27 mars 2025
/
Úrskurður nr. 248/2025
Hinn 27. mars 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 248/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25010119
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 30. janúar 2025 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn útlendings, að nafni [...], fd. [...], ríkisborgara Pakistan (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd ásamt maka sínum og voru mál þeirra unnin samhliða. Um mál maka kæranda er fjallað í úrskurði kærunefndar nr. 249/2025.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 30. október 2024. Þar sem kærandi er með dvalarleyfi í Svíþjóð var send beiðni 4. nóvember og 12. desember 2024 um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd til yfirvalda þar í landi, sbr. 1. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum yfirvöldum, dags. 17. desember 2024, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi er handhafi dvalarleyfis þar í landi. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 5. nóvember 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 30. janúar 2025 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur til endursendingarríkis. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst greinargerð kæranda 5. febrúar 2025. Frekari gögn bárust frá kæranda 12., 19. og 25. febrúar 2025.
3 Greinargerð til kærunefndar
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst svo að hann sé pakistanskur ríkisborgari sem sé samkynhneigður. Flestir fjölskyldumeðlimir hans telji samkynhneigð ranga og skaðlega og hafi áreitt hann og maka hans. Bróðir kæranda hafi látist árið 2016 og látið eftir sig eiginkonu og þriggja ára dóttur. Hart hafi verið lagt að kæranda að kvænast ekkju bróður hans. Haldin hafi verið trúarleg athöfn sem feli þó ekki í sér formlegan hjúskap. Kærandi hafi haldið til Svíþjóðar í leit að betra lífi og dvalið þar í landi frá árinu 2020. Kærandi sé með dvalarleyfi í Svíþjóð en þar hafi aðstæður verið erfiðar vegna fordóma nærsamfélagsins gagnvart kynhneigð hans. Kærandi hafi kynnst maka sínum á Ítalíu árið 2016 og þeir búið saman í Svíþjóð frá árinu 2022. Kærandi hafi starfað hjá fyrirtæki þar sem nær eingöngu starfi múslimar af pakistönskum eða arabískum uppruna. Kærandi hafi búið innan um Pakistana, Sómala, og múslima í Svíþjóð. Þegar samstarfsmenn kæranda og atvinnurekandi hans hafi komist að kynhneigð hans hafi skapast mikið umtal á vinnustaðnum. Þrýst hafi verið á kæranda og maka hans að slíta sambandi sínu, m.a. með trúarlegri íhlutun. Kærandi hafi ekki getað sótt mosku á Ramadan vegna hrindinga og olnbogaskota. Kærandi hafi ekki treyst sér til að starfa með LGBTQIA+ hópum í Svíþjóð vegna þeirra fordóma sem hann hafi mátt þola. Þó almenningur í Svíþjóð sé umburðarlyndur séu stór samfélög múslima og Araba þar sem fordómar og ofbeldi gagnvart samkynhneigðum viðgangist. Kærandi hafi tvívegis fengið hjartaáfall vegna álags og streitu vegna framangreinds. Kærandi og maki hans vinni að því að ganga í formlegan hjúskap en þar sem þurfi að afla gagna erlendis frá taki það lengri tíma en ella.
Kærandi leggur áherslu á að hann og maki hans verði ekki aðskildir en Útlendingastofnun hafi komist að þeirri niðurstöðu að kærandi skuli sendur til Svíþjóðar en maki hans til Ítalíu. Þannig verði maka kæranda meinað að veita kæranda umönnun vegna veikinda. Þá standi 45. gr. laga um útlendinga í vegi fyrir aðskilnaði þeirra.
Í greinargerð krefst kærandi þess að umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 3. mgr. 36. gr. laganna þar sem kærandi hafi orðið fyrir ofsóknum í Svíþjóð vegna kynhneigðar sinnar og sé ekki unnt að óska verndar af neinu tagi, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga. Þá glími kærandi við alvarlegan heilsubrest. Horfa þurfi til þeirrar sérstöku aðstöðu og menningarheims sem kærandi tilheyri í Svíþjóð. Kærandi sé auk þess í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji sig ekki geta fært sig um set innan Svíþjóðar. Sænsk stjórnvöld hafi að mati kæranda ekki næga stjórn á aðstæðum þar í landi. Aðstæður kæranda jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1994, 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna og 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.
4 Umsókn um alþjóðlega vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda og reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins er varða landamæraeftirlit og umsóknir um alþjóðlega vernd eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kæranda
Kærandi er á [...]aldri og er staddur ásamt maka sínum hér á landi. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hann sé samkynhneigður og orðið fyrir aðkasti vegna þess í Svíþjóð. Þá sé hann hjartveikur. Kærandi kvaðst hafa alist upp á Ítalíu en flutt til Svíþjóðar árið 2020. Maki kæranda hafi komið til Svíþjóðar 2022 og þeir búið saman síðan þá. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 30. október 2024. Kærandi lagði fram sænskt dvalarleyfisskírteini með gildistíma frá 26. september 2022 til 7. september 2027. Kærandi kvaðst hafa unnið í Svíþjóð og notið þar m.a. heilbrigðisþjónustu. Kærandi kveður dvalarleyfi sitt hafa verið afturkallað af sænskum yfirvöldum. Kærandi greindi frá því að vera með hjartavandamál og að hann hefði í tvígang fengið hjartaáfall. Kærandi taki inn lyf vegna þessa og hann hafi notið heilbrigðisþjónustu í Svíþjóð vegna heilsufarsvandamála sinna.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 5. nóvember 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 30. janúar 2025 um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd 25. febrúar 2025.
Í upplýsingum úr sjúkraskrá kæranda á Íslandi kemur fram að kærandi hafi farið frá Pakistan árið 1996 ásamt fjölskyldu sinni til Ítalíu þar sem hann hafi búið og unnið til ársins 2020. Kærandi hafi farið til Svíþjóðar árið 2020 og unnið þar til í september 2023 þegar hann hafi fengið hjartaáfall. Kærandi sé með greinda hjartakvilla og hafi fengið heilbrigðisþjónustu vegna þeirra í Svíþjóð. Kærandi hefur lagt fram sænsk heilsufarsgögn.
Í upplýsingum úr sjúkraskrá kæranda kemur einnig fram að kærandi hafi greint frá því í viðtali við lækni á Göngudeild sóttvarna 28. janúar 2025 að hann væri trans kona. Hafi hann lent í miklum vandræðum vegna þessa, s.s. líkamlegu og andlegu ofbeldi auk eineltis. Áfallasaga kæranda er rakin frá sjö til fjórtán ára aldurs. Fram kemur að bróðir kæranda hafi stungið hann með hnífi í rasskinn fyrir nokkrum árum síðan. Í Svíþjóð hafi honum verið hent út úr mosku því hann hafi verið kvenlegur. Í sjúkraskránni kemur einnig fram að kærandi hafi rætt við sálfræðing í kjölfarið. Þar kemur og fram að í sálfræðiviðtali 6. febrúar 2025 hafi kærandi verið greindur með einkenni áfallastreituröskunar, einkenni miðlungs þunglyndis, alvarleg kvíðaeinkenni, einkenni trans einstaklings og kynama. Fram kemur að sálfræðingurinn mæli gegn því að kærandi snúi til annars ríkis á þessum tímapunkti. Hann hafi nú fyrst opnað sig fyrir geðheilbrigðisstarfsmanni og þiggi nú samfellda meðferð sem skipti sköpum fyrir velferð hans. Flutningur myndi rjúfa þessa meðferð þar sem það tæki tíma að stofna til nýrra sambanda í heilbrigðisþjónustu, sem gæti haft áhrif á andlega og líkamlega heilsu kæranda. Að auki væri umhverfi kæranda á Íslandi hjálplegt fyrir bata kæranda. Í sjúkraskrá kemur fram að kærandi hafi komið til viðtals við sama sálfræðing 14. og 19. febrúar 2025 þar sem hann hafi verið greindur með áfallastreituröskun, kvíða og svefnleysi.
Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Kærandi telur sig vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga er ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.
4.3 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggt á 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi er handhafi dvalarleyfis þar í landi. Af þeim sökum skal kærandi endursendur til Svíþjóðar enda bera sænsk yfirvöld ábyrgð á umsókn hans samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni.
Í greinargerð krefst kærandi þess að mál hans verði tekið til efnismeðferðar samkvæmt þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Með lögum um breytingu á lögum um útlendinga nr. 68/2024 var þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga felld brott samkvæmt 5. gr. breytingarlaganna. Samkvæmt lagaskilum 14. gr. breytingarlaganna gildir umrædd breyting um meðferð umsókna sem bárust eftir gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 3. júlí 2024 og tóku gildi 4. júlí 2024. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 30. október 2024 eða eftir gildistöku breytingarlaganna og gildir því 2. mgr. 36. gr. þágildandi laga um útlendinga ekki um umsókn kæranda. Hið sama á við um 32. gr., 32. gr. a, 32. gr. b, 32. gr. c og 32. gr. d reglugerðar um útlendinga sem felld voru úr gildi með breytingarreglugerð nr. 1069/2024. Framangreindri kröfu kæranda er því hafnað.
Upplýsingar bárust kærunefnd 12. og 19. febrúar um að dvalarleyfi kæranda í Svíþjóð hafi verið afturkallað þar sem hann sé ekki lengur staddur í Svíþjóð. Kærandi lagði fram skjáskot af tölvupóstsamskiptum við útlendingastofnun í Svíþjóð. Þar sem kærandi hefur lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd og í ljósi samþykkis sænskra yfirvalda á viðtöku hans og umsóknarinnar hefur sú staðreynd að dvalarleyfi hans sé ekki lengur í gildi, eða muni falla úr gildi, ekki þýðingu fyrir beitingu Dyflinnarreglugerðarinnar í málinu.
Í úrskurði kærunefndar í máli maka kæranda nr. 249/2025 hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar um að maki kæranda skuli sendur til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, þar sem umsókn hans um alþjóðlega vernd kemur til skoðunar. Kæranda er leiðbeint um að hann geti óskað þess skriflega, eftir að hann er kominn til Svíþjóðar, að Ítalía taki einnig ábyrgð á umsókn kæranda á grundvelli 10. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.
4.4 Landaupplýsingar
Lagt hefur verið mat á aðstæður í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Sweden (United States Department of State, 22. apríl 2024);
- Amnesty International Report 2023/24 – Sweden (Amnesty International, 23. apríl 2024);
- Asylum Information Database. National Country Report – Sweden (European Council on Refugees and Exiles, 30. apríl 2024);
- EASO Asylum Report 2022. Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union (European Asylum Support Office, júní 2023);
- Freedom in the World 2025 – Sweden (Freedom House, febrúar 2025);
- Good Advice for Asylum seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, ágúst 2019);
- Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016) og
- Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).
Svíþjóð er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Svíþjóð verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 3. september 1953. Svíþjóð gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 8. janúar 1986 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971 og barnasáttmálann árið 1990. Þá gerðist ríkið aðili að flóttamannasamningnum 26. október 1954.
Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) tekur sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Samkvæmt sænskum lögum þurfa að vera gildar ástæður fyrir því að upplýsingar eða gögn hafi ekki verið lögð fram fyrr í málsmeðferðinni. Ef réttmæt ástæða er til að telja að útlendingur sé í hættu á að hljóta dauðarefsingu, líkamlega refsingu eða sæta pyndingum, eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu við endurkomu sína til heimaríkis, þurfi þó ekki að sýna fram á að gildar ástæður séu fyrir því eða ný gögn eða nýjar upplýsingar komi svo seint fram. Synji sænska útlendingastofnunin að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra þá ákvörðun og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Á vef sænsku útlendingastofnunarinnar kemur fram að sænsk lög kveði á um skyldu útlendingayfirvalda í Svíþjóð til að hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi við málsmeðferð þeirra. Þá séu barnaverndarnefndir starfandi til að gæta að hagsmunum barna.
Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á áðurnefndri heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og í skýrslu ECRE að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð sé tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Eigi umsækjandi við andlega vanlíðan að stríða eigi hann rétt á því að óska eftir viðeigandi þjónustu frá heilsugæslunni sem staðsett er í sveitarfélaginu sem hann dvelst í. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en kostnaður vegna innlagnar á spítala er mismunandi eftir svæðum. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Þá eiga umsækjendur rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Umsækjandi um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, sem fengið hefur neikvæða niðurstöðu í máli sínu, hefur aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, fram að brottför en nýtur hins vegar ekki fjárhagsstuðnings til að greiða fyrir slíka þjónustu eða lyf. Þá missa umsækjendur rétt sinn til húsnæðis og framfærslu en geta þó leitað til hjálparsamtaka. Þó séu veittar undanþágur ef um er að ræða einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu og ósanngjarnt teljist að svipta þá réttar til húsnæðis. Af framangreindum skýrslum má ráða að sænsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds þegar lögð sé fram viðbótarumsókn en þeir geti átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við málsmeðferð viðbótarumsókna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka sem veita lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.
Samkvæmt skýrslu ECRE eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð almennt teknar af sænsku útlendingastofnuninni, stjórnsýsludómstólunum eða af lögreglunni. Í 10. kafla sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716) eru talin upp skilyrði þess að setja megi einstaklinga í varðhald, þ.m.t. þá sem hafa verið umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Slíkt er þó ekki gert nema á grundvelli almannaöryggis eða að hætta sé talin á að umsækjandi muni reyna að koma sér undan brottvísun. Ákvarðanir um varðhald séu almennt endurskoðaðar af dómstólum og við meðferð slíkra mála hjá dómstólnum eigi einstaklingar rétt á lögfræðiaðstoð.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að sænska stjórnarskráin krefjist þess af opinberum stofnunum að þær stuðli að jöfnuði í samfélaginu og komi í veg fyrir mismunun. Þarlend stjórnarskrá leggi jafnframt bann við óhagstæðri meðferð byggðri á þjóðernisuppruna, litarhætti eða öðru álíka og yfirvöld þar í landi hafi almennt virt þessi réttindi. Þá kemur fram að rómafólk og aðrir minnihlutahópar hafi orðið fyrir fordómum og mismunun en sænska lögreglan rannsaki slík brot. Í grunnþjálfun lögreglumanna felist m.a. þjálfun í að bera kennsl á og rannsaka hatursglæpi. Þá hafi lögreglan jafnframt verið í samstarfi við félaga- og hjálparsamtök sem hjálpi og styðji við eftirlifendur, vitni og aðra sem verði fyrir hatursglæpum. Í framangreindri skýrslu kemur fram að hinsegin einstaklingar (LGBTQI+) séu í aukinni áhættu á að verða fyrir líkamlegu ofbeldi samanborið við aðra borgara. Hins vegar njóti hinsegin einstaklingar verndar lögreglu. Árið 2020 hafi verið 429 skráð tilvik um hatursglæpi gegn hinsegin einstaklingum. Sænsk lög banni mismunun af hálfu ríkis og einkaaðila á grundvelli kynhneigðar. Hinsegin pör njóti réttinda til jafns við aðra og ríkisstjórnin framfylgi þeim lögum almennt auk þess að styðja við framtak í þágu jafnréttis og gegn mismunun. Engin lög mæli fyrir um takmarkanir á tjáningarfrelsi, funda- eða félagafrelsi hinsegin einstaklinga. Á vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar er að finna leiðbeiningar fyrir LGBTQ einstaklinga sem sækja um alþjóðlega vernd. Fram kemur að mikilvægt sé að greina frá því við fyrsta tækifæri.
4.5 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið. Í 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi er að finna sambærilegt ákvæði og í 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og Evrópudómstólsins leiðir að þrátt fyrir að ríki hafi rétt til að stjórna hverjir dvelji á landsvæði þeirra geti flutningur einstaklings til annars ríkis falið í sér brot á banni við ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þetta á við ef veruleg ástæða er til að ætla að viðkomandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð ákvæðinu.
Meðferð og aðbúnaður umsækjenda um alþjóðlega vernd í endursendingarríki þurfa að ná tilteknu alvarleikastigi til að fela í sér brot gegn banninu. Því alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda ríkisins hefur þær afleiðingar að einstaklingur, sem að öllu leyti er háður stuðningi þess, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann getur ekki mætt grundvallarþörfum sínum og grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn. Það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni verulega við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki telst ekki nægjanlegt til að teljast vanvirðandi meðferð. Þá er ríkjum ekki skylt að sjá þeim sem njóta alþjóðlegrar verndar eða dvalarleyfis fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum.
Samkvæmt dómum Evrópudómstólsins skal framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar vera í samræmi við 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Lög Evrópusambandsins eru byggð á grundvallarforsendunni um gagnkvæmt traust, þ.e. að gildi og lög sambandsins séu viðurkennd og virt í hverju aðildarríki og að réttarkerfi aðildarríkjanna veiti sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins mælir fyrir um. Dyflinnarreglugerðin er byggð á gagnkvæmu trausti og markmið hennar er að afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd sé skilvirk til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Samkvæmt framangreindu samrýmist meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna og mannréttindasáttmáli Evrópu gera.
Í greinargerð byggir kærandi á því að fordómar viðgangist í garð samkynhneigðra múslima og/eða Araba í endursendingarríki. Þá byggir kærandi jafnframt á því að hann óttist arabíska og/eða múslimska glæpahópa þar í landi. Framangreindar landaupplýsingar gefa til kynna að fordómar gagnvart einstaklingum af erlendum uppruna og hinsegin einstaklingum séu fyrir hendi í endursendingarríki. Landaupplýsingar bera enn fremur með sér að almenningur þar í landi geti leitað sér aðstoðar löggæsluyfirvalda sökum þessa. Verður ekki talið að þær aðstæður sem kærandi hefur borið fyrir sig nái því alvarleikastigi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð þannig að til skoðunar komi að beita 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Litið hefur verið til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda í endursendingarríki með hliðsjón af aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi, sbr. gögn málsins og framangreindar landaupplýsingar. Ekkert bendir til að endursending kæranda til ríkisins sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði í Svíþjóð og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hann eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til endursendingarríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5 Frávísun
Kærandi kom hingað til lands 29. október 2024 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 30. október 2024. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi skal fluttur til Svíþjóðar innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir