09 júlí 2025

/

Mál nr. 258/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 258/2025

Miðvikudaginn 9. júlí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. apríl 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 26. júní 2024 og var umsóknin samþykkt 6. ágúst 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. apríl 2025. Með bréfi, dags. 28. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. júní 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa ekki ætlað að hunsa boðun á námskeið heldur hafi hann einfaldlega gleymt námskeiðinu og ekki fengið áminningu um það. Kærandi telji þó að hann eigi ekki skilið að bótaréttur hans sé felldur niður í tvo mánuði en hann hafi engar aðrar tekjur og sé enn í atvinnuleit. Hann muni því lenda í vandræðum næstu tvo mánuði.

 

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 26. júní [2024]. Með erindi, dags. 6. ágúst 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 20. mars 2025 hafi kæranda verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma sinn frá stofnuninni, klukkan 9:46, þar sem hann hafi verið boðaður á námskeið. Námskeiðið hafi verið haldið dagana 24., 25., 26., og 28. mars 2025 á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Grensásvegi 9 í Reykjavík. Umrædd boðun hafi verið send þann 20. mars 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang, X, og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 20. mars 2025, klukkan 8:48. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll hafi borið að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hafi aldrei mætt á boðað námskeið né boðað forföll.

Þann 4. apríl 2025 hafi skriflegar skýringar borist frá kæranda þar sem fram hafi komið að hann hefði séð boð Vinnumálastofnunar á námskeið en hann hafi gleymt að skrá áminningu um mætingu á námskeið. Kærandi hafi viðurkennt að hann hefði gleymt að mæta á boðað námskeið.

Með erindi, dags. 14. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans sökum þess að hann hefði ekki sinnt boðun á námskeið. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á umrætt námskeið. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 4. apríl 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun á fjarveru hans á boðað námskeið lúti að því að hann hafi gleymt að mæta á boðað námskeið.

Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Boðun til umrædds námskeiðs hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í boðun til kæranda hafi komið skýrt fram að um skyldumætingu væri að ræða og bent á að fjarvera gæti leitt til stöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Því verði að líta svo á að kærandi hafi brugðist skyldu sinni sem atvinnuleitandi að mæta á boðað námskeið og hafi ekki gildar skýringar á fjarveru sinni.

Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið hafi kærandi brugðist skyldum sínum og beri því að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 20. mars 2025 boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem var haldið í fjögur skipti á tímabilinu 24. til 28. mars 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband við stofnunina ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga.

Fyrir liggur að kærandi mætti ekki á námskeiðið og tilkynnti engin forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi gleymt að mæta á námskeiðið.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að honum bæri að uppfylla mætingarskyldu á boðað námskeið. Þar sem kærandi hvorki mætti né boðaði forföll á námskeiðið kom til viðurlaga á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. apríl 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir