29 apríl 2025
/
Úrskurður nr. 356/2025
Hinn 29. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 356/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU24090129 og KNU24090130
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 20. september 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 10. september 2024, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd 29. október 2023. Kváðust kærendur sækja um alþjóðlega vernd þar sem þau hafi verið í hættu í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana þeirra.
Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 29. apríl 2024 ásamt löglærðum talmanni sínum. Kærendur greindu frá því að vera fædd og uppalin í El Tigre borg í Anzoátegui fylki þar sem þau hafi jafnframt búið áður en þau hafi flúið heimaríki. Kærendur kváðust hafa verið aðilar að stjórnarandstöðuflokknum GENTE (Generación Independiente). Kvaðst M hafa sinnt starfi samhæfingarfulltrúa ungliðahreyfingar stjórnmálaflokksins. M kvaðst jafnframt hafa starfað fyrir ríkisrekna fyrirtækið [...], sem sinni rafmagnsúthlutun í Anzoategui fylki. K kvaðst hafa starfað í heilsulind en jafnframt hafi hún verið rekið eigin netverslun.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðu kærendur aðalástæðu flótta frá heimaríki hafa verið ofsóknir yfirvalda og glæpahópa sem starfi í skjóli yfirvalda. M kvaðst hafa gerst meðlimur stjórnmálaflokksins GENTE í ágúst 2023 en fyrir það hafi hann verið virkur stjórnarandstæðingur í heimaríki og meðal annars tekið þátt í mótmælum. M kvaðst hafa séð alfarið um samfélagsmiðla flokksins í suðurhluta Anzoátegui fylkis, þar sem markmið hans hafi verið að kynna stefnumál flokksins fyrir ungmennum. Þá kvað M föður sinn hafa verið [...] flokksins. K kvaðst jafnframt hafa verið meðlimur stjórnarandstöðuflokksins GENTE og hafa tekið þátt í mótmælum. Þá kvaðst M hafa haft hátt um stjórnmálaskoðanir sínar á eigin samfélagsmiðlum. Kærendur greindu frá því að snemma árs 2023 hafi stjórnarandstöðuflokkarnir hafið herferð þegar velja átti næsta fulltrúa stjórnarandstöðunnar sem færi upp á móti Maduro í forsetaframboð. Kærendur og fjölskylda þeirra hafi stutt [...], hér eftir X, sem hafi verið fulltrúi stjórnarandstöðuflokksins Vente Venezuela. Fljótlega var X orðin fremsti frambjóðandi stjórnarandstöðunnar og í kjölfarið hafi henni borist hótanir og hún orðið fyrir ofsóknum. Vegna stuðnings við X hafi kærendur einnig orðið fyrir ofsóknum. Hinn 10. mars 2023, hafi verið gerð skemmdarverk á heimili kærenda. Nefndu kærendur að m.a. hafi verið krotað framan á heimili þeirra og kastað steinum í glugga og veggi. Þá hafi kærendum jafnframt borist hótanir símleiðis frá ótilgreindum einstaklingum. Hafi kærendur tekið þátt í að skipuleggja heimsókn X til heimaborgar þeirra, El Tigre, 30. mars 2023. Kærendur greindu frá því að þegar X hafi heimsótt heimaborg þeirra hafi m.a. farið fram fundir á vegum Vente Venezuela á [...]. Kváðu kærendur skemmdarverk hafa verið gerð á heimili þeirra í annað skiptið í júní 2023. Í júlí 2023 hafi faðir M verið handtekinn sökum þess að hann hafi verið með límmiða á bifreið sinni til stuðnings X. Hafi föður M verið meinað um vatn og mat þangað til honum hafi verið sleppt, um þremur dögum síðar. K greindi frá því að þar sem ekki hafi verið grundvöllur fyrir höfðun sakamáls gegn tengdaföður hennar hafi honum verið sleppt. M kvaðst óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar eftir að lögmaður á vegum ríkisins (e. public attorney) í Venesúela hafi gefið út handtökuskipun gegn leiðtogum stjórnarandstöðuflokkanna. Þá greindi M frá því að K hafi eitt sinn verið elt heim til sín af SEBIN liðum og kvað M SEBIN liða oft á tíðum hafa verið nálægt heimili þeirra, ljósmyndað heimilið og fylgst grannt með kærendum. Taldi M sömu aðila líklega hafa verið að baki símahótununum. Aðspurð kvaðst K aldrei hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi eða öðru áreiti. Þá greindi M frá því að vinnuaðstæður hans hafi orðið afar hrörlegar eftir að yfirmenn hans hafi komist að stjórnmálaþátttöku hans. Hann hefði verið látinn sofa við hættulegar og óhreinar aðstæður, innan um banvænar köngulær og moskítóflugur. Þá kvaðst M hafa verið þvingaður til að vinna með vinnuvélar sem ekki hafi uppfyllt öryggisskilyrði. M kvaðst hafa starfað hjá [...], frá árinu 2015 en áreiti yfirmannanna hafi ekki byrjað fyrr en á árinu 2023, eftir að M hafi opinberað stjórnmálaskoðanir sínar og gerst meðlimur stjórnarandstöðuflokksins GENTE. M kvaðst ekki hafa getað sagt formlega upp störfum og hafi því beðið eftir frídögunum sínum til þess að flýja heimaríki. M kvað bróður sinn hafa flúið heimaríki í mars 2023 og systur sína í júní 2023. Kvað M þau hafa flúið af sömu ástæðum og hann. Aðspurður hvers vegna M hafi ekki flúið fyrr en í október 2023 kvaðst M hafa tekið þátt í skipulagningu prófkjörs sem farið hafi fram 23. október 2023 og hafi því flúið þegar því hafi verið lokið.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 20. september 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 2. október 2024 og 3. apríl 2025. Með tölvubréfi, dags. 8. apríl 2025, óskaði kærunefnd eftir frumritum þeirra gagna sem bárust kærendum 3. apríl 2025. Hinn 9. apríl 2025 bárust kærunefnd umbeðin gögn. Hinn 9. apríl 2025, sendi kærunefnd beiðni til skilríkjarannsóknarstofu flugstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum um að taka til rannsóknar ný framkomin gögn. Með tölvubréfi, dags. 22. apríl 2025, barst kærunefnd afrit af skjalarannsóknarskýrslu lögreglunnar. Með tölvubréfi, dags. 22. apríl 2025, sendi kærunefnd skjalarannsóknarskýrslu til kærenda og óskaði eftir athugasemdum. Hinn sama dag barst kærunefnd viðbótargagn frá kærendum í tölvubréfi. Hinn 25. apríl 2025, bárust athugasemdir kærenda ásamt fylgigögnum.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.
Í greinargerðum er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærendur hafi búið í El Tigre borg í Anzoategui fylki í Venesúela. M hafi unnið hjá fyrirtækinu [...]sem hafi séð um rafmagn í öllu fylkinu. Fram kemur að M hafi verið stjórnandi yfir ungmannahreyfingu GENTE, Generacion Indipendtiente, sem sé hópur með bein tengsl við X. Þá kemur fram að vinnuaðstæður M hafi orðið afar hrörlegar eftir að yfirvöld hefðu komist að því að hann væri stjórnarandstæðingur. Hann hafi verið látinn sofa við hættulegar og óhreinar aðstæður, innan um banvænar köngulær og moskítóflugur. Þá hafi hann unnið á 24 klukkustunda vöktum og á vinnuvélum sem uppfylltu ekki öryggisskilyrði. Fram kemur að kærendur og fjölskylda þeirra hafi orðið fyrir áreiti í þrígang. En í mars og júní 2023 hafi verið unnin skemmdarverk á heimili þeirra þar sem m.a. hafi verið krotað á veggi og steinum grýtt í hurðir og glugga. Þá hafi faðir M verið handtekinn vegna þess að hann hafi verið með límmiða á bakhlið bifreiðar sinnar til stuðnings X. Faðir M hafi verið í haldi lögreglu í þrjá daga og verið meinað um vatn og mat þar til honum hafi verið sleppt úr haldi. Þá kemur fram að kærendur hafi fengið líflátshótanir símleiðis, gagnvart sér og fjölskyldu sinni. Enn fremur hafi kærendur verið við móttöku X í El Tigre borg þegar vopnaðir glæpahópar hafi mætt, grýtt þau og hent í þau smokkum með vatni og blóði.
Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Byggja kærendur á að hinar kærðu ákvarðanir séu haldnar verulegum annmörkum. Kærendur telja að gögn sem þau hafi lagt fram hafi ekki verið rannsökuð af Útlendingastofnun auk þess sem hluti af málsástæðum kærenda hafi aldrei ratað í hinar kærðu ákvarðanir. Kærendur benda m.a. á að í hinum kærðu ákvörðunum sé málsástæða þeirra um föður M ekki lögð til grundvallar því frásagnir og gögn séu ekki á þá leið að faðir M hafi verið virkur stjórnarandstæðingur eða áberandi að öðru leyti. Kærendur telja að um sé að ræða rangfærslu enda hafi faðir M verið stjórnandi í suðurhluta El Tigre fyrir hreyfingu í þágu X, eins og komi skýrt fram bæði í efnisviðtali og í framlögðum gögnum þeirra. Fyrir liggja ljósmyndir frá því að faðir M sór þann eið og ljósmyndir af stjórnmálavirkni hans. Þá benda kærendur jafnframt á að í hinum kærðu ákvörðunum sé hvergi á það minnst að heimili kærenda hafi verið miðlægur fundarstaður fyrir alla skipulagningu í þágu X í borginni, m.a. hýst blaðamannafund, varning og fundi fyrir herferð X. Af þeim ástæðum hafi heimili kærenda verið skotmark fyrir skemmdarverk og glæpi.
Í viðbótargreinargerð kærenda kemur fram að kærendur hafi nýlega fengið upplýsingar um upphaf sakamáls gegn M þar sem þrjú fyrirköll hafi verið gefin út á hendur honum. Þar sé M boðaður á skrifstofu CICPC í samræmi við 170. og 238. gr. venesúelskra sakamálalaga vegna meints landráðs, sbr. 129. og 132. gr. hegningarlaga. Fram kemur að kærendur hafi framangreind fyrirköll í fórum sínum hér á landi í frumriti og séu reiðubúin að leggja þau fram sé þess óskað.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggja kærendur á að þau búi við ástæðuríkan ótta á að vera ofsótt í heimaríki á grundvelli stjórnmálaskoðana og á grundvelli þjóðfélagshóps sem stjórnarandstæðingar og þolendur ofbeldisglæpa. Gríðarlegur fjöldi myndefnis liggi fyrir í málinu sem sýni fram á stjórnmálaþátttöku kærenda, fundarhöld á heimili þeirra, varning og blaðamannafund sem haldinn var fyrir utan heimili þeirra. Þá hafi kærendur bæði lýst ítrekuðu áreiti frá SEBIN liðum og m.a. líflátshótunum í gegnum síma vegna stjórnmálavirkni. Loks hafi M þrisvar sinnum verið boðaður á skrifstofu CICPC vegna ásökunar um landráð. Verði M sendur til heimaríkis séu því allar líkur á því að hann verði sóttur til saka og ákvörðuð óhófleg refsing á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna. Þá byggja kærendur á að útgáfa fyrirkallanna feli eitt og sér í sér pólitískar ofsóknir. Þar að auki hafi faðir M verið handtekinn, frelsissviptur að ósekju og haldið án drykkjar og matar. Augljóst sé að geðþóttahandtökur af þessum toga teljist til ofsóknarhugtaksins þar sem einstaklingum sé haldið í ómannúðlegum, vanvirðandi og lífshættulegum aðstæðum. Engin ástæða sé til að efast um gögn máls eða frásögn kærenda enda eiga þau sér sterka stoð í landaupplýsingum. Þeir sem standi að ofsóknunum séu ríkið, þar með talið SEBIN, CICPC og glæpahópar sem starfi í skjóli yfirvalda. Liggi því fyrir að kærendur hafi ekki og geti ekki hlotið vernd yfirvalda í heimaríki.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Varakröfu sinni til stuðnings vísa kærendur til þeirra málsástæðna sem hafa verið raktar að framan í aðalkröfu. Einkum er vísað til aukinnar hættu M á ómannúðlegri og vanvirðandi refsingu, í ljósi þess að gefin hafa verið út þrjú fyrirköll gegn honum vegna meints landráðs, þar sem hann er boðaður til CICPC. Loks er vísað til þess að faðir M hafi þurft að þola ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í varðhaldi að ósekju hjá venesúelskum stjórnvöldum þar sem honum hafi verið meinað um mat og drykk í þrjá daga.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Hvað erfiðar félagslegar aðstæður varðar vísa kærendur til þess að þau séu auðþekkjanleg í heimaríki sem stjórnarandstæðingar, enda hafi þau hýst óteljandi fundi og heimili þeirra haldið utan um skipulagningu í þágu framborðs X. Þá hafa árásir verið gerðar á heimili þeirra en auk þess hafa kærendur orðið fyrir hótunum og gífurlegum takmörkunum á tjáningar- og fundarfrelsi, orðið vitni að grófum brotum á persónufrelsi þar sem náinn fjölskyldumeðlimur þeirra hafi verið handtekinn að geðþótta. Framangreind reynsla kærenda hafi fengið mjög á þau og marki þeim aðild að þjóðfélagshópi með ríka verndarþörf.
Til þrautaþrautavara krefjast kærendur þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur komu hingað til lands og sóttu um alþjóðlega vernd 29. október 2023. Senn séu því liðnir 18 mánuðir frá því að þau lögðu fram umsókn um vernd. Kærendur byggja á því að skilyrði allra stafliða ákvæðisins séu uppfyllt en jafnframt hafi kærendur lagt sig fram við að veita upplýsingar og aðstoð við úrlausn málsins. Kærendur hafi, máli sínu til stuðnings, lagt fram fjölda gagna og frá upphafi gefið sömu mynd af þeim ofsóknum sem þau óttast í heimaríki. Verði komist að því að einhver stafliður 2. eða 3. mgr. ákvæðisins eigi við þá byggja kærendur á að víkja verði frá því þar sem sérstakar ástæður séu uppi í málinu, sbr. 4. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Með endursendingu kærenda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur séu venesúelskir ríkisborgarar.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 9. apríl 2025);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);.
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 9. apríl 2025);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 2. apríl 2025);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja kröfu sína um alþjóðlega vernd á að vegna stjórnmálaskoðana sinna óttist þau ofsóknir yfirvalda og glæpahópa sem starfi í skjóli yfirvalda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur vera meðlimir stjórnmálaflokksins GENTE og verið virkir stjórnarandstæðingar í heimaríki. M kvaðst m.a. alfarið hafa séð um samfélagsmiðla fyrir flokkinn í suðurhluta Anzoategui fylkis. Þá hafi faðir M sinnt starfi samhæfingarfulltrúa fyrir flokkinn. Kærendur og fjölskylda þeirra hafi stutt X í prófkjöri hennar til forsetaframboðs hennar gegn Maduro og hafi heimili þeirra verið notað sem eins konar fundarstaður þegar X heimsótti El Tigre borg. Af þeirri ástæðu hafi heimili kærenda verið skotmark fyrir skemmdarverk og glæpi. Hafi í tvígang verið unnin skemmdarverk á heimili þeirra þar sem m.a. hafi verið kastað steinum í glugga og veggi og krotað á veggi hússins. Í kjölfarið hafi kærendum borist hótanir símleiðis frá ótilgreindum aðilum og þá hafi þau tekið eftir SEBIN liðum sem hafi oft á tíðum fylgst með þeim stutt frá heimili þeirra. Þá hafi faðir M verið handtekinn, frelsissviptur að ósekju og haldið án matar og drykkjar við ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður. M kvaðst hafa starfað sem ríkisstarfsmaður hjá rafmagnsfyrirtæki og greindi frá því að vinnuaðstæður hans hefðu orðið afar hrörlegar eftir að yfirmenn hans hefðu komist að stjórnmálaþátttöku hans. M kvaðst ekki hafa getað formlega sagt upp störfum og hafi því beðið eftir frídögunum sínum til þess að flýja heimaríki.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram gögn sem þau telja sýna fram á stjórnmálaþátttöku sína. Lögðu kærendur m.a. fram vottorð frá stjórnarandstöðuflokknum GENTE í Anzoategui fylki dagsett árið 2023 þar sem fram kemur að M hafi sinnt starfi sem [...]í El Tigre borg. Þá lögðu kærendur fram skjáskot af Instagram reikningi flokksins sem M kveðst hafa haft stjórn yfir. Við nánari skoðun má sjá að reikningurinn hafi [...] fylgjendur en sé lokaður öðrum en þeim sem hafi verið samþykktir af eiganda reikningsins. Þá lögðu kærendur fram ýmsar ódagsettar ljósmyndir, m.a. af fundi stjórnarandstöðuflokksins Vente Venezuela sem kærendur kveða hafa verið haldinn á heimili sínu, ljósmyndir af M taka þátt í kosningum ásamt öðrum flokksmeðlimum ásamt ljósmyndum sem kærendur kveða að á megi sjá foreldra M taka þátt á fundum með stjórnarandstöðuflokknum GENTE. Kærendur lögðu jafnframt fram skriflega samantekt ásamt fylgigögnum um aðstæður þeirra og ástæður flótta frá heimaríki. Í samantektinni kemur m.a. fram að í byrjun árs 2023 hafi kærendur tekið virkan þátt í stuðningi við X. Heimili kærenda hafi verið notað sem samkomustaður stjórnarandstöðuflokksins Vente Venezuela í El Tigre borg þar sem m.a. hafi verið haldnir blaðamannafundir og aðrir fundir. Fram kemur að í kjölfarið hafi kærendur m.a. fengið hótanir sem hafi falið í sér ógnun og þrýsting um að hætta stjórnmálaþátttöku þeirra. Hótanirnar hafi ágerst 10. mars 2023, þegar skrifuð hafi verið ógnandi skilaboð á veggi heimilis kærenda. Fram kemur að jafnframt hafi verið krotað á veggi heimila stuðningsfólks X í öðrum fylkjum og lögðu kærendur fram vefslóðir á fréttaumfjallanir þess efnis. Þá lögðu kærendur fram ýmsar vefslóðir á fréttaumfjallanir um ofbeldi þar sem ríkisstjórnarleiðtogar hvetja til ofbeldis gegn X og meðlimum stjórnarandstöðuflokks hennar. Í júní 2023, hafi verið kastað steinum í heimili kærenda og krotuð orð til stuðnings Maduro á vegg heimilisins. Lögðu kærendur fram ódagsettar ljósmyndir þar sem þau sjást sópa steina fyrir framan meint heimili sitt. Fram kemur að í júní 2023, hafi faðir M verið handtekinn sökum þess að hann hafi verið með stuðningsáróður X á bifreið sinni. Faðir M hafi verið í haldi lögreglu í þrjá daga og lögðu kærendur fram skjal, dags. 11. ágúst 2023, sem þau kveða sýna fram á að þau hafi farið fram á að handtökunni yrði eytt úr kerfum lögreglunnar þar sem hún hafi verið ólögleg. Í samantektinni kemur fram að kærendur finni fyrir miklum ótta vegna þeirra pólitískra ofsókna og hótana sem þau hafi orðið fyrir í heimaríki sínu. Enn fremur kemur fram að M hafi verið þvingaður af yfirmönnum til að starfa við óöruggar og áhættusamar aðstæður en jafnframt hafi hann verið þvingaður til að mæta á viðburði til stuðnings ríkisstjórnarinnar gegn hans vilja, annars yrðu laun hans lækkuð. Þá kemur fram að M hafi einnig fengið hótanir frá yfirmönnum þess efnis að hann hafi ekki mátt gefa neinar upplýsingar um bilanir sem eigi sér stað innan fyrirtækisins, annars yrði hann handtekinn af SEBIN. Fram kemur að árið 2019 hafi 15 starfsmönnum fyrirtækisins verið sagt upp störfum þar sem þeir hafi m.a. upplýst um bilanir. Lögðu kærendur fram vefslóðir á fréttaumfjallanir frá 2019 því til stuðnings. Þá lögðu kærendur fram ódagsettar ljósmyndir af því sem þau kveða vera vinnuaðstæður M. Á ljósmyndunum má m.a. sjá könguló á flísalögðu gólfi ásamt lítilli flugu og blóðdropa á handarbaki. Þá lögðu kærendur fram tvær ódagsettar ljósmyndir af því sem virðist vera vinnuvélar sem M hafi unnið með. Framlagðar ljósmyndir hafa takmarkað sönnunargildi í málinu enda m.a. óljóst hver hafi tekið ljósmyndirnar, hvar þær hafi verið teknar og hvenær. Í samantektinni kemur fram að foreldrar M séu enn virkir stjórnarandstæðingar í heimaríki og skipuleggi m.a. viðburði til stuðnings stjórnarandstöðunni. Þá kemur fram að Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafi m.a. lýst því yfir að mannréttindi séu brotin í Venesúela á hverjum degi. Kærendur óttist því mest handahófskenndar handtökur af pólitískum ástæðum, en það sé ekki óalgengt í Venesúela og lögðu þau fram fréttaumfjallanir því til stuðnings.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur fram viðbótargreinargerð, dags. 3. apríl 2025, ásamt fylgigögnum. Í viðbótargreinargerðinni kemur fram að M hafi nýlega fengið upplýsingar um upphaf sakamáls gegn honum þar sem þrjár stefnur hafi verið gefnar út á hendur honum. Þar sé M kallaður til á skrifstofu CICPC, í samræmi við 170. og 238. gr. venesúelskra sakamálalaga vegna meints landráðs, sbr. 129. og 132. gr. venesúelskra hegningarlaga. Fram kemur að kærendur hafi stefnurnar þrjár í fórum sínum hér á Íslandi í frumriti og séu reiðubúin að leggja þær fram til kærunefndar, sé þess óskað. Samhliða viðbótargreinargerðinni lögðu kærendur fram afrit framangreindra stefna frá CICPC lögreglunni í Venesúela, dagsettar á tímabilinu frá 3. mars 2025 til 7. mars 2025. Þá lögðu kærendur fram afrit handtökuskipunar, dags. 2. apríl 2025, þar sem M er sakaður um föðurlandssvik. Kváðust kærendur ekki hafa í höndum frumrit handtökuskipunarinnar þar sem um nýtt gagn hafi verið að ræða. Með tölvubréfi, dags. 8. apríl 2025, óskaði kærunefnd eftir að kærendur legðu fram til nefndarinnar frumrit framangreindra stefna. Hinn 9. apríl 2025, bárust kærunefnd umbeðin gögn.
Hinn 9. apríl 2025, sendi kærunefnd beiðni til skilríkjarannsóknarstofu flugstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum um að taka til rannsóknar þrjú skjöl sem kærendur kváðu frumrit stefna gefnar út af CICPC lögreglunni. Í skýrslunni, sem barst í tölvubréfi 22. apríl 2025. Megin niðurstaða rannsóknarskýrslunnar var sú að öll þrjú skjölin séu ótraustvekjandi. Í athugasemdum við rannsókn skjalanna kemur m.a. fram að athyglivert sé að ekkert tilvísunar- eða málsnúmer sé að finna á stefnunum þremur. Þá veki það sérstaka athygli að staðarheiti í blautstimpli og merki neðst til hægri í skjölunum þremur sé ekki í samræmi við staðarheiti í haus og meginmáli skjalsins. Samkvæmt texta í hausnum eiga skjölin að stafa frá rannsóknarlögreglunni CICPC í El Tigre í Anzoategui fylki í norðausturhluta Venesúela og er aðilinn sem skjalið varðar boðaður á lögreglustöð í El Tigre. Blautstimpill á skjölunum öllum er hins vegar merktur rannsóknardeild CICPC í Las Acacias í Carabobo fylki í norðurhluta Venesúela, rúmlega 500 kílómetrum vestar en El Tigre. Fram kemur að það rýri mjög traust til skjalanna að haus skjalsins gefi til kynna að það stafi frá einu fylki en blautstimpill við undirritun ætlaðs útgefanda sé merktur öðru fylki. Að auki bendir skilríkjarannsóknarstofa lögreglunnar á að hvergi í texta skjalanna kemur fram að rannsóknardeild í Carabobo fylki hafi verið falið að gefa út stefnu fyrir hönd rannsóknardeildar í El Tigre borg í Anzoategui fylki. Þá veki það athygli að á skjölunum þremur vanti kommu ofan á orðið „Delagación“ í þriðju efstu línu, og það sé þannig ekki í samræmi við sama orð í línunni þar fyrir ofan. Þarna gæti innbyrðis ósamræmis og óvandvirkni sem rýri traust til þess að skjölin stafi frá opinberum aðila. Þá veki það athygli að línubil sé ólíkt milli efnisgreina í megintexta skjalanna en jafnframt sé breidd efnisgreinanna ekki eins. Enn fremur veki það athygli að stefna með dagsetningunni 07.03.2025 beri yfirskriftina „PRIMERA BOLETA DE CITACIÓN“. Þar sem skjalið er eins að allri gerð og hafi sama innihald og hin tvö, annað með orðinu „primera“ í titlinum og dagsetningunni 03.03.2025 og hitt með orðinu „segunda“ í titli og dagsetningunni 05.03.2025. Skjóti það skökku við að skjalið með dagsetningunni 07.03.2025, sé merkt sem fyrsta stefna. Niðurstaða rannsóknarskýrslunnar er sú að þegar litið sé til þeirra fjögurra megin þátta sem skoðaðir séu við skjalarannsóknir af þessu tagi, þ.e. formgerðar skjals, innfærðra atriða, efnisinnihalds og ástands útgáfumála, séu til staðar veikleikar í tveimur þáttanna, þ.e. innfærðum atriðum og efnisinnihaldi. Því séu skjölin metin ótraustvekjandi.
Með tölvubréfi, dags. 22, apríl 2025, sendi kærunefnd skjalarannsóknarskýrsluna til kærenda og gaf þeim færi á að koma fram andmælum eða athugasemdum. Hinn sama dag barst kærunefnd viðbótargagn með tölvubréfi sem þau kveða vera kvittun fyrir sendingu á frumriti á framangreindri handtökuskipun á hendur M. Með tölvubréfi, dags. 25. apríl 2025, bárust kærunefnd athugasemdir ásamt fylgigögnum frá kærendum. Í athugasemdum kærenda kemur m.a. fram að kærendur geri margþættar athugasemdir við skjalarannsóknarskýrslu lögreglunnar og benda á að kærunefnd verði að taka tillit til efnahagslegrar stöðu Venesúela, sem og þeirra innviða og fjármagns sem veitt sé opinberum stofnunum ríkisins. Hér sé um að ræða stjórnvöld sem búi yfir mun minna fjármagni en íslenskar stofnanir, og því sé óeðlilegt að gerðar séu kröfur til opinberra skjala samkvæmt öryggisstöðlum. Í fyrsta lagi gera kærendur athugasemd við athugasemd lögreglu hvað varðar pappír skjalanna. Í skjalarannsóknarskýrslu komi fram að skjölin séu ekki öryggisskjöl, grunnefnið ekki öryggispappír og beri ekki öryggisþætti. Vísa kærendur til þess að í Venesúela skorti opinberar stofnanir oft efni, fjármagn og búnað til að gefa út skjöl eftir ströngum öryggisstöðlum. Sé það því algengt að opinber skjöl séu prentuð á venjulegan pappír, án sýnilegra útfjólublárra ljósmerkja eða flókinna stimpla. Enn fremur vísa kærendur til nokkurra landaupplýsinga sem votta fyrir um að Venesúela skorti upp á öryggisstaðla í opinberum skjölum sínum, t.d. skorti venesúelsk fæðingarvottorð alla öryggiseiginleika. Í öðru lagi gera kærendur athugasemd við athugasemd lögreglu hvað tilvísunar- eða málsnúmer varðar. Vísa kærendur til þess að kærunefnd hafi í fjölda skipta tekið á móti bæði afritum og frumritum af álíka fyrirköllum í málum venesúelskra ríkisborgara sem ekki hafa að geyma máls- eða tilvísunarnúmer. Hafi það hingað til ekki komið í veg fyrir trúverðugleika sambærilegra skjala í meðferðum nefndarinnar. Í þriðja lagi gera kærendur athugasemd við athugasemd lögreglu hvað varðar staðarheiti. Kærendur vísa til þess að lögfræðingur þeirra í Venesúela hafi leitað á skrifstofu CICPC í Anzoategui fylki, í kjölfar þess að skjalarannsóknarskýrslan barst þeim og þau kveða framlagt skjal staðfesta það. Þá lögðu kærendur fram bréf, dags. 23. apríl 2025, sem þau kveða lögfræðing sinn hafa ritað í tilefni af rannsóknarskýrslunni. Fram kemur í bréfinu að í heimsókninni hafi lögfræðingur þeirra notið aðstoðar nafngreinds yfirlögregluþjóns, sem eftir að hafa farið yfir málið, hafi bent m.a. á að staðfest væri að umræddar kvaðningar væru búnar til úr opinbera CICPC kerfinu og samsvari áframhaldandi stjórnsýsluferli. Samt sem áður hafi þær ekki allar verið gefnar út beint frá fulltrúa í El Tigre. Þá bendi hann á að notkun á innsigli CICPC Las Acacias (Carabobo fylki) á einu af skjölunum hafi getað verið vegna innri tilvísunar (s. remisión interna). Þessi framkvæmd hafi þá að gera með dreifstýringu á ferlum, tæknilegar eða efnislegar takmarkanir hjá svæðisskrifstofum. Enn fremur hafi yfirlögregluþjóninn bent á að prent- og sniðvillur gætu oft komið fram í staðbundnum prentuðum skjölum, sérstaklega þegar unnið sé með takmarkað fjármagn. Hins vegar ógildi formvillur ekki innihald skjalsins eða stjórnsýslulegt gildi þess. Í fjórða lagi gera kærendur athugasemd við athugasemd skilríkjarannsóknardeild lögreglu hvað varði kommu er vantar á orðið Delagación í þriðju efstu línu skjalanna og sé því ekki í samræmi við sama orð í línunni fyrir ofan. Benda kærendur á að villur sem þessar séu smávægilegar og nokkuð algengar í opinberum skjölum. Þær ógildi þó ekki efni skjalanna, rétt eins og raunin væri um skjöl sem stöfuðu frá íslenskum stjórnvöldum og vantaði kommu. Að lokum árétta kærendur það sem fram kemur í skjalarannsóknarskýrslu lögreglu um að engin samanburðargögn fyrir skjöl af þessari gerð sem stafa eigi frá El Tigre í Anzoategui í Venesúela sé að finna í þeim gagnagrunnum sem skilríkjarannsóknarstofan hefur aðgang að. Með öðrum orðum hafi skilríkjarannsóknarstofan enga þekkingu á eða gögn um hvers konar skjöl stafa frá því stjórnvaldi sem hér um ræðir. Allan vafa um trúverðugleika skjalanna eigi því að meta kærendum í hag.
Að mati kærunefndar gefa útskýringar kærenda ekki tilefni til þess að víkja frá niðurstöðu skilríkjarannsóknarinnar. Fyrst ber að líta til þess að athugasemdir kærenda eru annars vegar almenns eðlis og hins vegar byggja þær á frásögn þriðja aðila, lögmanns kærenda í Venesúela, um að hann hafi fengið skýringar og staðfestingu á gildi þeirra frá fulltrúa CICPC. Þá hafa kærendur engar skýringar veitt á nokkrum meginatriðum sem koma fram í rannsókn skilríkjarannsóknardeildarinnar, m.a. að síðast útgefna skjalið sé merkt sem fyrsta stefna og þá eru útskýringar kæranda á innra misræmi í skjölunum og mismunandi embættum CICPC annars vegar í haus og meginmáli og hins vegar í blautstimpli og merki á skjölunum ekki trúverðugar. Þá skýtur það skökku við hversu seint stefnurnar hafi verið gefnar út, þ.e. einu og hálfu ári eftir að kærendur yfirgáfu landið. Af framangreindu virtu teljast skjölin ótrúverðug og eru ekki til þess fallin að styðja við málatilbúnað kærenda um að M hafi verið boðaður í skýrslutöku hjá CICPC vegna gruns um landráð. Hvað varðar handtökuskipun sem kærendur lögðu fram þá er um afrit að ræða. Af efni skjalsins má þó ráða að það eigi að varða sömu atviku og vísað er til í stefnunum sem fjallað hefur verið um. Með vísan til þess að um afrit er að ræða og þess að fyrrgreindar stefnur hafa verið metnar ótrúverðugar verður að meta umrædda handtökuskipun einnig ótrúverðuga.
Með vísan til framlagðra gagna og frásagna kærenda er ekki ástæða til að draga í efa að kærendur hafi verið stjórnarandstæðingar í heimaríki, verið meðlimir stjórnarandstöðuflokksins GENTEfrá því í ágúst 2023 og skipulagt eða tekið þátt í starfi eða atburðum á vegum stjórnarandstöðuflokksins Vente Venezuela og komið að skipulagningu á heimsókn X til heimaborgar þeirra. Þá er ekki ástæða til að draga í efa að fundir á vegum Vente Venezuela hafi verið haldnir á heimili foreldra M og að M hafi tekið þátt í ungliðahreyfingu stjórnarandstöðuflokksins GENTE og að þau og fjölskylda M hafi orðið fyrir einhverju áreiti að hálfu ótilgreindra einstaklinga sem hliðhollir séu stjórnvöldum. Enn fremur er ekki ástæða til að draga í efa að M hafi starfað sem ríkisstarfsmaður hjá rafmagnsfyrirtækinu [...] frá árinu 2015. En í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað M áreiti yfirmanna sinna hafa hafist eftir að hann hafi gerst skráður meðlimur í stjórnarandstöðuflokknum GENTE í ágúst 2023. M kvaðst þó hafa tekið þátt í viðburðum til stuðnings stjórnarandstöðunni löngu fyrir þann tíma.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað hafa öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðja ríkisstjórnina ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Þá hafi ríkisstjórn Maduro treyst á hersveitir, leyniþjónustu og Colevtívos til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til að mótmæla. Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Samkvæmt heimildum um Venesúela, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir.
Þrátt fyrir að kærendur hafi tekið þátt í og skipulagt viðburði á vegum stjórnarandstöðuflokka, verið meðlimir stjórnarandstöðuflokksins GENTE og tekið þátt í unghliðahreyfingu flokksins þá verður af gögnum málsins ekki séð að þau hafi gegnt áberandi hlutverki innan stjórnarandstöðunnar eða séu útsettari en aðrir sem séu mótfallnir stjórnvöldum fyrir árásum eða hótunum. Af frásögn kærenda má ráða að það áreiti sem þau hafi orðið fyrir hafi að mestu átt sér stað á tímabilinu frá mars 2023 til júní 2023, eða um fjórum mánuðum áður en þau yfirgáfu heimaríki sitt í lok október 2023. Kærendur greindu frá þremur atvikum um áreiti sem hafi átt sér stað á framangreindu tímabili. Tvö þeirra atvika hafi gerst í mars og júní 2023 og hafi beinst að heimili foreldra M og kærenda. Þriðja atvikið kvað M hafa verið þegar K hafi verið elt af SEBIN liðum á leið heim úr vinnu. K kvaðst aldrei hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi eða öðru áreiti á leið sinni heim úr vinnu en kvaðst þó oft hafa fundist eins og SEBIN liðar hafi fylgst með sér. Að framangreindu undanskildu kváðu kærendur sér hafa borist hótanir símleiðis frá ótilgreindum aðilum. Kærendur kváðust engin gögn geta lagt fram því til stuðnings þar sem í flestum tilvikum hafi verið að ræða símtöl en í tvö skipti hafi M verið send smáskilaboð, en hann hafi þegar eytt þeim úr símtæki sínu. Aðspurður í viðtali hjá Útlendingastofnun hvort foreldrar hans hefðu fengið einhverjar hótanir eða orðið fyrir öðru áreiti eftir að kærendur yfirgáfu heimaríki kvað M foreldrum sínum hafa borist nokkur símtöl frá ótilgreindum aðilum en kvað foreldra sína hafa dregið úr þátttöku sinni í skipulagningu viðburða fyrir flokkinn sökum ótta. Aðspurður í viðtali hjá Útlendingastofnun hvers vegna þau hafi ekki flúið fyrr, kvaðst M hafa viljað taka þátt í skipulagningu prófkjörs sem farið hafi fram 23. október 2023. Engin frekari atvik hafi átt sér stað eftir júlí 2023 að því undanskildu að M hafi orðið fyrir einelti í vinnu sinni hjá nafngreindu ríkisfyrirtæki eftir að hann hafi gerst aðili að stjórnmálaflokknum GENTE í ágúst 2023. Af frásögn M verður ekki annað ráðið en að þrátt fyrir umrætt einelti hafi hann haldið áfram að vinna hjá fyrirtækinu. Með vísan til framangreinds verður ekki annað séð en að búseta kærenda í landinu hafi að öðru leyti verið án vandkvæða. Þá hafa kærendur ekki sýnt fram á að aðilarnir að baki framangreindum atvikum hafi verið á vegum stjórnvalda eða í öðrum tengslum við stjórnvöld. Samkvæmt landaheimildum hafi venesúelsk stjórnvöld beint sjónum sínum að háttsettu fólki úr Vente Venezuela og fangelsað, meðal annars í því skyni að hefta ferðafrelsi þeirra. Í gögnum málsins liggja fyrir vegabréf kærenda útgefin af venesúelskum stjórnvöldum 20. apríl 2022 og 23. júní 2023 og samkvæmt útstimplum frá Simon Bolivar flugvellinum 27. október 2023 hafi þau farið án vandkvæða úr landi. Að mati kærunefndar gefur framangreint ekki til kynna að kærendur séu eftirlýst eða undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum í heimaríki sínu. Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á að þau eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sinna, sbr. e- lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur ekki hafa lagt fram kærur í kjölfar þess áreitis sem þau hafi orðið fyrir. Kváðu kærendur lögregluna í heimaríki sínu ekki aðhafast neitt í slíkum málum. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til framangreinds og þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Geta því kærendur leitað aðstoðar stjórnvalda telji þau ástæðu til.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Varakröfu sinni til stuðnings vísa kærendur til þeirra málsástæðna sem raktar hafa verið að framan í aðalkröfu. Einkum vísa kærendur til aukinnar hættu M á ómannúðlegri og vanvirðandi refsingu snúi hann aftur til heimaríkis.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka. Við það mat hefur kærunefnd sérstaklega litið til málsástæðna kærenda um stjórnmálaþátttöku þeirra.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í El Tigre borg í Anzoategui fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er fylkið í norðausturhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur vera við góða líkamlega heilsu en glímdu bæði við andlega erfiðleika í kjölfar þess sem þau hafi orðið fyrir í heimaríki. M greindi frá því að hafa í eitt skiptið leitað heilbrigðisaðstoðar í heimaríki vegna hás blóðþrýstings í kjölfar mótmæla sem hann hafi tekið þátt í. Kærendur kváðust ekki taka inn nein lyf að staðaldri. Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærendur greindu frá því að hafa búið endurgjaldslaust í stóru einbýlishúsi í eigu foreldra M. M hafi verið ríkisstarfsmaður hjá rafmagnsfyrirtæki og K hafi bæði starfað í heilsulind og rekið eigin vefverslun. Kváðust kærendur alltaf hafa átt fyrir mat og annarri nauðsynjavöru. Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærendur séu heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 29. október 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun.
Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtölum hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðu ósanngjarnt að brottvísa þeim og ákvarða þeim endurkomubann á Schengen-svæðið þar sem þau hafi búið við hræðilegar aðstæður í heimaríki og leiti þar af leiðandi að öryggi hér á landi.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Þorsteinn Gunnarsson