05 júní 2025

/

Mál nr. 229/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 229/2025

Fimmtudaginn 5. júní 2025

A

gegn

Hafnarfjarðarbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 2. apríl 2025, um að synja umsókn hans um fjárhagsaðstoð.

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 18. febrúar 2025, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 28. febrúar 2025. Umsókn kæranda var synjað og staðfesti fjölskylduráð Hafnarfjarðar þá niðurstöðu með ákvörðun, dags. 2. apríl 2025.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. apríl 2025. Með bréfi, dags. 9. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Hafnarfjarðarbæjar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Hafnarfjarðarbæjar barst 2. maí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. maí 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa sótt um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ fyrir febrúar 2025. Þann 26. febrúar 2025 hafi kærandi byrjað í nýrri vinnu. Fyrsta vikan hafi verið þjálfunartímabil þar sem kærandi hafi þurft að læra og skilja vinnuferla. Hann hafi staðið sig vel í þjálfuninni, sýnt getu sína og hæfni og hafi fengið starfið. Á þessu tímabili hafi kærandi þó ekki fengið neina fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu.

 

III. Sjónarmið Hafnarfjarðarbæjar

Í greinargerð Hafnarfjarðarbæjar kemur fram að kærandi sé með B ríkisfang en fæddur í C. Samkvæmt skráningu í þjóðskrá sé hann skráður með komudagsetninguna 2. desember 2024. Hann hafi fengið fjárhagsaðstoð fyrir desember 2024 og janúar 2025 hjá Hafnarfjarðarbæ. Hann hafi komið í viðtal til ráðgjafa þann 29. janúar 2025.

Í 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarkaupstað komi fram að vakni rökstuddur grunur um að umsækjandi dvelji ekki á Íslandi sé heimilt að gera kröfu um að umsækjandi sanni deili á sér með því að mæta í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar og sýni gild persónuskilríki með mynd. Bregðist umsækjandi ekki við kröfu um að sanna á sér deili sé heimilt að stöðva afgreiðslu umsóknar og/eða greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu.

Kæranda hafi verið sendur tölvupóstur þann 27. febrúar 2025 og verið beðinn um að koma og gera grein fyrir sér í þjónustuveri þann 28. febrúar 2025. Hann hafi þá sagst vera kominn með vinnu og hafi byrjað þann 26. febrúar 2025 og hann kæmist því ekki. Hann hafi verið beðinn um að skila staðfestingu á hvenær vinna hafi hafist, svo sem með ráðningarsamningi, og þá hafi hann sent mynd af vinnuskírteini. Kærandi hafi ekki lagt fram önnur gögn til að staðfesta atvinnu eða byrjunardagsetningu. Eftirfarandi hafi verið bókað á afgreiðslufundi ráðgjafarteymis þann 4. mars 2025 varðandi beiðni hans um fjárhagsaðstoð fyrir febrúarmánuð 2025:

„Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ er hverjum manni skylt að framfæra sjálfan sig og þeim sem sækir um aðstoð skv. reglunum skylt að leita sér atvinnu hér á landi og taka þerri atvinnu sem býðst nema aðeins að veikindi, örorka, hár aldur eða aðrar gildar ástæður hamli því. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. skal fjárhagsaðstoð alla jafna veitt sem tilboð um tímabundið launað starf eðа virkniúrræði samhliða fjárstyrk. Umsækjandi hefur ekki sinnt viðtalsboðum né skilað inn upplýsingum til að sýna fram á að hann geti tekið atvinnu eða virkni hér á landi sbr. 8. gr. Með vísan í framangreint er fjárhagsaðstoð fyrir febrúar synjað.“

Fjölskylduráð Hafnarfjarðar hafi staðfest bókun ráðgjafarteymis á fundi þann 2. apríl 2025. Hafnarfjarðarbær bendi á að vinnuskírteini sem kærandi hafi sent mynd af til ráðgjafa þann 4. mars 2025 hafi verið frá D með aðsetur í Reykjavík en með kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála hafi hann framvísað launaseðli frá E með aðsetur á Akureyri fyrir marsmánuð 2025. Hafnarfjarðarbær telji útskýringar kæranda og framkomin gögn ekki breyta niðurstöðu sveitarfélagsins varðandi umsókn um fjárhagsaðstoð fyrir febrúar 2025.

IV. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 28. febrúar 2025 á grundvelli 3. mgr. 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarkaupstað.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr. Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ er kveðið á um inntak fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Samkvæmt 5. mgr. 1. gr.  reglnanna skal fjárhagsaðstoð veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði félagsþjónustunnar, svo sem ráðgjöf og leiðbeiningar, í samræmi við V. kafla laga nr. 40/1991. Samkvæmt 6. mgr. 1. gr. reglnanna er fjárhagsaðstoð veitt í formi framfærslustuðnings eða tilboðs um starf eða virkniúrræði. Tilgangur aðstoðar er að styðja einstaklinga sem aðstoðar njóta til sjálfsbjargar, gera þeim kleift að framfleyta sér og fjölskyldu sinni án aðstoðar og að stuðla að valdeflingu þeirra.

Í 8. gr. reglnanna er meðal annars rakið hvaða gögn og upplýsingar umsækjandi skuli leggja fram með umsókn. Í 3. mgr. 8. gr. kemur fram að vakni rökstuddur grunur um að umsækjandi dvelji ekki á Íslandi sé heimilt að gera kröfu um að umsækjandi sanni deili á sér með því að mæta í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar og sýna gild persónuskilríki með mynd. Bregðist umsækjandi ekki við kröfu um að sanna á sér deili sé heimilt að stöðva afgreiðslu umsóknar og/eða greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 27. febrúar 2025 beðinn um að sanna á sér deili með því að mæta í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar þann 28. febrúar 2025 á milli klukkan 8:00 og 12:00. Fyrir liggur að kærandi mætti ekki og gaf þær skýringar að hann hefði byrjað í nýrri vinnu þann 26. febrúar 2025. Hafnarfjarðarbær óskaði í kjölfarið eftir því að kærandi legði fram staðfestingu á því hvenær vinnan hefði hafist, svo sem með því að skila inn ráðningarsamningi. Kærandi sendi sveitarfélaginu þá mynd af vinnuskírteini þar sem fram kom að hann væri í fullu starfi hjá D. Kærandi var í kjölfarið tjáð að vinnustaðaskírteinið væri ekki fullnægjandi staðfesting og óskað var eftir ráðningarsamningi. Kærandi veitti þá þær upplýsingar að um munnlegt samkomulag væri að ræða á milli hans og vinnuveitandans.

Að virtum framangreindum upplýsingum er það mat úrskurðarnefndarinnar að Hafnarfjarðarbæ hafi ekki verið rétt að synja umsókn kæranda á grundvelli 3. mgr. 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð án þess að bjóða kæranda að mæta á öðrum tíma í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar eða gera honum grein fyrir því hverju það varðaði að mæta ekki, en fyrir liggur að það var ekki gert.

Með vísan til þess er ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar felld úr gildi og málinu vísað aftur til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins til mats á því hvort önnur skilyrði til veitingu fjárhagsaðstoðar fyrir febrúarmánuð 2025 eru uppfyllt.

 

 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 2. apríl 2025, um að synja umsókn A, um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 28. febrúar 2025, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir