09 júlí 2025
/
Úrskurður nr. 561/2025
Hinn 9. júlí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 561/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24050165
Kæra […]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 27. maí 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. maí 2024, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 21. febrúar 2023. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd vegna efnahagsástandsins í Venesúela. Kærandi kvaðst búa á landamærum Venesúela og Kólumbíu á svæði sem væri hersetið. Kærandi kvaðst vera læknir og greindi frá því að hafa orðið fyrir kynferðislegu áreiti af þeim sem stjórnuðu heimasvæði hennar.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 2. ágúst 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Kærandi kvaðst hafa búið í húsi í eigu foreldra sína í Guasdualito í Apure fylki þegar hún flúði heimaríki. Kærandi kvaðst hafa starfað sem læknir á herspítala og ríkisspítala og síðar hjá hjálparsamtökum. Kærandi kvaðst vera aðili að stjórnmálaflokkinum Acción Democrática og hafi mætt á mótmæli. Kærandi kvaðst tilheyra minnihlutahópi vegna þess að hún sé aðili að stjórnmálaflokkinum Acción Democrática og á grundvelli kynhneigðar sinnar. Kærandi kvaðst vera samkynhneigð en hafi haldið því leyndu.
Kærandi kvað helstu ástæður flótta síns vera kynferðisofbeldi sem hún hafi orðið fyrir 14. desember 2022 af hálfu manns sem heiti […] (hér eftir X). Hafi kærandi kynnst X í mótmælum í júlí árið 2022. Hafi X sýnt kæranda áhuga og daðrað við hana sem hafi síðan þróast í áreiti. Kærandi hafi greint X frá því að hún væri samkynhneigð og beðið hann um að hætta að reyna við sig en þá hafi hann orðið ágengur og m.a. sagt henni að hún þyrfti að sofa hjá karlmanni til þess að hætta að vera lesbía. Hafi X komið með vélar og aðföng á spítalann sem hún starfaði hjá til þess að sýna henni hversu ríkur og valdamikill hann væri. Í kjölfarið hafi X byrjað að hóta kæranda að ef hún myndi ekki giftast honum þá myndi hann segja yfirmönnum hennar frá kynhneigð hennar. Kærandi kvað X hafa í september 2022 látið rekið hana úr störfum hennar á framangreindum spítölum. Í kjölfarið hafi kærandi hafið störf hjá fjölskyldu sinni í matvöruverslun þar sem maðurinn hafi haldið áfram að áreita hana. Henni hafi síðar verið boðið starf hjá mannúðarsamtökum Fundación Red de Emergencia y Ayuda Humanitaria Venezuela (FUNREAHV). Hafi X haldið áfram að áreita kæranda þar og tjáð henni að hann myndi ekki láta hana í friði fyrr en hún yrði eiginkona hans og hætti að starfa hjá stjórnmálaflokkum og hefði störf hjá honum. Kærandi greindi frá því að 12. desember 2022 hafi hún fengið skilaboð frá manninum þar sem hann hafi sagt að hún yrði sín með góðu eða illu.
Kærandi greindi frá því að 14. desember árið 2022 hafi forseti Venesúela hafi látið handtaka sex samstarfsmenn hennar án skýringa. Kærandi kvaðst þá hafa verið boðið að taka þátt í mótmælum á vegum Acción Democrática til þess að krefjast að þeim yrði sleppt úr haldi. Á leið sinni heim af mótmælunum hafi tveir grímuklæddir menn á mótorhjólum elt hana. Rétt áður en kærandi hafi verið komin heim hafi annar maðurinn farið af mótorhjólinu og ýtt henni inn um dyrnar heima hjá henni og hrint henni á gólfið. Kærandi kvað mennina hafa sagt sér að þetta væri allt henni að kenna og beint byssu að henni. Annar maðurinn hafi sagt henni að hann ætlaði að kenna henni hvernig væri að vera með manni og hvernig hún ætti að hætta að vera lesbía. Í kjölfarið hafi maðurinn afklætt hafa og beitt hana kynferðislegu ofbeldi í u.þ.b. tíu mínútur. Kærandi kvaðst hafa vitað að maðurinn hafi verið X vegna þess að hún hafi þekkt lyktina af honum og röddina hans. Á meðan ofbeldinu stóð hafi faðir kæranda komið inn á heimilið og þá hafi hinn maðurinn kýlt hann og slegið hann þannig að höfuðkúpa hans hafi brotnað og hann hlotið heilaskaða. Kærandi kvaðst hafa hringt á bráðamóttökuna eftir að mennirnir hafi flúið því faðir hennar hafi blætt svo mikið og miklar blæðingar hafi verið úr leggöngum hennar. Kærandi kvaðst hafa lagt fram kæru til rannsóknarlögreglunnar, CICPC, vegna atviksins. Kærandi greindi frá því að í skýrslutöku hafi henni verið sagt að hún ætti ekki að ásaka X og því hafi nafn hans ekki verið skráð í lögregluskýrsluna. Jafnframt hafi kæranda verið meinað að leggja fram gögn sem gætu sýnt fram á að X ætti í hlut. Eftir skýrslutökuna hafi kærandi farið í matvöruverslun í eigu fjölskyldu sinnar að sækja pening til þess að kaupa lyf sem læknarnir hafi þurft til þess að hlúa að föður hennar. Þegar kærandi hafi komið í verslunina hafi verðir X læst hurðinni, tekið símann af henni og eytt gögnum úr honum. Kærandi kvaðst í kjölfarið hafa farið á spítalann til föður hennar og þangað hafi maður komið með rósir með miða sem á hafi staðið „það er ekki staður í heiminum sem þú getur falið þig frá mér“. Kærandi kvaðst í kjölfarið hafa sagt upp störfum hjá mannúðarsamtökunum. Kærandi kvaðst hafa kynnst manni í mannúðarsamtökunum sem hafi mælt með því að hún sækti um alþjóðlega vernd á Íslandi vegna þess að hún væri í lífshættu í Venesúela. Kærandi greindi frá því X hefði ítök víða í Suður-Ameríku og hann og forseti landsins stjórni glæpasamtökunum Tren de Aragua. Kærandi greindi frá því að auðvelt væri fyrir X að nálgast hana í allri Suður-Ameríku. Kærandi kvaðst hafa haldið sig heima þar til hún og fjölskylda hennar hafi safnað nægum pening til þess að ferðast til Íslands. Kærandi kvaðst jafnframt hafa verið niðurlægð frá yfirmönnum og samstarfsmönnum vegna kynhneigðar sinnar.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 27. maí 2024. Greinargerð barst kærunefnd 11. júní 2024 ásamt fylgigögnum. Hinn 16. júní 2025 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Með tölvubréfi 19. júní 2025 bárust frekari upplýsingar og gögn frá kæranda.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar. Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og viðtals hennar hjá stofnuninni hvað málsatvik varðar.
Kærandi krefst þess aðallega að henni verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því hún sé utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsótt vegna stjórnmálaskoðana sinni og aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi og geti ekki vegna slíks ótta fært sé í nyt vernd í heimaríki. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að á mótmælum á vegum stjórnmálaflokksins Acción Democrática um miðjan júlí 2022 hafi hún kynnst manni að nafni […] (hér eftir X). Hafi X í kjölfarið viljað að hann og kærandi ættu í rómantísku sambandi. Þrátt fyrir að kærandi hafi tjáð honum að hún hefði ekki áhuga hafi hann haldið áfram viðleitni sinni. Hafi X meðal annars tjáð kæranda að þau myndu giftast og hún myndi hætta í framangreindum stjórnmálaflokki. Í september 2022 hafi X komið því til leiðar að kærandi var rekinn úr starfi sínu á báðum þeim spítölum sem hún hafi starfað hjá. Hinn 14. desember 2022 hafi einstaklingar elt hana heim og ráðist á hana og annar þeirra beitt hana kynferðisofbeldi. Hafi mennirnir sagt við hana ítrekað að ástæða árásarinnar væri sú að hún styddi framangreindan stjórnmálaflokk. Daginn eftir hafi kærandi farið í verslun fjölskyldu sinnar og þar hafi ríkislögreglumen á vegum X komið, tekið símann af henni og eytt mest öllum gögnum um samskipti hennar við X. Þá byggir kærandi á því að óháð þeim aðstæðum sem tengist X og aðilum á hans vegum þá hafi hún ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana vegna áberandi þátttöku hennar í starfi fyrir stjórnmálaflokkinn Acción Democrática og mótmælum á hans vegum.
Kærandi mótmælir því sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar að skjáskot af skilaboðum sem hún lagði fram við meðferð málsins innihaldi ekki hótanir eða óviðeigandi skilaboð og að ekki sé hægt að sjá hver viðtakandi skilaboðanna sé. Kærandi bendir á að af skjáskotunum megi sjá að X sendi henni ítrekað skilaboð án þess að hún svari á móti. Kærandi telur slíkt samræmast frásögn hennar um ágengni X gagnvart henni þrátt fyrir að hafa tjáð honum að hún hefði ekki áhuga á sambandi við hann. Kærandi bendir jafnframt á að þegar spjallgluggi á tilgreindu samskiptaforriti sé skoðaður með þeim hætti sem sést í framangreindum fylgiskjölum sjáist viðtakandi skilaboðanna ekki. Kærandi mótmælir einnig mati Útlendingastofnunar á að skjáskotin hafi takmarkað gildi við úrlausn máls kæranda þar sem erfitt sé að festa hendur á uppruna þeirra og gildi þeirra, t.a.m. hvort átt hafi verið við þær eða ekki. Kærandi ber við að ekki sé að sjá nein merki þess að átt hafi verið við myndirnar og einnig að þær séu trúverðugar í ljósi samræmis þeirra við frásögn kæranda og önnur gögn málsins.
Kærandi mótmælir því sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar að hún hafi ekki lagt fram gögn sem styðji við frásögn hennar hvað varðar hótanir X gagnvart henni um að láta yfirmenn hennar vita af kynhneigð hennar svo að henni yrði sagt upp störfum. Kærandi bendir að hún hafi lagt fram skjal við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun sem sýnir tengsl X við spítalann sem hún hafi starfað á. Á myndinni sjáist X með forstöðukonu spítalans. Kærandi vísar jafnframt til færslu tilgreindum samfélagsmiðli frá 25. ágúst 2022 á síðu sveitarfélagsins Páez í Apure fylki um ráðningu hennar sem forstöðukonu spítalans. Kærandi byggir á því að framangreind tengsl ásamt öðrum gögnum málsins ýti undir trúverðugleika frásagnar hennar hvað framangreint varðar.
Kærandi mótmælir jafnframt því sem fram kemur í ákvörðun stofnunarinnar varðandi árás sem hún hafi orðið fyrir 14. desember 2022, um að af lögregluskýrslum kæranda og föður hennar verið ekki ráðið hver hafi verið að verki og að kærandi hafi ekki sýnt fram á eða leitt líkur að því með fullnægjandi hætti að hún hafi verið sérstakt skotmark gerendanna, né að árásin hafi verið framkvæmd vegna kynhneigðar eða stjórnmálaskoðana kæranda. Kærandi vísar til þess að fram komi í lögregluskýrslunni að hún hafi greint frá því að hvati árásarinnar hafi verið af stjórnmálalegum toga. Kærandi ber við að frásögn hennar í lögregluskýrslunni sé trúverðug og að ekki sé nærtækt að álykta annað en að viðkomandi árásarmenn hafi í raun látið þau orð falla sem kærandi gerir grein fyrir í skýrslunni. Hvað auðkenni árásarmannanna varðar vísar kærandi til frásagnar hennar í framlagðri lögregluskýrslu þar sem hún lýsir því að hún hafi verið elt og áreitt og telur hún þá tilvísun vera í samræmi við frásögn hennar um það áreiti sem hún hafi mátt þola af hálfu X.
Kærandi ber við að sönnunarmat Útlendingastofnunar í máli hennar sé of strangt og ónákvæmt. Þá telur kærandi Útlendingastofnun ekki fjalla nægilega um innihald lögregluskýrslu sem hún lagði fram við meðferð málsins þar sem fram kemur stjórnmálalegur hvati gerendanna í árásinni þann 14. desember 2022 sem sé mikilvægur hluti málsins og ljái frásögn hennar aukinn trúverðugleika. Kærandi byggir á því að þegar litið er á frásögn hennar og framlögð gögn í samhengi hvert við annað myndi þau samræmda og trúverðuga heild. Hvað sönnunarmat varðar vísar kærandi í málsgreinar 203 í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna. Með vísan til framangreinds byggir kærandi á því að með frásögn hennar og framlögðum gögnum hafi hún leitt nægilegum líkum að því að hún fullnægi efnisskilyrðum 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir því að teljast flóttamaður.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að henni verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að raunhæf ástæða sé til að ætla að hún eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hún verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka verði hún send aftur til heimalands síns. Kærandi byggir á því að hún hafi leitt nægilega sterkum líkum að því að hún eigi a.m.k. í hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð verði hún send aftur til Venesúela. Við mat á heimfærslu tilviks kæranda undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vísar kærandi m.a. til umfjöllunar í greinargerð sinni hjá Útlendingastofnun.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hún hafi ríka þörf fyrir vernd vegna erfiðra félagslegra og erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki hennar, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 25. júní 2025);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezeula (Britannica, síðast uppfært 25. júní 2025);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 19. júní 2025);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela Protection Analysis Update (Global Protection Cluster, 19. desember 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 morð á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Í skýrslu EASO, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að sambönd einstaklinga af sama kyni séu ekki refsiverð í Venesúela. Stjórnarskrá Venesúela leggi bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar. Þrátt fyrir það verði LGBTI+ einstaklingar fyrir mismunun, þ. á m. á atvinnu- og leigumarkaði sem og í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þeir hópar sem verði aðallega fyrir ofbeldi og mismunun séu trans- og intersex einstaklingar. LGBTI+ einstaklingar verði ekki fyrir kerfisbundnu ofbeldi af hálfu yfirvalda en lögreglumenn hafi meinað þeim um aðgang að opinberum stöðum og notfært sér lagalegt tómarúm til að áreita og beita slíka einstaklinga ofbeldi. Í skýrslu kanadíska flóttamanna- og innflytjendaráðsins frá 2021 kemur fram að LGBTI+ einstaklingar geti lagt fram kvartanir vegna mismununar og brota gegn þeim en ekkert kerfi hafi verið til staðar til að taka við kvörtunum og leysa úr þeim með fullnægjandi hætti. Þá veigri einstaklingar sem verði fyrir ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar sér við því að leita sér aðstoðar vegna vantrausts í garð lögregluyfirvalda. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að í maí 2022 hafi verið sett á fót sérstök skrifstofa sem ætlað sé að rannsaka brot á réttindum LGBTI+ hópsins. Í fyrrnefndri skýrslu EASO kemur fram að hagsmunasamtök berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga í Venesúela. Í skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 8. ágúst 2023 kemur fram að gefnar hafi verið út leiðbeiningar til að stuðla að því að LBGTI+ einstaklingar hljóti vernd og aðstoð í mannúðaraðgerðum. Leiðbeiningarnar feli í sér leiðsögn til mannúðarsamtaka, embættismanna, stofnana Sameinuðu þjóðanna og frjálsra félagasamtaka í landinu um hvernig veita eigi LBGTI+ einstaklingum viðeigandi þjónustu og stuðning án mismununar. Í ávarpi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að í mars 2023 hafi hæstiréttur Venesúela ógilt ákvæði í lögum landsins um herrétt (e. The Code of Military Justice) sem lagði refsingu við samkynja samböndum innan hersins. Þá hvatti Türk stjórnvöld í Venesúela til þess að vinna áfram að því að bæta réttindi LGBTI+ samfélagsins í landinu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda.
Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri öllum stéttum samfélagsins. Talið sé að 100 til 150 þúsund íbúar Venesúela séu múslimar eða 0,3 til 0,5 prósent af íbúum landsins. Af þeim séu sjía múslimar í minnihluta.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun í júlí 2024 höfðu um 530 venesúelskir ríkisborgarar yfirgefið Ísland sjálfviljugir á árinu 2024. Þá hafi a.m.k. 520 þeirra farið aftur til Venesúela. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hún sé í hættu í heimaríki vegna áreitis, kynferðisofbeldis og hótana sem hún hafi orðið fyrir af hálfu manns að nafni […], X, sem hafi verið aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra Venesúela og sé nú skattstjóri í Apure fylki. Kærandi kveðst vera samkynhneigð og aðili að stjórnmálaflokknum Acción Democrática og hafi tekið virkan þátt í mótmælum.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurriti af viðtali hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hennar.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa kynnst X á mótmælum í júlí 2022. Hafi X sent henni skilaboð, beðið hana um að giftast sér og sagt henni að hann myndi ekki láta hana í friði fyrr en hún myndi verða eiginkona hans og skrá sig úr Acción Democrática stjórnmálaflokknum. Kærandi kvað X jafnframt hafa hótað sér að ef hún myndi ekki giftast honum þá myndi hann segja yfirmönnum hennar frá kynhneigð hennar. Hafi kærandi ekki látið undan og X hafi í september 2022 látið reka hana úr starfi á spítölunum sem hún hafi starfað hjá. Hafi X haldið áfram að áreita kæranda. Kærandi greindi frá því að hafa tekið þátt í mótmælum með Acción Democratica 14. desember 2022. Þegar kærandi hafi verið á leið heim til sín eftir mótmælin hafi tveir grímuklæddir einstaklingar á sitt hvoru mótorhjólinu elt hana upp að dyrum og ráðist inn á heimili hennar. Hafi mennirnir sagt við hana að allt væri henni að kenna þar sem hún styddi framangreindan stjórnmálaflokk. Svo hafi annar maðurinn beitt hana kynferðislegu ofbeldi. Kærandi kvaðst telja að maðurinn hafi verið X þar sem hún þekkti lyktina af honum og röddina hans. Á meðan ofbeldið stóð hafi faðir kæranda komið inn og hafi hinn maðurinn ráðist á hann og veitt honum alvarlega áverka. Kærandi kvaðst hafa lagt fram kæru til rannsóknarlögreglunnar CICPS í kjölfar atviksins en lögreglan hafi sagt við hana þegar hún hafi nefnt X á nafn að hún gæti ekki ásakað hann og það yrði bara verra fyrir hana. Kærandi kvaðst hafa farið í matvöruverslun í eigu fjölskyldu sinnar eftir skýrslutökuna þar sem verðir á vegum X hafi tekið símann hennar af henni og eytt öllum gögnum úr honum. Kærandi vísaði til þess að nafngreindur maður hefði ítök víða í suður Ameríku og að hann og forseti landsins stjórnuðu glæpasamtökunum Tren de Aragua.
Í greinargerð kæranda er byggt á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki á grundvelli stjórnamálaskoðana hennar. Vísað er til þess að kærandi hafi verið áberandi í starfi stjórnmálaflokksins Acción Democrática og tekið þátt í mótmælum á hans vegum. Þá er vísað til þess að menn sem hafi ráðist inn á heimili hennar og beitt hana kynferðisofbeldi hafi tjáð henni að ástæðan fyrir ofbeldinu væri sú að hún styddi framangreindan flokk.
Í umfjöllun í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda, og séu skoðanirnar stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Í ljósi orðalags ákvæðisins, og með hliðsjón af því sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framburðar kæranda og framlagðra gagna er ekki ástæða til að draga í efa frásögn hennar um að hún hafi verið aðili að stjórnmálaflokknum Acción Democrática og tekið þátt í mótmælum gegn yfirvöldum í heimaríki. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað hafa öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðja ríkisstjórnina ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Þá hafi ríkisstjórn Maduro treyst á hersveitir, leyniþjónustu og Colectívos til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Þrátt fyrir að kærandi hafi verið skráð í stjórnarandstöðuflokki og mætt á mótmæli þá verður ekki séð að hún hafi gegnt áberandi hlutverki innan stjórnarandstöðuhreyfingarinnar eða sé útsettari en aðrir mótmælendur fyrir árásum eða hótunum. Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað að tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu á síðasta áratug. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Þá horfir kærunefnd til þess að í gögnum málsins liggur fyrir vegabréf kæranda útgefið 27. janúar 2022. Í vegabréfinu má sjá útstimplun frá Simon Bolivar flugvellinum 19. febrúar 2023. Gefur það til kynna að kærandi hafi getað farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvuð af yfirvöldum og ber ekki með sér að kærandi sé eftirlýst eða undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum í heimaríki sínu. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ljósmynd sem tilgreind er sem starfskírteini hennar á spítala í [...] í Tachíra fylki. Þá lagði kærandi einnig fram afrit af lögregluskýrslu, dags. 14. desember 2022. Skjalið ber með sér að kærandi hafi leitað til rannsóknarlögreglunnar í heimaborg sinni, CIPCP, og lýst atvikum með svipuðum hættu og hún gerði í viðtali hjá Útlendingastofnun hvað varðar kynferðisofbeldi sem hún kveðst hafa orðið fyrir. Framangreint skjal ber með sér að vera einhliða frásögn kæranda hjá lögreglu. Í skýrslunni kemur fram að kærandi kvaðst halda að ráðist hafi verið á hana vegna stjórnmálaskoðana hennar. Þá hafi kærandi verið spurð að því hvort einhver gæti vitnað um atburðarásina en kærandi kvaðst ekki hafa séð neina nágranna fyrir utan húsið. Þá hafi kærandi jafnframt verið spurð að því hvort hún hafi þekkt gerendurnar og svaraði kærandi neitandi og bætti við að þeir hafi verið með grímur. Af framangreindri skýrslu verður ekki betur séð en að kærandi hafi verið spurð út í atvik máls og hverjir hafi staðið að baki árásinni. Bera svör kæranda með sér að hún hafi ekki vitað hverjir gerendurnir væru þar sem þeir hafi verið með grímu fyrir andlitinu. Að framangreindu virtu telur kærunefnd ekki unnt að leggja til grundvallar að nafngreindur maður, X, hafi ráðist inn á heimili kæranda og beitt hana kynferðisofbeldi.
Þrátt fyrir að ekki verði lagt til grundvallar við úrlausn málsins að X hafi beitt kæranda kynferðisofbeldi í desember 2022 er ekki ástæða til að draga í efa að tveir einstaklingar hafi ráðist inn á heimili hennar og annar þeirra beitt hana kynferðisofbeldi. Af framlagðri lögregluskýrslu hafi gerandinn og félagi hans verið grímuklæddir og því um ótilgreinda menn að ræða. Af frásögn kæranda verður ekki ráðið að hún hafi orðið fyrir frekari áreiti frá 15. desember 2022 þar til að hún hafi yfirgefið heimaríki 18. febrúar 2023 og að engir eftirmálar hafi orðið af framangreindu áreiti. Framangreint atvik nær ekki því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt landaupplýsingum hefur dómsmálaráðherra Venesúela sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Kærandi kveðst eins og fram hefur komið hafa leitað til lögreglu og kært atvikið og ber framlögð lögregluskýrsla með sér að hún hafi verið spurð út í atvik máls og kæran skjalfest líkt og áður greinir. Með vísan til framangreinds verður gengið út frá því að kæranda standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda vegna áreitis og kynbundins ofbeldis telji hún þörf á slíku.
Kærandi hefur byggt á því að X hafi frá júlí 2022 áreitt hana og vegna þess að hún hafi ekki látið undan þrýstingi hans um að verða kærasta hans hafi hann í september 2022 komið því til leiðar að henni hafi verið sagt upp störfum á herspítala og ríkisspítala (Hospital Central San Cristóbal). Kærandi kvað X hafa haldið áfram að áreita sig, sem hafi endað með því að hann hafi beitt hana kynferðisofbeldi 14. desember 2022 og verðir hans hafi daginn eftir tekið símann af henni og eytt öllum gögnum úr honum. Til stuðnings framangreindu lagði kærandi meðal annars fram ljósmyndir af umræddum manni við ýmis tilefni. Þá lagði kærandi skjáskot af skilaboðum sem hún kveður X hafa sent sér. Skilaboðin eru send frá 13. júlí og 3. september 2022. Að mati kærunefndar er ekki hægt að útiloka að um sé að ræða skilaboð sem X hafi sent kæranda. Samkvæmt þýðingu á skilaboðunum sem send hafi verið 31. júlí 2022 spyr sendandi hvort viðtakandi vilji kannski ekki að hann trufli og þá má sjá að viðtakandi gera hjörtu við mörg þeirra sem send eru í september. Af þeim samskiptum verður ekki ráðið að illt hafi verið á milli sendanda og viðtakanda. Ekki verður séð að skilaboðin innihaldi hótanir en gefa til kynna að umræddur maður hafi haft áhuga á frekari kynnum við kæranda. Með tölvubréfi kærunefndar 16. júní 2025 óskaði nefndin eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Var kærandi meðal annars spurð að því hvort kærandi hafi átt í frekari samskiptum við X þar til hún yfirgaf Venesúela. Kærandi vísaði til þess að X hafi haldið áfram að áreita hana í gegnum samfélagsmiðla en starfsmenn hans hefðu eytt öllum gögnum í símanum hennar eftir að hún lagði fram kæru vegna kynferðisofbeldisins. Eftir að gögnunum hafi verið eytt hafi X hætt að skilja eftir skrifleg skilaboð en þess í stað hringt. Kærandi var einnig spurð að því hvort X hafi áreitt hana í gegnum samfélagsmiðla eftir að hún yfirgaf Venesúela. Kærandi svaraði því að þar sem hún hefði lokað öllum reikningum sínum á samfélagsmiðlum gæti hann ekki haft samband og þá hafi hún fengið sér nýtt símanúmer. Af framlagðri myndbandsupptöku sem kærandi kveður sýna lögreglumenn taka símann af sér verður ekki séð hvað eigi sér stað eða hvaða aðilar komi þar fyrir. Hefur því framangreind myndbandsupptaka takmarkað sönnunargildi fyrir málatilbúnað kæranda. Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að einhliða samskipti X við kæranda frá 13. júlí til 3. september 2022 sýni ekki fram á áreiti af hálfu X sem nái því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá hefur kærandi að öðru leyti ekki rennt stoðum undir þann málatilbúnað sinn að X eða einstaklingar á hans vegum hafi áreitt hana.
Kærandi byggði jafnframt á því að X hafi komið því til leiðar að henni hafi verið sagt upp störfum sínum á herspítala og ríkisspítala í september 2022 og vísaði til þess að X hefði greint stjórnendum spítalanna frá kynhneigð hennar og aðild að stjórnarandstöðuflokknum Acción Democrática. Til stuðnings því að hafa starfað á framangreindum spítölum lagði kærandi meðal annars fram ljósmynd af starfsmannaskírteini frá spítala í [...]. Í fyrrgreindu tölvubréfi kærunefndar til kæranda var hún spurð að því hvort hún gæti lagt fram einhver gögn um að hafa verið sagt upp. Kærandi kvaðst hafa verið sagt upp munnlega og aldrei fengið skjalfest ástæður uppsagnarinnar. Kærandi vísaði til þess að algengt væri að uppsagnir ættu sér stað án formlegra bréfa. Með vísan til gagna málsins verður ekki dregið í efa að kærandi hafi starfað á spítala í [...]. Á hinn bóginn er ótrúverðugt að kærandi geti engin gögn lagt fram um að hafa verið sagt upp af framangreindum spítölum eða önnur gögn um lok ráðningarsambands hennar við spítalana. Að framangreindu virtu verður við úrlausn málsins hvorki lagt til grundvallar að kæranda hafi verið sagt upp með ólögmætum hætti né að X hafi komið því til leiðar.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi tilheyra minnihlutahópi í heimalandi sínu vegna kynhneigðar sinnar. Kærandi greindi frá því að hún væri samkynhneigð. Kærandi kvaðst ekki hafa opinberað kynhneigð sína vegna þess hversu viðkvæmt væri að tala um samkynhneigð í Venesúela. Kærandi kvaðst óttast niðurlægingu og kvað samkynhneigða vera mismunað á vinnumarkaði. Kærandi kvaðst hafa verið niðurlægð í starfi og síðan sagt upp án skýringar en hún telji það vera vegna þess að X hafi látið yfirmenn hennar vita að hún væri samkynhneigð. Við meðferð málsins lagði kærandi fram stuðningsbréf frá samtökunum ´78, dags. 25. júlí 2023. Kærunefnd telur ekki ástæður til að draga í efa að kærandi sé samkynhneigð. Kærandi hefur þó ekki lagt fram gögn sem styðja frásögn hennar um að henni hafi verið sagt upp starfi á spítölum sem hún hafi starfað hjá vegna kynhneigðar hennar. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að samkynhneigðir eigi á hættu að verða fyrir félagslegri mismunun í Venesúela en ekki sé um kerfisbundnar ofsóknir að ræða. Lög banni mismunun á þeim grundvelli auk þess sem starfandi séu í landinu ýmis frjáls félagasamtök sem berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga. Þá bendi nýlegar aðgerðir stjórnvalda og nýlegur dómur hæstaréttar landsins til þess að stjórnvöld vinni að því að bæta stöðu þessara einstaklinga í landinu. Verður ekki talið að sú mismunun eða áreiti sem LGBTI+ einstaklingar kunni að eiga á hættu nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um viðbótarvernd á því að raunhæf ástæða sé til að ætla að hún eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hún verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka verði hún send aftur til heimalands síns.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsett í Guasdualito borg í Apure fylki í Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í framangreindu fylki. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 9. apríl 2023. Kærandi hefur því ekki fengið niðurstöðu í máli sínu innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita henni dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.
Að mati kærunefndar uppfyllir kærandi skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vegabréf. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærandi sé, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kæranda skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
The decision of the Directorate of Immigration regarding the appellant’s application for international protection is affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellant a residence permit based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Vera Dögg Guðmundsdóttir