12 júní 2025
/
Úrskurður nr. 467/2025
Hinn 12. júní 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 467/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040067
Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 8. apríl 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Tyrklands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. mars 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Tyrklandi 16. desember 2023 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 19. desember 2023. Kvaðst kærandi hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi þar sem hann hafi verið beittur ofbeldi af hálfu lögreglu í heimaríki sínu, Tyrklandi. Hann hafi verið í hernum, en ekki hlotið þjálfun í notkun skotvopna. Hins vegar hafi lögreglan hér á landi fundið ljósmyndir af kæranda í farsíma hans þar sem hann sést halda á skotvopni og íklæddur herklæðnaði. Kærandi kvaðst hafa starfað á landamærum Tyrklands og Grikklands, en þar hafi ekki mátt skjóta og vopnaburður hafi einungis verið til sýnis. Þá eigi kærandi nafngreindan frænda hér á landi og kvaðst hann hafa hent vegabréfinu sínu eftir komu hans hingað til lands.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 4. mars 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og kvað helstu ástæður flótta síns vera vegna þess hann eigi á hættu ofsóknir og mismunun í heimaríki vegna kúrdísks uppruna síns og stjórnmálaskoðana. Kærandi kvaðst vera fæddur og uppalinn í Diyarbakir héraði í Tyrklandi. Hann hafi búið þar þegar hann hafi yfirgefið landið. Kærandi kvaðst eiga fjölskyldu í heimaríki sem sé búsett í Diyarbakir og kvaðst koma frá sterkum fjárhagslegum bakgrunni. Kvaðst hann hafa starfað í byggingafyrirtæki föður síns um skamma hríð áður en hann kom hingað til lands. Hann sé þó lærður bakari og hafi einnig starfað á bílaþvottastöð. Þá kvaðst kærandi vera af þjóðarbroti Kúrda og því tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sínu. Hann aðhyllist engin trúarbrögð og kvaðst hafa verið skráður í kúrdíska stjórnmálaflokkinn Halkların Demokratik Partisi (HDP), en kvaðst ekki virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Hann hafi skráð sig í flokkinn árið 2020 þá 18 ára gamall. Hlutverk hans innan flokksins hafi verið að dreifa bæklingum, m.a. fyrir mótmæli og kúrdíska nýársfögnuðinn Nowruz. Kvað kærandi slíkt ólöglegt. Í viðtali sínu greindi kærandi jafnframt frá því að það sé erfitt að vera Kúrdi í Tyrklandi. Hann geti ekki talað við móður sína á móðurmáli þeirra og yfirvöld séu að reyna hreinsa ungu kynslóðina. Þá hafi hann byrjað í skóla árið 2018 en fljótlega hætt þar sem hann hafi ekki mátt tala kúrdísku. Kærandi lýsti atviki frá árinu 2016 þegar hermenn hafi ráðist inn í þorpið hans þar sem hann og fjöldi annarra einstaklinga hafi verið að mótmæla útgöngubanni sem hafði verið sett á í Diyarbakir héraði. Í kjölfarið hafi nafn kæranda, ásamt fleirum, verið sett á sérstakan lista lögreglunnar og mótmælendur hafi verið beittir táragasi. Lögreglan hafi jafnframt beitt kæranda ofbeldi með þeim afleiðingum að hann hafi handleggs-, fót- og nefbrotnað. Kvaðst kærandi ekki hafa getað gengið í sex mánuði eftir þetta. Aðspurður kvað kærandi að enginn hafi leitað sér læknisaðstoðar eftir mótmælin þar sem það hafi verið útgöngubann. Kærandi hafi síðar leitað sér læknisaðstoðar, en læknirinn hafi sagt of langan tíma hafa liðið svo hægt hafi verið að útvega honum læknisvottorði. Í mars 2020 hafi kærandi verið handtekinn og færður til skýrslutöku eftir Nowruz hátíðarhöldin. Þá kvaðst kærandi hafa dvalið stuttlega í Istanbúl í þeim tilgangi að dreifa bæklingum, en snúið aftur til síns heima í september 2023. Þá lýsti kærandi því að hafa verið beittur ofbeldi af hálfu lögreglu þegar hann hafi verið við mótmæli gegn ríkisstjórninni í heimaríki. Einnig fyrir að hafa talað kúrdísku opinberlega við eldra fólk sem tali ekki tyrknesku. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa tjáð sig opinberlega á samfélagsmiðlum, en að hann hafi í eitt skipti deilt færslu formanns HDP flokksins á tilgreindum samfélagsmiðli. Lögreglan hafi strax komið að handtaka kæranda vegna birtingarinnar. Hann hafi síðar eytt færslunni. Aðspurður kvaðst kærandi ekki geta leitað ásjár lögreglu þar sem hann sé Kúrdi. Kærandi greindi enn fremur frá því að hann eigi í samskiptum við móður sína sem hafi greint honum frá því að lögreglan komi sjaldnar að heimili fjölskyldunnar eftir að kærandi hafi farið. Kvað kærandi að lögreglan hafi áður oft komið heim til hans, spurt eftir honum og hvað hann væri að fara dreifa mörgum bæklingum. Auk framangreinds kvaðst kærandi hvorki hafa getað fengið vegabréf né ökuskírteini í Diyarbakir, en að hann hafi fengið bæði í Istanbúl.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 8. apríl 2024. Greinargerð barst kærunefnd 16. apríl 2024, ásamt fylgiskjölum. Með tölvubréfum, dags. 12. og 20. maí 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda og framlagningu frumrits vegabréfs og ökuskírteinis. Með tölvubréfi, dags. 20. maí 2025, bárust kærunefnd frekari upplýsingar frá kæranda. Frumrit framangreindra skilríkja hafa ekki borist nefndinni.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi sé fæddur í Cermik umdæmi í Diyarbakir héraði í Tyrklandi og að hann hafi yfirgefið heimaríki sitt í nóvember 2023. Kærandi sé af þjóðarbroti Kúrda og í heimaríki hafi hann barist fyrir réttindum Kúrda. Hann hafi m.a. dreift upplýsingapósti fyrir HDP flokkinn. Þá kemur fram í greinargerð að kærandi hafi ítrekað sætt ofbeldi og ofsóknum af hálfu tyrknesku lögreglunnar vegna uppruna síns. Ummerki um tilvitnað ofbeldi sjáist greinilega á höfði, handlegg og fótlegg kæranda. Þá kveðst kærandi ítrekað hafa óskað eftir heilbrigðisgögnum og gögnum frá lögreglu í heimaríki án árangurs. Telji hann það vera þar sem hann sé Kúrdi.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Tyrklandi mótmælt.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann hafi flúið heimaríki sitt þar sem hann hafi alla sína tíð sætt ofbeldi og ofsóknum af hálfu tyrknesku lögreglunnar og hersins þar sem hann sé af þjóðarbroti Kúrda. Hann telji sig ekki geta fengið raunverulega vernd í öðrum landshlutum Tyrklands þar sem Kúrdar sæti ofbeldi í öllu landinu.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir varakröfu sína á því að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Grundvallast krafan á hinu almenna ástandi sem ríki í landinu gagnvart Kúrdum.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til stuðnings kröfu sinni byggir kærandi á sömu sjónarmiðum og í aðal- og varakröfu.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem væri til þess fallið að sanna á honum deili. Leysti stofnunin því úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Það var mat Útlendingastofnunar að engin ástæða væri til að draga í efa að hann sé tyrkneskur ríkisborgari. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé tyrkneskur ríkisborgari. Að öðru leyti er auðkenni kæranda óljóst.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Tyrklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Report on International Religious Freedom: Turkey (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
- 2023 Report on International Religious Freedom: Turkey (U.S. Department of State, 26. júní 2024);
- 2023 Türkiye Earthquake Disaster Brief (The International Federation of Red Cross and Crescent Societies (IFRC), 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Turkey 2022 (Amnesty International, 28. mars 2023);
- Amnesty International Report 2023/24: Turkey 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
- Amnesty International Report 2024/25: Turkey 2024 (Amnesty International, 29. apríl 2025);
- Country Policy and Information Note: Turkey: Kurds (UK Home Office, október 2023);
- Country Policy and Information Note: Turkey: Military service (UK Home Office, október 2023);
- Country Policy and Information Note: Turkey: Peoples’ Democratic Party (HDP) (UK Home Office, mars 2020);
- Country Policy and Information Note: Peoples’ Democratic Party/Green Left Party (HDP/YSP) (UK Home Office, október 2023);
- DFAT Country Information Report – Turkey (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 10. september 2020);
- EASO Country of Origin Information Report – Country Focus Turkey (European Asylum Office (EASO), nóvember 2016);
- Commission Staff Working Document – Turkey 2024 Report (European Commission (EC), 30. október 2024);
- Freedom in the World 2023 – Turkey (Freedom House,2023);
- Freedom in the World 2024 – Turkey (Freedom House, 2024);
- Freedom in the World 2025 – Turkey (Freedom House, 2025);
- General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 2. mars 2022);
- General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 31. ágúst 2023);
- General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 24. febrúar 2025);
- Progress report on the preparation for EU membership – Türkiye 2023 Report (European Commission, 8. nóvember 2023);
- Progress report on the preparation for EU membership - Türkiye 2024 Report (European Commission, 30. október 2024);
- The World Factbook - Turkey (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 28. maí 2025);
- Turkey’s Constitution of 1982 with Amendments through 2017 (https://www.constituteproject.org/constitution/Turkey_2017.pdf?lang=en, skoðað 17. maí 2025);
- Turkey Healthcare Technologies Resource Guide (U.S. International Trade Administration. Sótt 17. maí 2025);
- Turkey: Situation of Kurds, including in Istanbul, Ankara and Izmir; situation of supporters or perceived supporters of the People’s Democratic Party (Halklarin Demokratik Partisi, HDP); situation of Alevi Kurds (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. janúar 2020);
- Türkiye – Country overview (European Observatory of Health Systems and Policies. Sótt 17. maí 2025);
- World Report Turkey 2023. Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report Turkey 2024. Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- World Report Turkey 2025. Events of 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2025) og
- Kurds in Türkiye (Vefsíða Minority Rights Group International, síðast uppfært febrúar 2024).
Tyrkland er lýðveldi með rúmlega 83 milljónir íbúa. Ríkið er aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ríkið er jafnframt aðili að m.a. flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og alþjóðasamningi um afnám alls kynþáttamisréttis.
Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Tyrkland frá október 2023 kemur fram að landið sé og verði áfram lykilsamstarfsaðili Evrópusambandsins. Tyrkland hafi verið tengt Evrópusambandinu með samstarfssamningi síðan 1964 og hafi tollabandalag verið stofnað árið 1995. Tyrkland hafi stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu frá desember 1999. Aðildarviðræður hafi hafist í október 2005 en séu í biðstöðu og hafi verið frá árinu 2018. Fram kemur að ekki hafi verið brugðist við alvarlegum áhyggjum Evrópusambandsins af áframhaldandi hnignun lýðræðislegra viðmiða, réttarríkisins, sjálfstæði dómstóla og virðingu fyrir grundvallarréttindum borgara landsins. Í maí 2023 fóru fram forseta- og þingkosningar í Tyrklandi og hélt stjórnarbandalagið meirihluta sínum á þinginu og var sitjandi forseti endurkjörinn. Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar séu meðal annars aðstoð og endurreisn eftir jarðskjálfta, fjármálastöðugleiki og endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hinn 31. mars 2024 fóru fram sveitarstjórnarkosningar í landinu þar sem að stjórnarandstaðan, einkum CHP flokkurinn, vann mikinn sigur m.a. í höfuðborginni Istanbúl. Niðurstöður kosninganna voru einnig þær að CHP flokkurinn hafi sigrað aftur í borgunum Izmir, Adana og Antalya og haldið meirihluta þar.
Stjórnarskrá ríkisins gerir ráð fyrir einu þjóðerni fyrir alla ríkisborgara og viðurkennir ekki minnihlutahópa á grundvelli þjóðernis, svo sem Kúrda, eða kynþáttar að undanskildum Armenum, gyðingum og þeim sem tilheyri grísku rétttrúnaðarkirkjunni. Rétturinn til eigin tungumáls, menningarlegra og trúarlegra réttinda sé ekki tryggður öðrum hópum fyllilega samkvæmt lögum. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2023 um aðstæður Kúrda í Tyrklandi kemur fram að rúmlega 15 milljónir íbúa landsins séu af kúrdískum uppruna og tali kúrdískar mállýskur, eða um 20% tyrknesku þjóðarinnar. Kúrdíska sé annað útbreiddasta tungumálið í Tyrklandi, á eftir tyrknesku. Samkvæmt tyrkneskum lögum sé leyfilegt að opna einkareknar menntastofnanir þar sem kennsla fari fram á tungumálum og mállýskum sem íbúar noti í daglegu lífi. Sumir háskólar bjóði upp á valkvæða áfanga á kúrdísku og tveir háskólar séu með kúrdískar málvísindadeildir. Lögin heimili jafnframt að kúrdísk þorp og hverfi taki upp sín fyrri nöfn í stað þeirra tyrknesku og leyfi stjórnmálaflokkum og meðlimum þeirra að velja tungumál í stjórnmálabaráttu sinni og kynningarefni. Sá réttur hafi þó ekki alltaf verð virtur í framkvæmd. Þá banni lög notkun annarra tungumála en tyrknesku í opinberum stofnunum, hins vegar hafi Ayşegül Doğan, þingmaður DEM, fengið að hefja ræðu sína á kúrdísku í tyrkneska þinginu í desember 2024. Áður hefðu þingmenn verið stoppaðir ef þeir hefðu talað á öðru tungumáli en tyrknesku. Þrátt fyrir að kúrdíska sé formlega leyfð í einkareknum menntastofnunum og opinberri orðræðu hafi ríkisstjórnin ekki framlengt leyfi fyrir kennsluefni á kúrdísku í almenningsskólum. Þá kemur fram í skýrslunni að vísbendingar séu um áframhaldandi samfélagslega mismunun gagnvart Kúrdum og hafi fjölmargar fregnir borist af árásum sem beinst hafi að Kúrdum árið 2023. Í sumum tilfellum sé hugsanlegt að þessar árásir hafi ekki verið rannsakaðar á réttan hátt eða ekki verið viðurkenndar sem árásir byggðar á kynþáttahatri. Kúrdar sem búi í borgum í vesturhluta Tyrklands kunni að vera hræddir við að upplýsa um kúrdískt þjóðerni sitt eða tala kúrdísku á almannafæri, og atvinnumöguleikar geti verið takmarkaðir fyrir kúrdískt fólk, sérstaklega ef það sé virkt í kúrdískum stjórnmálum eða áberandi um stuðning sinn við málstað Kúrda. Hins vegar geti flestir Kúrdar sem ekki eru virkir í stjórnmálastarfi og þeir sem styðja AKP lifað án mismununar í borgum í vesturhluta Tyrklands. Nokkrar heimildir séu um að Kúrdum hafi verið meinaður aðgangur að leiguhúsnæði vegna þjóðernis síns. Þá geti Kúrdar sem ekki tali tyrknesku átt í erfiðleikum með að fá aðgang að læknisþjónustu.
Í mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 um aðstæður í Tyrklandi kemur fram að átök stjórnvalda og stjórnmálaflokksins og skæruliðahreyfingarinnar Partiya Karkerên Kurdistanê (PKK) hafi leitt af sér umfangsmikið tjón í suðausturhluta Tyrklands. Stjórnvöld hafi af þeim sökum árið 2016 lagt hald á tilteknar eignir í sérstökum héruðum í suðausturhluta landsins. Hafi yfirvöld lýst því yfir að tilgangur yfirtökunnar væri að auðvelda uppbyggingu eftir átökin. Sumir íbúanna sem hafi orðið fyrir áhrifum yfirtökunnar hafi lagt fram kröfur fyrir dómstólum þar sem þeir hafi sóst eftir leyfi til að vera áfram á yfirteknu landsvæði og fá bætur. Hafi mörg þessara mála enn verið óafgreidd í árslok 2022. Í ákveðnum tilfellum hafi dómstólar dæmt íbúum bætur. Frá og með júní 2022 hafi 5,7 milljarðar líra verið greiddar út til umsækjenda. Í skýrslu er greint frá einu atviki um að sprengja hafi sprungið í Istanbúl þar sem sex einstaklingar hafi látið lífið og 81 einstaklingur slasast. Það hafi enginn hópur gefið sig fram um að bera ábyrgð á atvikinu en tyrknesk yfirvöld telji árásina hafa verið að undirlagi PKK. Yfirvöld hafi handtekið einstakling sem talinn hafi verið bera ábyrgð á sprengingunni og tólf aðra einstaklinga. Í kjölfar sprengingarinnar hafi tyrkneskar hersveitir sprengt um 500 skotmörk í Sýrlandi og Írak, og drepið að minnsta kosti tíu óbreytta borgara. Í öðrum heimildum, t.d. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2022, kemur fram að ofbeldisverk annara aðila, svo sem PKK, hafi ekki átt sér stað í borgum í Tyrklandi heldur eigi sér helst stað í dreifbýli í suðausturhluta landsins.
Í skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2025 kemur fram að Halkların Demokratik Partisi (e. Democratic Peoples’ Party, HDP) hafi verið framsækinn vinstri sinnaður stjórnarandstöðuflokkur sem hafi m.a. barist fyrir stjórnmála- og menningarlegum réttindum Kúrda í Tyrklandi. Skömmu fyrir þingkosningarnar í maí 2023 hafi flokkurinn verið á barmi þess að vera bannaður vegna ásakana um að hann ógni einingu tyrknesku þjóðarinnar og að hann hafi unnið með PKK. Hafi því verið ákveðið að halda áfram starfsemi flokksins undir merkjum annars stjórnarandstöðuflokks að nafni Yeşil Sol Parti (e. Green Left Party, YSP). Í október 2023 hafi YSP ákveðið að breyta nafni flokksins í Halkların Eşitlik ve Demokrasi Partisi (e. Peoples’ Equality and Democracy Party, HEDEP), en í nóvember s.á. komst hæstiréttur Tyrklands að þeirri niðurstöðu að skammstöfunin „HEDEP“ væri of lík „HADEP“, sem hafi verið skammstöfun kúrdísks stjórnmálaflokks sem hafi verið virkur á árunum 1994 til 2003. Um miðjan desember hafi YSP þá ákveðið að halda nýja nafni flokksins en nota skammstöfunina „DEM“, sem vísi til hugtaksins „lýðræði“ (e. democracy), sem sé hluti af nafni flokksins. Í sveitarstjórnarkosningunum í mars 2024 fékk DEM 5,7% atkvæða. Líkt og HDP og YSP hafi DEM sérstaklega fengið stuðning í suðausturhluta landsins þar sem margir Kúrdar búi. Hafi DEM verið stærsti flokkurinn í alls tíu héruðum af 81 héraði. Aðilar að flokknum og stuðningsmenn hans séu að mestu leyti Kúrdar, en flokkurinn leggi einnig áherslu á jafnrétti kynjanna, umhverfismál, réttindi verkafólks og annarra minnihlutahópa. Þá hafi flokkurinn staðið að baki fjölda mótmæla árið 2024 og a.m.k. í tvö skipti fyrstu sex vikur ársins 2025. Áætlað sé að sjö til átta þúsund meðlimir DEM séu í fangelsi eða um helmingur skráðra flokksmeðlima. Þeir fari jafnóðum í og úr fangelsi. Mótmælendur, sem séu ekki skráðir flokksmeðlimir DEM, hafi einnig staðið frammi fyrir handtökum og ákærum fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum í nóvember 2024. Samkvæmt eldri skýrslum hollenska utanríkisráðuneytisins hafi um fimm þúsund flokksmeðlimir HDP verið í fangelsi, en erfitt hafi verið að halda utan um nákvæman fjölda þar sem yfirvöld hafi stöðugt verið að handtaka og láta meðlimi flokksins lausa. Yfirvöld hafi sett flokksmeðlimi í gæsluvarðhald, sleppt þeim tímabundið og síðar sakfellt þá.
Á vefsíðu International Trade Administration kemur fram að heilbrigðisráðuneytið í Tyrklandi setji stefnu í heilbrigðismálum og sé stærsti veitandi heilbrigðisþjónustu í landinu. Það séu um 880 ríkisreknir spítalar í landinu, 570 einkareknir spítalar og 68 háskólasjúkrahús. Heildarfjöldi sjúkrarúma séu um 226.000. Tyrkland eyði um 4,5% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og hafi það hlutfall margfaldast síðan árið 2002 þegar að átak hafi verið gert í heilbrigðismálum í Tyrklandi. Tyrkland hafi sett sér framsækna stefnu í rafrænni heilbrigðisþjónustu. Allar upplýsingar um læknisheimsóknir, rannsóknir, meðferðir og lyfjaávísanir séu skráðar í rafræna sjúkraskrá. Lyfseðlar séu gefnir út rafrænt og þeim lyfjum sem sé ávísað fáist afgreidd í apótekum samkvæmt rafrænu lyfseðlum. Þá hafi almenningur aðgang að sjúkraskrá sinni í gegnum snjallsímaforrit. Á vefsíðu European Observatory of Health Systems and Policies kemur fram að í Tyrklandi sé almannatryggingakerfi og að allir íbúar sem séu skráðir hjá almannatryggingum (e. Social Security Institution) fái fría heilbrigðisþjónustu. Almannatryggingar séu fjármagnaðar með framlagi atvinnurekanda og starfsmanna en þeir sem hafi lága innkomu séu undanþegnir greiðslu. Svo til nær öll heilbrigðisþjónusta fellur undir almanntryggingar nema lýtalækningar og tannlækningar, og tæknifrjóvgun sé aðeins greitt að hluta. Vegna skorts á læknum á landsvísu hafi sífellt fleiri keypt viðbótarheilbrigðistryggingu til að greiða fyrir meðferð á einkareknum sjúkrahúsum.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann eigi á hættu ofsóknir og mismunun af hálfu yfirvalda í heimaríki vegna kúrdísks uppruna síns og stjórnmálaskoðana.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera af þjóðarbroti Kúrda og því tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sínu. Hann kvaðst aðili að kúrdíska stjórnmálaflokknum HDP, en kvaðst ekki virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Hann hafi skráð sig í flokkinn árið 2020 þá 18 ára gamall. Hlutverk hans innan flokksins hafi verið að dreifa bæklingum, m.a. fyrir mótmæli og kúrdíska nýársfögnuðinn Nowruz. Í viðtali sínu greindi kærandi jafnframt frá því að það sé erfitt að vera Kúrdi í Tyrklandi. Hann geti ekki talað við móður sína á móðurmáli þeirra og yfirvöld séu að reyna hreinsa ungu kynslóðina. Þá hafi hann byrjað í skóla árið 2018 en fljótlega hætt þar sem hann hafi ekki mátt tala kúrdísku. Kærandi lýsti atviki frá árinu 2016 þegar hermenn hafi ráðist inn í þorpið hans þar sem hann og fjöldi annarra einstaklinga hafi mótmælt útgöngubanni sem hafði verið sett á í Diyarbakir héraði. Í kjölfarið hafi nafn kæranda, ásamt fleirum, verið sett á sérstakan lista lögreglunnar og mótmælendur hafi verið beittir táragasi. Lögreglan hafi jafnframt beitt kæranda ofbeldi með þeim afleiðingum að hann hafi handleggs-, fót- og nefbrotnað. Kvaðst kærandi ekki hafa getað gengið í sex mánuði eftir þetta. Aðspurður kvað kærandi að enginn hafi leitað sér læknisaðstoðar eftir mótmælin þar sem það hafi verið útgöngubann. Kærandi hafi síðar leitað sér læknisaðstoðar, en læknirinn hafi sagt of langan tíma hafa liðið svo hægt hafi verið að útvega honum læknisvottorð. Í mars 2020 hafi kærandi verið handtekinn og færður til skýrslutöku eftir Nowruz hátíðarhöldin. Þá kvaðst kærandi hafa dvalið stuttlega í Istanbúl í þeim tilgangi að dreifa bæklingum, en snúið aftur til síns heima í september 2023. Þá lýsti kærandi því að hafa verið beittur ofbeldi af hálfu lögreglu þegar hann hafi verið við mótmæli gegn ríkisstjórninni í heimaríki. Einnig fyrir að hafa talað kúrdísku opinberlega við eldra fólk sem tali ekki tyrknesku. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa tjáð sig opinberlega á samfélagsmiðlum, en að hann hafi í eitt skipti deilt færslu formanns HDP flokksins á tilgreindum samfélagsmiðli. Lögreglan hafi strax komið að handtaka kæranda vegna birtingarinnar. Hann hafi síðar eytt færslunni. Aðspurður kvaðst kærandi ekki geta leitað ásjár lögreglu þar sem hann sé Kúrdi.
Með tölvubréfum, dags. 12. og 20. maí 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda um meint vegabréf hans og ökuskírteini sem hann lagði fram ljósmyndir af á kærustigi. Jafnframt óskaði nefndin þess að kærandi legði fram frumrit framangreinds vegabréfs og ökuskírteinis. Í svörum kæranda, sem bárust kærunefnd 20. maí 2025, greindi kærandi m.a. frá því að hann sé ekki með framangreind skilríki undir höndum. Hann sé einungis með ljósmyndir af þeim sem hann hafi tekið áður en hann kom hingað til lands. Þá greindi kærandi frá því að hann eigi ekki vegabréf og hafi skilið ökuskírteinið sitt eftir í Tyrklandi.
Við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram afrit af sakavottorði sínu, dags. 10. maí 2023, og fimm ljósmyndir, ódags., af ótilgreindum einstaklingum og má ráða að með framlagningunni vilji kærandi sýna ástandið á heimasvæði sínu í Tyrklandi. Þá lagði kærandi fram fyrir kærunefnd afrit af HDP flokksskírteini og ljósmyndir af meintu vegabréfi hans og ökuskírteini.
Í umfjöllun í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda, og séu skoðanirnar stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Í ljósi orðalags ákvæðisins, og með hliðsjón af því sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Kærunefnd telur ekki hægt að útiloka að kærandi hafi tekið þátt í tveimur mótmælum í heimaríki, deilt færslu formanns HDP flokksins á tilgreindum samfélagsmiðli og sé á sérstökum lista lögreglu í kjölfar mótmæla. Aftur á móti verður ekki lagt til grundvallar að kærandi hafi verið skráður meðlimur HDP flokksins, hins vegar verður lagt til grundvallar að hann hafi starfað í þágu flokksins með því að dreifa bæklingum. Þrátt fyrir að ekki sé hægt í ljósi heimilda um stjórnarhætti í Tyrklandi að útiloka að kærandi hafi verið beittur ofbeldi af hálfu lögreglu og hersins á báðum þeim mótmælum sem hann hafi tekið þátt í og verið handtekinn í kjölfar birtingar framangreindrar færslu verður ekki séð að hann sé í frekari hættu af hálfu stjórnvalda umfram aðra einstaklinga í heimaríki sem einnig hafa tekið þátt í mótmælum eða tjáð sig opinberlega á samfélagsmiðlum. Lítur kærunefnd við það mat til þess að heimildir beri með sér að fjöldi mótmæla eigi sér stað í Tyrklandi á hverju ári þar sem algengt sé að lögreglan handtaki fjölda fólks. Hins vegar séu það aðallega skráðir flokksmeðlimir DEM (áður HDP), sem séu skotspónn stjórnvalda, og þá helst forsvarsmenn flokksins, frambjóðendur til þings, lögmenn, blaðamenn, mannréttindasinnar og leik- og söngvarar. Þá hefur kærandi ekki leitt líkum að því að hafa sætt áreiti eða ofsóknum yfirvalda umfram tilgreinda atburði. Verður því ekki talið að kærandi eigi á hættu að sæta ofsóknum á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna, sbr. b-lið 2.mgr. og e-lið 3.mgr. ákvæðisins.
Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi sé af kúrdískum uppruna og kunni að hafa orðið fyrir mismunun af hálfu yfirvalda. Kærandi greindi frá því að hafa ítrekað orðið fyrir ofbeldi lögreglu í heimaríki, m.a. við mótmæli og fyrir að tala kúrdísku á almannafæri. Hann hafi einnig byrjað í skóla árið 2018 en fljótlega hætt þar sem hann hafi ekki mátt tala kúrdísku. Kærandi greindi jafnframt frá því að hafa verið handtekinn og færður til skýrslutöku eftir nýárshátíð Kúrda í mars 2020. Kvaðst hann hafa gögn um framangreinda handtöku, en lagði þau ekki fram við meðferð máls síns. Kærandi greindi ekki frá frekari afleiðingum framangreindrar handtöku. Þá vekur athygli að kærandi tók sérstaklega fram við málsmeðferð sína hjá Útlendingastofnun að hann sé lærður bakari, hann hafi starfað á bílaþvottastöð og í byggingafyrirtæki föður síns. Auk þess hafi hann fengið læknisaðstoð eftir framagreint atvik frá árinu 2016 og fjölskylda hans sé búsett í heimaríki, m.a. foreldrar hans, þrjú systkini, amma og afi. Kærandi kvað þau ekki vera í hættu. Þá kemur fram í lögregluskýrslu, dags. 19. desember 2023, að kærandi hafi verið í tyrkneska hernum. Af ljósmyndum sem lögreglan hér á landi fann í farsíma kæranda er ljóst að kærandi hafi verið í hernum frá a.m.k. ágúst 2022 til janúar 2023. Kærandi hefur ekki lýst neinu sem talist gæti til ofsókna gagnvart honum eða á annan hátt leitt að því líkum að tyrknesk yfirvöld beini sjónum sínum sérstaklega að honum eða hann sé á annan hátt í verri stöðu í heimaríki en aðrir einstaklingar af sama þjóðernisuppruna. Við það mat lítur kærunefnd til þess að kærandi hafi getað menntað sig, sinnt herskyldu, haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu og verið með atvinnu. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna að Kúrdar kunni að eiga á hættu einhverja mismunun í heimaríki kæranda af þeirri ástæðu að þeir tilheyri þjóðarbrotinu. Ekkert í þeim gögnum gefur þó til kynna að sú mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Líkt og áður hefur komið fram eru refsingar lagðar við glæpum sem grundvallast á hatri gegn tilteknu þjóðerni. Þá geti einstaklingar er verði fyrir áreiti af hálfu aðila ótengdum ríkinu leitað til m.a. umboðsmanns og stofnunar mannréttinda og jafnréttismála (NHREI). Þó hlutleysi þeirra og skilvirkni hafi sætt gagnrýni verður ekki fallist á að Kúrdar sæti kerfisbundinni mismunun þar í landi eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1.mgr. 37. gr. laga um útlendinga eingöngu á grundvelli þjóðarbrots síns.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til Tyrklands með vísan til almenns ástands í landinu gagnvart Kúrdum.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann sé fæddur og uppalinn í Diyarbakir héraði í Tyrklandi og að hann hafi búið þar áður en hann yfirgaf heimaríki sitt. Með vísan til framangreindra heimilda nær ástandið á heimasvæði kæranda ekki því alvarleikastigi að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, á heimasvæði sínu, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til Tyrklands.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki hans er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Kærandi kveður sig vera við góða líkamlega heilsu, en hvað andlegu heilsu hans varðar líði honum betur hér á landi. Í heimaríki hafi honum ekki liðið vel þar sem hann vissi aldrei hvenær lögreglunnar mætti vænta. Engin heilsufarsgögn liggja fyrir í málinu. Af framburði kæranda verður ekki séð að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi hefur greint frá því að eiga fjölskyldu í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærandi er ungur að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 19. desember 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 4. mars 2024, leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í svörum kæranda kom fram að hann hafi ekki tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Þá kvað kærandi að ef hann yrði sendur aftur til heimaríkis fengi hann aldrei aftur tækifæri til þess að fara frá Tyrklandi. Í skýrslu lögreglu vegna umsóknar kæranda um vernd kemur fram að kærandi eigi frænda með dvalarleyfi hér á landi.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir