10 júlí 2025
/
Mál nr. 66/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 66/2025
Fimmtudaginn 10. júlí 2025
A
gegn
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 30. janúar 2025, kærði B, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 29. október 2024, um að synja umsókn hans um húsnæðisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 29. október 2024, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um húsnæðisbætur hefði verið hafnað þar sem umbeðin gögn er stofnunin hafði óskað eftir þann 7. október 2024 hefðu ekki borist.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. janúar 2025 og fullnægjandi umboð barst 12. febrúar 2025. Með bréfi, dags. 13. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Svar barst frá stofnuninni 26. febrúar 2025 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að hinni kærðu ákvörðun og því hefði hún verið afturkölluð, sbr. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Með bréfi úrskurðarnefndar til umboðsmanns kæranda, dags. 4. mars 2025, var óskað eftir afstöðu til svars Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með tölvupóstum 29. apríl og 20. maí 2025 ásamt símtali 12. júní 2025. Svar barst ekki.
II. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 29. október 2024, um að synja umsókn kæranda um húsnæðisbætur með vísan til þess að umbeðin gögn hefðu ekki borist. Í kjölfar kærunnar fór Húsnæðis- og mannvirkjastofnun yfir mál kæranda og tilkynnti úrskurðarnefnd velferðarmál að ranglega hefði verið staðið að hinni kærðu ákvörðun. Stofnunin hefði því afturkallað ákvörðunina, sbr. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Óskað var eftir afstöðu kæranda til þeirrar ákvörðunar en svar barst ekki.
Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur er heimilt að kæra ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem teknar eru á grundvelli laganna til úrskurðarnefndar innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.
Af framangreindu er ljóst að úrskurðarvald nefndarinnar er afmarkað við að fjalla um réttmæti tiltekinnar ákvörðunar eða ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 75/2016. Í ljósi þess að hin kærða ákvörðun um synjun á umsókn kæranda um húsnæðisbætur var afturkölluð og framangreinds hlutverks úrskurðarnefndarinnar er það mat nefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir