14 maí 2025
/
Úrskurður nr. 407/2025
Hinn 14. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 407/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090147
Kæra […]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 20. september 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Suður-Afríku (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. september 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 9. september 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun sem ferðamaður til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sjö daga dvöl frá 1. til 7. október 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. september 2024. Hinn 20. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í kæru koma fram athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi kveðst, samhliða umsókn um vegabréfsáritun, hafa lagt inn bankayfirlit fyrir þrjá mánuði og að hann hafi greitt umsóknargjöld með kreditkorti. Kærandi greinir frá því að bankayfirlit hans sýni að hann fái vikulega útborgað fyrir störf sín og hann hafi nægilegt fé sér til uppihalds. Kærandi vilji ferðast til Íslands sem ferðamaður og skoða þá staði sem eru á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna og norðurljósin. Kærandi kveðst hafa verið á leið til vinnu þegar hringt hafi verið í hann vegna viðtals og hann nefnt norðurljósin sem aðalástæðu ferðarinnar.
Kærandi kveðst ekki ætla sér að verða eftir á Íslandi eða öðru Evrópuríki, hann dvelji löglega í Bretlandi þar sem hann hafi atvinnu auk þess sem að fjölskylda hans búi þar með honum.
Kærandi lagði fram nýja ferðaáætlun við meðferð málsins á kærustigi.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Suður Afríku þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæðu þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 3, 10 og 11 þ.e. að ekki hafi verið færðar sönnur á nægu framfærslufé, hvorki meðan á fyrirhugaðri dvöl stæði né til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands eða til gegnumumferðar um þriðja land sem víst þætti að kæranda yrði hleypt inn í; upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að bankayfirlit sé ekki fullnægjandi, ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókanir, umsækjandi hafi ekki getað útskýrt í viðtali af hverju hann hafi ekki bókað flug sitt, umsækjandi hafi verið óupplýstur um ferð sína og ekki getað lýst ferðaáætlun sinni. Rökstuddur vafi hafi verið á því að umsækjandi ætli sér að ferðast til Íslands. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kæranda 11. september 2024 af því tilefni að kærandi sé í D áhættuflokki umsækjenda. Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærandi hyggist ferðast einn til Íslands en hann hafi áður ferðast til og frá Suður-Afríku, Rússlandi, Tyrklandi, Póllandi og Dubai. Kærandi hafi greint frá því að hann vilji sjá norðurljósin hér á landi en ekki greint frá neinum sérstökum stöðum eða afþreyingu. Kærandi hafi útbúið ferðaáætlun sína sjálfur en ekki greitt fyrir flug sitt til Íslands. Í dagbókafærslu Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki getað útskýrt tilgang ferðar sinnar til Íslands, hvað hann ætlaði að gera, hvernig hann áætlaði að ferðast á milli staða og hvaða staði hann ætlaði að sjá. Að auki hafi framlögð flugbókun skort bókunarnúmer og hafi kærandi viðurkennt í viðtali að hann hafi enn ekki bókað flug og að bankareikningar hans hefðu neikvæða innistæðu.
Ferðaáætlun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 1. og 2. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í London, þar sem kærandi lagði umsókn sína fram. Í kæru kemur fram að kærandi hafi verið á leið til vinnu þegar viðtalið átti sér stað og því aðeins minnst á norðurljósin þar sem þau væru meginástæða ferðarinnar. Einnig eru meðal nauðsynlegra fylgigagna gögn sem tengjast ferðamáta, gistingu og framfærslu til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5., 6. og 9. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum. Þær skýringar sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumáls þessa eru ekki til þess fallnar að draga úr vafa um ferðaáætlanir kæranda. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi óskað eftir því við utanríkisþjónustuna að viðtalinu við hann yrði frestað enda stæði ekki vel á hjá honum að tala í síma. Verður ekki bætt úr framangreindum annmarka með framlagningu nýrrar ferðaáætlunar á kærustigi. Aukinheldur hefur kærandi ekki lagt fram gögn á kærustigi til að bæta úr annmörkum er varða flugbókun og fjárhag.
Að framangreindu virtu eru veittar upplýsingarnar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar ekki áreiðanlegar. Þá er rökstudd ástæða til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar auk þess sem að kærandi hefur ekki fært sönnur á nægt framfærslufé vegna fyrirhugaðrar ferðar, sbr. ii. tölul. og iv. tölul. a-liðar, og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 1. málsl. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Hefur þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. c og d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður