14 ágúst 2025
/
Mál nr. 396/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 396/2025
Fimmtudaginn 14. ágúst 2025
A
gegn
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 25. júní 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 6. júní 2025, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu júlí 2023 til maí 2024. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 6. júní 2025, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2024 þar sem fram kom að hann hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur, að fjárhæð 28.191 kr.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. júní 2025. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð stofnunarinnar barst 2. júlí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. júlí 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa fengið húsnæðisbætur hluta ársins 2024 þangað til Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi ákveðið að svipta hann bótum þar sem húsnæði sem kærandi búi í sé ekki hugsað sem íbúðarhúsnæði. Stofnunin hafi síðar krafið kæranda um ofgreiddar húsnæðisbætur. Þetta gangi ekki upp að mati kæranda sem velti fyrir sér hvernig hægt sé að krefjast endurgreiðslu á bótum sem hann hafi aldrei átt rétt á.
Svo virðist sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun haldi að kærandi búi að B en kæranda sé óheimilt að skrá lögheimili sitt á þeim stað þar sem húsnæðið sé ekki samþykkt til íbúðar. Hann hafi því aldrei búið í húsnæðinu.
III. Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi þann 27. júlí 2023 fengið samþykkta umsókn vegna leigu á húsnæðinu B.
Í samþykktarbréfi sé niðurstaða útreiknings sú að húsnæðisbætur á mánuði séu 4.314 kr. fyrir heilan mánuð. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að breytingar á forsendum húsnæðisbóta hafi áhrif á rétt til bóta. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sé heimilt að endurreikna húsnæðisbætur svo fjárhæð samræmist þeim breytingum sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna.
Dagana 24. janúar og 19. apríl 2024 hafi kærandi fengið endurreikning, það er áætlun byggða á nýjustu upplýsingum frá ríkisskattstjóra.
Þann 5. júní 2024 hafi kæranda verið tilkynnt að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefði fjallað um rétt hans til húsnæðisbóta og frestað afgreiðslu umsóknar um bætur, dags. 7. júlí 2023. Þar sem nauðsynlegar upplýsingar og gögn hefðu ekki borist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi stofnunin talið óljóst hvort skilyrði fyrir greiðslum húsnæðisbóta væru fyrir hendi. Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hafi skattframtal kæranda fyrir tekjuárið 2023 ekki verið aðgengilegt. Staðfest framtöl séu nauðsynleg til að meta eignastöðu og afla frekari upplýsinga um vaxtabætur, erlendar tekjur, verktakagreiðslur og svo framvegis. Framtal verði að liggja fyrir til að hægt sé að framkvæma lokauppgjör og jafnframt meta bótarétt.
Í bréfinu til kæranda hafi verið óskað eftir staðfestu framtali fyrir framangreint tekjuár til að meta rétt hans til húsnæðisbóta. Vísað hafi verið til 1. mgr. 14. gr. laga um húsnæðisbætur þar sem fram komi að umsækjandi skuli veita Húsnæðis- og mannvirkjastofnun allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað sé eftir og séu nauðsynlegar til að staðreyna rétt hans um húsnæðisbætur.
Þann 25. júní [2025] hafi umsókn kæranda um húsnæðisbætur verið hafnað þar sem umbeðin gögn sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefði óskað eftir hefðu ekki borist.
Með bréfi, dags. 6. júní 2025, hafi kærandi fengið sent lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2024. Þar hafi komið í ljós að kærandi hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur sem hafi numið 28.191 kr.
Umsókn Heimilisfang Mánuður Bótafjárh. Áður greitt Mismunur
98964 B jan-maí 38.705 66.896 28.191
Kærandi hafi verið upplýstur um að þær upplýsingar sem hafi verið lagðar til grundvallar lokauppgjörinu hafi byggt á skattskyldum tekjum og eignastöðu samkvæmt skattframtali 2025. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að ef þær upplýsingar sem hafi verið lagðar til grundvallar lokauppgjörinu endurspegli ekki rauntekjur og eignastöðu fyrir árið 2024 gæti hann sent athugasemdir til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar innan tíu daga. Bærust engar athugasemdir innan þess tíma yrði farið eftir þeim upplýsingum sem hefðu verið notaðar við endurreikninginn við endanlega ákvörðun lokauppgjörs húsnæðisbóta fyrir árið 2024.
Engin gögn eða rökstuðningur hafi borist frá kæranda um að fyrirliggjandi upplýsingar sem hafi verið lagðar til grundvallar endurreikningi hafi verið rangar.
Áminning um framangreinda endurgreiðslu á ofgreiddum húsnæðisbótum hafi verið send kæranda 22. júní 2025.
Í framhaldi af birtingu lokauppgjörsins hafi kærandi átt í samskiptum við ráðgjafa á húsnæðisbótasviði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem hafi veitt frekari skýringar á lokauppgjörinu.
Þann 25. júní 2025 hafi ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um ofgreiddar húsnæðisbætur verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Í máli þessu sé deilt um lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2024. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörs hafi kærandi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur árið 2024. Skerðing hafi verið vegna tekna. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun endurreikni húsnæðisbætur í samræmi við álagningu skattyfirvalda samkvæmt lögum nr. 75/2016 um húsnæðisbætur. Endurreikningurinn byggi á skattskyldum tekjum, þar með talið fjármagnstekjum og nettóeignastöðu allra heimilismanna, 18 ára og eldri, þá mánuði sem kærandi hafi verið með virka umsókn um húsnæðisbætur.
Í V. kafla laga um húsnæðisbætur, sbr. IV. kafla reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur sé fjallað um útreikning húsnæðisbóta og áhrif eigna og tekna á grunnfjárhæðir húsnæðisbóta.
Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur megi endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þeirra þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna.
Í 2. mgr. 25. gr. komi skýrt fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. laga um húsnæðisbætur liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga.
Eftir lokauppgjör ársins 2024 hafi komið í ljós að kærandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur og honum beri að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd, sbr. 26. gr. laga um húsnæðisbætur.
Af hálfu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sé byggt á því að málsmeðferðin hafi að öllu leyti verið í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að ákvörðunin hafi verið í samræmi við ákvæði laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur og reglugerð nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, með síðari breytingum.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun geri þá kröfu að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 6. júní 2025, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna ársins 2024, að fjárhæð 28.191 kr.
Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 75/2016 er umsækjanda skylt að veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Enn fremur er skylt að upplýsa um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt viðkomandi til húsnæðisbóta samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann fær greiddar húsnæðisbætur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um meðal annars tekju- og eignabreytingar á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.
Í 18. gr. laga nr. 75/2016 segir að grunnfjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 16. gr., eftir atvikum að teknu tilliti til lækkunar vegna tekna samkvæmt 17. gr., lækki sem nemi hlutfalli af samanlögðum eignum allra heimilismanna, 18 ára og eldri, sem fari umfram 6.500.000 kr., nú 8.000.000 kr., sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, uns þær falli alveg niður við 60% hærri fjárhæð, eða 12.800.000 kr. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. laganna skal miða við eignir í lok þess almanaksárs þegar greiðslur húsnæðisbóta stóðu yfir. Þó skuli fasteign eða búseturéttur samkvæmt lögum um húsnæðissamvinnufélög, sem geti orðið andlag réttar til vaxtabóta, ekki teljast til eigna samkvæmt 1. mgr. hafi fasteignin eða búseturétturinn ekki verið í eigu umsækjanda eða annarra heimilismanna meðan á greiðslum húsnæðisbóta hafi staðið á almanaksárinu. Þá kemur fram í 3. mgr. 18. gr. að með eignum í lögunum sé átt við allar eignir samkvæmt 72. gr. laga um tekjuskatt að frádregnum skuldum samkvæmt 1. mgr. 75. gr. sömu laga, sbr. þó 2. málsl. 2. mgr. Í 2. mgr. 72. gr. laga um tekjuskatt segir að framtalsskyldar eignir séu allar fasteignir, lausafé og hvers konar önnur verðmæt eignarréttindi, með þeim takmörkunum sem um ræði í 74. gr., og skipti ekki máli hvort eignirnar gefi af sér arð eða ekki.
Í 25. gr. laganna er kveðið á um endurreikning á húsnæðisbótum. Þar segir í 1. mgr. að rétt til húsnæðisbóta megi endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. kemur fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. kemur fram að leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbæturnar samkvæmt 26. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.
Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu janúar til maí 2024. Samkvæmt endurútreikningi húsnæðisbóta, dags. 24. janúar 2024, voru heildartekjur kæranda áætlaðar 694.164 kr. á mánuði og heildareignir 0 kr. Samkvæmt endurútreikningi, dags. 19. apríl 2024, voru heildartekjur kæranda áætlaðar 763.735 kr. á mánuði og heildareignir 0 kr. Við lokauppgjör ársins 2024 reyndust tekjur kæranda á tímabilinu, þ.e. janúar til maí 2024, vera hærri en framangreindar áætlanir gerðu ráð fyrir, eða 773.247 kr. á mánuði. Samkvæmt útreikningi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar nam skerðing vegna tekna því 32.892 kr. á mánuði. Mismunur var því 8.699 kr. á mánuði eða 28.191 kr. á leigutímabilinu. Kæranda ber í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 75/2016 að endurgreiða þá fjárhæð.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa kæranda staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 6. júní 2025, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir