14 ágúst 2025
/
Úrskurður nr. 7/2025
Úrskurður nr. 7/2025
Fimmtudaginn 14. ágúst 2025 var í heilbrigðisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi
ÚRSKURÐUR
Með kæru, dags. 9. apríl 2025, kærði Guðmundur Narfi Magnússon, lögmaður, f.h. […], kt. […], hér eftir kærandi, ákvörðun embættis landlæknis, dags. 13. febrúar 2025, um að taka kvörtun kæranda ekki til frekari efnislegrar meðferðar og loka máli kæranda, til heilbrigðisráðuneytisins.
Kærandi krefst þess að ákvörðun embættis landlæknis verði felld úr gildi og að kvörtun hennar verði tekin til frekari efnislegrar meðferðar.
Um kæruheimild vísar kærandi til 1. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, sbr. 6. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu.
I Meðferð málsins hjá ráðuneytinu
Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis til ráðuneytisins þann 9. apríl 2025. Ráðuneytið óskaði eftir umsögn embættis landlæknis um kæru kæranda tveimur dögum síðar. Umsögn embættis landlæknis barst ráðuneytinu 15. maí. Ráðuneytið sendi kæranda umsögn embættis landlæknis og bauð kæranda að gera athugasemdir við umsögnina. Þann 20. maí tilkynnti kærandi að hann teldi ekki þörf á að koma frekari athugasemdum á framfæri. Lauk þá gagnaöflun og var málið tekið til úrskurðar.
II Málsatvik
Þann […] lenti kærandi í bílslysi. Var hún flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) á Selfossi þann dag. Í slysinu hlaut kærandi áverka á kviðarholi, öxl, höfuðáverka og áverka á brjóstkassa. Kærandi fór í rannsóknir á HSU á Selfossi og var síðar útskrifuð samdægurs. Kærandi fann áfram fyrir höfuðverkjum og leitaði til Heilsugæslunnar Mjódd 13. apríl 2022 vegna minnisleysis. Í niðurstöðum myndgreiningar Röntgen Domus kom fram að ekki hefðu sést blæðingar, infarcta eða fyrirferðir og var kærandi send heim án frekari rannsókna.
Kærandi var greind með Bell‘s Palsy í desember 2022 sem kærandi telur að hafi ekki gengið til baka heldur hafi hún í kjölfarið lamast á vinstri hlið líkamans. Kærandi leitaði að nýju til Heilsugæslunnar í Mjódd þann 30. júní 2023 vegna máttleysis á vinstri hlið líkamans. Var kærandi í kjölfarið send í segulómun þann 4. júlí s.á. Í nótum taugalækninga degi síðar kemur fram að sterkar líkur séu á að kærandi sé með MS-sjúkdóminn en kærandi var greind með sjúkdóminn 6. eða 7. júlí s.á.
Kærandi kvartaði yfir þeirri heilbrigðisþjónustu sem hún naut í umrædd skipti, í kjölfar bílslyssins þann 23. janúar 2022, til embættis landlæknis þann 16. janúar 2025. Embætti landlæknis yfirfór kvörtun kæranda ásamt fylgiskjölum með kvörtuninni. Var það mat embættisins að lokinni yfirferð að ekkert hefði fram komið í sjúkragögnum kæranda sem benti til þess að um mistök eða vanrækslu gæti hafa verið að ræða við veitingu heilbrigðisþjónustu til handa kæranda í kjölfar slyssins. Var það ákvörðun embættisins að taka kvörtunina ekki til frekari efnislegrar meðferðar og var máli kæranda lokað. Er það sú ákvörðun sem kærð er til ráðuneytisins.
III Málsástæður kæranda
Kærandi byggir á að kvörtun hennar til embættisins hafi gefið nægar ástæður til rannsóknar, sem geti leitt til aukinna gæða í heilbrigðisþjónustu, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu.
Kærandi byggir einnig á að embættið hafi ekki tekið afstöðu til þess í ákvörðun sinni að kærandi hefði ekki verið myndgreind eða rannsökuð frekar eftir að hún fór að kvarta undan höfuðverkjum og minnisleysi. Embættið hafi aðeins tekið afstöðu til afmarkaðs hluta atburðarrásarinnar sem varðar umferðarslysið sjálft.
Einnig byggir kærandi á að embættið hafi í ákvörðun sinni ekki tekið afstöðu til þeirra atvika sem eru að rekja til andlitslömunar kæranda og vangreiningar á MS-sjúkdómnum. Aðeins sé tekið á því álitaefni hvort tengsl séu á milli MS-sjúkdómsins og umferðarslyssins.
Með hliðsjón af framangreindu byggir kærandi á að mál hennar hafi ekki verið rannsakað með fullnægjandi hætti og geti því ekki treyst að málið hafi verið skoðað eins og það leggur sig. Kærandi heldur því fram að með vísan í framangreint bendi margt til þess að hún hafi orðið fyrir vanrækslu og mistökum í meðferð sinni og að fullt tilefni sé til að taka mál hennar til efnislegrar meðferðar, niðurstaða embættisins sé bæði formlega og efnislega röng í skilningi stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
IV. Umsögn embættis landlæknis
Í umsögn embættis landlæknis kemur fram að með lögum nr. 103/2023, sem m.a. gerðu breytingu á lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, hafi verið gerðar breytingar á 12. gr. laganna sem fjallar um kvartanir. Markmið breytinganna hafi fyrst og fremst verið að veita embættinu heimild til að forgangsraða málum þannig að ekki þurfi að leggja í umfangsmikla vinnu þegar augljóst þykir að frekari rannsókn muni hvorki leiða til þess að bæta gæði heilbrigðisþjónustu né tryggja öryggi sjúklinga. Frá og með 1. september 2024 hafi embættið tekið fyrir kvartanir sem því berast og lagt tvenns konar mat á kvörtun, þ.e. annars vegar hvort kvörtun sem berst gefi nægar ástæður til rannsóknar og hins vegar hvort líklegt sé að niðurstöður rannsóknar geti leitt til aukinna gæða og aukins öryggis í heilbrigðisþjónustu. Í máli kæranda var það mat sérfræðinga embættisins að framangreind skilyrði væru ekki uppfyllt og af þeim sökum ekki tilefni til áframhaldandi rannsóknar.
Kvörtun kæranda var tekin fyrir á fundi sérfræðinga embættis landlæknis þann 22. janúar 2025. Á fundinum sátu læknar, hjúkrunarfræðingur, lyfjafræðingur og lögfræðingur. Fyrir fundinn kynntu þeir sérfræðingar sem hann sátu sér gögn málsins, sem embættið taldi jafnframt að væru fullnægjandi að loknu mati. Var það samdóma álit þeirra sem mesta læknisfræðilega þekkingu höfðu á fundinum að málsatvik og gögn málsins bentu til þess að kærandi hefði ekki orðið fyrir mistökum eða vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu í kjölfar bílslyssins þann 23. janúar 2022. Kvörtun kæranda hefði því ekki gefið tilefni til frekari rannsóknar. Þá var það jafnframt niðurstaða sérfræðinga embættisins á fundinum að gögn málsins bæru ekki með sér að áframhaldandi rannsókn myndi leiða til aukinna gæða og aukins öryggis heilbrigðisþjónustu.
Sérstaklega tiltekur embættið að í sjúkraskrá kæranda komi ekki fram upplýsingar um einkenni sem gefi tilefni til myndgreiningar af höfði eða veki grun um alvarlegan höfuðáverka í kjölfar bílslyssins. Þá vísaði embættið til matsgerðar sem fylgdi kvörtun kæranda, sem unnin var af taugalækni, þar sem fram kom að ekki hefði verið sýnt fram á tengsl MS-sjúkdómsins við slys eða áverka sem kærandi varð fyrir.
Embætti landlæknis byggir á að frá gildistöku laga nr. 103/2023 sé það ekki skylda þess að framkvæma ítarlega rannsókn og ljúka málsmeðferð í öllum kvörtunarmálum með áliti vegna kvörtunar sem berst embættinu í leit að einhverju sem kann að hafa farið úrskeiðis ef það er mat embættisins, að lokinni rannsókn á kvörtun og gögnum málsins, að ekkert bendi til þess að kvartandi í kvörtunarmáli hafi orðið fyrir mistökum eða vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu. Það sé tilfellið í máli kæranda þar sem niðurstaða embættisins hafi verið skýr um að ekkert í kvörtun kæranda eða gögnum sem fylgdu með henni hafi bent til þess að um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við veitingu heilbrigðisþjónustunnar og fyrirliggjandi gögn hafi ekki bent til þess að niðurstöður frekari rannsóknar gætu leitt til aukinna gæða eða aukins öryggis í heilbrigðisþjónustu.
Embætti landlæknis byggir einnig á því að það væri þvert gegn tilgangi lagabreytingarinnar ef embættið þyrfti í hverju máli að framkvæma ítarlega rannsókn á hverri kvörtun og ljúka hverju máli með útgáfu álits.
Þá tekur embætti landlæknis fram að við veitingu heilbrigðisþjónustu er mikilvægt að fylgja viðurkenndu verklagi og vanda val rannsókna og meðferðar. Í því felst m.a. að sjúklingar undirgangist ekki óþarfar rannsóknir, þ.m.t. myndgreiningarrannsóknir, enda getur öllum rannsóknum fylgt áhætta. Þá verður jafnframt að líta til kostnaðar við hverja rannsókn.
Að lokum heldur embætti landlæknis því fram að málsmeðferð þess hafi verið málefnaleg og að fullnægjandi rannsókn á kvörtun kæranda og fylgigögnum hafi farið fram. Ákvæði 12. gr. laga nr. 41/2007, um kvartanir vegna veitingar heilbrigðisþjónustu, er staðsett í II. kafla laganna sem fjallar um eftirlit með heilbrigðisþjónustu. Byggir kvörtunarheimildin og málsmeðferð á því að stuðlað sé að auknum gæðum í heilbrigðisþjónustu og auknu öryggi sjúklinga.
V. Athugasemdir kæranda við umsögn embættis landlæknis
Kærandi taldi ekki þörf á að koma frekari athugasemdum á framfæri vegna umsagnar embættis landlæknis.
VI. Niðurstaða
Í máli þessu er til skoðunar hvort málsmeðferð embættis landlæknis í kvörtunarmáli samkvæmt 12. gr. laga nr. 41/2007 hafi verið lögum samkvæm.
Lagagrundvöllur
Meðal hlutverka embættis landlæknis er að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum, sbr. e. liður 1. mgr. 4. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Samkvæmt j. lið sama ákvæðis skal embætti landlæknis sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu
Hugtakið heilbrigðisþjónusta er skilgreint í 1. tölulið 4. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sbr. 2. tölulið 3. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Er heilbrigðisþjónusta skilgreind þar sem hvers kyns heilsugæsla, lækningar, hjúkrun, almenn og sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, sjúkraflutningar, hjálpartækjaþjónusta og þjónusta heilbrigðisstarfsmanna innan og utan heilbrigðisstofnana sem veitt er í því skyni að efla heilbrigði, fyrirbyggja, greina eða meðhöndla sjúkdóma eða endurhæfa sjúklinga. Skilgreiningu hugtaksins var ætlað að vera afar víðtæk, sbr. athugasemdir um 4. gr. frumvarps sem varð að lögum um heilbrigðisþjónustu en væri eftir sem áður ætlað að marka tiltekinn ramma um það hvaða þjónusta teljist heilbrigðisþjónusta í skilningi laganna.
Í II. kafla laga um landlækni og lýðheilsu er fjallað um eftirlit með heilbrigðisþjónustu, en í 12. gr. laganna er kveðið á um kvörtun til landlæknis. Samkvæmt 2. mgr. 12. gr. er heimilt að beina formlegri kvörtun til landlæknis vegna meintrar vanrækslu og mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu. Landlæknir ákveður hvort kvörtun sem berst gefi nægar ástæður til rannsóknar og hvort líklegt sé að niðurstöður rannsóknar geti leitt til aukinna gæða og aukins öryggis heilbrigðisþjónustu. Landlæknir skal upplýsa kvartanda um framvindu og niðurstöðu máls innan hæfilegs tíma, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 12. gr. laganna. Samkvæmt 5. mgr. 12. gr. er heimilt að kæra málsmeðferð landlæknis til ráðherra.
Ákvæði 12. gr. laga nr. 41/2007 var breytt í núgildandi horf með lögum nr. 103/2023, um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um réttindi sjúklinga (refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika). Fjallað er um breytinguna í greinargerð með frumvarpinu. Þar kemur meðal annars fram að ekki séu allar kvartanir líklegar til að stuðla að bættum gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustu. Til þess að auka skilvirkni hafi embættinu því verið fengin heimild til að ákveða hvort nægar ástæður væru til að taka kvörtun til formlegrar meðferðar. Með breytingunni væri markmiðið fyrst og fremst að veita embættinu heimild til að forgangsraða málum þannig að ekki þurfti að leggjast í umfangsmikla vinnu þegar augljóst þykir að rannsókn muni hvorki leiða til þess að bæta gæði heilbrigðisþjónustu né tryggja öryggi sjúklinga. Skerpt er á þessum sömu ástæðum breytingarinnar í umfjöllun um 6. gr. frumvarpsins sem varð að lögum.
Niðurstaða ráðuneytisins
Í málinu reynir helst á hvort embætti landlæknis hafi rannsakað mál kæranda með fullnægjandi hætti og verið heimilt að taka ákvörðun um að taka kvörtun kæranda ekki til frekari efnislegrar meðferðar og ljúka máli hennar án þess að gefa út álit í máli kæranda.
Kærandi hefur haldið því fram í málinu að embætti landlæknis hafi ekki rannsakað mál hennar með fullnægjandi hætti áður en það tók ákvörðun um að taka kvörtun hennar ekki til efnislegrar meðferðar heldur lokað málinu. Kærandi taldi að embættið hefði ekki tekið afstöðu til þeirra atvika sem var að rekja til andlitslömunar og vangreiningar á MS-sjúkdómnum. Landlæknir hafi ekki snert á þeirri heilbrigðisþjónustu sem kærandi naut tímabilið apríl til júlí 2023 í afstöðu sinni. Ákvörðun embættisins sé því ófullnægjandi og ekki í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga.
Með kvörtun kæranda fylgdi töluvert magn af gögnum um sjúkrasögu kæranda. Í gögnum málsins liggur fyrir með ítarlegum hætti hvaða heilbrigðisþjónustu kærandi naut í kjölfar bílslyssins og árið á eftir. Jafnframt fylgdi matsgerð vegna afleiðinga bílslyssins frá árinu 2024, sem unnin er af Júlíusi Valssyni, lækni og Sigurði B. Halldórssyni, lögmanni.
Í umsögn embættis landlæknis til ráðuneytisins er rakið hvaða málsmeðferð kvörtun kæranda fékk hjá embættinu. Þegar kvörtunin barst fengu sérfræðingar hjá embættinu; læknar, hjúkrunarfræðingur, lyfjafræðingur og lögfræðingur, afrit af kvörtuninni og öll gögn málsins til yfirferðar. Kvörtun kæranda var síðan tekin fyrir á fundi sérfræðinganna þann 22. janúar 2025. Var það samdóma álit þeirra sérfræðinga sem mesta læknisfræðilega þekkingu höfðu á fundinum að málsatvik og gögn málsins bæru ekki með sér að kærandi hafi orðið fyrir mistökum eða vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu í kjölfar bílslyssins, hvorki strax eftir slysið né síðar. Þá var það jafnframt mat sérfræðinga embættisins að málsatvik í tilfelli kæranda væru ekki slík að áframhaldandi rannsókn myndi leiða til aukinna gæða og aukins öryggis í heilbrigðisþjónustu. Var niðurstaða embættisins því að ljúka máli kæranda án frekari rannsókn í samræmi við heimild í 2. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu.
Með lögum nr. 103/2023 voru m.a. gerðar breytingar á 12. gr. laga nr. 41/2007. Lög nr. 103/2023 voru samþykkt á Alþingi 16. desember 2023 en flest ákvæði laganna öðluðust ekki gildi fyrr en tæpu ári síðar, 1. september 2024. Á það m.a. við um 6. gr. laganna sem gerði breytingar á 12. gr. laga nr. 41/2007. Frá 1. september 2024 hefur 2. mgr. 12. gr. laganna hljóðað á þann veg að: „heimilt er að beina formlegri kvörtun til landlæknis vegna meintrar vanrækslu og mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu. Landlæknir ákveður hvort kvörtun sem berst gefi nægar ástæður til rannsóknar og hvort líklegt sé að niðurstöður rannsóknar geti leitt til aukinna gæða og aukins öryggis heilbrigðisþjónustu. Landlæknir skal upplýsa kvartanda um framvindu og niðurstöður máls innan hæfilegs tíma.“
Í lagabreytingunni fólst breyting á málsmeðferð embættis landlæknis í tilvikum kvörtunarmála. Fram til 1. september 2024 bar landlækni í tilviki hverrar kvörtunar sem barst embættinu að framkvæma ítarlega rannsókn, þótt að í gögnum máls kæmi ekki neitt fram sem benti til þess að mistök eða vanræksla hefðu átt sér stað við veitingu heilbrigðiþjónustu, og ljúka málsmeðferð kvörtunarmáls með útgáfu álits landlæknis á efni kvörtunarinnar. Frá 1. september 2024, við gildistöku 6. gr. laga nr. 103/2023, ákveður landlæknir hvort kvörtun sem berst gefi nægar ástæður til slíkrar ítarlegrar rannsóknar eða hvort líklegt sé að niðurstöður rannsóknar geti leitt til aukinna gæða og aukins öryggis í heilbrigðisþjónustu. Með breytingunni var skerpt á markmiði kvartana og landlækni veitt heimild til að forgangsraða kvörtunum og ljúka kvörtunarmálum að lokinni frumrannsókn ef ekkert í kvörtun bendir til þess að niðurstöður frekari rannsókna geti leitt til aukinna gæða og aukins öryggis í heilbrigðisþjónustu. Er það jafnframt í samræmi við II. kafla laga um landlækni og lýðheilsu sem fjallar um eftirlit með heilbrigðisþjónustu.
Með lagabreytingunni var rannsóknarskylda embættis landlæknis í kvörtunarmálum samkvæmt 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu ekki afnumin. Hins vegar getur landlæknir eftir lagabreytinguna framkvæmt frummat á kvörtun með tilheyrandi rannsókn og tekið í framhaldinu ákvörðun um hvort kvörtun gefi nægar ástæður til rannsóknar og hvort líklegt sé að niðurstöður rannsóknar geti leitt til aukinna gæða og aukins öryggis heilbrigðisþjónustu. Bendi kvörtun og fylgigögn hennar ekki til þess að slíkar aðstæður séu uppi í kvörtunarmáli er landlækni heimilt að ljúka máli án útgáfu álits. Við það mat getur embættinu borið skylda til að afla frekari gagna um atvik máls og heilbrigðisþjónustuna sem er til skoðunar að öðru leyti.
Af framangreindu má ráða að með 6. gr. laga nr. 103/2023 sem gerði breytingar á 12. gr. laga nr. 41/2007 og öðlaðist gildi 1. september 2024 var gerð breyting á málsmeðferð embættis landlæknis í kvörtunarmálum samkvæmt 12. gr. laganna. Meginreglan er að yngri lög ganga framar eldri lögum, þ.e. að þegar ný lög taka gildi þá falla eldri lög úr gildi.
Fjallað hefur verið um lagaskil og afturvirkni laga í greinum fræðimanna, m.a. um skýringu á tengslum eldri laga. Fræðimenn hafa byggt á því að við nánari skýringu á tengslum eldri laga og yngri ráði úrslitum hvort yngri lög taki til réttarsambands á meðan það er að mótast, þegar verið er að stofna til þess eða þegar það er komið í endanlegt horf og reglur þess snúist þá um efni þess og réttaráhrif (Sigurður Líndal: „Um lagaskil og afturvirkni laga.“ Úlfljótur, 1. tbl. 2006). Af framangreindu má ráða að með yngri lögum verður ekki hróflað við sjálfu mótunarferlinu í tíð eldri laga, heldur eingöngu þeirri skipan mála sem gerð hefur verið með stoð í þeim lögum og ætlun er að standi til frambúðar. Menn verði því að sætta sig við að ný lög raski að einhverju leyti þeirri réttarstöðu sem menn nutu samkvæmt eldri lögum. Síðar í sömu grein kemur fram að ekki verði hjá því komist að framvirkar réttarreglur raski að einhverju leyti réttarstöðu sem náð hefur festu. Þá gerist það að réttarskipan sem komin var á áður en hin nýju lög gengu í gildi verði framvegis að laga að þeim reglum.
Markmið umræddra breytinga á 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu var að stemma stigu við þeim fjölda kvartana sem hafa borist embætti landlæknis á síðustu árum án þess að atvik kvörtunar bendi til að mistök eða vanræksla hafi orðið við veitingu heilbrigðisþjónustunnar sem kvartað er yfir eða eitthvað bendi til þess að kvörtun eða álit vegna kvörtunar leiði til bættra gæða í heilbrigðisþjónustu eða komi til með að tryggja öryggi sjúklinga. Frá því að lögin voru samþykkt liðu rúmlega átta mánuðir áður en ákvæði 6. gr. þeirra, sbr. breytingar á 12. gr. laga nr. 41/2007, tók gildi. Þeir sem hafi notið heilbrigðisþjónustu fyrir samþykkt laganna eða gildistöku þeirra hafi því haft tækifæri til að kvarta til landlæknis fyrir gildistöku þeirra.
Líkt og áður greinir var rétturinn til að kvarta til landlæknis ekki skertur með 6. gr. laga nr. 103/2023. Hins vegar var málsmeðferð embættis landlæknis breytt með lögunum. Embætti landlæknis ber áfram skylda samkvæmt stjórnsýslulögum við móttöku og meðferð kvartana til að rannsaka hvort kvörtun gefi tilefni til frekari rannsóknar og útgáfu álits. Við það mat hefur þungamiðja rannsóknar embættisins hins vegar, líkt og áður greinir, verið færð frá því hvort um mistök eða vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustunnar hafi verið að ræða í tilviki sem leiddi til kvörtunarinnar. Þess í stað beinist meginþungi rannsóknar embættisins bæði í upphafi og við frekari rannsókn að því hvort landlæknir telji að kvörtun gefi nægar ástæður til rannsóknar eða hvort líklegt sé að niðurstöður rannsóknar geti leitt til aukinna gæða í heilbrigðisþjónustu eða aukins öryggis við veitingu heilbrigðisþjónustu.
Í fyrirliggjandi máli átti það atvik sér stað, sem var grundvöllur að kvörtun kæranda, sér stað fyrir gildistöku breytingarákvæðanna. Hins vegar barst kvörtun kæranda landlækni ekki fyrr en eftir að ný ákvæði 6. gr. laga nr. 103/2023 tóku gildi. Í lagabreytingunni fólst hins vegar ekki að réttur einstaklinga, sem telja sig hafa orðið fyrir meintum mistökum eða vanrækslu við að þiggja heilbrigðisþjónustu, hafi verið skertur. Sá réttur er óbreyttur frá fyrri lögum. Aftur á móti var með lagabreytingunni breytt málsmeðferð embættisins þegar kvörtun berst í betra samræmi við tilgang heimildarinnar til kvörtunar í 12. gr. sem er staðsett í II. kafla laga nr. 41/2007, sem fjallar um eftirlit með heilbrigðisþjónustu.
Breytingu á málsmeðferð embættisins í kvörtunarmálum samkvæmt 12. gr. laga nr. 41/2007, sbr. 6. gr. laga nr. 103/2023, er ekki að rekja til ákvörðunar embættis landlæknis þar að lútandi. Breytingin er tilkomin vegna lagabreytingar sem kveður, með nokkuð ítarlegum hætti á um málsmeðferð í kvörtunarmálum líkt og áður. Lög nr. 103/2023 voru samþykkt á Alþingi þann 16. desember 2023. Þá hafði frumvarp, sama efnis áður verið lagt fram á 153. löggjafarþingi 2022-2023 auk þess að áður hafði komið fram frumvarp sem miðaði m.a. að því að gera breytingu á 12. gr. laga nr. 41/2007 á 149. löggjafarþingi sem náði ekki fram að ganga. Í öllum tilvikum var frumvarp um breytingu á 12. gr. laga nr. 41/2007 sett í samráðsgátt stjórnvalda.
Með hliðsjón af framangreindu er það mat ráðuneytisins að embætti landlæknis hafi verið heimilt að afgreiða kvörtun kæranda í samræmi við ákvæði 12. gr. laga nr. 41/2007, sbr. 6. gr. laga nr. 103/2023, eftir gildistöku breytingalaganna nr. 103/2023 enda var breyting á málsmeðferð embættisins í samræmi við gildandi lög á þeim tíma sem kvörtun barst embættinu. Þá var réttur kæranda til að kvarta ekki skertur heldur hélst hann óbreyttur. Í lagabreytingunni fólst aðeins breyting á áherslum rannsóknar kvörtunar og heimild embættisins til að ljúka kvörtunarmáli án frekari ítarlegrar rannsóknar ef gögn kvörtunarmáls bentu ekki til þess að frekari rannsókn myndi leiða til aukins öryggis eða aukinna gæða við veitingu heilbrigðisþjónustu. Breytingin hefur átt sér langan aðdraganda og var til þess fallin að styrkja tilgang 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, sem er staðsett í II. kafla laganna sem fjallar um eftirlit með heilbrigðisþjónustu.
Í niðurstöðu embættis landlæknis í máli kæranda kemur fram að ekkert bendi til þess að kærandi hafi orðið fyrir mistökum eða vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu í kjölfar bílslyssins sem hún lenti í í janúar árið 2022 eða í aðdraganda greiningar á MS-sjúkdómnum árið 2023. Er niðurstaða embættisins byggð á kvörtun kæranda og töluverðu magni gagna sem fylgdi kvörtuninni. Þá tiltekur embættið að gögn málsins beri ekki með sér að tilefni sé til frekari faglegrar rannsóknar eða mats sem geti leitt til aukinna gæða eða aukins öryggis við veitingu heilbrigðisþjónustu. Er það niðurstaða ráðuneytisins með hliðsjón af framangreindu svo og öllum gögnum málsins sem lágu fyrir hjá ráðuneytinu við meðferð kærumálsins að embætti landlæknis hafi rannsakað mál kæranda með fullnægjandi hætti og komist að niðurstöðu, sem embættið rökstuddi í niðurstöðu sinni, á þeim grundvelli. Málsmeðferð embættis landlæknis hafi af þeim sökum verið lögum samkvæm í tilfelli kvörtunarmáls kæranda. Er hún því staðfest.
Ú r s k u r ð a r o r ð
Málsmeðferð embættis landlæknis í kvörtunarmáli kæranda sem lauk með ákvörðun embættisins, dags. 13. febrúar 2025, er staðfest.