20 ágúst 2025
/
Mál nr. 75/2025 Úrskurður 20. ágúst 2025
Mál nr. 75/2025 Eiginnafn: Latína (kvk.)
Hinn 20. ágúst 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 75/2025 en erindið barst nefndinni 25. júlí 2025.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Latína (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Latínu, og stríðir hvorki gegn hljóðskipunar- né beygingarreglum íslensks máls. Í málinu reynir aftur á móti á hvort nafnið uppfylli skilyrði nr. 2 að ofan um að nöfn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
Í athugasemdum með frumvarpi til núgildandi laga um mannanöfn segir m.a að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafi sér hefð í íslensku máli. Þær hefðir taka sérstaklega til gerðar mannanafna og merkingar þeirra. Orðið latína er samnafn, nánar tiltekið heiti tungumáls. Önnur dæmi um slík heiti eru til að mynda danska, norræna, fornháþýska, gríska og þýska, sbr. grein 1.3.4. íslenskra ritreglna, sbr. auglýsingar nr. 695/2016 og 800/2018 með síðari breytingum. Heiti tungumála hafa ekki verið notuð sem eiginnöfn og nöfn af því tagi eru ekki í samræmi við þær reglur sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli og brjóta gegn íslensku málkerfi.
Jafnvel þótt litið yrði svo á að orðið latina merki kona eða stúlka af rómönskum uppruna, eins og byggt er á í umsókn, væri slík nafnmyndun heldur ekki í samræmi við hefð íslenskrar tungu og arfleifð hennar. Vísanir til þjóða og þjóðflokka hafa verið notaðar í íslensku í viðurnefnum, t.d. Jón sænski og Holgeir danski, en ekki er hefð fyrir þeim sem eiginnöfnum eða millinöfnum. Jafnframt skal þess getið til hliðsjónar að heiti eins og Reykvíkingur eða Gaflari geta ekki verið eiginnöfn skv. íslenskri hefð, sbr. úrskurð mannanafnanefndar í máli nr. 35/2024 (Móari).