13 maí 2025

/

Efling norræns varnarsamstarfs

{image.Description}
Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra Danmerkur, og Tore Onshuus Sandvik, varnarmálaráðherra Noregs, undirrita uppfært samkomulag um norrænt varnarsamstarf.

Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna undirrituðu á fundi sínum í Rovaniemi í Finnlandi 6.-7. maí sl. uppfært stofnsamkomulag norræna varnarsamstarfsins (NORDEFCO). 

Uppfærslan endurspeglar breytt umfang norræns varnarsamstarfs og breyttar áherslur, þ.e. að allt norrænt varnarsamstarf styrki fælingarmátt og sameiginlegar varnir Atlantshafsbandalagsins, og efli getu Norðurlandanna til að vinna saman að vörnum á öllum sviðum.

Þá var norrænt varnarsamstarf það sem af er ári, varnartengdur stuðningur við Úkraínu og málefni Atlantshafsbandalagsins til umræðu á fundinum.