19 júní 2025

/

Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025

Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025 fór fram fimmtudaginn 19. júní.
Á fundinum var farið yfir stöðu og horfur í fjármálakerfinu. Til umræðu var m.a. greiðslujöfnuður, byggingamarkaður, virk þjóðhagsvarúðartæki og mat á árangri af beitingu þeirra, þar á meðal lánþegaskilyrða.

Greiðslumiðlun var til sérstakrar umfjöllunar og stefnur Seðlabankans um fjármálainnviði og yfirsýn.

Á fundinum var gerð grein fyrir störfum skilavalds.