09 júlí 2025
/
Mál nr. 246/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 246/2025
Miðvikudaginn 9. júlí 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 16. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. apríl 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 5. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 19. desember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. apríl 2025. Með bréfi, dags. 23. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 16. maí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. maí 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa þann 18. mars 2025 fengið smáskilaboð frá Vinnumálastofnun um að hann ætti skilaboð á „Mínum síðum“. Kærandi hafi því miður ekki getað opnað skilaboðin í tæki sínu. Að auki hafi hann verið með 39,5 stiga hita. Fundur Vinnumálastofnunar hafi verið haldinn þann 19. mars 2025, klukkan 9:00, en kærandi hafi ekki getað mætt á fundinn þar sem hann hafi ekki náð að opna umrædd skilaboð frá stofnuninni. Sama dag, klukkan 11:00, hafi eiginkona kæranda skráð sig inn á „Mínar síður“ kæranda í tölvu í vinnunni og náð að lesa skilaboðin um boðun á fundinn. Þar sem kærandi hafi enn verið veikur þann dag hafi hann fengið læknisvottorð og sent það til Vinnumálastofnunar ásamt skýringum þann 20. mars 2025.
Þann 2. apríl 2025 hafi kærandi fengið skilaboð frá Vinnumálastofnun um „stöðvun“ en kærandi hafi ekki getað lesið innihald skilaboðanna. Hann hafi aðeins getað lesið upplýsingar um að hann þyrfti aftur að veita skýringar á fjarveru sinni sem hann hafi gert í gegnum tölvupóst þann 4. apríl 2025. Kærandi hafi jafnframt mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, útskýrt mál sitt og bent á að hann hefði þegar veitt skýringar í tvígang og lagt fram læknisvottorð. Fulltrúi Vinnumálastofnunar hafi þá tjáð kæranda að hann þyrfti að bíða eftir ákvörðun stofnunarinnar.
Þann 11. apríl 2025 hafi kærandi fengið skilaboð um að stöðu hans hefði verið breytt í „refsing“ en hann hafi enn ekki getað lesið skilaboðin á „Mínum síðum“. Þegar kærandi hafi skráð sig inn í öðru tæki hafi hann getað lesið ákvörðunina þar sem komið hafi fram að hann hefði ekki skilað inn gögnum og skriflegum skýringum og að hann hefði haft sjö daga til þess. Hefði kærandi vitað að hann þyrfti að mæta í eigin persónu og leggja fram skjöl hefði hann gert það. Hann hefði hins vegar óskað eftir upplýsingum frá Vinnumálastofnun þann 4. apríl 2025 um hvað hann gæti gert þar sem honum hefði fundist staðan undarleg.
Læknisvottorð kæranda sé frá 18. til 19. mars 2025 en þá hafi kærandi verið rúmliggjandi með háan hita. Kærandi hafi ekki getað lesið skilaboð Vinnumálastofnunar frá 18. mars 2025 og eiginkona hans hafi aðeins getað lesið þau þann 19. mars 2025 um klukkan 11:00. Þá hafi kærandi komist að því að hann hefði átt að mæta á fund klukkan 9:00 þann dag. Kærandi hafi þá strax haft samband við lækni, greint frá líðan sinni og óskað eftir læknisvottorði. Læknirinn hafi ráðlagt kæranda að fara ekki út úr húsi og kærandi hafi í kjölfarið sent Vinnumálastofnun vottorðið.
Kærandi hafi ekki mætt á fundinn af heilsufarsástæðum, en ekki vegna þess að hann hafi ekki viljað mæta. Hann hafi ekki sent læknisvottorðið fyrr en eftir að fundinum hafi verið lokið af ástæðum sem hann hafi þegar tilgreint. Í fyrsta lagi hafi kærandi ekki getað lesið innihald skilaboðanna á „Mínum síðum“ úr sínu tæki og í öðru lagi hafi hann verið veikur. Frá upphafi hafi hann reynt að útskýra þessa stöðu. Hann hafi tvisvar veitt skýringar og sent læknisvottorð til stofnunarinnar. Hann hafi einnig mætt í eigin persónu til þess að fá frekari upplýsingar. Þegar kærandi hafi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar hafi honum verið tjáð að það eina sem hann þyrfti að gera væri að bíða eftir ákvörðun í málinu.
Kærandi búi á Íslandi og eigi hér fjölskyldu. Hann reki eigið heimili og sjái um níu ára son sinn og geti því ekki verið án lífsviðurværis. Á sama tíma hafi hann beðið lengi eftir einhverju atvinnutilboði frá Vinnumálastofnun en vegna óheppilegrar atburðarásar hafi hann ekki mætt á boðaðan fund. Kærandi óski því eftir að mál hans verið endurskoðað. Hann hafi frá upphafi sýnt einlægni og vilja til að útskýra stöðuna.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 5. nóvember 2024. Með erindi, dags. 19. desember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Með erindi, dags. 18. mars 2025, hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Grensásvegi 9 í Reykjavík sem hafi átt að fara fram þann 19. mars 2025, klukkan 9:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 18. mars 2025, klukkan 8:41 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang, X, og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 18. mars 2025, klukkan 8:41. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan kynningarfund né boðað forföll.
Þann 20. mars 2025 hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem fram hafi komið að hann hefði ekki getað mætt á boðaðan kynningarfund þann 19. mars 2025 sökum veikinda. Þann 28. mars 2025 hafi borist skjáskot af læknisvottorð af tölvuskjá frá kæranda þar sem fram hafi komið að hann hefði verið veikur á tímabilinu 18. til 19. mars 2025 og því ekki getað mætt á boðaðan kynningarfund. Umrætt læknisvottorð hafi verið útgefið þann 19. mars 2025.
Með erindi, dags. 2. apríl 2025, hafi verið óskað eftir nánari skýringum á fjarveru kæranda. Áréttað hafi verið að hefði kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Jafnframt hafi athygli verið vakin á að hefði kærandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar á högum gæti það leitt til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Engar frekari skýringar hafi borist frá kæranda.
Með erindi, dags. 11. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að í ljósi þess að hann hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun tafarlaust um veikindi sín væri það niðurstaða stofnunarinnar að bótaréttur kæranda skyldi felldur niður í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Í kæru greini kærandi frá því að hann hafi verið alvarlega veikur daginn sem boðun hafi verið send þann 18. mars 2025. Hann hefði verið með óráði vegna hita og því ekki getað lesið skilaboð frá Vinnumálastofnun og ekki getað boðað [forföll] fyrr en að loknum veikindum.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund. Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni sem lúti að því að hann hafi ekki mætt sökum veikinda. Meðal gagna í máli þessu sé læknisvottorð, útgefið dags. 19. mars 2025, þar sem fram komi að kærandi hafi verið veikur á tímabilinu 18. til 19. mars 2025.
Í ljósi þess að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín án ástæðulausrar tafar hafi honum með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 11. apríl 2025, verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Þannig sé meðal annars í 3. mgr. 9. gr. laganna kveðið á um að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal um upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði.
Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum þeirra að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. 14. gr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segi í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um veikindi sín fyrr en eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á fjarveru hans í boðað viðtal við ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Í skýringum beri kærandi við ómöguleika á að tilkynna Vinnumálastofnun um veikindi sín sökum alvarlegra veikinda. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um veikindi sín sem hafi hafist þann 18. mars 2025. Ekki verði séð af fyrirliggjandi gögnum að kærandi hafi verið ófær um að tilkynna Vinnumálastofnun um veikindi sín sökum alvarleika veikinda. Vinnumálstofnun telji að kærandi hafi ekki uppfyllt áskilnað 2. mgr. og 5. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um að tilkynna veikindi sín án ástæðulausrar tafar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun þann 19. mars 2025 vegna veikinda. Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun um veikindi þann 20. mars 2025 og kvaðst hafa verið veikur á fundardegi. Kærandi skilaði inn læknisvottorði sama dag þar sem fram kom að hann hefði verið veikur frá 18. til 19. mars 2025.
Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um upphaf veikinda sinna þann 18. mars 2025. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. apríl 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir