14 maí 2025

/

Úrskurður nr. 403/2025


Hinn 14. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 403/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24090080.

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. september 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 28. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun sem ferðamaður til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 14 daga dvöl frá 22. september til 5. október 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bandaríkjunum. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. september 2024. Hinn 12. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kvaðst kærandi hafa notið liðsinnis ferðaskrifstofu við bókun ferðarinnar til Íslands og upphaflega lagt fram bókanir samkvæmt þeirra tillögu. Kæranda hafi síðar boðist betri bókunarkostur sem útskýri hvers vegna upphafleg hótelbókun hafi verið afbókuð. Kærandi kvaðst vera með varanlega búsetu í Bandaríkjunum og vilja heimsækja Ísland ásamt eiginkonu sinni og vinum.

Kærandi lagði fram ný gögn á kærustigi, þ.á m. nýjar hótelbókanir.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun skulu m.a. framvísa skjölum er varða gistingu eða sönnun á því að þeir hafi nægt fé til að greiða fyrir gistingu, sbr. b-lið 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Til að kanna hvort skilyrðum sem talin eru upp m.a. í 1. mgr. 14. gr. er fullnægt, er yfirvöldum sem hafa umsókn um vegabréfsáritun til meðferðar heimilt að óska eftir gögnum sem talin eru upp í skrá í viðauka 2, sem eru ekki tæmandi talin. Yfirvaldinu er jafnframt heimilt að óska eftir öðrum gögnum ef þurfa þykir.

Í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæðu þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar og rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að hótelbókun hafi verið afbókuð og kærandi hafi verið óupplýstur um fyrirhugaða ferð. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Samkvæmt gögnum málsins var símaviðtal tekið við kæranda 5. september 2024 þar sem ekki hafi verið hægt að staðfesta hótelbókun. Í dagbókarfærslu fulltrúa utanríkisþjónustunnar kemur fram að hótelbókun hafi verið afbókuð og að hótelbókunin samræmdist ekki innistæðu kæranda á bankareikningi. Kærandi hafi hins vegar staðfest hótelbókunina í viðtalinu. Í viðtalinu hafi kærandi greint frá tilhögun ferðarinnar en verið óupplýstur um Ísland og hafi gert ráð fyrir að sjá snjóhús. Í endurriti símaviðtalsins kemur fram að kærandi hafi ekki getað svarað því hvað hann myndi sjá á ferð sinni um Gullna hringinn. Greindi kærandi frá því að ferðaþjónustufulltrúi hafi bókað hótelgistingu. Þær skýringar sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumáls þessa eru ekki til þess fallnar að draga úr vafa um ferðaáætlanir kæranda. Fyrir liggur að kærandi var óupplýstur um Ísland og hvað hann hygðist gera hér á landi. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali.

Að framangreindu virtu er rökstudd ástæða til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar , sbr. ii. tölul. a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 1. málsl. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Hefur þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður