21 ágúst 2025
/
Mál nr. 264/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 264/2025
Fimmtudaginn 21. ágúst 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 28. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. apríl 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. október 2024 og var umsóknin samþykkt 30. október 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. apríl 2025. Með bréfi, dags. 29. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. júní 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust frá kæranda 12. og 16. júní 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. júní 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að engin leið hafi verið fyrir hann að komast til Egilsstaða 2. apríl 2025 þar sem hann sé ekki með ökuréttindi. Hann sé nýfluttur á B og eigi aðeins nokkra vini sem hafi verið í vinnu þann dag. Kærandi sé einhleypur og atvinnuleysisbætur séu einu tekjur hans. Hann þurfi að greiða leigu á herbergi, mat og gjöld sem hann skuldi í C. Kærandi hafi verið í mjög stressandi stöðu á þessum tíma og hafi margoft hringt í Vinnumálastofnun og spurt út í mál sitt.
Þann 26. febrúar 2025 hafi kærandi flogið til Íslands og hafi síðan þá dvalið á B. Fólk geti staðfest það auk þess sem hann hafi sent inn kvittanir frá D. Kærandi vilji fá vinnu sem sjáist kannski á skilaboðum sem hann hafi sent í febrúar 2025 þar sem hann hafi óskað eftir aðstoð við að fá vinnu á Íslandi.
Kærandi óski eftir því að mál hans verði endurskoðað þar sem það sé honum mjög mikilvægt.
Kærandi bendi að lokum á að hann hafi tilkynnt þann 1. apríl 2025 að hann kæmist ekki í boðað viðtal þar sem hann hafi ekki haft neinn möguleika á að komast á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og óskað eftir rafrænu viðtali. Þeirri beiðni hafi ekki verið svarað.
Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar ítreki kærandi að hann hafi tilkynnt í nokkur skipti að hann myndi ekki mæta á fundinn þann 2. apríl 2025. Skrár yfir símtöl frá 1. og 2. apríl 2025 styðji það. Kærandi hafi einnig tilkynnt forföll í gegnum hlekk sem Vinnumálastofnun hafi sent þann 1. apríl 2025. Kærandi sé því ósammála þeirri skoðun Vinnumálastofnunar að hann hafi ekki tilkynnt forföll.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 2. október 2024. Með erindi, dags. 30. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 1. apríl 2025 hafi kærandi verið boðaður til viðtals við ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Egilsstöðum þann 2. apríl 2025, klukkan 13:00. Kærandi hafi verið upplýstur um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 1. apríl 2025, klukkan 12:56. Kærandi hafi boðað forföll og sagst ekki geta mætt sökum þess að hann væri staddur fjarri Egilsstöðum og auk þess hefði hann ekki aðgang að bíll. Af þeim sökum gæti hann ekki mætt í boðað viðtal. Kærandi hafi óskað eftir því að viðtalið færi fram með rafrænum hætti.
Með erindi, dags. 4. apríl 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hefði ekki mætt til boðaðs viðtals og að hann myndi skila inn afriti af flugfarseðlum. Áréttað hafi verið að hefði kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.
Skýringar kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 4. apríl 2025. Kærandi hafi skilað inn skjáskoti af notkun á bankareikningi sínum þar sem fram hafi komið að hann hefði verslað í verslun á Íslandi þann 1. apríl 2025. Kærandi hafi síðar eða þann 14. apríl 2025 sent afrit af flugfarseðli þar sem fram hafi komið að kærandi hefði átt flug þann 26. febrúar 2025 frá C til Íslands. Jafnframt hafi borist skýringar frá kæranda þar sem hann hafi kveðist hafa boðað forföll í boðað viðtal þann 2. apríl 2025. Hann hafi ekki getað komist í boðað viðtal þar sem hann hefði verið staddur á B. Í því samhengi hafi kærandi bent á að hann væri hvorki með bílpróf né hefði aðgang að bíl. Hann væri að auki einstæður og með takmarkað bakland en hafi ítrekað að hann væri staddur á Íslandi.
Með erindi, dags. 25. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans sökum þess að hann hefði ekki sinnt boðun í viðtal þann 2. apríl 2025. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal þann 2. apríl 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tímasetning og staðsetning hafi verið tilgreindar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa.
Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Skýringar kæranda lúti að því að hann hafi hvorki bifreið til umráða né gilt ökuskírteini. Þó verði að líta til þess að kærandi hafi ekki tilkynnt um forföll og þá verði ekki fallist á að umráð yfir bifreið eða ökuréttindi séu forsenda þess að atvinnuleitendur geti sinnt skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki í skýringum sínum fært fram gildar ástæður fyrir fjarveru í boðað vinnumarkaðsúrræði í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr. beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 1. apríl 2025 boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Egilsstöðum sem fara átti fram þann 2. apríl 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga. Kærandi boðaði forföll samdægurs og óskaði eftir rafrænu viðtali þar sem hann væri búsettur á B og væri ekki með ökuréttindi. Af gögnum málsins verður ekki séð að Vinnumálastofnun hafi svarað kæranda eða brugðist við erindi hans með einhverjum hætti.
Úrskurðarnefndin bendir á að beiting viðurlaga samkvæmt 58. gr. laganna er íþyngjandi ákvörðun og verður því að mati nefndarinnar að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði. Að mati úrskurðarnefndarinnar bar Vinnumálastofnun að bregðast við erindi kæranda strax og hann tilkynnti að hann kæmist ekki í viðtalið, t.d. með því að samþykkja rafrænt viðtal en nefndin telur að fullt tilefni hafi verið til þess í ljósi takmarkaðra almenningssamgangna á milli B og Egilsstaða.
Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun um forföll vegna boðaðs viðtals er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki hafi verið heimilt að beita viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006. Að því virtu er hin kærða ákvörðun felld úr gildi.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. apríl 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er felld úr gildi.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir