13 ágúst 2025
/
Mál nr. 375/2025-Úrskurður
.
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 375/2025
Miðvikudaginn 13. ágúst 2025
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 13. júní 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 12. júní 2025, um að synja umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 12. júní 2025, var umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri synjað á þeim grundvelli að metið hafi verið endurhæfingartímabil frá upphafi í samtals 60 mánuði og samkvæmt 7. gr. laga nr. 99/2007 væri ekki heimilt að greiða endurhæfingarlífeyri lengur. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun með bréfi, dags. 10. júlí 2025, að greiða kæranda endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. júlí 2025 til 30. september 2025.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 13. júní 2025. Með bréfi, dags. 24. júní 2025, var óskað eftir greinargerð frá Tryggingastofnun ríkisins ásamt gögnum málsins. Með greinargerð, dags. 11. júlí 2025, óskaði Tryggingastofnun eftir því að kæru yrði vísað frá með þeim rökstuðningi að stofnunin hefði tekið nýja ákvörðun í máli kæranda. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Tryggingastofnunar með bréfi, dags. 15. júlí 2025. Engin svör bárust frá kæranda.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru kemur fram að kærandi óski eftir endurskoðun á ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um frekari rétt til endurhæfingarlífeyris, þar sem hún hafi þegar nýtt 60 mánuði af hámarkstíma samkvæmt núgildandi reglum. Í mars 2025 hafi kærandi verið greind með krabbamein og hafi í kjölfarið farið í stóra aðgerð, veikindi tengd því hafi haft veruleg áhrif á líkamlega og andlega heilsu hennar. Kærandi hafi lagt fram læknisvottorð og endurhæfingaráætlun sem sýni að markviss endurhæfing sé í gangi og sé fyrirhuguð út þetta ár. Í ljósi alvarleika veikindanna og þess að endurhæfing kæranda sé hluti af heildrænni læknisfræðilegri meðferð, telji hún rétt að aðstæður hennar verði metnar sérstaklega. Óskað sé eftir því að sú ákvörðun verði endurmetin með hliðsjón af sértækum og einstaklingsbundnum aðstæðum, líkt og heimilt sé samkvæmt lögum þegar um sé að ræða verulega veikindi eða ófyrirséðar aðstæður.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kæra varði synjun stofnunarinnar á umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri.
Með bréfi, dags. 12. júní 2025, hafi umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri verið synjað þar sem að hún hafði þá þegið endurhæfingarlífeyri í 60 mánuði og ekki sé heimilt samkvæmt 7. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð að greiða endurhæfingarlífeyri lengur en það.
Í kjölfar kærunnar hafi Tryggingastofnun ákveðið að endurskoða fyrri ákvörðun þar sem um nýjan sjúkdóm sé að ræða sem hafi áhrif á starfshæfni kæranda. Af þeim sökum hafi Tryggingastofnun ákveðið að líta svo á að nýtt endurhæfingartímabil hafi hafist 1. júlí 2025, sbr. bréf þess efnis, dags. 10. júlí 2025.
Þar sem Tryggingastofnun hafi ákveðið að endurupptaka málið og hafi tekið nýja ákvörðun, óski stofnunin eftir því að kærumáli þessu verði vísað frá. Komist úrskurðarnefnd velferðarmála að annarri niðurstöðu, áskilji Tryggingastofnun sér hins vegar rétt til að koma að efnislegri greinargerð.
IV. Niðurstaða
Kærumál þetta varðaði upphaflega ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 12. júní 2025, um að synja umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun með bréfi, dags. 10. júlí 2025, að greiða kæranda endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. júlí 2025 til 30. september 2025. Með bréfi, dags. 15. júlí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til nýrrar ákvörðunar stofnunarinnar en engin svör bárust frá kæranda.
Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. 1. mgr. 13. gr. laganna. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð gilda ákvæði laga um almannatryggingar um bætur félagslegrar aðstoðar eftir því sem við á, m.a. um kærurétt til úrskurðarnefndar velferðarmála og um hækkun bóta. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Tryggingastofnunar ríkisins. Stofnunin hefur fallist á að greiða kæranda endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. júlí 2025 til 30. september 2025. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir