30 apríl 2025
/
Mál nr. 61/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 61/2025
Miðvikudaginn 30. apríl 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 28. janúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. desember 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 8. febrúar 2024 og var umsóknin samþykkt 13. mars 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar 13. desember 2024, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. janúar 2025. Með bréfi, dags. 4. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 21. febrúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. febrúar 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hann hafi fengið synjun frá Vinnumálastofnun og óski endurskoðunar á þeirri ákvörðun. Þegar hann hafi verið boðaður á námskeið hafi hann spurt hvort mögulegt væri að taka námskeiðið rafrænt þar sem honum hafi verið sagt að þeir sem byggju úti á landi gætu það en kærandi hafi fengið þau svör að það væri ekki hægt.
Kærandi hafi verið að vinna í að flytja frá höfuðborgarsvæðinu og hafi ekki haft aðgang að bíl. Því hafi hann ekki komist á námskeiðið. Nú sé kærandi búinn að láta breyta lögheimili sínu í Þjóðskrá en það sé ekki enn komið í gegn. Hann óski eftir endurskoðun á þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að hann þurfi að vinna í 24 mánuði til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum á ný.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 8. febrúar 2024. Með erindi, dags. 13. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans um greiðslu atvinnuleysistrygginga hefði verið samþykkt og bótaréttur hans ákveðinn 100%.
Með tilkynningu, dags. 9. september 2024, hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi ekki mætt á fundinn og ekki boðað forföll. Með ákvörðun, dags. 9. október, hafi kæranda verið gert að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
Með tilkynningu, dags. 14. október 2024, hafi kærandi verið boðaður á starfsleitarnámskeið. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll á námskeiðið. Honum hafi í kjölfarið verið gert að sæta biðtíma í þrjá mánuði eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga, sbr. ákvörðun stofnunarinnar, dags. 11. nóvember 2024.
Með erindi 11. nóvember 2024 hafi kæranda verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma sinn frá stofnuninni, klukkan 14:32, þar sem hann hafi verið boðaður á starfsleitarnámskeið. Samkvæmt boðuninni hafi námskeiðið verið haldið dagana 13., 14., 18., 20. og 21. nóvember 2024, klukkan 13:00 í Borgartúni 20, Reykjavík, af hálfu Framvegis símenntunarmiðstöðvar. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll hafi borið að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi aldrei mætt á boðað námskeið og ekki tilkynnt forföll. Umrædd boðun hafi verið send þann 11. nóvember 2024 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 11. nóvember 2024, klukkan 14:32.
Þann 9. desember 2024 hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á boðað námskeið. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, auk viðurlagaákvæða XI. kafla laganna. Þann 12. desember 2024 hafi borist skriflegar skýringar af hálfu kæranda á ástæðum fjarveru hans á boðað námskeiðs. Í skýringunum hafi kærandi borið við að hann hefði ekki getað mætt á boðað námskeið þar sem hann hafi verið upptekinn við að flytja frá höfuðborgarsvæðinu á þeim tíma sem námskeiðið hafi farið fram. Kærandi hafi óskað eftir því að fá að taka svipað námskeið með rafrænum hætti.
Með erindi, dags. 13. desember 2024, hafi kærandi verið upplýstur um að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar þar sem skýringar hans á fjarveru í boðað viðtal hefðu ekki verið metnar gildar í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistrygginga.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 28. janúar 2025. Þær skýringar sem kærandi hafi áður veitt stofnunni á fjarveru sinni á boðað vinnumarkaðsúrræði samhliða kæru séu efnislega þær sömu og legið hafi fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi ekki mætt á boðað námskeið. Samkvæmt a-lið 13. gr. og [h-lið] 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist m.a. að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eðaaðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar segi svo:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 2. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar segi jafnframt:
„Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á viðurlagatímanum skv. 1. mgr. Hafni hann aftur að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum á þeim tíma getur komið til ítrekunaráhrifa skv. 61. gr.“
Sá sem hafi sætt viðurlögum skv. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar á sama tímabili skv. 29. gr. laganna skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VIII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.
Í 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar segi:
„Endurtaki atvik sig sem lýst er í 1. málsl. 1. mgr. á sama tímabili skv. 29. gr. skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Kærandi hafi, á skömmum tíma, ekki mætt á þá fundi og námskeið sem Vinnumálastofnun hafi boðað hann til. Síðasta tilfellið hafi verið þegar kærandi hafi ekki mætt á boðað námskeið sem hafi farið fram á tímabilinu 16. til 22. október 2024 í samtals í fimm skipti. Fyrir liggi að kæranda hafi verið send boðun í tölvupósti og í uppgefið símanúmer þann 11. nóvember 2024. Þá liggi fyrir að kærandi hafi ekki boðað forföll. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar segi að hann hafi ekki getað mætt í boðað viðtal sökum þess að hann hafi verið upptekin við að flytja á þeim tíma sem námskeið hafi farið fram.
Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að mæta ekki á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar hafi kærandi brugðist skyldum sínum skv. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, enda hafi hann ekki tilkynnt um forföll þegar hann hafi verið boðaður til fundar hjá stofnuninni.
Þann 9. október 2024 hafi kærandi sætt niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði þar sem hann hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði og þann 11. nóvember 2024 hafi hann sætt niðurfellingu bótaréttar í þrjá mánuði vegna fjarveru á boðað vinnumarkaðsúrræði. Því hafi verið um að ræða niðurfellingu bótaréttar í þriðja sinn, sbr. 4. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt ákvæðinu skuli sá sem þurfi að sæta biðtíma eða viðurlögum í þriðja sinn ekki eiga rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr. laganna. Í samræmi við framangreint geti kærandi ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrr en hann hafi starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur.
Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta niðurfellingu bótaréttar á grundvelli 1. mgr. 58., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Kærandi var þann 11. nóvember 2024 boðaður á námskeið sem fara átti fram dagana 13., 14., 18., 20. og 21. nóvember 2024, klukkan 13:00 í Borgartúni 20, Reykjavík, á vegum Framvegis símenntunarstöðvar. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og í farsíma. Kærandi hvorki mætti á námskeiðið né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki getað mætt á námskeiðið þar sem hann hafi verið upptekinn við að flytja frá höfuðborgarsvæðinu og ekki haft bíl til umráða.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á sannanlega boðað vinnumarkaðsúrræði.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Þá segir í 4. mgr. 61. gr. að ef atvik sem lýst sé í 1. málsl. 1. mgr. endurtaki sig á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.
Samkvæmt 29. gr. laga nr. 54/2006 getur sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir.
Í 31. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Samkvæmt gögnum málsins hófst bótatímabil kæranda í febrúar 2024. Kærandi sætti niðurfellingu bótaréttar á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006 þann 9. október 2024 og aftur þann 11. nóvember 2024. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kemur með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. desember 2024, til ítrekunaráhrifa samkvæmt 4. mgr. 61. gr. laganna og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysibóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. desember 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir