26 mars 2025

/

Rætt um nýtingu jarðhita í Slóvakíu

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Denisa Saková, efnahagsmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Slóvakíu.

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra átti í gær fund með Denisa Saková, efnahagsmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Slóvakíu, þar sem rædd voru orkumál og nýting jarðhita í Slóvakíu. 

Saková var í heimsókn til Íslands til að kynna sér nýtingu Íslendinga á jarðhita og heimsótti m.a. Hellisheiðarvirkjun og Grindavík. Slóvakía er mjög háð innfluttu gasi, sem hefur hækkað gríðarlega í verði frá innrás Rússa í Úkraínu.

Í Slóvakíu finnst jarðhiti á nokkrum stöðum, sem til þessa hefur einkum verið nýttur til heilsubaða en lítið til hitunar eða orkuframleiðslu. Ráðherrarnir sammæltust um að skoða betur möguleika á samstarfi Íslands og Slóvakíu á sviði jarðhitanýtingar og skyldra mála.