26 júní 2025

/

Mál nr. 147/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 147/2025

Fimmtudaginn 26. júní 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 29. júlí 2024 og var umsóknin samþykkt 3. september 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2024, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar þar sem hann stundaði nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Kæranda var einnig tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. til 24. september 2024, að fjárhæð 324.604 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. mars 2025. Með bréfi, dags. 26. mars 2025, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Athugasemdir bárust samdægurs. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. mars 2025, var óskað eftir afriti af öllum gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 8. apríl 2025. Með bréfi, dags. 10. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar þar sem í ljós kom að stofnunin hafði tekið mál kæranda fyrir að nýju 4. mars 2025 og staðfest hina kærðu ákvörðun. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 15. maí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. maí 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 1. júní 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. júní 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar vísar kærandi til bréfs sem hafi verið sent Vinnumálastofnun 22. febrúar 2025 vegna kröfu stofnunarinnar um endurgreiðslu atvinnuleysisbóta. Í því komi fram að það leiki ekki nokkur vafi á því að kærandi hafi verið atvinnulaus á því tímabili sem bætur hafi verið greiddar. Hins vegar sé það rétt að kærandi hafi stundað nám í kvöldskóla sem sé utan hefðbundins vinnutíma. Kærandi líti svo á að honum sé frjálst að ráðstafa þeim frítíma sínum sem sé utan hefðbundins vinnutíma og telji því að endurgreiðslukrafa Vinnumálastofnunar standist ekki skoðun.

Kærandi bendi á að í flestum tilfellum aðstoði Vinnumálastofnun skjólstæðinga sína með að stunda nám eða jafnvel sækja sér réttindi. Það sé gert á hefðbundnum vinnutíma og skjólstæðingum að kostnaðarlausu. Kærandi hafi greitt nám sitt að fullu sjálfur og staðið skil á öllum gjöldum af launum sínum sem renni til Vinnumálastofnunar. Kærandi líti svo á að með þessu framferði stofnunarinnar sé verið að mismuna honum og gera öðrum hátt undir höfði.

Þessu til viðbótar vísar kærandi til þess að hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur 29. júlí 2024 og verið afskráður 24. september 2024. Kærandi hafi því sannarlega verið atvinnulaus það tímabil. Námið sem kærandi hafi verið skráður í, og hafi verið í árin á undan, hafi byrjað 21. ágúst og verið að jafnaði tvisvar í viku frá 17:20 til 22. Kæranda hafi ekki verið greint frá því við umsókn um atvinnuleysisbætur að hann mætti ekki stunda nám utan hefðbundins vinnutíma eða ráðstafa sínum frítíma að eigin vild. Kærandi hafi framfleytt sjálfum sér með 100% vinnu árin á undan og árin á eftir samhliða námi á kvöldin. Þannig hafi kærandi staðið undir greiðsluskyldum sínum og framfærslu. Kærandi hafi ekki verið að búa sér til leið til að fá fría framfærslu til að stunda nám, eins og Vinnumálastofnun hafi gefið í skyn. Því sé augljóst að ef bætur hefðu ekki komið til hefði ekki verið grundvöllur til framfærslu.

Kærandi fari þess á leit að úrskurðarnefnd velferðarmála taki afstöðu til kröfu Vinnumálastofnunar og felli hana niður á framangreindum forsendum.

Í athugasemdum kæranda kemur fram að það veki furðu að tímafrestur sem Vinnumálastofnun hafi verið gefinn til að svara málinu sé löngu liðinn en samt sé málið enn að velkjast um í kerfinu. Kærandi spyrji til hvers sé verið að gefa upp tímarama ef honum sé ekki fylgt.

Tekið er fram að þegar kærandi hafi sótt um bætur hafi hann ekki verið í námi og því ekki ástæða til að fjalla sértstaklega um það. Því leiki ekki nokkur vafi á að kærandi hafi átt rétt á bótum þegar hann hafi sótt um þær. Hvergi í umsóknarferlinu hafi kærandi verið spurður um það hvort hann væri í námi eða væri á leiðinninni í nám. Á þessum tímapunkti hafi ekki legið fyrir hvort kærandi færi heilt yfir í nám. Kærandi hafi afskráð sig af atvinnuleysisskrá þann 24. september 2025 en hafi í kjölfarið verið ásakaður um að staðfesta ekki atvinnuleit.

Í ágúst 2022 hafi kærandi hafið nám í kvölskóla sem hann hafi sótt með fullri vinnu og ekki hafi neitt annað staðið til eða verið í boði. Það hafi ekki staðið til að sækja námið að degi til og hætta að vinna, enda ekki fjárhagslegur grundvöllur til þess. Það hafi ekki staðið til að stunda námið með fjárhagslegri aðstoð frá lánastofnunum.

Kærandi hafi í góðri trú sótt um bætur og hafi ekki haft neinn ásetning til að svíkja út bætur eins verið sé að gefa í skyn. Það hafi orðið skyndilegar breytingar á atvinnumálum og því hafi kærandi sótt um bætur og lokið þeim eins fljót og kostur var. Kærandi hafi verið grunlaus um að hann mætti ekki stunda nám á kvöldin eða í fjarnámi samhliða því að þiggja bætur. Kærandi hafi ekki haft nokkurn kost á að framfleyta sér á annan máta en með þeim bótum sem hann hafi í góðri trú þegið á meðan ekki hafi verið vinnu að hafa. Ekki hafi komið til greina að hætta í náminu sem hafi verið búið að greiða fyrir að fullu vegna skilyrða Vinnumálastofnunar sem ekki hafi legið fyrir og kærandi hafi ekki haft hugmynd um að væru til staðar.

Þá bendi kærandi á að hann hafi sótt um bætur 29. júlí 2024 og fengið fyrstu greiðslu 11. september 2024. Hann hafi ekki haft hugmynd um hvort hann fengi einhverjar bætur fram að þeim tíma. Vinnumálastofnun sé að fara fram á að kærandi myndi segja sig úr námi ef hann ætlaði að þiggja bætur eða skrá sig af bótum, sem hann hafi ekki verið búinn að fá, til að halda áfram í námi.

Málið falli um sjálft sig og kærandi hafi ekki haft nokkurn kost á að bregðast við eftir á sendum upplýsingum og kröfum. Kærandi fari fram á að málið verði fellt niður og innheimta afturkölluð.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um  atvinnuleysistryggingar þann 29. júlí 2024. Í umsókn kæranda hafi komið fram að hann væri ekki skráður í nám, hefði ekki verið skráður í nám á fyrri námsönn og væri ekki skráður í nám á næstu námsönn. Með erindi, dags. 3. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt með 100% bótarétt. Kærandi hafi afskráð sig sem atvinnuleitanda á „Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar þann 24. september 2024 með skýringunni að hann væri farinn í vinnu.

Við reglubundið eftirlit hafi komið í ljós á kærandi hafi verið skráður í 23 ECTS eininga nám á haustönn 2024 við B og fimm ECTS eininga nám við C. Með erindi, dags. 9. október 2024, hafi verið óskað eftir því að kærandi myndi skila skólavottorðum þar sem umfang náms væri tilgreint ásamt skýringum á því hvers vegna hann hefði ekki upplýst Vinnumálastofnun um nám sitt. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að veita stofnuninni umbeðin gögn. Engin gögn hafi borist frá kæranda.

Með erindi, dags. 28. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði stundað nám á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistryggingar hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar á tímabilinu 1. til 24. september 2024, að fjárhæð 282.264 kr., auk 15% álags, eða samtals 324.604 kr. sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá hafi kæranda jafnframt verið tilkynnt að greiðslur til hans væru stöðvaðar á grundvelli 52. gr. laganna.

Þann 28. og 30. október 2024 hafi kærandi lagt fram skriflegar skýringar, auk skólavottorðs sem staðfesti að hann væri skráður í 23 ECTS eininga nám á húsasmíðabraut við B á haustönn 2024. Í skýringum hafi kærandi borið við að hann stundi kvöldnám og talið að það kæmi ekki Vinnumálastofnun við hvað hann gerði í frítíma sínum.

Með erindi, dags. 4. nóvember 2024, hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju að teknu tilliti til nýrra gagna. Þar sem nám kæranda á húsasmíðabraut við B hafi verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna hafi það verið mat Vinnumálastofnunar að staðfesta fyrri ákvörðun, dags. 28. október 2024.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Í c. lið 3. gr. laganna sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:

„Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar kveðið á um nám. Í 1. mgr. 52. gr. segi orðrétt:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c. lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“

Ljóst sé af ákvæði 1. mgr. 52. gr. að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með 52. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé tiltekið að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða fjarnám, dag- eða kvöldskóla.

Í 2. til 5. mgr. 52. gr. laganna séu undanþágur frá 1. mgr. sömu greinar. Ljóst sé af skýringum kæranda að hann telji að ákvæði 4. mgr. 52. gr. laganna eigi við í hans tilfelli.

Ákvæði 4. mgr. 52. gr. laganna sé svohljóðandi:

„Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.“

Í ákvæðinu sé því heimild til að stunda ólánshæft nám, sem skipulagt sé samhliða vinnu, án skerðingar á atvinnuleysisbótum, svo lengi sem námið hindri ekki virka atvinnuleit né þátttöku á vinnumarkaði.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi verið skráður í 23 ECTS eininga nám við B á haustmisseri 2024, á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Samkvæmt úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna teljist nám kæranda við húsasmíðsbraut við B lánshæft. Að hámarki sé veitt lán fyrir 26 ECTS-einingum á hvoru misseri og að lágmarki fyrir 19 ECTS. Þar sem nám kæranda hafi verið lánshæft samkvæmt lánareglum Menntasjóðs námsmanna falli námið ekki að undanþágu 4. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé því ljóst að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. til 24. september 2024. Í 39. gr. laganna sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Í 2. mgr. 39. gr. segi orðrétt:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið greiddar fyrir tímabilið 1. til 24. september 2024, samtals að fjárhæð 282.264 kr., auk 15% álags, enda liggi fyrir að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna á umræddu tímabili, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Heildarskuld kæranda með álagi nemi í dag 324.604 kr.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 1. til 24. september 2024, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að meðtöldu álagi, samtals 324.604 kr., sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur með vísan til þess að hann hafi stundað nám.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.

Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“

Í c. lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi, hvort hann hafi verið skráður í nám á síðustu námsönn eða sé skráður í nám á næstu námsönn. Þá er upplýst að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi hafði stundað nám í kvöldskóla við B áður en hann sótti um atvinnuleysisbætur en svaraði þó öllum framangreindum spurningum neitandi á umsókn, dags. 29. júlí 2024. Í staðfestingu á móttöku umsóknarinnar var kærandi upplýstur um ýmis réttindi og skyldur og jafnframt greint frá því að ítarlegri upplýsingar hvað það varðar væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Með vísan til framangreindra upplýsinga sem kæranda voru veittar telur úrskurðarnefndin ljóst að hann hefði mátt vita að honum bæri að upplýsa Vinnumálastofnun um nám sitt en það að um kvöldskóla var að ræða breytir ekki þeirri skyldu.

Þar sem Vinnumálastofnun hafði ekki vitneskju um nám kæranda fékk hann greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. til 24. september 2024 án þess að eiga rétt til þeirra, sbr. framangreinda meginreglu um að námsmenn séu ekki tryggðir samkvæmt lögum nr. 54/2006.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um nám sitt er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir