24 mars 2025

/

Aðgengisverðlaun ÖBÍ til Ísland.is

{image.Description}

Verkefnið Fyrir Grindavík, á vegum Ísland.is, vann til aðgengisverðlauna Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) á Íslensku vefverðlaununum sem veitt voru á föstudag. Á vefnum Fyrir Grindavík eru ýmsar umsóknir aðgengilegar, allt frá umsókn viðbragðsaðila um aðgang að bænum til umsókna um kaup á íbúðarhúsnæði.

„ÖBÍ hefur unnið ötult starf við að vekja athygli á og tala fyrir aðgengi að stafrænum heimi. Það fyllir okkur stolti og þakklæti að fá viðurkenningu frá ÖBÍ fyrir Ísland.is fyrir Grindavík á SVEF verðlaunahátíðinni. Vefurinn var settur upp á mettíma fyrir Grindvíkinga þegar jarðhræringar hófust og er vettvangur til upplýsingamiðlunar,“ segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.

Verkefni Ísland.is hlutu sömuleiðis tilnefningu í eftirfarandi flokkum:

  • Ísland.is appið í flokknum App ársins
  • Ísland.is í flokknum Opinber vefur ársins
  • Ísland.is í flokknum Efnis- og fréttaveita ársins
  • Stafrænt pósthólf í flokknum Opinber vefur ársins
  • Stafrænt pósthólf í flokknum Tækninýting ársins
  • Fyrir Grindavík sem Samfélagsvefur ársins
  • Stafræn umsókn um fæðingarorlof sem Stafæn lausn ársins

70 vefir, eða stafrænar lausnir, í 14 flokkum voru tilnefnd til verðlaunanna í ár. Fjöldi flokkanna endurspeglar breidd þeirra verkefna sem vef- og tækniiðnaðurinn á Íslandi kemur að.

Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi en það er SVEF sem stendur fyrir verðlaununum. Íslensku vefverðlaunin voru veitt í 24. skipti

Nánari upplýsingar um SVEF og íslensku vefverðlaunin er að finna á vefsíðu SVEF.

Nánari upplýsingar um tilnefningarnar má finna á visir.is.