09 júlí 2025

/

Mál nr. 238/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 238/2025

Miðvikudaginn 9. júlí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 10. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. mars 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 20. september 2024 og var umsóknin samþykkt 10. október 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. mars 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar vegna ótilkynntrar ferðar erlendis.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. apríl 2025. Með bréfi, dags. 22. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 15. maí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. maí 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 5. júní 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. júní 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því í kæru að hann hafi farið erlendis laugardaginn 8. mars 2025 og hafi ætlunin verið að vera til 8. apríl 2025. Kæranda hafi orðið á að gleyma að tilkynna ferðalagið og hafi ætlað að tilkynna það þegar hann væri kominn á áfangastað, en það hafi farist fyrir.

Þann 10. mars 2025 hafi kærandi fengið tölvupóst frá Vinnumálastofnun um áríðandi fund á B. Þá hafi kærandi áttað sig á því að hann hafi átt eftir að tilkynna ferð sína erlendis sem hann hafi gert 10. mars 2025. Kærandi hafi talið að það væri í lagi að það vantaði laugardag og sunnudag þar sem það væru frídagar.

Vanræksla kæranda á skráningu skrifist á gleymsku hans en ekki einbeittan brotavilja. Við að sjá tölvupóstinn frá Vinnumálastofnun hafi runnið upp fyrir kæranda að hann hafi gleymt að skrá sig í frí. Kærandi hafi skráð sig inn á „Mínar síður“ og tilkynnt ferðina.

Kærandi telji ákvörðunina óréttmæta og ekki í neinu samræmi við þá yfirsjón sína að vera ekki búinn að tilkynna fyrirhugað ferðalag erlendis laugardaginn 8. mars 2025 þar sem laugar- og sunnudagar teljist ekki til vinnudaga. Kærandi hafi tilkynnt feralagið strax á mánudagsmorgun 10. mars 2025 eftir að hafa fengið tölvupóst frá Vinnumálastofnun og upp hafi runnið fyrir honum að hann hefði gleymt að skrá sig inn á vef Vinnumálastofnunar í ferðalagi erlendis.

Kærandi hafi lagt sig fram um að leita að vinnu en það hafi ekki tekist. Það sé ekki einfalt fyrir X ára mann í B sem hafi aldrei verið atvinnulaus á ævinni að fá vinnu, þrátt fyrir mikla þekkingu og færni á mörgum sviðum.

Kærandi óski eftir því að úrskurðarnefnd velferðarmála endurskoði ákvörðun um niðurfellingu bóta í tvo mánuði vegna yfirsjónar og gleymsku við skráningu á ferð erlendis frá 8. mars til 8. apríl 2025. Kærandi leggi áherslu á að um mistök hafi verið að ræða sem hafi verið leiðrétt. Niðurfelling bóta í tvo mánuði sé ekki í samræmi við hið ætlaða brot, sem hafi í raun aðeins verið hluta úr mánudegi.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn 20. september 2024. Með erindi, dags. 10. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 10. mars 2025 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund sem hafi verið haldinn á vegum Vinnumálastofnunar á B þann 11. mars 2025, klukkan 10:45. Vakin hafi verið athygli á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 10. mars 2025, klukkan 09:40. Tölvupóstur hafi jafnframt verið sendur á skráð netfang kæranda X þar sem athygli kæranda hafi verið vakin á að hann ætti ný skilaboð á „Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar, vmst.is. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund. Kærandi hafi sent tölvupóst þann 10. mars 2025, klukkan 09:51 á netfangið [email protected] þar sem hann hafi boðað forföll sökum þess að hann væri staddur erlendis á tímabilinu 8. mars til 8. apríl 2025. Kærandi hafi ekki tilkynnt um þessa ferð sína erlendis til Vinnumálastofnunar. Þann 17. mars 2025 hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skriflegum skýringum á því hvers vegna hann hefði ekki tilkynnt fyrir fram um ferð sína erlendis ásamt afriti af flugfarseðlum þar sem brottfarar- og komutími væru tilgreindir.

Þann 17. mars 2025 hafi borist flugfarseðlar frá kæranda sem hafi staðfest að kærandi hafi sannarlega farið erlendis þann 8. mars 2025 og ætti flugmiða með heimkomu aftur til Íslands þann 8. apríl 2025. Jafnframt hafi borist skriflegar skýringar frá kæranda. Kærandi hafi ekki skilið af hverju Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á ótilkynntri ferð hans erlendis. Kærandi hafi talið að hann hafi tilkynnt ferð erlendis með afboðun sinni með tölvupósti þann 10. mars 2025.

Með erindi, dags. 28. mars 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði þar sem hann hafi látið hjá líða að tilkynna stofnuninni fyrir fram um dvöl sína erlendis. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að í ljósi þess að hann uppfyllti ekki skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysisbóta þann tíma sem hann væri erlendis fengi hann ekki greiddar atvinnuleysisbætur vegna þess tímabils.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 10. apríl 2025. Í kæru greini kærandi frá því að hann hafi gleymt að tilkynna um ferð sína fyrir fram. Kærandi telji ákvörðun Vinnumálastofnunar óréttmæta sökum þess að hann hafi tilkynnt um ferð sína í kjölfar boðunar á upplýsingafund.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði vegna ótilkynntrar dvalar erlendis.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi m.a. að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í c. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Þar segir:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 37/2009 segi meðal annars að „láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna.“

Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu atvinnuleitanda. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingarskyldu hins tryggða, en þar segi orðrétt:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. h-lið 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur vísvitandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Fyrir liggi að kærandi hafi dvalið erlendis á tímabilinu 8. mars til 8. apríl 2025. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að vera í virkri atvinnuleit. Það sé jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um þessa utanlandsferð sína líkt og honum hafi borið samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi því verið beittur viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna.

Í kæru til úrskurðarnefndarinnar hafi kærandi greint frá því að hann hefði gleymt að tilkynna um ferð sína erlendis fyrir fram. Hann hafi tilkynnt um ferð sína um leið og hann hafi verið boðaður á upplýsingafund þann 10. mars 2025.

Þegar rafrænni umsókn um greiðslu atvinnuleysisbóta sé skilað sé umsækjendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis. Umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn um réttindi og skyldur umsækjenda um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi samþykkt framangreinda skilmála þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni þann 20. september 2024. Kæranda hafi verið sendur tölvupóstur þann 20. september 2024 vegna umsóknar hans um atvinnuleysisbætur þar sem bent hafi verið á að ef farið væri erlendis þyrfti að tilkynna það fyrir fram og skila afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Þá séu víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Það sé ljóst að réttindi og skyldur atvinnuleitenda samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar stofnist frá og með umsóknardegi, enda séu atvinnuleysisbætur greiddar frá og með umsóknardegi skv. 29. gr. laganna. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laganna, þar á meðal ferðir sínar utanlands. Atvinnuleitendum beri því að uppfylla allar sínar skyldur við Vinnumálastofnunar á þeim tíma sem þeir séu skráðir í virkri atvinnuleit.

Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um utanlandsferð sína líkt og honum hafi borið. Hann hafi tilkynnt um ferð sína einungis eftir að hafa fengið boð um að mæta á upplýsingafund sem hafi verið haldinn af hálfu Vinnumálastofnunar. Eins og að framan greini hafi kærandi fengið upplýsingar um réttindi sín og skyldur, þar með talið varðandi tilkynningar á dvölum erlendis. Að öllu framangreindu virtu sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er hafi haft bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga og að hann skuli því sæta viðurlögum samkvæmt 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi staddur erlendis á tímabilinu 8. mars til 8. apríl 2025. Þá liggur fyrir að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um ferð sína fyrr en 10. mars 2025, eftir að hann hafði fengið boðun á fund á vegum stofnunarinnar.

Þar sem kærandir gætti ekki að því að tilkynna um framangreinda ferð sína fyrir fram verður fallist á það með stofnuninni að hann hafi brotið gegn upplýsingaskyldu sinni. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. mars 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir