27 mars 2025
/
Úrskurður nr. 277/2025
Hinn 27. mars 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 277/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24080101
Kæra […]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 15. ágúst 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. ágúst 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 6. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sjö daga dvöl frá 8. til 14. september 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. ágúst 2024. Hinn 15. ágúst 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í kæru kemur fram að kærandi telji að umsókn hennar um vegabréfsáritun hafi verið hafnað á röngum forsendum. Þegar viðtal við hana hafi verið tekið hafi hún verið með börnin sín, þurft að sinna þeim og því ekki náð að svara spurningum um fyrirhugaða ferð til Íslands á fullnægjandi hátt. Kærandi hafi ætlað að greiða fyrir flugbókun um leið og hún fengi útgefna vegabréfsáritun. Kærandi kveðst vera mikill náttúruunnandi og ætli sér að fara í hvalaskoðun, náttúrulaugar og flúðasiglingar í ferð sinni á Íslandi.
Kærandi lagði fram ýmis ný fylgigögn við meðferð málsins á kærustigi. Meðal þeirra var nýtt afrit af hótelbókun sem og afrit af nýrri flugbókun með nýju bókunarnúmeri.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Nígeríu þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða var til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun væru áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að umsækjanda hafi skort þekkingu varðandi Ísland sem áfangastað og að flugbókun hafi ekki verið áreiðanleg. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr.laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kæranda 7. ágúst 2024 af því tilefni að hún hafði áður fengið útgefna Schengen-áritun sem hún hafði ekki notað, auk þess sem flugbókun hennar þótti óvenjuleg. Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram kærandi hafi ekki getað greint frá tilgangi fyrirhugaðs ferðalags til Íslands, hvað hún hygðist gera hér á landi, hvaða staði hún hygðist heimsækja eða hver höfuðborg Íslands væri. Upphaflega hafi kærandi fyrirhugað að ferðast til Möltu en skipt um skoðun og ákveðið að fara til Íslands. Kærandi hafi sagt að búið væri að greiða fyrir flug, án þess þó að geta lagt fram staðfestingu þess efnis. Þá hafi kærandi greint frá því að hún hafi sjálf bókað flugið en þegar leitað hafi verið staðfestingar á fluginu hafi ekkert flug fundist undir uppgefnu bókunarnúmeri.
Ferðaáætlun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 6. og 7. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Bretlandi, þar sem kærandi lagði umsókn sína fram. Í kæru kemur fram að þegar viðtal hafi verið tekið við kæranda hafi hún verið með börnin sín, þurft að sinna þeim og því ekki náð að svara spurningum um fyrirhugaða ferð til Íslands á fullnægjandi hátt. Kærandi hafi ætlað að greiða fyrir flugbókun um leið og hún fengi útgefna vegabréfsáritun. Kærandi sé mikill náttúruunnandi og ætli sér að fara í hvalaskoðun, náttúrulaugar og flúðasiglingar í ferð sinni á Íslandi. Þær skýringar sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumáls þessa eru ekki til þess fallnar að draga úr vafa um ferðaáætlanir hennar. Gögn málsins bera hvorki með sér að kærandi hafi óskað eftir að viðtali við hana yrði frestað þar sem hún væri að sinna börnum sínum né að hún hafi leitast við að koma upplýsingum um ástæður rýrra svara áleiðis til utanríkisþjónustunnar eftir viðtalið. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Úr framangreindum annmarka hefur ekki verið bætt á kærustigi með framlagningu nýrra upplýsinga um ferðaáætlun. Þegar að því sögðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að upplýsingar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða er til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar, sbr. ii. tölul. a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem kærandi hafi veitt, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður