13 ágúst 2025

/

Mál nr. 67/2025 Úrskurður 13. ágúst 2025

Mál nr. 67/2025                    Eiginnafn:     Sky

Hinn 13. ágúst 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 67/2025 en erindið barst nefndinni 2. júlí 2025.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Sky tekur eignarfallsendingu, Skys, og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera að ama. Nafninu er aftur á móti ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls meðal annars þar sem y kemur ekki fyrir í enda atkvæðis í íslensku nema sem hluti af tvíhljóðinu ey. Er því aðeins hægt að samþykkja ritháttinn að hefð sé fyrir honum.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin endurnýjaði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);

    Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
  3.  

  4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn einstaklingur nafnið Sky í þjóðskrá sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra, og nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Því er ekki hefð fyrir nafninu á grundvelli 1. gr. vinnulagsreglnanna. Nafnið er aftur á móti tökunafn sem er nokkuð algengt í enskumælandi löndum. Telur mannanafnanefnd því hefð fyrir rithætti nafnsins á grundvelli 4. gr. reglnanna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sky er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.