26 maí 2025
/
Úrskurður nr. 438/2025
Hinn 26. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 438/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090183
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 26. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Víetnam (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. september 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 6. september 2024, fyrir átta daga dvöl frá 29. október til 5. nóvember 2024 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bandaríkjunum. Fyrir kærunefnd lagði kærandi lagði fram gagn sem lagt var fram við meðferð málsins hjá sendiráði Íslands í Bandaríkjunum og Útlendingastofnun; tilkynningu um útgáfu vegabréfsáritunar af tegundinni H1B.
3 Málsástæður og rök kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hún vilji leggja fram frekari sönnun fyrir lögmætri dvöl sinni í Bandaríkjunum. Í umsóknarlista fyrir ferðamannavegabréfsáritun sé tekið fram að hægt sé að leggja fram frumrit svonefnds EAD korts sem gildi í að minnsta kosti þrjá mánuði eftir fyrirhugaða brottför frá Schengen-svæðinu. Kærandi sé ekki handhafi slíks korts heldur hafi hún svokallaða H1B áritun sem heimili henni að starfa fyrir tiltekinn vinnuveitanda. Samkvæmt bandarísku ríkisborgararéttar- og útlendingastofnuninni (e. U.S. Citizenship and Immigration Services) þurfi þeir sem hafi slíka stöðu ekki að sækja um EAD kort. Hún geti því ekki haft EAD kort á meðan hún hafi H1B stöðu þar sem það geti ógilt H1B áritunina. Kærandi hafi bent á að framlagt gagn; tilkynning um útgáfu vegabréfsáritunar af tegundinni H1B, komi í stað EAD korts og gefi til kynna lögmæta dvöl hennar í Bandaríkjunum frá 11. ágúst 2023 til 10. október 2026.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Víetnam þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 2, þ.e. að kærandi hefði ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að kærandi hafi ekki lagt fram bandarískt vegabréfsáritunarkort sem gildir í að minnsta kosti þrjá mánuði fram yfir síðasta dag fyrirhugaðrar dvalar á Íslandi/Schengen-svæðinu eins og krafist sé, en kærandi hafi lagt fram útrunnið EAD-kort. Með vísan til framkvæmdarákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2013/1725 frá 26. mars 2013 um gögn sem fylgja þurfa umsóknum um vegabréfsáritun umsækjenda í Jórdaníu, Kósovó og Bandaríkjunum, er framangreinds krafist til að staðfesta lögmæta dvöl umsækjanda í Bandaríkjunum og endurkomu. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Heimilt er að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef m.a. skilyrðum í b-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga er fullnægt, þ.e. að útlendingur hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildi a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar. Í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga segir m.a. að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir því að veita þær og að heimilt sé að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er kveðið á um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Við meðferð umsóknar um samræmda vegabréfsáritun skal samkvæmt 1. mgr. kanna hvort umsækjandi uppfylli skilyrðin fyrir komu, sem sett eru fram í a-, c-, d- og e- lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri, með sérstakri áherslu á mat á því hvort hætta sé á að umsækjandinn muni gerast ólöglegur innflytjandi eða hvort hann teljist ógn við öryggi aðildarríkjanna og hvort hætta sé á að hann dvelji lengur á yfirráðasvæði aðildarríkjanna en honum er heimilt. Þegar kannað er hvort umsækjandi uppfyllir komuskilyrði skal sendiskrifstofan eða miðlæg yfirvöld m.a. sannprófa rök umsækjanda fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og að hann hafi nægt fé sér til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands síns eða til gegnumferðar um þriðja ríki, sem víst þykir að honum verði hleypt inn í, eða að hann sé í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. b-lið 3. mgr. 21. gr.
Kærandi er ríkisborgari Víetnam og fyrir liggur gilt vegabréf hennar. Umsókn hennar um vegabréfsáritun var lögð fram í Bandaríkjunum, hvar hún hefur ekki búsetuheimild, einungis vegabréfsáritun af tegundinni H1B. Þar sem kærandi hugðist ekki snúa aftur til heimaríkis að dvöl á grundvelli vegabréfsáritunar til Íslands lokinni, og með því að leggja umsókn um vegabréfsáritun fram í sendiráði Íslands í Washington D.C., bar henni að uppfylla skilyrði um framlagningu heimildar til búsetu í Bandaríkjunum í a.m.k. þrjá mánuði umfram áætlaðan komudag til baka frá Schengen-svæðinu, sbr. skilyrði ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2013/1725 frá 26. mars 2013, um lista fylgiskjala sem leggja skal fram með umsókn um vegabréfsáritun, m.a. í Bandaríkjunum. Koma leiðbeiningar um framangreindar heimildir fram í 10. og 12. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands Washington D.C. Sú heimild sem kærandi lagði fram við meðferð umsóknar hennar um vegabréfsáritun bæði hjá utanríkisþjónustunni og aftur á kærustigi er ekki meðal þeirra dvalarheimilda sem falla undir gildissvið ákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2013/1725.
Að framangreindu virtu hafa ekki verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hefur kærandi ekki sýnt fram á heimild til þess að ferðast til baka til annars ríkis, sbr. b-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður