04 apríl 2025

/

Úrskurður nr. 293/2025


Hinn 4. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 293/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24080196

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 30. ágúst 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. ágúst 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 6. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 13 daga dvöl frá 1. til 13. október 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Kína. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. ágúst 2024. Hinn 30. ágúst 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru er gerð grein fyrir því hvers vegna kærandi hafi ekki getað lagt fram forsíðu Hukou skjals. Þá kemur m.a. fram að kærandi hafi sagt upp starfi sínu, keypt sér fasteign ásamt unnustu sinni og stofnað nýtt fyrirtæki á sviði gervigreindar ásamt viðskiptafélögum. Kærandi muni snúa aftur til heimaríkis þar sem hann ætli sér að giftast unnustu sinni, halda áfram viðskiptum sínum og sjá um foreldra sína. Allir vinir kæranda séu búsettir í Kína og hann hafi ekki áform um að dvelja á Íslandi lengur en vegabréfsáritunin leyfi.

Kærandi lagði fram ný gögn á kærustigi, m.a. forsíðu Hukou skjals og upplýsingar um tengilið hjá núverandi atvinnuveitanda.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2, 10 og 12, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar ferðar, upplýsingarnar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð hafi verið fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að bréf frá atvinnurekanda þyki óáreiðanlegt. Þá hafi vantað forsíðu Hukou skjals. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Kærandi lagði fram ný gögn á kærustigi, m.a. forsíðu Hukou skjals og upplýsingar um tengilið hjá núverandi atvinnuveitanda.

Gögn sem sýna fram á að umsækjandi hafi nægt fé sér til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til þess að snúa aftur til upprunalands síns, sem og upplýsingar sem gera kleift að meta ásetning umsækjanda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út, eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma m.a. fram í 8. og 12. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Peking. Við meðferð umsóknar kæranda hjá sendiráðinu var kærandi upplýstur um að undirskrift atvinnurekanda vantaði. Kærandi hefur lagt fram nýja forsíðu Hukou skjals og upplýsingar um tengilið hjá atvinnuveitanda á kærustigi. Það ferðatímabil sem kærandi sótti um vegabréfsáritun fyrir er hins vegar liðið þegar úrskurður þessi er kveðinn upp. Forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hvað þetta varðar byggjast á efnislegum skilyrðum sem ættu ekki að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kæranda hafi hann áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 25/2022, dags. 9. maí 2022. Telst kærandi því ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að lagt sé mat á ný gögn sem lögð voru fram á kærustigi. Er kæranda þess í stað leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar og að upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar, sbr. ii. tölul. a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr., sbr. einnig 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest. Kæranda er leiðbeint um að hann geti sótt um vegabréfsáritun að nýju.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður