024 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar og endurtekna umsókn ásamt beiðni um frestun á framkvæmd að frumkvæði nefndarinnar. Endurtekin umsókn kæranda var felld niður af kærunefnd 8. nóvember 2024 þar sem framkomnar upplýsingar frá viðeigandi stjórnvöldum sýndu fram á að kærandi hafði farið sjálfviljug af landi brott.
Málsástæður og rök kærenda
Í beiðni kæranda kom fram að talsmanni hennar hefðu borist ný og mikilvæg gögn sem bæru þess glögglega merki að kærandi þarfnaðist mikillar umönnunar sonar síns sem væri með dvalarleyfi hér á landi. Kærandi væri með mikinn kvíða, þunglyndi og sjálfsvígshugsanir sbr. framlögð sjúkragögn. Kærandi óski þess, með vísan til 3. mgr. 35. gr. laga um útlendinga, að hjálögð sjúkragögn yrðu tekin til skoðunar af kærunefnd og málið yrði metið með tilliti til þeirra. Þá óski kærandi þess að kærunefnd fresti framkvæmd brottvísunar að eigin frumkvæði. Kærandi vísi til fyrirliggjandi gagna og greinargerða hjá Útlendingastofnun og kærunefnd.
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um frestun framkvæmdar stjórnsýslumáls
Fyrir liggur að kærandi fór sjálfviljug úr landi og því voru endurtekin umsókn hennar og beiðni um frestun réttaráhrifa felldar niður af kærunefnd 8. nóvember 2024. Þar sem kærandi fór sjálfviljug frá landinu er kröfu kæranda um frestun á framkvæmd, sbr. lokamálsliður 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, vísað frá.
Úrskurðarorð:
Kröfu kæranda um frestun framkvæmdar er vísað frá.
The appellants’ request to suspend the implementation of the decision of Immigration Appeals Board is dismissed.
Þorsteinn Gunnarsson
formaður