10 ágúst 2025

/

Opnir íbúafundir með innviðaráðherra um allt land

{image.Description}

Opnir íbúafundir með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra verða haldnir í ágúst í öllum landshlutum undir yfirskriftinni Fjárfest í innviðum til framtíðar.

Tilgangur fundanna er að eiga samráð og kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það mun m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins. Þá er stefnt að því að leggja fram samgönguáætlun síðar í haust og íbúum gefst því tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra. 

Fundirnir eru opnir öllum en hægt er að skrá sig á einstaka fundi hér að neðan. Fundir eru alla jafna haldnir síðdegis og boðið upp á kaffiveitingar á hverjum stað. Allir fundir hefjast kl. 16:30 nema á Akureyri en sá fundur hefst kl. 16:45.

Dagskrá og skráning á fundi

Dags. Staðsetning (salur)  Skráning  Fundartími
12. ágúst Akureyri (Múlaberg)  Lokið 16:45-18:15
13. ágúst Borgarnes (Hjálmaklettur)  Lokið 16:30-18:00
18. ágúst Reykjanesbær (Radisson Park Inn)  Lokið 16:30-18:00
19. ágúst Ísafjörður (Edinborgarhúsið)  Lokið 16:30-18:00
20. ágúst Selfoss (Hótel Selfoss)  Lokið 16:30-18:00
25. ágúst Blönduós (Hótel Blönduós, Krúttið)  Lokið 16:30-18:00
26. ágúst Egilsstaðir (Hótel Hérað)  Lokið 16:30-18:00
28. ágúst Innviðaþing (Hilton Nordica)  Lokið allan daginn