09 júlí 2025
/
Mál nr. 223/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 223/2025
Miðvikudaginn 9. júlí 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 4. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 3. september 2024 og var umsóknin samþykkt 26. september 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. apríl 2025. Með bréfi, dags. 8. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. maí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. maí 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því honum hafi verið gerð tveggja mánaða refsing vegna fjarveru á fund hjá Vinnumálastofnun þann 11. mars 2025. Kærandi hafi verið mjög veikur í nokkra daga, hafi byrjað að líða illa seinnipart 5. mars en haldið að ekki væri um alvarleg veikindi væri að ræða. Kærandi hafi verið veikur til og með 11. mars. Kærandi hafi verið með 39 stiga hita, slappleika og verki í liðum. Þá hafi kærandi verið með niðurgang frá 9. mars til 11. mars sem hafi valdið svefnleysi og frekari heilaþoku. Þar að auki hafi þunglyndi hans aukist í byrjun mars og hann hafi hafið töku lyfja (venlafaxine). Upphaf lyfjatöku við þunglyndi sé oft tengt við geðlægð sem hann hafi upplifað og hafi enn aukið á það að hann hafi ekki náð að hugsa skýrt. Fyrir fundinn hafi kærandi reynt að fá tíma hjá lækni, en engir tímar hafi verið lausir. Kærandi hafi fengið símaviðtal 17. mars 2025 þar sem læknirinn hafi ákveðið að hitta kæranda vikuna á eftir vegna alvarleika málsins.
Kærandi hafi hitt lækni þann 28. mars 2025, klukkan 10:30. Vinnumálastofnun hafi notað læknisvottorð kæranda sem staðfest hafi veikindi frá 7. mars til 13. mars til að lækka greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda en á sama tíma ekki samþykkt það sem skýringu á forföllum á boðaðan fund þann 11. mars 2025.
Kærandi hafi verið beðinn um að skila skýringum vegna forfalla innan sjö daga, sem hann hafi gert. Þá hafi kærandi áður verið búinn að senda skýringar, þegar honum hafi verið farið að líða betur.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 3. september 2024. Með erindi, dags. 26. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 10. mars 2025, hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund sem haldinn hafi verið af hálfu Vinnumálastofnunar þann 11. mars 2025, klukkan 14:30. Kærandi hafi verið upplýstur um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum, með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 10. mars 2025, klukkan 12:50. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan fund né boðað forföll.
Þann 13. mars 2025 hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem fram hafi komið að hann hefði ekki getað mætt sökum veikinda. Jafnframt hafi fylgt afrit af læknisvottorði þar sem fram hafi komið að kærandi hefði verið óvinnufær sökum sjúkdóms á tímabilinu 7.-13. mars 2025. Þann 20. mars 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan fund. Skýringar hafi borist frá kæranda þann 24. mars 2025. Kærandi hafi sagt að hann hefði verið rúmliggjandi vegna veikinda og því ekki getað mætt né boðað forföll á boðaðan upplýsingafund. Kærandi hafi jafnframt verið að glíma við þunglyndi og hafi af þeim sökum leitað aðstoðar hjá sálfræðingi. Með erindi, dags. 1. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hann hefði ekki mætt á boðað námskeið hjá Vinnumálastofnun. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á upplýsingafund þann 11. mars 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu um að skyldumæting væri á námskeið. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund og ekki tilkynnt um forföll. Nokkrum dögum eftir að upplýsingafundurinn hafi farið fram hafi borist skýringar frá kæranda þess efnis að hann hefði verið óvinnufær vegna sjúkdóms á þeim tíma sem fundurinn hafi verið haldinn. Framangreindar skýringar kæranda geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar fyrir fjarveru á boðuð vinnumarkaðsúrræði. Í boðun hafi verið skýrt tilgreint að atvinnuleitendum væri skylt að mæta á upplýsingafundinn. Kærandi hafi ekki boðað forföll og Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynning um veikindi fyrr en nokkrum dögum eftir að hann hafi átt að mæta á boðaðan upplýsingafund hjá stofnuninni. Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds hafi það verið niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skyldi sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði frá og með 1. apríl 2025 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 10. mars 2025 boðaður á upplýsingafund á vegum Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 11. mars 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Þá var kærandi upplýstur um að ef hann sæi sér ekki fært að mæta gæti hann sent skýringarbréf gegnum „Mínar síður/skila gögnum“. Þá kom fram að væri hann ekki á svæðinu gæti hann mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar innan 24 klukkustunda frá því að skilaboðin væru send. Jafnframt var vakin athygli á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laga um atvinnuleysistryggingar.
Fyrir liggur að kærandi mætti ekki á boðaðan upplýsingafund. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi verið veikur frá 5. til og með 11. mars 2025.
Í gögnum málsins liggur fyrir læknisvottorð til Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi verið óvinnufær með öllu vegna sjúkdóms frá 7. til 13. mars 2025. Kærandi hefur gert athugasemd við það að Vinnumálastofnun hafi tekið vottorðið gilt við útreikning atvinnuleysisbóta fyrir mars en ekki sem skýringu á fjarvist kæranda á boðuðum upplýsingafundi þann 11. mars 2025.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í framangreindri boðun Vinnumálastofnunar kom skýrt fram að kæranda bæri að mæta til stofnunarinnar á fund. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann tilkynnti ekki fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Þá verður ekki fallist á að það hafi áhrif á niðurstöðu í málinu að Vinnumálastofnun hafi notað læknisvottorðið við útreikning á bótarétti kæranda en samkvæmt 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 hefur einstaklingur sem fær greiddar atvinnuleysisbætur fimm daga veikindarétt áður en veikindi hafa áhrif á bótarétt.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir