04 apríl 2025

/

Úrskurður nr. 292/2025


Hinn 4. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 292/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24090020

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 3. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Pakistan (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. ágúst 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 19. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 5. september til 10. september 2024 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. ágúst 2024. Hinn 3. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kemur fram að í símtali kæranda við utanríkisþjónustuna kunni að hafa orðið misskilningur vegna lélegs sambands sem gæti hafa haft áhrif á skýrleika útskýringa hans. Kærandi hafi lagt fram staðfesta hótelbókun og ítarlega ferðaáætlun. Kærandi ætli sér að ferðast einn þar sem eiginkona hans sé upptekin við vinnu og umönnun barna þeirra. Kærandi hafi farið að ráðleggingum VFS og ekki keypt sér flugmiða heldur lagt fram bókun fyrir fyrirhugaðar dagsetningar. Kærandi sé tilbúinn að leggja fram greiddan flugmiða sé þess þörf.

Á kærustigi lagði kærandi fram nýtt gagn; ráðningarsamning hjá nafngreindu fyrirtæki í Bretlandi.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Pakistan þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10, 11 og 12 þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar, að rökstudd ástæða væri til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlunina væru áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð hafi verið fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókanir og umrætt flugfélag hafi staðfest að hætt hafi verið við flugbókanirnar. Í viðtali hafi kærandi verið óupplýstur um fyrirhugaða ferð og gefið óáreiðanleg svör. Veruleg ástæða hafi verið til að vefengja ásetning kæranda um að ferðast til Íslands. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Gögn sem sýna fram á flugbókun eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, þegar um skoðunarferðir eða einkaferðalög er að ræða, sbr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og viðauka 2 við sömu reglugerð. Kemur krafa um slík gögn auk þess fram í 5. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Bretlandi. Kærandi hefur lagt fram ný gögn á kærustigi, en ekki nýja flugbókun. Þegar af þeirri ástæðu verður hin kærða ákvörðun staðfest.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika framlagðra gagna kæranda, sbr. b-liður 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem hann hafi veitt, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður