09 júlí 2025

/

Mál nr. 251/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 251/2025

Miðvikudaginn 9. júlí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 22. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. apríl 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. ágúst 2024 og var umsóknin samþykkt 22. ágúst 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hennar til atvinnuleysisbóta.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. apríl 2025. Með bréfi, dags. 28. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 4. júní 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. júní 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 11. og 13. júní 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. júní 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að um óviljaverk hafi verið að ræða. Hún óski því eftir að mál hennar verði endurskoðað. Kærandi hafi flogið til B þar sem hún hafi farið í rannsóknir. Hún muni svo fljúga aftur til Íslands.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar greinir kærandi frá því að hún hugsi ekki um að senda tölvupósta eða skilaboð þegar hún sé veik. Sjúkdómur hennar sé ekki uppspuni heldur hafi hann verið greindur af læknum. Auk þess eigi kærandi að fara í aðgerð á næstunni.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 1. ágúst 2024. Með erindi, dags. 22. ágúst 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 98%.

Með erindi, dags. 18. mars 2025, hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Grensásvegi 9 í Reykjavík sem hafi átt að fara fram þann 19. mars 2025, klukkan 11:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 18. mars 2025, klukkan 10:28 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang, X, og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 18. mars 2025, klukkan 10:28. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan kynningarfund né boðað forföll.

Þann 31. mars 2025 hafi kærandi óskað eftir skýringum á því hvers vegna greiðslur atvinnuleysisbóta í marsmánuði væru svona lágar. Kærandi hafi verið upplýst um að þar sem hún væri skráð í orlof á tímabilinu 18. febrúar til 24. mars 2025 hefði hún einungis fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 25. til 31. mars 2025. Kærandi hafi óskað eftir að skráðu orlofi yrði breytt yfir á tímabilið 18. febrúar til 24. febrúar 2025 í stað 18. febrúar til 24. mars 2025. Vinnumálastofnun hafi orðið við beiðni kæranda og gert breytingu á skráðu orlofi til samræmis. Kærandi hafi þar af leiðandi fengið leiðréttar greiðslur.

Með erindi, dags. 2. apríl 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum á fjarveru kæranda á boðuðum upplýsingafundi. Áréttað hafi verið að hefði kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Jafnframt hafi athygli verið vakin á að hefði kærandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar á högum gæti það leitt til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Engar frekari skýringar hafi borist frá kæranda.

Þann 2. apríl 2025 hafi borist læknisvottorð frá kæranda þar sem fram hafi komið að hún hefði verið óvinnufær með öllu vegna sjúkdóms þann 19. mars 2025. Umrætt læknisvottorð hafi verið dagsett 20. mars 2025.

Með erindi, dags. 14. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að í ljósi þess að hún hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun tafarlaust um veikindi sín væri það niðurstaða stofnunarinnar að bótaréttur kæranda skyldi felldur niður í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í kæru greini kærandi frá því að henni hafi ekki liðið vel sökum veikinda daginn sem hún hafi verið boðuð á upplýsingafund. [...]

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund. Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni sem lúti að því að hún hafi ekki mætt sökum veikinda. Meðal gagna í máli þessu sé læknisvottorð, útgefið dags. 20. mars 2025, þar sem fram komi að kærandi hafi verið veik þann 19. mars 2025.

Í ljósi þess að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín án ástæðulausrar tafar hafi henni með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 14. apríl 2025, verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Þannig sé meðal annars í 3. mgr. 9. gr. laganna kveðið á um að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal um upplýsingaskyldu. Í lok umsóknar staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði.

Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum þeirra að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. 14. gr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segi í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar.

Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín fyrr en eftir að stofnunin hafi óskað eftir skýringum á fjarveru hennar í boðað viðtal við ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Í skýringum beri kærandi við ómöguleika á að tilkynna Vinnumálastofnun um veikindi sín sökum alvarlegra veikinda. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um veikindi sín þann 19. mars 2025. Ekki verði séð af fyrirliggjandi gögnum að kærandi hafi verið ófær um að tilkynna Vinnumálastofnun um veikindi sín sökum alvarleika veikinda. Vinnumálstofnun telji að kærandi hafi ekki uppfyllt áskilnað 2. mgr. og 5. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um að tilkynna veikindi sín án ástæðulausrar tafar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun þann 19. mars 2025 vegna veikinda. Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun um veikindi og skilaði inn læknisvottorði þann 31. mars 2025 þar sem fram kom að hún hefði verið óvinnufær með öllu vegna ótilgreinds sjúkdóms þann 19. mars 2025.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki strax um upphaf veikinda sinna 19. mars 2025. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. apríl 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir