29 apríl 2025

/

Úrskurður nr. 299/2025


Hinn 29. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 299/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24080171

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. ágúst 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. ágúst 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 7. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 10 daga dvöl frá 3. til 12. desember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Kína. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. ágúst 2024. Hinn 29. ágúst 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Hinn 28. mars 2025 sendi kærunefnd kæranda tölvubréf þar sem skilja mátti af kæru að gleymst hafi að hengja viðhengi við kæruna. Kæranda voru gefnir sjö dagar til að bregðast við því en engin svör bárust kærunefnd.

III. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram ný gögn á kærustigi og færði engin rök fyrir því að hin kærða ákvörðun hafi verið röng.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 2, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að samkvæmt framlögðum gögnum hafi dóttir kæranda ætlað að styrkja hana til fararinnar. Hvorki hafi verið lögð fram bréf til staðfestingar á atvinnu dótturinnar né viðskiptaleyfi dótturinnar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Gögn er varða atvinnu eða reglulega innkomu eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 8. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Kína, þar sem kærandi lagði umsókn sína fram. Í gátlistanum kemur fram að atvinnulausir umsækjendur sem studdir eru af öðrum en maka þurfi m.a. að leggja fram bréf til staðfestingar á atvinnu og tekjum stuðningsaðilans sem og bankayfirlit stuðningsaðilans.

Í bréfi sem fylgdi með umsókn kæranda kom fram að hún væri heimavinnandi húsmóðir. Því legði hún fram bankayfirlit dóttur sinnar sem myndi ferðast með kæranda til Íslands. Fram kom að dóttir kæranda væri kaffibarþjónn í hlutastarfi. Þó dóttir kæranda gæti ekki lagt fram staðfestingu á atvinnu sinni hefði fyrra starf hennar gert henni og kæranda kleift að safna nægu fé til að fjármagna ferðina til Íslands. Líkt og fram hefur komið mat Útlendingastofnun framangreind gögn ófullnægjandi enda sýndu þau ekki fram á staðfestingu á atvinnu dóttur kæranda né viðskiptaleyfi.

Kærandi hefur ekki lagt fram ný gögn eða skýringar á framangreindum annmarka fyrir kærunefnd.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið færðar sönnur á að kærandi hafi nægt fé sér til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stæði og til þess að snúa aftur til búsetulands síns, sbr. iv. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 1. málsl. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Hafi þannig ekki verið sýnt fram á að kærandi hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stæði og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins, sbr. c-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. málsl. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður