18 júní 2025
/
Fundur Velferðarvaktarinnar 18. júní 2025
73. fundur Velferðarvaktarinnar
haldinn hjá Vinnumálastofnun og á Teams.
18. júní 2025, kl. 10.00-12.00.
1. Staða barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd
Arnór Heiðarsson, forstöðumaður þjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hjá Vinnumálastofnun, ræddi um fyrirkomulag þjónustu við börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Vinnumálastofnun sagði nýverið upp samningum við þrjú sveitarfélög sem sinntu þjónustu við umsækjendur og mun taka yfir þjónustuna. Rætt var sérstaklega um fyrirkomulag þjónustu við börn sem ekki eru komin á grunnskólaaldur en Velferðarvaktin telur mikilvægt að sá hópur eigi þess kost að sækja leikskóla, tómstundir o.s.frv. líkt og önnur börn.
2. Elja virkniráðgjöf
Ellý Tómasdóttir, Gunnar Sigurbjörnsson og Sigþrúður Jónsdóttir frá sveitarfélaginu Árborg kynntu verkefnið Elju virkniráðgjöf sem hefur það að markmiði að styðja ungt fólk á aldrinum 16-29 ára sem hefur dottið út úr námi, atvinnu og félagslegri virkni - og aðstoða það við að tengjast samfélaginu á ný. Verkefnið hófst í ársbyrjun 2024 og er þegar farið að skila árangri. Vonast er til að verkefnið geti orðið fyrirmyndaverkefni fyrir fleiri sveitarfélög.
3. Heillaspor
Bergdís Wilson, sviðstjóri skólaþróunarsvið hjá Miðstöð menntunar, kynnti Heillaspor sem er tengsla- og áfallamiðuð nálgun sem styður við þroska, nám og farsæld barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi. Markmiðið er að byggja upp heildstætt og inngildandi skólaumhverfi þar sem öll börn, óháð bakgrunni eða þörfum, fái að vaxa og dafna í skólastarfi.
4. Önnur mál
- Rannsókn á örorkulífeyri karla og kvenna. Formaður upplýsti að niðurstöður rannsóknarinnar yrðu kynntar í lok sumars en rannsóknin er unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands að beiðni Tryggingarstofnunar í samstarfi við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnueftirlitið og Velferðarvaktina.
- Næsti fundur Velferðarvaktarinnar verður haldinn 2. september.