09 júlí 2025

/

Mál nr. 242/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 242/2025

Miðvikudaginn 9. júlí 2025.

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 13. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. apríl 2025, um að synja umsókn hennar um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 14. mars 2025. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 4. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið synjað sökum þess að hún hefði ekki starfað í 24 mánuði frá því að hún sætti viðurlögum á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 15. október 2024.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 13. apríl 2025. Með bréfi, dags. 23. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 15. maí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. maí 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hún hafi ekki þegið bætur þegar hún hafi átt að mæta á umræddan fund.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að þann 15. október 2024 hafi kæranda verið gert að sæta greiðslustöðvun á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum fjarveru hennar á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Fyrir hafi legið að kærandi hafi ekki sinnt boðun á upplýsingafund sem haldinn hafi verið á þjónustuskrifstofu Vinnumálstofnunar þann 4. september 2024. Þar sem kærandi hafi á þeim tíma fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá stofnuninni í rúmlega 27 mánuði hafi ákvörðunin falið í sér að hún hafi ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrr en hún hefði starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hún hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur.

Kærandi hafi sótt aftur um greiðslur atvinnuleysisbóta þann 14. mars 2025. Með erindi dags. 4. apríl 2025 hafi kæranda verið tilkynnt ákvörðun stofnunarinnar að hafna umsókn hennar um atvinnuleysisbætur þar sem hún hefði ekki starfað í 24 mánuði frá því að hún sætti viðurlögum á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 13. apríl 2025.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Sé með lögunum verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Atvinnuleysistryggingar veiti hinum tryggðu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.

Mál þetta varði ákvörðun Vinnumálastofnunar að láta kæranda sæta viðurlögum á grundvelli 58. og 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Sú ákvörðun sé frá 15. október 2024. Kærufrestur vegna þeirrar ákvörðunar hafi því verið liðinn þegar kæra hafi borist nefndinni í apríl 2025, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.

Eftir standi hvort kærandi hafi átt rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni að nýju í byrjun apríl 2025.

Samkvæmt 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli sá sem fengið hafi greiddar atvinnuleysisbætur í 24 mánuði eða lengur á sama tímabili, þegar atvik sem leiða til biðtíma eigi sér stað, ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr. laganna. Kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins í október 2024, enda hefði hún fengið greiddar atvinnuleysisbætur í rúma 27 mánuði þegar atvik hafi átt sér stað.

Í 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um hvenær nýtt tímabil geti hafist áður en fyrra tímabili ljúki að fullu. Ákvæðið hljóði svo:

„Nýtt tímabil skv. 29. gr. hefst þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Að öðru leyti gilda ákvæði III. og IV. kafla um skilyrði atvinnuleysistryggingar hins tryggða eftir því sem við getur átt.“

Þegar kærandi hafi sótt aftur um greiðslur atvinnuleysisbóta þann 14. mars 2025 hafi ekki verið liðnir 24 mánuðir frá því að viðurlagaákvörðun hafi verið birt kæranda. Hún hafi því ekki starfað samfellt í a.m.k. 24 mánuði frá því að hún hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur í mars 2025. Því hafi borið að hafna umsókn hennar um atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að hafna beri umsókn kæranda og að kærandi geti fyrst átt rétt á atvinnuleysisbótum eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. apríl 2025, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur með vísan til þess að hún hefði ekki starfað í að minnsta kosti 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hún sætti viðurlögum á grundvelli ákvörðunar stofnunarinnar.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2024, voru greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 en þá hafði hún þegið atvinnuleysisbætur í tæplega 27 mánuði.

Í 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 segir að ef hinn tryggði hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. Í því ákvæði kemur fram að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Fyrir liggur að kæranda var synjað um frekari greiðslur atvinnuleysisbóta með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2024. Þar sem kærandi hafði ekki, þegar umsókn hennar barst Vinnumálastofnun þann 14. mars 2025, starfað samfellt í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hún sætti viðurlögum hafði hún ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. apríl 2025, um að synja umsókn A, um greiðslu atvinnuleysisbóta, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir