04 mars 2025

/

Úrskurður nr. 213/2025


Hinn 4. mars 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 213/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24080057

Kæra [...]

á ákvörðun Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 5. ágúst 2024 kærði [...], fd. [...] (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. ágúst 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 29. júlí 2024 óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir ellefu daga dvöl frá 11. til 21. september 2024. Umsókn kæranda var lögð fram hjá sendiráði Íslands í Washington D.C. í Bandaríkjunum. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. ágúst 2024. Hinn 5. ágúst barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kvaðst kærandi hafa lagt fram öll tilskilin skjöl samhliða umsókn um vegabréfsáritun. Dvöl hennar í Reykjavík væri aðeins í eina nótt þar sem hún hygðist sigla með tilteknu skemmtiferðaskipti frá Reykjavík 12. september 2024 og enda ferðina í Amsterdam 20. september, þaðan sem hún flygi aftur til Bandaríkjanna 21. september 2024.

Kærandi lagði ekki fram ný gögn á kærustigi.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 2, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að kærandi sé ekki með gilda heimild til búsetu í Bandaríkjunum í a.m.k. þrjá mánuði umfram áætlaðan dvalardag innan Schengen-svæðisins, sbr. skilyrði ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2013/1725 frá 26. mars 2013, um lista fylgiskjala sem leggja skal fram  með umsókn um vegabréfsáritun, m.a. í Bandaríkjunum.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Heimilt er að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef m.a. skilyrðum í b-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga er fullnægt, þ.e. að útlendingur hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildi a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar. Í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga segir m.a. að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir því að veita þær og að heimilt sé að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er kveðið á um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Við meðferð umsóknar um samræmda vegabréfsáritun skal samkvæmt 1. mgr. 21. gr. kanna hvort umsækjandi uppfylli skilyrðin fyrir komu, sem sett eru fram í a-, c-, d- og e- lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri, með sérstakri áherslu á mat á því hvort hætta sé á að umsækjandinn muni gerast ólöglegur innflytjandi eða hvort hann teljist ógnun við öryggi aðildarríkjanna og hvort hætta sé á að hann dvelji lengur á yfirráðasvæði aðildarríkjanna en honum er heimilt. Þegar kannað er hvort umsækjandi uppfyllir komuskilyrði skal sendiskrifstofan eða miðlæg yfirvöld m.a. sannprófa rök umsækjanda fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og að hann hafi nægt fé sér til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands síns eða til gegnumferðar um þriðja ríki, sem víst þykir að honum verði hleypt inn í, eða að hann sé í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. b-liður 3. mgr. 21. gr.

Kærandi er ríkisborgari Indlands og fyrir liggur indverskt vegabréf hennar. Umsókn hennar um vegabréfsáritun var lögð fram í Bandaríkjunum, hvar hún hefur vegabréfsáritun af tegundinni H4 sem samkvæmt framlögðum gögnum rann út 16. september 2022. Kæranda var leiðbeint með tölvubréfi frá deild áritanamála í Utanríkisráðuneytinu, dags. 30. júlí 2024, um að vegabréfsáritun hennar væri útrunnin. Var henni jafnframt leiðbeint um að samkvæmt b-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga og með vísan til gátlista sendiráðs Íslands í Washington D.C. fyrir umsækjendur um vegabréfsáritun, væri gerð krafa um fullnægjandi heimild til búsetu í Bandaríkjunum, nánar tiltekið gilt bandarískt dvalarleyfi sem staðfesti búsetu, gilda bandaríska vegabréfsáritun ásamt rafrænni I-94 skráningu, eða gilt leyfi til atvinnu (e. Employment Authorization Document – EAD) ef það virkar sem heimild til komu til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar (e. Advance Parole). Kærandi svaraði tölvubréfinu sama dag og kvaðst vera með umsókn um græna kortið í vinnslu. Skjal af gerðinni I-797A er meðal gagna málsins sem rennir stoðum undir það. Því hafi kærandi notað Advanced Parole skjal af gerðinni I-512L, sem væri meðal gagna málsins, til þess að komast aftur inn í Bandaríkin vegna fyrri ferðalaga. Kærandi vísaði til framlagðra stimpla í vegabréfi sínu sem sýndu fram á að henni hafi verið hleypt aftur inn í Bandaríkin í júní 2024. Þá hafi kærandi fengið Schengen-vegabréfsáritun til Portúgal í janúar 2023 sem hún hafi notað ásamt Advanced Parole skjalinu sem gildi til 2029. Umrætt skjal var gefið út 25. mars 2024.

Í dagbókarfærslum úr málakerfi Útlendingastofnunar kemur fram að EAD leyfi sé ekki gilt til inngöngu í Bandaríkin. Skjal af gerðinni I-797 hafi ekki verið metið gilt fyrir vegabréfsáritun af gerðinni H4. Skjal af gerðinni I-512L hafi ekki verið metið gilt fyrir EAD.

Þar sem kærandi hugðist ekki snúa aftur til upprunalands að dvöl á grundvelli vegabréfsáritunar til Íslands lokinni, og með því að leggja umsókn um vegabréfsáritun fram í sendiráði Íslands í Washington D.C., bar henni að uppfylla skilyrði um framlagningu heimildar til búsetu í Bandaríkjunum í a.m.k. þrjá mánuði umfram áætlaðan komudag til baka frá Schengen-svæðinu, sbr. skilyrði ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2013/1725 frá 26. mars 2013, um lista fylgiskjala sem leggja skal fram með umsókn um vegabréfsáritun, m.a. í Bandaríkjunum. Sú bandaríska vegabréfsáritun af tegundinni H4 sem kærandi lagði fram er meðal þeirra dvalarheimilda sem falla undir gildissvið ákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2013/1725. Vegabréfsáritun kæranda til Bandaríkjanna var hins vegar útrunnin þegar hún sótti um. Þá er EAD leyfi ekki gilt til inngöngu í Bandaríkin og þau fylgigöng sem kærandi lagði fram við meðferð málsins hjá utanríkisþjónustunni ófullnægjandi sem grundvöllur búsetuleyfis og endurkomu til Bandaríkjanna, sbr. framangreind ákvörðun nr. 2013/1725. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest, sbr. b-lið 2. mgr. 20. gr. laga um útlendinga.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi kærandi ekki sýnt fram á heimild til þess að ferðast til baka til annars ríkis, sbr. b-lið 6. mgr. 20. gr. Samkvæmt framansögðu er hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður