26 maí 2025

/

Úrskurður nr. 440/2025


Hinn 26. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 440/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24100034

Kæra […]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 3. október 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Srí Lanka (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. september 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 18. september 2024, fyrir fimm daga dvöl frá 4 til 10. október 2024 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi.

Meðfylgjandi kæru lagði kærandi fram afrit af nýjum hótelbókunum í Reykjavík.

3 Málsástæður og rök kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hún vilji ferðast til Íslands vegna fimmtugsafmælis síns, systur sinnar og tveggja vina. Kærandi greinir frá því að hún hafi dvalarleyfi í Bretlandi og hafi búið þar sl. 13 ár. Kærandi lýsir yfir vonbrigðum með synjunina. Hún hafi áður hlotið vegabréfsáritanir inn á Schengen-svæðið, nánar tiltekið til Frakklands, Svartfjallalands, Portúgal, Ítalíu, Spánar og Tékklands. Kærandi greinir frá því að ferðaáætlun hennar hafi verið gerð af ferðaþjónustufyrirtæki, hún hafi bókað hótelgistingu og að afrit af staðfestingum af þeim bókunum hafi fylgt umsókn hennar. Kærandi geti ekki staðfest bókanir fyrir hótelgistingu fyrr en umsókn hennar um vegabréfsáritun hafi verið samþykkt. Hún muni ekki sækja um að nýju þar sem hún hafi nú þegar greitt fyrir umsóknina. Kærandi hafi minnst á hvaða ferðamannastaði hún ætli sér að heimsækja þegar tekið var viðtal við hana af hálfu utanríkisþjónustunnar og því skilji hún ekki af hverju umsókn hennar var synjað.

4 Vegabréfsáritun

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Srí Lanka þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

4.2 Niðurstaða

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10, 11 og 12, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar; rökstudd ástæða var til að draga í efa yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun væru áreiðanlegar; og rökstudd ástæða var til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir þar sem fram kemur að ekki haft verið hægt að staðfesta flugbókanir og kærandi hafi ekki lagt fram flugferðaáætlun með gildum bókunarnúmerum. Því væri rökstudd ástæða til að draga í efa að flugbókanir sem lagðar voru fram væru ósviknar. Í viðtali var kærandi óupplýst um áætlaða ferð hennar til Íslands og gaf óáreiðanleg svör. Kærandi hugðist dvelja alla ferðina í Vestmannaeyjum en minntist ekki á eyjarnar í viðtalinu. Það væri mikill vafi á því að kærandi ætli sér að ferðast til Íslands. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kæranda 23. september 2024 af því tilefni að grunur var um áritanasnap (visa-shopping). Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærandi sé að ferðast ein til Íslands og að hún hafi áður ferðast til Frakklands, Portúgal og Króatíu. Kærandi muni skoða Geysi, gullna hringinn og Bláa lónið. Kærandi greindi frá því að hún vilji ferðast til Íslands í tilefni 50 ára afmælis síns og að hún hafi aldrei ferðast hingað áður. Fram kemur að kærandi eigi enga ættingja eða vini innan Schengen-svæðisins og að hún hyggist ferðast með bíl eða rútu á ferðalagi sínu. Í dagbókarfærslu Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi verið óupplýst um áætlaða ferð til Íslands og gefið óáreiðanleg svör. Kærandi hugðist dvelja alla ferðina í Vestmannaeyjum en minntist ekki á eyjarnar í viðtalinu. Einnig kemur fram að þegar kærandi hafi verið spurð um ferðamáta á meðan dvölinni stæði hafi hún verið óviss og ekki minnst á ferjuna sem hún þyrfti að taka daglega til þess að halda sig við ferðaáætlun. Í kæru hafi kærandi einnig breytt frásögn sinni frá því sem fram kom í viðtalinu og greint frá því að hún væri að ferðast með öðru fólki til Íslands.

Ferðaáætlun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5. og 6. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Bretlandi, þar sem kærandi lagði sína umsókn fram. Þær skýringar sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumáls þessa eru ekki til þess fallnar að draga úr vafa um ferðaáætlanir kæranda og hnekkja mati Útlendingastofnunar um frammistöðu kæranda í viðtali. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Þessu til viðbótar hafi ekki verið hægt að staðfesta flugbókun kæranda en úr þeim annmarka hefur ekki verið bætt á kærustigi.

Að framangreindu virtu eru upplýsingarnar sem veittar hafa verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar ekki áreiðanlegar, og rökstudd ástæða til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar, sbr. ii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hefur þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-liðar 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun því staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður