04 júní 2025

/

Þorgerður Kristín Þráinsdóttir skipuð forstjóri ÁTVR

{image.Description}
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir. Mynd/Arnór Trausti

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur í embætti forstjóra ÁTVR.

Þorgerður var valin úr hópi umsækjenda um stöðuna, sem auglýst var í apríl síðastliðnum. Hún býr yfir víðtækri reynslu af stjórnunarstörfum á smásölumarkaði og hefur frá árinu 2014 gegnt starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar. Áður starfaði hún í yfir áratug hjá Lyfju hf., sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs og mannauðsstjóri.

Þorgerður er með B.A. og Cand.Psych. gráðu í sálfræði, með áherslu á vinnu- og skipulagssálfræði. Þá hefur hún einnig lokið PMD stjórnendanámi auk fjölmargra námskeiða tengdum stjórnun og stefnumótun.

Þorgerður er skipuð til fimm ára frá 1. september.