30 júlí 2025
/
1289/2025. Úrskurður frá 30. júlí 2025
Hinn 30. júlí 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1289/2025 í máli ÚNU 25060001.
Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Með erindi, dags. 2. júní 2025, kærði […] ákvörðun Lögreglunnar í Vestmannaeyjum um afgreiðslu erindis hans.
Með erindi, dags. 12. maí 2025, óskaði kærandi eftir upplýsingum um hvort lögreglumenn hjá embættinu ynnu aukastörf meðfram lögreglustörfum. Í svari Lögreglunnar í Vestmannaeyjum, dags. 28. maí 2025, var vísað til þess að samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, næði réttur almennings ekki til gagna í málum sem vörðuðu umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti. Upplýsingar um aukastörf starfsmanna teldust til mála sem vörðuðu starfssamband starfsmanns og vinnuveitanda. Með hliðsjón af því yrðu upplýsingar um aukastörf lögreglumanna ekki veittar.
Kæran var kynnt Lögreglunni í Vestmannaeyjum með erindi, dags. 11. júní 2025, og embættinu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um hana og afritum af gögnum sem kæran varðaði. Umsögn Lögreglunnar í Vestmannaeyjum barst úrskurðarnefndinni 19. júní 2025. Í umsögninni var undirstrikað það sem komið hefði fram í svarbréfi til kæranda. Þá kom fram að engum gögnum væri til að dreifa í málinu öðrum en fyrirspurn kæranda og svari embættisins við henni.
Umsögn Lögreglunnar í Vestmannaeyjum var kynnt kæranda með erindi, dags. 19. júní 2025, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki af hálfu kæranda.
Niðurstaða
Í máli þessu er deilt um ákvörðun Lögreglunnar í Vestmannaeyjum að hafna því að veita kæranda upplýsingar um aukastörf lögreglumanna. Í ákvörðuninni var vísað til 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og tekið fram að réttur kæranda næði ekki til upplýsinga um málefni starfsmanna embættisins. Í umsögn til úrskurðarnefndarinnar var greint frá því að ekki lægju fyrir gögn í vörslu embættisins sem heyrðu undir erindi kæranda.
Upplýsingaréttur almennings nær samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum tiltekins máls og tiltekinna fyrirliggjandi gagna. Í athugasemdum við 5. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að rétturinn nái til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggja á þeim tímapunkti þegar beiðni um aðgang er sett fram og í þeirri mynd sem þau eru á þeim tíma. Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laganna er heimilt að bera undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt lögunum og synjun beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er.
Þrátt fyrir að erindi kæranda til Lögreglunnar í Vestmannaeyjum hafi strangt til tekið ekki verið sett fram sem beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum er ljóst að embættið hafnaði beiðninni með vísan til laganna. Af þeirri ástæðu telur úrskurðarnefndin ekki koma til greina að vísa kæru í málinu frá nefndinni á þeim grundvelli að beiðnin hafi ekki verið beiðni um gögn samkvæmt upplýsingalögum heldur er rétt að endurskoða hina kærðu ákvörðun.
Lögreglan í Vestmannaeyjum fullyrðir að hjá embættinu liggi ekki fyrir gögn um aukastörf lögreglumanna meðfram lögreglustörfum. Úrskurðarnefndin telur að ekki séu forsendur til að draga í efa þá fullyrðingu embættisins. Þar af leiðandi liggja ekki fyrir gögn sem réttur kæranda gæti náð til samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Því telur nefndin rétt, á þeim grundvelli, að staðfesta ákvörðun Lögreglunnar í Vestmannaeyjum um afgreiðslu erindis kæranda.
Úrskurðarorð
Staðfest er ákvörðun Lögreglunnar í Vestmannaeyjum, dags. 28. maí 2025, um afgreiðslu beiðni kæranda, […], um aðgang að upplýsingum um aukastörf lögreglumanna.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir