07 júlí 2025
/
Mál nr. 332/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 332/2025
Mánudaginn 7. júlí 2025
A
gegn
B
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Viborg sálfræðingur.
Með kæru, dags. 23. maí 2025, barst kæra C lögmanns, f.h. A, vegna umgengni hennar við börn hennar, D og E.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi samþykkti vistun barnanna utan heimilis þann 19. maí 2025. Á meðferðarfundi þann 20. maí 2025 lagði meðferðarteymi til umgengni kæranda við börnin fram að niðurstöðu umdæmisráðs í formi myndsímtala einu sinni í viku um helgi í 15 mínútur.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 23. maí 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 3. júní 2025, var óskað eftir greinargerð B ásamt gögnum málsins. Greinargerð B barst nefndinni þann 18. júní 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 19. júní 2025, var greinargerðin send lögmanni kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru kemur fram að málefni kæranda og barna hafa verið til vinnslu hjá [B] um hríð. Áður hafi mál verið rekin á F. Kærandi hafi verið með börnin hjá sér og til stóð að loka máli hennar. Kærandi hafi síðan lent í […] og í framhaldi hafi þau verið tekin og vistuð utan heimilis. Yfirlýst sé svo að til standi að fara í forsjársviptingarmál gegn kæranda. Kærandi hafi ekki fengið að hitta börnin í lengri tíma heldur verið háð duttluningum starfsmanna varðandi það að fá að ræða við þau. Ákveðið hafi verið á meðferðarfundi hvernig umgengni skyldi háttað og var hún þannig sett. Meðferðarteymi leggur til að kærandi eigi myndsímtöl við börnin einu sinni í viku um helgi í 15 mínútur fram að niðurstöðu umdæmisráðs barnaverndar. Samþykkt að börnunum verði skipaður talsmaður. Þessi nálgun sé stórundarleg enda kærandi vart talin hættuleg börnunum. Það sem sætir furðu sé að umgengni er þannig fastnelgd en næsti fundur umdæmisráðs sé ekki fyrr en 19. júní [2025]. Þar sem kærandi hafi haft börnin hjá sér meira og minna sé þetta sérstaklega sárt og ætlar kærandi að starfsmenn hafi nú fyrirfram gefnar hugmyndir um niðurstöðu. Telur kærandi að betur fari á að hún fái að hitta börnin, fyrst undir eftirliti en síðan án eftirlits. Börnin séu í dag vistuð hjá móður kæranda en það sé einboðið að svo verði ekki til lengri tíma. Þess sé því vænst og gert að kröfu að ákvörðun starfsmanna verði felld úr gildi en þá til vara að því sé beint að starfsmönnum að tryggja umgengni í samræmi við það að allar niðurstöður koma til greina. Verður kærandi því að hafa tækifæri til þess að vera í samskiptum og í því sem næst eðlilegri umgengni við börnin hennar.
III. Sjónarmið B
Í greinargerð B kemur fram að hvað varði þá bókun meðferðarfundar B að fara fram á forsjársviptingu kæranda verði ekki útlistað nánar í greinargerð þessari enda sé sú beiðni í meðferð fyrir umdæmisráði barnaverndar og eftir atvikum dómstólum sbr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Hvað varði athugasemdir lögmanns kæranda um umgengni þá liggi ekki fyrir úrskurður umdæmisráðs um umgengni í fóstri skv . 4. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga. Bókað hafi verið um umgengni á meðferðarfundi fram að niðurstöðu umdæmisráðs barnaverndar og verði aftur fjallað um umgengni í framhaldi af niðurstöðu umdæmisráðs barnaverndar sé tilefni til. Samkvæmt 8. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga geta þeir sem rétt eiga á umgengni skotið úrskurði umdæmisráðs barnaverndar í framhaldi til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Kærandi hafi samþykkt vistun barnanna fram að niðurstöðu umdæmisráðs barnaverndar sbr. undirritað samþykki forsjáraðila fyrir vistun utan heimilis dags. 13. maí 2025. Tekin hafi verið ákvörðun um umgengni kæranda við börnin fram að niðurstöðu umdæmisráðs á meðferðarfundi þann 20. maí [2025]. Þá hafi legið fyrir ósk kæranda um umgengni, þ.e. myndsímtöl annan hvern dag, venjuleg símtöl daglega og umgengni hverja helgi. Bókað hafi verið á meðferðarfundi umgengni kæranda í formi myndsímtala einu sinni í viku 15 mínútur í senn. Þá hafi einnig verið lögð fyrir meðferðarfund beiðni kæranda um aukna umgengni fram að niðurstöðu umdæmisráðs þann 3. júní [2025] og hún aukin í myndsímtöl tvisvar sinnum í viku 15 mínútur í senn.
Alvarlegt atvik hafi átt sér stað í málinu þann 6. maí [2025] þar sem kærandi var undir áhrifum vímuefna og […]. Samkvæmt gögnum frá lögreglu var mesta mildi að ekki fór mjög illa […]. Börnin fóru úr umsjá kæranda í kjölfar þessa atviks og fyrir liggur að B ætlar að gera þá kröfu fyrir umdæmisráði þann 19. júní [2025] að barnaverndarþjónustunni verði veitt heimild til að gera þá kröfu fyrir dómi að forsjáraðili verði svipt forsjá, um þetta hafi verið bókað á meðferðarfundi þann 13. maí [2025]. Börnin séu vistuð með samþykki forsjáraðila innan fjölskyldu og á stað þar sem börnin hafa verið vistuð áður. Börnin hafi orðið fyrir miklu áfalli og hafa búið við erfiðar og krefjandi aðstæður til langs tíma. Lögmaður kæranda sé væntanlega að kæra bókun meðferðarfundar 20. maí og 3. júní [2025] þar sem bókað sé um umgengni fram að fundi umdæmisráðs. Um sé að ræða umgengni í formi símtala þar sem börnin séu vistuð í öðrum landshluta og það kemur fram að þessi tilhögun umgengni verði þar til niðurstaða umdæmisráðs varðandi forsjársviptingu liggur fyrir. Það sé mat meðferðarteymis að nauðsynlegt sé að veita börnunum öryggi og stöðugleika í kjölfar þess sem gengið hefur á og þessa alvarlega atviks þar sem forsjáraðili brást börnum sínum.
IV. Niðurstaða
Samkvæmt gögnum málsins samþykkti kærandi tímabundna vistun barnanna utan heimilis þann 19. maí 2025 þar til niðurstaða umdæmisráðs liggur fyrir, sbr. 1. mgr. 25. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl).
Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. bvl. getur barnaverndarþjónustan, eftir því sem nánar er ákveðið í áætlun skv. 23. gr. bvl., með samþykki foreldra og barns sem náð hefur 15 ára aldri:
- tekið við forsjá eða umsjá barna og ráðstafað í fóstur
- tekið við forsjá eða umsjá barns og vistað barn utan heimilis á heimili eða stofnun eða leitað annarra úrræða skv. XIII. og XIV. kafla til umönnunar, rannsóknar, meðferðar eða stuðnings.
Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt ákvæðum bvl. er kæruheimild ekki til staðar hvað varðar ráðstafanir barnaverndaryfirvalda skv. 25. gr. bvl. Þess ber að geta að skv. 34. gr. bvl. getur foreldri afturkallað samþykki sitt fyrir tímabundnu úrræði skv. 25. gr. bvl..
Samkvæmt gögnum málsins liggur fyrir tillaga barnaverndarþjónustu um umgengni kæranda við börn hennar. Kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála varðandi umgengni er að finna í 8. mgr. 74. gr. bvl. og 8. mgr. 81. gr. bvl. í kjölfar þess að umdæmisráð hefur úrskurðað um umgengni. Þar sem ekki liggur fyrir kæranlegur úrskurður til úrskurðarnefndar velferðarmála er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarnefndin bendir kæranda á að þegar úrskurður umdæmiráðs liggur fyrir er hægt að kæra hann til úrskurðarnefndar velferðarmála innan fjögurra vikna frá því tilkynnt var um úrskurðinn sbr, 1. mgr. 51. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson