03 apríl 2025

/

Úrskurður nr. 267/2025


Hinn 3. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 267/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU24110027 og KNU24110028

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 5. nóvember 2024 kærðu [...], fd. [...], (hér eftir K) og [...], fd. [...], (hér eftir A), ríkisborgarar Írak, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 22. október 2024, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik og frásögn kærenda

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins 9. október 2023 og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd 10. október 2023. Kærendur hafi viðurkennt að hafa komið á fölsuðum skilríkjum til Íslands og eyðilagt þau á flugvellinum við komu til landsins. Vegabréf kærenda frá Írak hafi verið skilin eftir hjá smyglara í Tyrklandi sem hafi látið þau fá ljósrit af vegabréfunum. Kærendur hafi greitt smyglaranum 40 þúsund dollara fyrir að flytja þau. Kærendur hafi viljað fara til öruggs lands og smyglarinn sent þau hingað þar sem hann hafi séð um að kaupa farmiða fyrir þau. Kærendur hafi millilent á leið sinni til landsins en kváðust ekki vita hvar það hafi verið. Smyglarinn hafi sagt kærendum að horfa ekki í kringum sig á flugvellinum í millilendingunni og henda flugmiðunum sínum. Kærendur greindu frá því að líf þeirra væri í hættu í Írak og þess vegna hafi þau flúið. Þau hafi átt í deilum við samlanda sína. Kærendur kváðust ekki þekkja neinn hér á landi. Kærendur eigi ekki sakaferil og enga sögu um herþjálfun. K hafi starfað sem verkfræðingur í Írak og A sem smiður. K eigi eiginmann, son og tvö barnabörn í Írak.

Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 30. apríl 2024 ásamt löglærðum talmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Kærendur kváðust vera fædd og uppalin í borginni Erbil í Kúrdistan, Írak. Síðastliðin tvö ár áður en þau hafi flúið heimaríki hafi þau verið búsett í Shaqlawa ásamt eiginmanni K, föður A, vegna vinnu K. Eiginmaður K hafi flúið með kærendum til Tyrklands en þurft að vera eftir þar í landi þar sem smyglarinn sem kærendur hafi fengið til að koma þeim til Evrópu hafi einungis getað útbúið tvö fölsuð vegabréf. K kvað fjárhagsstöðu kærenda hafa verið góða í Írak, hún og eiginmaður hennar hafi verið í góðum störfum, hún sem verkfræðingur og hann sem læknir, og því hafi líf þeirra verið gott. Af frásögn kærenda má ráða að A sé eignalaus en K og eiginmaður hennar eigi hús í borginni Erbil. Þá kvað K eiginmann sinn jafnframt eiga u.þ.b. 10 þúsund dollara. Kærendur kváðust hvorki vera aðilar að stjórnmálaflokki né virk í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. A kvaðst tilheyra minnihlutahópi og vera af sérstöku þjóðerni í heimaríki sem Kúrdi. Af frásögn K má ráða að hún telji sig tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sem kona og hafa upplifað fordóma og mismunun sem kona í stjórnunarstöðu með karlkyns undirmenn. Aðspurð um líkamlega heilsu sína kvaðst K vera með sykursýki, háan blóðþrýsting, hné- og bakvandamál. Hún hafi farið í skurðaðgerð á mænu um tveimur árum áður. K kvaðst hafa smitast af Covid-19 þrisvar sinnum og í kjölfarið hafi minni hennar orðið lélegt og hún ekki getað lifað hefðbundnu lífi. Hún sé dofin í báðum fótleggjum og geti ekki beygt fingurna vegna sykursýki. K hafi farið í segulómskoðun hér á landi vegna fótadoða og sé í sjúkraþjálfun. Aðspurð um andlega heilsu sína kvaðst K hafa átt slæmt líf í Írak vegna andlegs álags en henni hafi farið að líða betur eftir að hún hafi komið til Íslands. K kvaðst hafa haft aðgang að og fengið lyf í Írak. A kvaðst glíma við magavandamál, hann sé slasaður í hálsinum og sé stundum með háan blóðþrýsting. A kvaðst hafa verið við góða andlega heilsu en upplifað aukna streitu í kjölfar atburðarins sem varð til þess að kærendur hafi yfirgefið Írak. A kvaðst oft hafa leitað læknisaðstoðar í Írak vegna magavandamála. Hann hafi fengið sömu lyf í Írak og á Íslandi og þurfi að passa upp á mataræði sitt vegna magavandamála. Aðspurður um hvaða áhrif heilsufarsvandamál hans hafi á hans daglega líf kvaðst A ekki geta borðað allan mat, ekki geta reykt né drukkið áfengi eða kolsýrða drykki. Kærendur kváðu ástæðu flótta síns vera hættu í Írak vegna líflátshótana tilgreinds einstaklings (hér eftir X) í kjölfar atviks sem hafi átt sér stað 25. júní 2023 á vinnusvæði þeirra. K hafi haft umsjón með og stjórnað framkvæmdum við uppbyggingu verslunarhúsnæðis í þorpi á milli Shaqlawa og Erbil og ráðið A til starfa við framkvæmdirnar. Hinn 25. júní hafi A verið á annarri hæð húsnæðisins að störfum en þurft að hætta vegna veikinda. K hafi því sent tiltekinn starfsmann (hér eftir Z) til að taka við af A. Z hafi orðið reiður þar sem honum hafi mislíkað að hafa konu sem yfirmann en á endanum hafi hann hlýtt skipun K og farið upp á aðra hæð þar sem bróðir hans, X, hafi einnig verið að störfum. Stuttu síðar hafi K heyrt mikil læti og öskur af annarri hæðinni og ótilgreindur starfsmaður hafi hrópað til hennar að hringja á hjálp þar sem Z hafi orðið fyrir raflosti. Z hafi verið fluttur á spítala þar sem læknir hafi úrskurðað hann látinn við komu. Kærendur kváðust hafa mætt í útför Z næsta dag. Útförin hafi verið kynjaskipt og því hafi K mætt í aðra athöfn en A og faðir hans. Af frásögn kærenda má ráða að stuttu eftir að þau mættu í jarðaförina hafi þeim verið ljóst að meðlimir fjölskyldu Z, einkum X, hafi kennt K um andlát hans. K kvaðst hafa ætlað að votta eiginkonu Z samúð sína þegar systir Z hafi ráðist á K og bitið hana. K kvað viðstadda hafa hjálpað sér í burtu og sagt henni að fjölskylda Z telji hana bera ábyrgð á dauða Z. K hafi brugðið við að heyra þetta og tjáð viðstöddum að um slys hafi verið að ræða. Hún hafi tekið upp síma sinn og hringt í A og heyrt X hóta A og eiginmanni hennar í símanum. A greindi frá því að X, bróðir Z, hafi tekið upp byssu í jarðaförinni og hótað honum og föður hans lífláti. Fjölskylda Z hafi kennt K um andlátið þar sem Z myndi ekki hafa lent í slysinu ef K hefði ekki skipað honum að taka við af A á annarri hæð byggingarinnar. Kærendur kváðu X og Z tilheyra [...]ættbálknum sem sé voldug ætt í heimaríki kærenda. K kvað kærendur hafa farið á heimili sitt í Shaqlawa, tekið saman öll verðmæti, m.a. peninga og gull og farið til borgarinnar Erbil. Kærendur hafi ekki þorað að snúa aftur til heimilis síns í Erbil og því dvalið hjá mágkonum K í borginni. K kvað eiginmann sinn fyrst hafa reynt að ná sambandi við X til að finna lausn á stöðunni tveimur dögum síðar en X hafi ekki svarað símtali hans fyrr en fimm dögum eftir jarðaförina. X hafi tjáð eiginmanni K að fjölskylda Z vildi hefna fyrir dauða Z og hótað kærendum lífláti. K kvað kærendur ekki hafa reynt að hafa frekara samband við fjölskylduna í kjölfarið. Aðspurð um hvort uppkominn sonur K, bróðir A, sé í hættu í Írak af hálfu meðlima [...]ættbálksins kváðust kærendur ekki telja hann né fjölskyldu hans í hættu. A kvað öllum hótunum hafa verið beint að honum og móður hans og K greindi frá því að elsti sonur hennar hafi flutt til Kirkuk með eiginkonu sinni og að [...]ættbálkurinn viti ekki um hann. Kærendur kváðust hafa verið í felum þar til þau yfirgáfu Kúrdistan hinn 27. júlí 2023 og fóru til Tyrklands. Kærendur kváðust ekki hafa átt annan kost en að yfirgefa Írak þar sem [...]ættbálkurinn sé sterkur og fylgi hótunum sínum eftir. X hafi hótað að drepa kærendur í skilaboðum til eiginmanns K á meðan þau hafi verið í felum og eftir að kærendur hafi farið til Tyrklands. K kvað X hafa sent sams konar skilaboð á árinu 2024 og kvað síðustu skilaboðin hafa borist um þremur vikum áður. Kærendur kváðust ekki hafa leitað aðstoðar lögreglu eða yfirvalda í Írak vegna áhrifa og stærðar [...]ættbálksins.

Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur K greint frá því að eiginmaður hennar og faðir A hafi gengið í hjónaband með annarri konu í Íran án vitneskju eða samþykkis K. Eiginmaður K hafi því yfirgefið kærendur og flutt með nýrri eiginkonu sinni til borgarinnar Erbil. Kærendur eigi því ekki lengur heimili í heimaríki.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 5. nóvember 2024 og kærunefnd bárust greinargerðir kærenda ásamt fylgiskjölum 19. nóvember 2024. Kærunefnd bárust viðbótargögn kærenda 25. nóvember 2024 og 15. janúar 2025. Hinn 17. mars 2025 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá K og bárust svör frá K 20. mars 2025. Þá hafi kærunefnd jafnframt óskað eftir nánari upplýsingum frá K 26. mars 2025 og bárust svör K samdægurs.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerðum er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærendur hafi verið ágætilega stödd fjárhagslega í heimaríki en í ljósi þess að eiginmaður K og faðir A hafi yfirgefið fjölskyldu sína og þar sem allar eignir fjölskyldunnar séu skráðar á hans nafn sé óvíst hver staða kærenda yrði færu þau aftur til heimaríkis. K sé verkfræðingur og hafi starfað sem slíkur í Írak. Það hafi hins vegar reynst henni erfitt sem kona og henni hafi ítrekað verið sýnd vanvirðing og hún orðið fyrir mismunun á grundvelli kyns síns. Kærendur hafi yfirgefið Írak vegna líflátshótana af hálfu bróður Z sem hafi látist í vinnuslysi á byggingarsvæði í umsjá K. Fjölskylda Z hafi neitað sáttaumleitunum eiginmanns K, kennt K um andlátið og sagt að þau myndu leita hefnda vegna dauða Z. Z hafi tilheyrt [...]ættbálknum sem sé sérstaklega valdamikill í Kúrdistan. Kærendum berist enn hótanir frá bróður Z.

Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Írak mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. A gerir sérstaka athugasemd við vinnubrögð stofnunarinnar og telur hina kærðu ákvörðun bera með sér skort á vandvirkni við vinnslu ákvörðunarinnar af hálfu Útlendingastofnunar. K vísar til þess að hún hafi greint frá því í viðtali sínu að hafa orðið fyrir kynbundinni mismunun í heimaríki en Útlendingastofnun hafi ekki fjallað um þá málsástæðu í ákvörðun sinni og því beri að ógilda ákvörðun stofnunarinnar.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja framangreinda kröfu á því að þau tilheyri þjóðfélagshópi sem þolendur líflátshótana og árása af hálfu stórs ættbálks í Kúrdistan og á grundvelli þjóðernis síns sem Kúrdar, sbr. b-, c- og d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur búi því við ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila sem nefndir séu í a – c-liðum 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli aðildar að framangreindum þjóðfélagshópum. Kærendur vísa til þess að þau eigi undir högg að sækja sem Kúrdar í Írak, sem hafi þýðingu ef kærendur myndu leita út fyrir heimasvæði sitt vegna valda [...]ættbálksins. Um grundvöll ofsókna vísa kærendur því einnig til almennrar þjóðfélagsstöðu Kúrda í Írak og benda á langvarandi spennu og átök á milli kúrdísks minnihluta og yfirvalda í Bagdad, auk þess sem kærendum stafar yfirvofandi ógn af hálfu Tyrkja vegna þjóðernis síns. Þá vísa kærendur til þess að árásir, gróf mannréttindabrot og ofbeldi af hálfu ISIS þekkist á svæði Kúrdistan í Írak og nefna sem dæmi atvik á Erbil svæðinu í janúar 2024. Kærendur vísa jafnframt til þess að þau geti ekki hlotið vernd yfirvalda í heimaríki þar sem yfirvöld séu sjálf valdur af ofsóknum með ýmsum hætti, sbr. a-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, m.a. með athafnaleysi sínu. Með vísan til framangreinds telja kærendur sig hafa lögmætt tilkall til alþjóðlegrar verndar á grundvelli samsafns athafna.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að þau eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Kærendur telja að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra með hliðsjón af almennu ástandi í Írak leiði til þess að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að veita þeim viðbótarvernd. Kærendur óttist um líf sitt og fjölskyldu sinnar í Írak þar sem þau búi við ótryggt ástand líkt og aðrir landsmenn. Kærendur hafi orðið fyrir viðvarandi hótunum og áreiti og vísa til þess að ekki sjái fyrir endann á þeim ofsóknum. Þá sé útilokað fyrir kærendur að leita sér verndar í ljósi stöðu mannréttinda, dómskerfis og spillingar í Írak. Kærendur telja það hvorki raunhæft né sanngjarnt að ætlast til þess að þau setjist annars staðar að í heimaríki sínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þar sem þau séu í hættu í öllu landinu í ljósi hótana í garð þeirra og umsvifa áreitisaðila í [...]ættbálknum.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja framangreinda kröfu á því að þau hafi ríka þörf fyrir vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til almennra aðstæðna, erfiðra félagslegra aðstæðna og af heilbrigðisástæðum. Kærendur vísa til þess að fyrir liggi að langvarandi átök hafi átt sér stað í Kúrdistan í Írak sem hafi færst í aukana eftir upphaf árása á Gaza svæðinu í október 2023. Þá hafi kærendur orðið fyrir áreiti vegna stöðu K og þeirra atburða sem hafi gengið á, orðið fyrir árásum og hótunum af þeim sökum og telja aðstæður sínar falla undir erfiðar félagslegar aðstæður. Vísa kærendur jafnframt til þess að þau glími við mikla heilsufarskvilla, séu bæði í áframhaldandi læknismeðferð hér á landi og telja sig ekki hafa aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu vegna ástandsins í Írak.

Með endursendingu kærenda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn grundvallarreglum stjórnsýsluréttarins, m.a. rannsóknarreglunni. Gerir A sérstaka athugasemd við vinnubrögð stofnunarinnar og telur hina kærðu ákvörðun hvað sig varðar bera með sér skort á vandvirkni.

Afmarkaður þáttur í vinnslu ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli A skortir að ákveðnu leyti vandvirkni af hálfu stofnunarinnar. Bætt hefur verið úr framangreindum annmarka við málsmeðferð á kærustigi og með vísan til niðurstöðu úrskurðar þessa er ljóst að annmarkinn hefur ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur hafi lagt fram persónuskilríki til að sanna á sér deili og að samkvæmt skýrslu Skilríkjarannsóknarstofu, dags. 10. maí 2024, sé ekkert sem bendi til þess að skilríkin séu fölsuð. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sín með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og er lagt til grundvallar að kærendur séu írakskir ríkisborgarar.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2022 Report on International Religious Freedom: Iraq (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • ACLED Factsheet – US strikes and counter-strikes in the Middle East (The Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED), uppfært 4. febrúar 2024);
  • Annual Report on International Religious Freedom: Iraq (Covering 2022) (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • Asaib Ahl al-Haq (Counter Extremism Project, Asaib Ahl al-Haq | Counter Extremism Project, sótt af vefsíðu 21. febrúar 2023);
  • Country Guidance: Iraq (European Union Agency for Asylum(EUAA), 29. júní 2022);
  • Country Guidance: Iraq; Common analysis and guidance note (European Union Agency for Asylum (EUAA), júní 2022);
  • Country of Origin Information Report – Iraq – Targeting of Individuals (European Asylum Support Office, mars 2019);
  • Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Actors of protection (UK Home Office, desember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Blood feuds, honour crimes and tribal violence (UK Home Office, júlí 2024, uppfært 2. desember 2024);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Humanitarian situation (UK Home Office, 23. maí 2023);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Internal relocation, civil documentation and returns (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Medical and healthcare provision (UK Home Office, janúar 2021);
  • Country Information Note – Iraq: Healthcare and medical treatment (UK Home Office, ágúst 2024);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Religious minorities (UK Home Office, júlí 2021);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Security situation (UK Home Office, nóvember 2022);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs (UK Home Office, janúar 2021);
  • Country Report on Terrorism 2022 (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Country Report on Terrorism 2021 (U.S. Department of State, 27. febrúar 2023);
  • Det politiska läget och säkerhetsutvecklingen 2022 till augusti 2023 (Migrationsverket, 19. september 2023);
  • DFAT Country Information Report Iraq (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 16. janúar 2023);
  • Education in Iraq. Impact of Covid-19, protests, and pre-existing cries on needs (Acaps, 9. nóvember 2020);
  • Ekteskap i Irak (inkludert i KRI) (Landinfo, 25. apríl 2023);
  • Freedom in the World 2023 – Iraq (Freedom House, 2023);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing the Republic of Iraq (UNHCR, janúar 2024);
  • Iraq: Arab tribes and customary law (European Union Agency for Asylum, 14. apríl 2023);
  • Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, 28. maí 2024);
  • Iraq – Targeting of Individuals (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
  • Relevant Country of Origin Information to Assist with the Application of UNHCR’s Country Guidance on Iraq - Ability of Iraqis to Legally Access and Settle Durably in Proposed Areas of Internal Relocation (UNHCR, nóvember 2022);
  • Report on the human rights situation covering 2022 (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Sixteenth report of the Security-General on the threat posed by ISIL (Da’esh) to international peace and security and the range of United Nations efforts in support of Member States in countering the threat (UN Security Council, 1. febrúar 2023);
  • The Muqawama and Its Enemies – Shifting Patterns in Iran-Backed Shiite Militia Activity in Iraq (The Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED), 23. maí 2023);
  • The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, uppfært 18. mars 2025);
  • UNHCR Fact Sheet – Iraq (UNHCR, ágúst 2023);
  • United Nations Sustainable Development Cooperation Framework IRAQ (United Nations, 6. september 2021);
  • United Nations in Iraq – Annual Results Report 2023 (Sameinuðu þjóðirnar, 10. júlí 2024);
  • Upplýsingasíða United States Institute of Peace (Iraq Timeline: Since the 2003 War United States Institute of Peace (usip.org), sótt 25. september 2024) og
  • World Report 2024 – Iraq (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Írak er lýðræðisríki með tæplega 41 milljónir íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðsamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.

Samkvæmt upplýsingasíðu leyniþjónustu Bandaríkjanna eru flestir Írakar Arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Önnur þjóðarbrot séu til að mynda Túrkmenar, Yezidi, Shabak, Kaka´I og Bedouin.

Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin hafi verið nefnd The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7.000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd í landinu.

Á vefsíðu Friðarstofnunar Bandaríkjanna (e. United States Institute of Peace) kemur fram að eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli árið 2003, hafi nýir leiðtogar Íraks átt í erfiðleikum með að marka lýðræðislega stefnu eftir áratuga einræði og hafi einkum tvær aðgerðir átt veigamikinn þátt í því. Í fyrsta lagi hafi ákvörðun Bandaríkjanna um að útiloka Baath-flokkinn, sem hafi lengi verið við völd og hvernig það hafi verið útfært, frá stjórn ríkisins skapað pólitískt tómarúm. Í öðru lagi hafi sú aðgerð að leysa upp her landsins og útiloka hundruð þúsunda þjálfaðra manna frá störfum við varnir ríkisins, án þess að koma á fót öðrum valkostum, skilið eftir öryggistóm. Í kjölfarið hafi Írak mátt þola borgarastyrjöld, pólitíska ringulreið, víðtæka spillingu, spennu á milli flokka og öfgahópa sem hafi hertekið þriðjung landsins. Við þessa atburði hafi hið pólitíska valdajafnvægi sem ríkt hafði undir stjórn súnníta um aldir riðlast verulega. Sjítar hafi krafist forsætisráðuneytisins og haft nægilegt vald til að stjórna helstu ráðuneytum. Þá hafi í fyrsta skipti verið kúrdískur forseti í Írak og Kúrdar, sem lengi höfðu krafist sjálfsstjórnar frá Bagdad, orðið hluti af ríkinu. Stjórnarskráin viðurkenni sjálfstjórn Kúrdistan héraðs (KRG) og formlega stöðu Peshmerga herafla hennar. Súnnítar, sem höfðu drottnað yfir ríkinu undir stjórn Saddams, hafi haldið lykilstöðu forseta þingsins en misst aðrar valdastöður. Árið 2011 ákváðu Bandaríkin að hverfa frá Írak með samkomulagi við stjórnvöld í Bagdad um að þau myndu innlima súnníta í íröksku öryggissveitirnar til að halda aftur af starfsemi öfgatrúarhópa. Íröksk stjórnvöld hafi hins vegar ekki fylgt því eftir að ráða minnihlutahópi súnníta í sína þjónustu og það hafi leitt til þess að öfgasamtökin Islamic State in Iraq (ISI) hafi endurskipulagt sig og fengið til liðs við sig þúsundir súnníta innan og utan Íraks, þar á meðal fyrrverandi stjórnarhermenn. Árið 2013 hafi hernaður samtakanna færst yfir til Sýrlands og endurnefndu þau sig sem Islamic State in Iraq and Syria (ISIS). Samtökin séu einnig þekkt sem ISIL (Islamic State in Iraq and the Levant (ISIL)) og Daesh (hér eftir verður notað Daesh). Í júní 2014 hafi Daesh náð þriðjungi landsins á sitt vald og hafi leiðtogi Daesh, Abu Bakr al-Baghdadi, lýst yfir stofnun íslamsks ríkis í Mósúl, næststærstu borg Íraks, og nefnt sig kalífa. Á árunum 2015 til 2017 hafi írakskar öryggissveitir, kúrdískar Peshmerga-sveitir og PMF sveitir, studdar af flugherjum frá bandalagi undir forystu Bandaríkjanna, smám saman náð landsvæðum frá Daesh. Í desember 2017 lýsti Haider al-Abadi forsætisráðherra yfir sigri gegn Daesh. Í skýrslu EASO frá 2019 er fjallað um aukin yfirráð yfirvalda í Írak í kjölfar þess að sigur hafi verið unninn á Daesh. Fram kemur að íröksk yfirvöld geti, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklinga, almennt veitt fullnægjandi vernd í Bagdad og í suðurhluta landsins. Þá kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2020 að öryggi í Bagdad og nærliggjandi svæðum sé tryggt af írakska hernum, lögreglunni, hersveitum PMF (e. Popular Mobilization Forces) og ýmsum sjíta hersveitum.

Í framangreindum gögnum kemur þá fram að flestir Kúrdar í Írak búi í norðurhluta landsins. Áður en ráðist hafi verið inn í Írak árið 2003 hafi héruð í norðurhluta landsins lotið stjórn pólitískra yfirvalda Kúrda. Árið 2005 hafi Kúrdum verið tryggð svæðisbundin sjálfsstjórn í stjórnarskrá Íraks og sé norðausturhluti landsins skilgreindur sem sjálfsstjórnarhérað Kúrda (e. Kurdish Region of Iraq (KRI)). Löggæsla sé mun markvissari í KRI, sé það landsvæði borið saman við suður- og mið-Írak. Stofnanir eins og lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi séu til staðar á svæðinu og heyri þær undir svæðisstjórn Kúrda en ekki ríkisstjórn Íraks. Fyrir utan hefðbundna lögreglu sé KRI einnig með öryggissveitir sem nefnist Asayish. Hersveitir kúrdíska hersins, Peshmerga, tryggi að sjálfsstjórnarhéruð Kúrda séu tiltölulega örugg miðað við önnur svæði í Írak. Her Kúrda og öryggissveitir þeirra hafi unnið hörðum höndum við að verja svæðið gegn uppreisnarmönnum Daesh og annarra tengdra samtaka.

Af framangreindum gögnum má ráða að á undanförnum árum og áratugum hafi verið spenna milli Kúrda og stjórnvalda í Írak. Meðal annars hafi verið deilt um stærð þess svæðis sem lúti sjálfsstjórn Kúrda. Þann 25. september 2017 hafi farið fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa KRI að tilstuðlan forseta KRI þar sem kosið hafi verið um stofnun sjálfstæðs ríkis KRI.Íröksk stjórnvöld hafi mótmælt atkvæðagreiðslunni og ekki viðurkennt niðurstöður kosninganna. Tæplega 93% kjósenda hafi kosið með sjálfstæði en fréttir hafi borist af því að minnihlutahópar á umdeildum svæðum hafi verið beittir miklum þrýstingi til að kjósa annaðhvort með eða á móti. Í kjölfar kosninganna hafi írakski stjórnarherinn tekið aftur stjórn yfir ytri landamærum Írak innan KRI og landsvæðum sem hafi verið undir stjórn kúrdískra yfirvalda frá árinu 2014, þ. á m. borgina Kirkuk. Þá hafi forseti KRI sagt af sér í nóvember 2017. Áratugum saman hafi tveir stjórnmálaflokkar verið ráðandi í KRI en það séu PUK flokkurinn (e. The Patriotic Union of Kurdistan) og KDP flokkurinn (e. The Kurdistan Democratic Party). Í september 2013 hafi orðið talsverðar breytingar þegar PUK flokkurinn hafi misst stöðu sína sem næststærsti flokkurinn til klofningsframboðsins Gorran (e. The Movement for Change). Í kosningum sem fram fóru þann 30. september 2018 hafi PUK flokkurinn endurheimt stöðu sína sem annar stærsti flokkurinn og KDP flokkurinn haldið stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í KRI. Samband PUK flokksins og KDP hafi jafnan verið stirt og einkennst af vantrausti sem og vopnuðum átökum. Í kosningum sem fram fóru í október 2024 hafi KDP haldið stöðu sinni sem stærsti flokkur landsins með 39 þingsæti af 100 en PUK flokkurinn verið í öðru sæti með 23 sæti og stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn Ný kynslóð (e. New Generation) hlotið 15 sæti.

Í framangreindum gögnum kemur fram að þrátt fyrir að heiðurstengt ofbeldi sé refsivert samkvæmt landslögum þá sé það nokkuð útbreitt í menningu KRI. Heiðursmorð sé yfirleitt morð á kvenkyns ættingja sem framið sé í því skyni að endurheimta heiður fjölskyldunnar þar sem þolandinn hafi á einhvern hátt vanvirt fjölskylduna. Írakar tilheyri mismunandi ættbálkum og lifi eftir fornum ættbálkasiðum, venjum og lögum, en hefðbundin fjölskyldugildi séu rótgróin í menningunni. Séu konur í miklum meirihluta þeirra sem verði þolendur heiðursglæpa og þá yfirleitt fyrir að hafa, að mati fjölskyldna þeirra, fært skömm yfir fjölskylduna með einhverjum hætti. Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda enn fremur til þess að í Kúrdistan sé þekkt að konur séu neyddar í hjónabönd af ýmsum ástæðum.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslu EUAA frá 2022, er fjallað um erfiða stöðu kvenna í Írak. Fram kemur að efnahagsþvinganir og langvarandi átök hafi leitt til þess að lífsgæði þeirra hafi farið versnandi. Karllæg gildi séu ríkjandi í Írak og skortur sé á umræðu um réttindi kvenna og getu þeirra til að taka frekar þátt í samfélaginu. Konur séu jaðarsettar á mörgum sviðum samfélagsins og hafi mætt margvíslegum hindrunum, þ. á m. hvað varðar aðgengi að vinnumarkaði og heilbrigðiskerfi. Þá hafi margvísleg mannréttindabrot beinst að konum, þ. á m. kynferðis- og heimilisofbeldi, kynfæralimlestingar, heiðursmorð og þvinguð hjónabönd. Konur hafi veigrað sér við að leita aðstoðar lögregluyfirvalda vegna þessa, m.a. vegna viðmóts yfirvalda í garð kvenna, og séu málin því oft leyst innan viðkomandi fjölskyldu eða ættbálks. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og skýrslu EUAA frá 2022 virða íröksk lög og venjur almennt ekki ferðafrelsi kvenna og koma lög t.a.m. í veg fyrir að þær geti sótt um vegabréf án samþykkis karlkyns forráðamanns eða lögmanns. Þá geti konur ekki fengið útgefin persónuskilríki, sem krafist sé fyrir aðgang að opinberri þjónustu, mataraðstoð, heilsugæslu, atvinnu, menntun og húsnæði, án samþykkis karlkyns ættingja. Konur í Írak séu berskjaldaðar fyrir ýmis konar misnotkun af hálfu vinnuveitenda. Einstæðar og fráskildar konur, ekkjur og konur á vergangi séu sérstaklega viðkvæmar fyrir félagslegum fordómum, efnahagslegri misnotkun, mismunun í tengslum við vinnuskilyrði og varnarlausar gagnvart nauðungarvinnu. Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2023 hafi ótryggt félagshagfræðilegt ástand í Írak óhófleg áhrif á konur, ásamt fólki sem búi við fötlun, sem eigi oft erfiðara með að fá vinnu og lifa sjálfstætt sökum stofnana- og menningarlegra hindrana. Yfirvöld í Írak hafi gerst aðili að alþjóðlegum samningum um réttindi kvenna, s.s. samningi Sameinuðu þjóðanna frá 1986 um afnám allrar mismununar gagnvart konum (e. UN´s Convention on the Elimination of All Forms of Discrimination Against Women, CEDAW), en hafi gert fyrirvara við nokkur af helstu ákvæðum samningsins. Í skýrslu landateymi Sameinuðu þjóðanna í Írak (e. United Nations Country Team (UNCT) in Iraq) fyrir árið 2023 kemur fram að árið 2023 hafi verið innleidd sérstök stefna um þátttöku karlmanna fyrir árin 2023 – 2026 (e. The Male Engagement Strategy). Stefnunni sé ætlað að berjast gegn hefðbundnum gildum og hvetja til virks stuðnings karlmanna við jafnrétti á milli kvenna og karla. Einnig hafi landsáætlun fyrir írakskar konur fyrir árin 2023-2030 verið hleypt af stokkunum. Sú áætlun beini sjónum að stjórnmálaþátttöku kvenna, vernd kvenna og stúlkna, efnahagslegri valdeflingu kvenna og verkefnum tengdum loftlagsbreytingum. Ennfremur hafi ýmsum öðrum verkefnum verið hrundið af stað eða viðhaldið, s.s. sérstökum verkefnahópi um upplýsingastjórnun fyrir málefni kvenna og stúlkna, aðstoð við málaferli vegna kynbundins ofbeldis og stuðningur við verklega kennslu til að efla efnahagslegt sjálfstæði kvenna.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árin 2022 og 2023 og skýrslu Mannréttindavaktarinnar (e. Human Rights Watch) fyrir sama tímabil kemur fram að þrátt fyrir að stjórnarskrá Íraks banni allt ofbeldi og misnotkun innan fjölskyldunnar þá tilgreini refsilög landsins heimilisofbeldi ekki sérstaklega og lögin heimili eiginmönnum að aga eiginkonur sínar og börn innan ákveðinna marka sem séu nánar tilgreind í lögum og venjum. Innanríkisráðuneyti Íraks haldi úti 16 fjölskylduverndareiningum innan lögreglunnar, sem að staðsettar séu í sérhúsnæði við lögreglustöðvar víðsvegar um landið. Þessum einingum sé ætlað að leysa úr deilum innan heimilisins og vera öruggur staður fyrir þolendur kynferðis- og kynbundins ofbeldis. Einingarnar hafi þó verið gagnrýndar fyrir að leggja áherslu á að slík mál séu leyst með sátt innan fjölskyldunnar. Þá hafi frjáls félagasamtök fullyrt að þolendur veigri sér við að leita aðstoðar innan þessara eininga af ótta við að lögreglan greini fjölskyldum þeirra frá. Enn fremur hafi sumir ættbálkar bannað sínum meðlimum að leita til þessara eininga eftir aðstoð þar sem að heimilisofbeldi sé einkamál fjölskyldunnar. Í skýrslu EUAA um Írak frá árinu 2022 kemur fram að fá neyðarskýli séu í landinu sem konur geti leitað til neyðist þær til að yfirgefa heimili sitt vegna ofbeldis. Stjórnvöld hafi m.a. gripið til þess úrræðis að hýsa konur í fangelsum vegna skorts á skýlum. Flest neyðarskýli sé að finna í stærri borgum og séu rekin af sjálfboðaliðum. Konur sem dvelji þar geti verið í viðkvæmri stöðu þar sem þær hafi ekki stuðning karlkyns ættingja. Þá lendi konur í erfiðleikum við að leita réttar síns vegna neikvæðra viðhorfa lögreglu- og opinberra starfsmanna gagnvart konum og skorti á þekkingu um réttindi kvenna. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að í Kúrdistan sé heimilisofbeldi bannað með lögum, þ.m.t. líkamlegt og sálrænt ofbeldi, hótanir og nauðganir í hjónabandi. Sérstök löggæslustofnun rannsaki kynbundið ofbeldi og þá starfi innan dómskerfisins sérstök sáttamiðlunarnefnd fyrir fjölskyldur. Tvö einkarekin skýli séu starfrækt og fjögur á vegum stjórnvalda sem veiti vernd og stuðning fyrir konur sem séu þolendur kynbundins ofbeldis og mansals. Takmarkað pláss sé þó í skýlunum og samkvæmt frjálsum félagasamtökum sé sálrænn stuðningur takmarkaður. Frjáls félagasamtök séu lykilaðilar í starfsemi skýlanna og veiti m.a. lögfræðilega ráðgjöf.

Í skýrslu EUAA frá maí 2024 kemur fram að Erbil héraðið sé í Kúrdistan í norður Írak og að höfuðborg héraðsins, borgin Erbil, sé einnig höfuðborg Kúrdistan. Fram kemur að Erbil sé stjórnað af KDP sem hafi tengsl við Peshmerga og öryggissveitir héraðsins. Þá séu höfuðstöðvar sérstakrar stofnunar gegn hryðjuverkum (Directorate General of Counter Terrorism, CTD) í Erbil borg. Einnig séu liðsmenn frá Bandaríska hernum staðsettir í Harir herstöðinni utan Erbil borgar og á Erbil International Airport. ISIL hafi samkvæmt skýrslunni litla viðveru í Kúrdistan.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2023 kemur fram að um 150 ættbálkar séu í Írak. Allt að 80% íbúa í Írak séu meðlimir ættbálka eða hafi tengsl við ættbálk. Við fæðingu verði börn meðlimir ákveðins ættbálks og tilheyri þeir ættingjum föður síns, þar með talið við skilnað foreldra þeirra. Ættbálkar í Írak séu gjarnan þungvopnaðir og hafi tekið þátt í innanlandsátökum. Einstaklingar sem fari ekki að vilja ættbálka sinna geti átt það á hættu að vera vísað á brott úr ættbálknum, vera útskúfað eða jafnvel drepin. Þá geti einstaklingar sem fari ekki að menningarlegum, samfélags- eða trúarlegum venjum ættbálks átt refsiaðgerðir á hættu, s.s. fjárhagsþvinganir. Í sömu skýrslu kemur fram að einstaklingar sem fylgi ekki hefðum og venjum samfélagsins í Írak og hegði sér á „vestrænan” hátt kunni að verða fyrir ofbeldi og hótunum, þá einkum konur. Hver ætt, ættbálkur og ættbálkasamband hafi sinn leiðtoga, eða Sheikh. Á staðbundnum vettvangi séu ættbálkaleiðtogar „valdhafar“ og séu taldir ábyrgir fyrir verndun og efnahagslegum aðstæðum samfélaga sinna og þjóna sem staðbundnir dómarar og sáttasemjarar til að leysa ágreiningsmál, þar á meðal í eigna- og hjónabandsmálum. Ættbálkurinn beri almennt hins vegar ekki ábyrgð á efnahagsástandi meðlima sinna.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um heilbrigðiskerfið í Írak kemur fram að stjórnarskrá landsins tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meirihluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa sé staðsettur í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Flestar heilbrigðisstofnanir séu í Bagdad og þar á eftir komi héruðin Ninewa, Najaf og Basra. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá ágúst 2024 kemur fram að geðheilbrigðiskerfið sé ekki vel þróað og þrátt fyrir að lögfest hafi verið heildarlög um geðheilsu árið 2005 hafi þau enn ekki verið innleidd að fullu. Sex sérhæfð geðsjúkrahús séu starfrækt í Írak, tvö í Bagdad og fjögur í Kúrdistan. Aðgengi sé ekki nógu gott, skortur á sérhæfðu starfsfólki og lakir innviðir takmarki verulega aðgengi að umönnun. Þá sé ekki almannatryggingakerfi sem nái til allra ríkisborgara og þurfi Írakar að reiða sig á ríkisrekna opinbera heilbrigðiskerfið. Í skýrslunni segir að almennt fari fordómar gagnvart geðrænum veikindum minnkandi sem hafi leitt til þess að fleiri leiti sér aðstoðar vegna geðheilbrigðisvandamála.

Í skýrslu Alþjóða fólksflutningsstofnunarinnar (IOM) frá árinu 2019 kemur fram að yfirvöld tryggi öllum börnum rétt á endurgjaldslausri menntun frá sex ára aldri. Fjölskyldur sem snúi aftur til Íraks eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd í öðrum löndum geti sótt um aðstoð hjá stofnuninni við enduraðlögun. Í skýrslu EASO frá árinu 2020 kemur fram að það séu ýmsar hindranir að aðgengi að menntun fyrir börn á innri flótta og börn sem séu búsett á svæðum sem hafi verið undir stjórn Daesh. Í skýrslu ástralska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að opinber fræðsla sé gjaldfrjáls á öllum stigum en sé yfirleitt léleg. Menntun sé skylda til loka sjötta bekkjar í Írak. Þrátt fyrir að engir einkaskólar hafi verið starfandi fyrir árið 2003 séu nú um 1.200 starfandi einkaskólar með leyfi frá menntamálaráðuneytinu. Einkaskólar séu oft betri en opinberir skólar en hafi há skólagjöld og séu því aðeins á færi efnameiri einstaklinga. Innritunarhlutfall stúlkna hafi aukist á undanförnum áratugum en sé enn um það bil sex prósentum lægra en drengja í grunnskóla og 25 prósentum lægra í framhaldsskóla.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja kröfu sína um alþjóðlega vernd á líflátshótunum sem þau hafi orðið fyrir í heimaríki í af hálfu meðlima [...]ættbálksins vegna dauða undirmanns K og meðlims [...]ættbálksins, Z, í vinnuslysi við byggingarframkvæmdir undir stjórn K.

Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst K hafa orðið fyrir mismunun í heimaríki á grundvelli kyns og sem kona í stjórnendastöðu. K hefur greint frá því við meðferð málsins hjá kærunefnd að eiginmaður hennar og faðir A, sem nú hafi yfirgefið kærendur, hafi beitt K ofbeldi í heimaríki á meðan á hjónabandi þeirra hafi staðið. Andlegt ofbeldi hafi verið títt og það hafi oft leitt til líkamlegs ofbeldis innan heimilisins. K greindi frá því að hafa yfirgefið heimili sitt í kjölfar eins sérstaklega slæms atviks, hún hafi leitað skjóls á heimili systkini síns og viljað slíta sambandi við eiginmann sinn. K hafi ráðið lögmann til að fara fyrir dóm og sækja um skilnað. Hins vegar hafi fjölskylda K og fjölskylda eiginmanns hennar miðlað málum á milli K og eiginmanns hennar og sannfært K um að láta málið niður falla, m.a. vegna þess að K myndi ekki fá mikið í sinn hlut við skilnaðinn og skilnaður gæti jafnframt leitt til vandræða fyrir hana. Eiginmaður K hafi beðið fjölskyldumeðlimi sína afsökunar og K hafi verið lofað að viðhorf hans myndi breytast og ofbeldið hætta. Aðspurð kvaðst K ekki hafa greint frá framangreindu í viðtali eða við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun vegna þess að það hafi upphaflega staðið til að eiginmaður hennar myndi sameinast kærendum hér á landi og sækja um vernd þegar hann myndi hafa efni á því. K hafi haldið að það gæti mögulega hindrað umsókn eiginmannsins eða umsókn hennar ef hún myndi minnast á framangreint. Hins vegar hafi hún ákveðið að segja frá umræddu ofbeldi eftir að það hafi orðið ljóst að eiginmaður hennar myndi ekki sameinast kærendum hér á landi. K telur að það myndi líklega valda ágreiningi og ofbeldi af hálfu eiginmannsins og fjölskyldu hans ef hún myndi reyna að sækja rétt sinn eða einhverjar fjárhagslegar bætur frá honum í heimaríki fyrir að hafa yfirgefið kærendur. K hefur lagt fram tvö skjöl við meðferð málsins hjá kærunefnd, annars vegar afrit af hjúskaparvottorði eiginmanns K og nýrrar eiginkonu hans, dags. 21. maí 2024, og hins vegar afrit af skjali, dags. 4. desember 2024, sem að sögn K stafi frá lögmanni hennar í Kúrdistan til staðfestingar á fyrri málaferlum gegn eiginmanni K vegna heimilisofbeldis. Skjölin bera með sér að koma í megindráttum saman við frásögn K af nýju hjónabandi eiginmanns hennar og sögu heimilisofbeldis af hans hálfu.

Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna, líkt og að framan er rakið, að staða kvenna í Írak sé erfið. Konur eigi á hættu að verða fyrir áreiti, mismunun og ofbeldi vegna kyns síns, þ. á m. af hendi sambúðarmaka eða eiginmanns. Há tíðni heimilisofbeldis og heiðursglæpa sé áhyggjuefni og þolendur veigri sér við að leita aðstoðar yfirvalda, m.a. vegna viðmóts þeirra í garð kvenna. Þá standi konur í Írak frammi fyrir ýmsum hindrunum og áskorunum sem geti haft neikvæð áhrif á getu þeirra og möguleika til að taka fullan og jafnan þátt á við karlmenn í stjórnmálalegum, félagslegum og fjárhagslegum sviðum samfélagsins. Gögnin benda hins vegar ekki til þess að konur í Írak eigi á hættu mismunun eða áreiti vegna kyns sem nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr. , sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá kemur fram í gögnunum að íbúum í Kúrdistan standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða, þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. K hefur lagt fram gögn sem benda til þess að hún hafi leitað aðstoðar lögmanns og fjölskyldu sinnar í Kúrdistan vegna ofbeldis af hálfu eiginmanns hennar. Ekkert í gögnum málsins eða heimildum um heimaríki hennar bendir til þess að henni sé ómögulegt að leita slíkrar aðstoðar á ný. Þá er K heimilt og mögulegt að sækja um skilnað frá eiginmanni sínum í heimaríki þrátt fyrir takmarkanir. Með vísan til framangreinds á K þess kost að leitað aðstoðar og verndar yfirvalda, telji hún sig þurfa þess vegna áreitis eða ofbeldis á grundvelli kyns síns. Þá nýtur K stuðnings A auk eldri sonar síns og fjölskyldu hans í heimaríki.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa yfirgefið heimaríki vegna líflátshótana tilgreindra meðlima [...]ættbálksins í kjölfar dauða meðlims fjölskyldunnar í vinnuslysi á byggingarsvæði undir stjórn K. Kærendur kváðu starfsmanninn Z hafa látið lífið eftir að hafa orðið fyrir raflosti á meðan framkvæmdum stóð við byggingu verslunarhúsnæðis 25. júní 2023. Bróðir hans, X, hafi jafnframt verið að störfum á svæðinu, K hafi stýrt framkvæmdunum og A hafi starfað við framkvæmdirnar. Kærendur greindu frá því að jarðaför Z hafi farið fram degi síðar og þar hafi K, A og eiginmaður K orðið fyrir árásum og hótunum af hálfu systur Z og X. Þá hafi X jafnframt hótað A með byssu. Kærendur kváðu fjölskyldu Z ekki hafa viljað leita sátta vegna málsins og kennt K um dauða Z. Þeim hafi borist líflátshótanir af hálfu fjölskyldunnar og því flúið Írak 27. júlí 2023. Að sögn kærenda sé [...]ættbálkurinn valdamikill í Kúrdistan og með tengsl við yfirvöld sem leiði til þess að kærendur geti ekki leitað aðstoðar og verndar yfirvalda. Ekki er ástæða til þess að efast um að kærendum hafi verið hótað af X vegna dauða bróður hans í Írak. Engu að síður hafa kærendur ekki leitt að því líkum að X eða aðrir aðilar innan [...]ættbálksins séu valdamiklir eða með tengsl við yfirvöld sem valdi því að kærendur geti ekki leitað aðstoðar og verndar þeirra. Hefur verið litið til þess að kærendur kváðust aðeins hafa reynt að ræða við X stuttu eftir atvikið en hafi hætt frekari sáttaumleitum eftir að X hafi hótað lífi þeirra í símtali u.þ.b. fimm dögum eftir jarðaför Z. Þá ber að líta til þess að nánir fjölskyldumeðlimir kærenda eru enn búsettir í Írak og frásagnir kærenda bera ekki með sér að umræddir fjölskyldumeðlimir þeirra séu í hættu þar í landi af hálfu [...]ættbálksins. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins og frásagnir kærenda beri ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærendur hafa ekki borið fyrir sig að óttast ofsóknir af hálfu írakskra yfirvalda sem gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að kærendur eigi slíkar ofsóknir á hættu. Jafnframt er litið til þess að í viðtölum hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur ekki óttast neina aðra aðila í heimaríki en meðlimi [...]ættbálksins. Gögn um heimaríki kærenda benda ekki til þess að völd og staða ættbálksins séu slík að kærendum sé ómögulegt að leita aðstoðar yfirvalda af þeim sökum. Þrátt fyrir að gögn um Írak beri það með sér að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla geti verið að einhverju leyti ábótavant þá geta kærendur leitað til yfirvalda telji þau ástæðu til þess. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að yfirvöld í Írak skorti vilja eða getu til að veita kærendum viðeigandi aðstoð eða vernd gegn athöfnum sem feli í sér hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur telja að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra með hliðsjón af almennu ástandi í Írak leiði til þess að stjórnvöldum sé skylt að veita þeim viðbótarvernd. Kærendur hafi orðið fyrir viðvarandi hótunum og áreiti og vísa til þess að ekki sjái fyrir endann á þeim ofsóknum. Þá sé útilokað fyrir kærendur að leita sér verndar í ljósi stöðu mannréttinda, dómkerfis og spillingar í Írak.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að vera fædd og uppalin í borginni Erbil, í Kúrdistan í Írak. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum í skýrslu EUAA frá 2024 kemur fram að tyrknesk stjórnvöld hafi reglulega framkvæmt aðgerðir gegn PKK á landamærasvæðum Tyrklands og Írak en þó einnig dýpra inn í Kúrdistan. Slíkar aðgerðir hafi færst í aukana á undanförnum árum og nokkrir almennir borgarar hafi verið drepnir eða meiðst í dróna árásum, m.a. í Dohuk og Erbil héraði. Á tímabilinu 1. febrúar 2023 til 31. mars 2024 hafi verið skráðir 25 öryggisviðburðir sem hafi leitt til dauða af vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project). Þau gögn sýna að ástandið sé ótryggt á sumum svæðum í Írak. Þótt hryðjuverkahópar séu með einhverja virkni í landinu benda gögn og heimildir engu að síður ekki til þess að aðstæður í Erbil séu slíkar að kærendur eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þau send aftur þangað eða að þau verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að þau hafi ríka þörf fyrir vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til almennra aðstæðna, erfiðra félagslegra aðstæðna og af heilbrigðisástæðum. Kærendur vísa til þess að fyrir liggi að langvarandi átök hafi átt sér stað í Kúrdistan í Írak sem hafi færst í aukana eftir upphaf árása á Gaza svæðinu í október 2023. Þá hafa kærendur orðið fyrir áreiti vegna stöðu K og þeirra atburða sem hafi gengið á, orðið fyrir árásum og hótunum af þeim sökum og telja því aðstæður sínar falla undir erfiðar félagslegar aðstæður. Vísa kærendur jafnframt til þess að þau glími við mikla heilsufarskvilla, séu bæði í áframhaldandi læknismeðferð hér á landi og telja sig ekki hafa aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu vegna ástandsins í Írak.

Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum svæðum í heimaríki kærenda þá teljist svæðið þar sem kærendur höfðu búsetu í Kúrdistan til öruggari svæða. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærendum í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í gögnum málsins kemur fram að K glími við sykursýki, háan blóðþrýsting, sé með hné- og bakvandamál og glími við heilsufarskvilla eftir Covid-19 smit. A glími við magavandamál og meiðsli í hálsi. Af frásögn kærenda má ráða að K hafi farið í aðgerð á mænu í heimaríki og að A hafi reglulega farið til læknis þar í landi og haft þar aðgang að sama magalyfi og hér á landi. Hafa kærendur lagt fram heilsufarsgögn frá Írak og Íslandi til staðfestingar á heilsufari sínu.

Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

K hefur greint frá því að eiginmaður hennar og faðir A hafi beitt hana andlegu og líkamlegu ofbeldi í heimaríki á meðan á hjónabandi þeirra hafi staðið og lagt fram gögn varðandi það. Af gögnum málsins verður ráðið að K hafi leitað til lögmanns vegna ofbeldisins en ekki haldið málinu til streitu eftir að fjölskylda eiginmanns hennar og fjölskylda hennar hafi miðlað málum og eiginmaður hennar beðist afsökunar. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum um aðstæður K þar sem hún hafði ekki greint frá þessu í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun og greindi K frá því að í ljósi þess að eiginmaður hennar hafi gifst annarri konu og muni ekki koma til með að sameinast kærendum hér á landi hafi hún ákveðið að greina frá heimilisofbeldi af hans hálfu. Af svörum K má ekki ráða annað en að framangreint ofbeldi hafi hætt í kjölfar sáttaumleitana fjölskyldna K og eiginmanns hennar. Með vísan í umfjöllun varðandi 1. mgr. 37. gr. er ljóst að kærendur geta leitað aðstoðar stjórnvalda og annarra aðila í heimaríki telji þau ástæðu til þess vegna framkomu eiginmanns K í garð K eða þeirra beggja.

Kærendur hafa greint frá félagslegum aðstæðum sínum. Þau hafa greint frá því að K hafi unnið sem verkfræðingur og A sem smiður og að K og eiginmaður hennar hafi átt húsnæði í Erbil borg. Þau hafi getað framfleytt sér og keypt lyf vegna veikinda sinna. Kærendur telja að þau muni vera í erfiðum félagslegum aðstæðum í heimaríki þar sem eiginmaður K hafi gengið í hjónaband með annarri konu og kærendur misst húsnæði sitt vegna þess. Í viðtali Útlendingastofnunar greindi K frá því að fjárhagsleg staða kærenda hafi verið góð í heimaríki þar sem bæði hún og eiginmaður hennar hafi verið í góðum störfum. K greindi frá því að hún eigi eldri son í heimaríki og barnabörn. Þá eigi hún föður og stjúpmóður þar í landi, tvö hálfsystkini og eina systur. A kvaðst eiga bróður og aðra ættingja í heimaríki. Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér í heimaríki og er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að þau verði ekki fær um það við endurkomu til heimaríkis. Vegna þess ofbeldis sem K hefur greint frá að hafa orðið fyrir af hálfu eiginmanns síns er vísað til þess að í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að í Kúrdistan sé heimilisofbeldi bannað með lögum, þ.m.t. líkamlegt og sálrænt ofbeldi, hótanir og nauðganir í hjónabandi. Sérstök löggæslustofnun rannsaki kynbundið ofbeldi og þá starfi innan dómskerfisins sérstök sáttamiðlunarnefnd fyrir fjölskyldur. Tvö einkarekin skýli séu starfrækt og fjögur á vegum stjórnvalda sem veiti vernd og stuðning fyrir konur sem séu þolendur kynbundins ofbeldis og mansals. Með vísan til framangreinds verður gengið út frá því að K standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda telji hún þörf á slíku.

Með vísan til framangreinds verða félagslegar aðstæður kærenda við komu til heimaríkis ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 10. október 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda. Ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stendur því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun.

Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. K greindi frá því að bróðir hennar og systir, frændi og frænka A, væru búsett í Þýskalandi. Kærendur kváðust telja brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarna ráðstöfun þar sem líf þeirra sé í hættu í heimaríki.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.

Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir